Uppbygging sjálfsaga - Uppeldi til ábyrgðar (Restitution) er hugmyndakerfi sem starfsfólk Giljaskóla kennir og notar í samskipta- og agamálum. Stefnan er í daglegu tali nefnd Uppbygging. Lögð er áhersla á kennslu sjálfsaga, sjálfsstjórn og uppbyggileg samskipti.

Uppbygging miðar að því að finna leiðir til lausna á ágreiningsmálum, skoða hvernig við viljum vera, hver hlutverk okkar eru og hvaða þarfir liggja að baki hegðun okkar. Ef vel tekst til skapast aðstæður fyrir einstaklinginn til að leiðrétta og bæta fyrir mistök sín, gera betur og snúa síðan aftur til hópsins með aukið sjálfstraust.

Uppbygging leggur áherslu á samskipti fremur en reglur, ábyrgð fremur en blinda hlýðni og virðingu fremur en ytri umbun.

Uppbygging eflir hæfileikann til sjálfsstjórnar og hvernig brugðist er rétt við aðstæðum. Nemendum er kennt að taka ábyrgð á eigin orðum og gerðum. Markmiðið er að lifa við öryggi.

Kennari og nemendur ákveða í sameiningu hvaða lífsgildi þeir vilja hafa að leiðarljósi í bekknum og einbeita sér síðan að því að finna út hvernig þeir geta haft  grundvallaratriði gildanna í heiðri.  Nemendur og kennari koma sér saman um hlutverk beggja.  Uppbygging á samhljóm í markmiðum Aðalnámskrár í lífsleikni og er okkar leið til að fylgja eftir sýn Giljaskóla.

Í aðferðafræði Uppeldis til ábyrgðar er lögð  áhersla á:

  • Uppbyggileg samskipti

  • Sjálfsskoðun

  • Kennslu sjálfsaga

  • Að finna leiðir til lausnar

  • Að við stjórnumst af innri hvötum frekar en ytri aðstæðum

  • Að gefa tækifæri til að leiðrétta mistök

  • Að skoða hvernig við viljum vera frekar en hvað við erum að gera

  • Að finna þörfina bak við óskina

Grunnþarfirnar 5

Samkvæmt Uppbyggingu þurfum við reglulega að uppfylla meðfæddar grunnþarfir okkar fyrir að  tilheyra, hafa áhrif, njóta frelsis og gleði til að við getum verið lífsglöð, hamingjusöm og örugg. Orsök vanlíðunar og slæmrar hegðunar er sú að einstaklingurinn nær ekki að uppfylla grunnþarfir sínar á jákvæðan hátt.

Hugmyndin með flokkun grunnþarfanna er sú að kennarar og nemendur eigi auðveldara með að greina og skilja ólíkar þarfir. Nemendur læra að þekkja tilfinningar sínar, ná meiri sjálfstjórn og kennarinn getur betur komið til móts við ólíkar þarfir nemenda sinna.

Þarfahringurinn

    

Nemendur læra hverjar grunnþarfirnar 5 eru. 

Nemendur þjálfast í að skoða hvernig þeir geta uppfyllt þarfir sínar á jákvæðan hátt án þess að það komi niður á þeim sem í kringum þá eru.  Þeir þjálfast líka í að ræða um þarfir sínar og tilfinningar og að leysa ágreining á jákvæðan hátt.

Dæmi um birtingarmyndir grunnþarfanna:

 Rík þörf fyrir að tilheyra:

  - Vil að öðrum líki við mig
- Er háður foreldrum mínum
- Vinn fyrir kennarann
-
 Félagar skipta mig miklu
-
 Finnst gaman í hópvinnu

 

Rík þörf fyrir áhrif:

  - Vil hafa stjórnina
-
 Fylgist vel með áður en ég prófa nýtt
-
 Stressast ef mér mistekst
-
 Er mjög skipulagður
-
 Þarf helst að vera bestur

Rík þörf fyrir frelsi:

  - Vil hafa valmöguleika
-
 Þarf að vera á ferðinni
-
 Hef gaman af tilraunum
-
 Er sama hvað öðrum finnst
-
 Vil prófa nýja spennandi hluti

Rík þörf fyrir gleði:

  - Verð að njóta vinnunnar
-
 Einbeiti mér ef mér finnst gaman
-
 Vil leika trúð, vera fyndinn
-
 Skemmti mér, jafnvel þótt ég sé skammaður

 

Öryggi: Húsnæði, fæði, heilsa, klæði, hvíld og afkoma

Við reynum að mæta mismunandi þörfum nemenda. Við tökum mið af því að allir nemendur þurfa að finna fyrir öryggi.

Mitt hlutverk / þitt hlutverk

Skilgreining á hlutverkum er í raun vinnulýsing nemenda og starfsmanna. Það eykur öryggi að þekkja hlutverk sitt. Einn kosturinn við að skilgreina hlutverk er sá að hægt er að fækka reglum því meginreglan verður sú að manni ber að sinna hlutverki sínu.

Dæmi um skilgreiningu á hlutverkum:


Kennari 

Mitt hlutverk er að:

Kenna
Meta vinnu
Koma undirbúinn
Aðstoða og útskýra
Tala við foreldra
 


Nemandi
 

Mitt hlutverk er að:

Læra
Fara að fyrirmælum
Sýna kurteisi
Gera mitt besta
Koma undirbúinn
 

Lífsgildi og bekkjarsáttmálar

Bekkurinn sammælist um gildi sem hann telur mikilvægust í samskiptum og gerir bekkjarsáttmála í framhaldi af þeirri vinnu.  Allir skrifa undir sáttmálann. Hvert gildi er skoðað sérstaklega; hvað í því felst, hvernig það birtist í orðum, gerðum og tilfinningum og hver andstæða þess er.
Best er að nemendur vinni eins mikið sjálfir og unnt er því ferlið er jafn mikils virði og útkoman.
Samkomulag í formi sáttmála er grundvallaratriði fyrir sjálfstjórn einstaklinganna í hópnum. Áherslan er færð frá ytri reglustjórnun með beitingu tilbreytingarlítilla viðurlaga í átt að uppbyggingarstjórn með áætlunum byggðum á gildismati.

 

Skýr mörk

Í Uppbyggingu setur skólinn skýr mörk þ.e. ófrávíkjanlegar grundvallarreglur um óásættanlega hegðun. 

Þegar farið er yfir þau skýru mörk er oftast brugðist við með því að viðkomandi nemandi er fjarlægður úr hópnum. Yfirleitt er hann færður til stjórnanda sem ákveður hver séu næstu skref. Í kjölfarið er rætt við barnið og það aðstoðað við að gera áætlun um hvernig það geti mætt þörfum sínum, án þess að ógna öryggi sínu eða annarra. Hvernig það geti lært af mistökum sínum og þannig byggt upp innri styrk.

Skýr mörk, grundvallarreglur. 

Í Giljaskóla eigum við aldrei að:

  • Beita ögrunum eða andlegu- og líkamlegu ofbeldi.·

  • Koma með eða beita bareflum/vopnum eða eldfærum.

  • Neyta tóbaks eða annarra ávana- eða fíkniefna, hvorki í eða við skólann eða nokkurs staðar þar sem við erum á vegum skólans.

  • Klifra á handriðum í skólanum eða henda einhverju milli hæða.

Höfundur Uppbyggingarstefnunnar er kanadíski uppeldisfræðingurinn Diane Gossen. Diane hefur ásamt nánasta samstarfsmanni sínum, Judy Anderson, unnið að framgangi stefnunnar í mörgum löndum og hafa þær  meðal annars kennt á námskeiðum hér á landi.
Giljaskóli hefur unnið samkvæmt Uppbyggingarstefnunni frá árinu 2006.  Margir aðrir skólar vinna samkvæmt stefnunni, m.a. Álftanesskóli, Garðaskóli, Heiðarskóli, Brúarskóli, Grundaskóli og grunnskólar Grindavíkur, Borgarness, Ísafjarðar og Grenivíkur.

Gagnlegar vefslóðir:

www.realrestitution.com / Heimasíða stofnunar Diane Gossen - Restitution
www.glasser.com / Heimasíða stofnunar Glassers. Upplýsingar um gæðaskólann.
www.alftanesskoli.is / Hnappur  - Uppeldi til ábyrgðar.
www.sunnuhvoll.com / Heimasíða Magna Hjálmarssonar.
www.alfiekohn.org  / Heimasíða Alfie Kohn.
netla.khi.is/greinar/2007/003/index.htm / Grein um Uppeldi til ábyrgðar eftir Magna Hjálmarsson og Guðlaugu Erlu  Gunnarsdóttur

Sýn Giljaskóla tekur mið af því hvað kemur einstaklingi best að tileinka sér til að ná góðum árangri í lífinu. Metnaður, víðsýni og ábyrgð eru undirstaða góðs námsárangurs en virðing, lífsgleði og kærleikur höfða til félags- og tilfinningaþroska sem er nauðsynlegur fyrir farsæl samskipti í leik og starfi.