Umsóknarfrestir styrkja:

Mikilvægt er að þið skoðið heimasíður styrkveitenda  þ.s. dagsetning umsóknarfrests gæti hafa breyst!

2012

janúar-maí
 Nordjobb

1. febrúar
Norræni menningarsjóðurinn

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn
Norræna barna- og unglinganefndin (NORDBUK) verkefnastyrkir

Styrkir til dvalarsetra (KKN)

9. febrúar
Ferðastyrkir (KKN)

13. febrúar
NATA (Vestnorræna ferðamálaráðið)

15. febrúar
Letterstedtska föreningen

28. febrúar
Menningarsjóður Íslands og Finnlands

29. febrúar
Tengslanet styttri tími (KKN)

lok febrúar
Þjóðhátíðargjöf Norðmanna

 Norskt-íslenskt menningarsamstarf  (enginn fastur umsóknarfrestur en stjórn kemur saman í mars)

1. mars
Menntaáætlun Nordplus 2012-2016

6. mars

Hæfnisþróun (KKN)
Framleiðslumiðuð starfsemi 

15. mars
Norrænn Þýðingastyrkur

26. mars
Grænlandssjóður

1. apríl
Norræni menningarsjóðurinn
Norræna barna- og unglinganefndin (NORDBUK) verkefnastyrkir
Dansk-islandsk fond
Norrænn Þýðingastyrkur

? apríl
Þjóðhátíðargjöf Norðmanna

11. apríl
Frjáls félagasamtök. NGO (Eystrasaltsríkin o.fl.)

15. apríl
Dansk íslenski samstarfssjóðurinn (Fondet for Dansk-Islandsk samarbejde)

18. apríl
Ferðastyrkir (KKN)

15. maí
Norrænn Þýðingastyrkur

1. júlí
Lýðháskólastyrkir Norræna félagsins

15. júlí
Norrænn Þýðingastyrkur

29. ágúst
Ferðastyrkir (KKN)

1. september
Norræni menningarsjóðurinn

Norræna barna- og unglinganefndin (NORDBUK) verkefnastyrkir

11. september
Hæfnisþróun (KKN)
Framleiðslumiðuð starfsemi 

15. september
Norrænn Þýðingastyrkur
Letterstedtska föreningen

1. október
Norræni menningarsjóðurinn

Dansk-Islandsk fond

10. október

Tengslanet styttri tími  (KKN)
Tengslanet lengri tíma (KKN)

15. október
Dansk íslenski samstarfssjóðurinn (Fondet for Dansk-Islandsk samarbejde)

31. október
Ferðastyrkir (KKN)

15. nóvember
Norræna barna- og unglinganefndin (NORDBUK) verkefnastyrkir

15. nóvember
Norrænn Þýðingastyrkur

1. desember
Lýðháskólastyrkir Norræna félagsins

Mun fleiri norrænir styrkir eru í boði.
Á eftirtöldum heimasíðum eru ítarleg yfirlit norrænna styrkja eftir málaflokkum og eða löndum:


Norræna
ráðherranefndin


Nýsköpunarmiðst. Íslands

Á heimasíðu Norræna menningarsjóðsins er ítarlegt yfirlit tvíhliða norrænna styrkja

Norræni menningarsjóðurinn


Norrænir Styrkir

Norræna ráðherranefndin og Norðurlandaráð
Á heimasíðunni www.norden.org er ítarlegt yfirlit yfir norrænar styrkjaáætlanir flokkaðar eftir málaflokkum og löndum.

Norræni menningarsjóðurinn
Markmið sjóðsins er að stuðla að menningarsamstarfi milli Norðurlandanna, Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar auk sjálfstjórnarsvæðanna Færeyja, Grænlands og Álandseyja. Þetta á við um menningarsamstarf bæði innan og utan Norðurlanda. Nánari upplýsingar um verkefni sjóðsins eru í starfsáætlun stjórnar.
Sjóðurinn vinnur á sviði lista- og menningar, bæði með atvinnu- og áhugamönnum. Sjóðurinn styrkir starfsemi sem uppfyllir kröfur um framsýni, aðgengi og fjölbreytni þar sem bæði hefðbundin og ný vinnuform fái að þróast. Styrkir eru veittir til að mynda til þess að halda ráðstefnur, tónleika, leikferðalög, sýningar, hátíðir, til rannsókna- og menntunarverkefna. Verkefnin má vinna hvort heldur er, innan eða utan Norðurlanda. Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér vel áherslur sjóðsins árið 2010 og fari vel yfir leiðbeiningar fyrir umsækjendur sem einnig eru að finna á heimasíðu sjóðsins.

Í stjórn sjóðsins sitja bæði fulltrúar frá Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni. Nánari upplýsingar um störf þeirra og aðrar norrænar styrktaráætlanir er að finna á www.norden.org

Kulturkontakt Nord/Menningargáttin
Norræna menningargáttin er skrifstofa tveggja menningaráætlana. Áætlanirnar ná yfir ólíkar tegundir verkefna og veita allt frá ferðastyrkjum til verkefnastyrkja til allt að þriggja ára. Þær sinna allri menningar- og listastarfsemi.

Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn
Norræni kvikmynda og sjónvarpssjóðurinn styður við norræna gæða kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu með fjármagnsstyrkjum til framleiðsluþróunar og framleiðslu kvikmynda, sjónvarpsmynda/þátta og skapandi heimildarmynda. Sjóðurinn styrkir einnig dreifingu og þýðingu norrænna kvikmynda innan Norðurlandanna og frumkvæði sem tengist kvikmyndagerð og norrænni menningu. Nánari upplýsingar á vefsíðunni.

Norræna tölvuleikjaáætlunin
Markmiðið með Norrænu tölvuleikjaáætluninni er að tryggja árangursríkt skipulag fyrir þróendur, framleiðendur og dreifingaraðila tölvuleikja. Miðað er að því í áætluninni að samhæfa norrænar aðgerðir, tryggja upplýsingamiðlun og auka fagþekkingu. Norræn einkafyrirtæki geta sótt um styrki í áætlunina.

Ýmsir sjóðir:

Clara Lachmanns fond
Tilgangur sjóðsins: Að stuðla að skandinavískri einingu.  Rannsóknir, rannsóknarferðir, námskeið (einstaklingar, hópar) og fleira.
Umsóknarfrestur: 15 janúar (póststimpill 14. janúar)

Letterstedtska föreningen
Tilgangur sjóðsins:  Að byggja upp bræðralund milli Norðurlandanna með áherslu á iðnað, vísindi, listir og menningu.
Umsóknarfrestur: 15. febrúar og 15. september
Umsóknareyðublað: Umsækjendur útbúa umsókn sjálfir og láta fjárhagsáætlun fylgja.

Menningarsjóður Íslands og Finnlands
Tilgangur: Auka menningartengsl Íslands og Finnlands.  Sjóðurinn veitir árlega ferðastyrki og annan fjárstuðning til einstaklinga og jafnvel til félaga eða stofnana.  Styrkir eru að jafnaði ekki veittir til að sækja norrænar ráðstefnur.  Sjá nánar hér
Umsóknarfrestur: 28. febrúar
Umsóknareyðublað: Fæst hjá Menningarsjóði Íslands og Finnlands í Reykjavík.

Sjóðurinn fyrir danskt-íslenskt samstarf (Fondet for dansk-islandsk samarbejde)
Tilgangur: Auka tengsl og skilning milli Íslands og Danmerkur með styrkjum sem hafa m.a. verið veittir til tungumálakennslu, námsferða, listsýninga og rannsókna.
Umsóknarfrestur: 15. apríl og 15. október.
Sækið um á heimasíðu sjóðsins.

Dansk-islandsk fond
Tilgangur: Auka tengsl Íslands og Danmerkur með styrkjum til rannsóknarverkefna og til nemenda við háskóla og kennaraháskóla.
Umsóknarfrestur: 1.
apríl og 1. október.
Umsóknir skulu sendar Dansk-Islandsk Fond, Sankt Annæ Plads 5, DK-1250 København K. á umsóknareyðublöðum sem þar fást. (Sími: 0045-33148276).

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn
Markmið sjóðsins er að auka samstarf og upplýsingaflæði á milli Íslands og Svíþjóðar á sviði  menningar- menntunar- og samfélagsmála. Veittir eru styrkir til einstaklinga og stofnana bæði á Íslandi og í Svíþjóð.
Umsóknarfrestur: 1. febrúar

Framlag til norsks-íslensks menningarsamstarfs
Markmið framlagsins er að stuðla að fjölbreyttu menningarsamstarfi Noregs og Íslands og geta Norðmenn og Íslendingar sótt um framlag til verkefna sem mikilvæg teljast í báðum löndum og vera líkleg til að leiða til varanlegra tengsla milli fagmanna, listamanna og fræðimanna. Verkefnin skulu endurspegla fjölbreytt listræn form og hafa í senn skírskotun til sögunnar og samtímans.
Fyrirkomulag á mati á verkefnum er sveigjanlegt þannig að ekki er um formlegan umsóknarfrest að ræða.  Ráðuneyti beggja landa meta þó umsóknir að jafnaði í mars á hverju ári en ef ástæða þykir til munu umsóknir metnar á öðrum tíma.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu www.menntamalaraduneyti.is

Styrkur ti Noregsfarar
Tilgangur sjóðsins er að auðvelda Íslendingum að ferðast til Noregs. Í þessu skyni skal veita viðurkenndum félögum, samtökum, og skipulögðum hópum ferðastyrki til Noregs í því skyni að efla samskipti þjóðanna t.d. með þáttöku í mótum, ráðstefnum, eða kynnisferðum, sem efnt er til á tvíhliða grundvelli. Ekki skal úthlutað ferðastyrkjum til einstaklinga, eða þeirra sem eru styrkhæfir af öðrum aðilum.
Nánari upplýsingar www.menntamalaraduneyti.is

Menningarsamstarf Sama
Veitir styrki til  Sama, samískra stofnana og samtaka sem vinna að verkefnum sem ætlað er að efla samíska menningu.
Nánari upplýsingar fást hjá: saamicouncil@saamicouncil.net
Lesið meira á síðu Norrænu ráðherranefndarinnar www.norden.org

Grænlandssjóður
Grænlandssjóður er starfræktur í samræmi við lög nr. 102/1980 til að veita styrki til kynnisferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttasýninga og annarra málefna á sviði lista, vísinda og tæknimála, er eflt geta samskipti Grænlendinga og Íslendinga. Nánari upplýsingar fást á heimasíðu menntamálarðauneytisins http://www.menntamalaraduneyti.is

NATA - North Atlantic Tourist Association
Samstarfssamningi Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála. Í samræmi við áherslubreytingu sem nýr samningur landanna kveður á um er nú hægt að sækja um styrki til tvennskonar verkefna. Annars vegar verkefna í ferðaþjónustu, eins og verið hefur, og hins vegar ferðastyrki, t.d. vegna skólahópa, íþróttahópa eða menningarverkefna.

Samstarfsnefnd um Norðurlandafræðslu erlendis
Norðurlöndin hafa unnið að því að efla kennslu í norrænum tungumálum við háskóla erlendis.  Einnig hefur áhersla verið lögð á fræðslu um norræna menningu og norrænt samfélag sem og að efla áhuga á Norðurlöndunum almennt.
Samstarfsnefndin starfa á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og veitir styrki til samnorrænna verkefna sem sendikennarar/kennarar viðkomandi stofnana hafa frumkvæði að.

Styrkjaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir frjáls félagasamtök á Eystrasaltssvæðinu
Sjóðurinn styrkir frjáls félagasamtök á Norðurlöndunum, í Eystrasaltsríkjunum, Rússlandi og Póllandi, sem vinna að því að efla samstarf milli ríkja á svæðinu. Aðilar að verkefnum skulu vera þrjú frjáls félagasamtök hið minnsta, eitt frá Norðurlandi, eitt frá Eystrasaltsríki og eitt frá annað hvort Rússlandi eða Hvíta-Rússlandi. Sjóðurinn styrkir fyrst og fremst verkefni með þátttöku frá fleiri en einu Norðurlandi og þar sem frjálsu félagasamtökin fjármagna sjálf mikinn hluta verkefnisins.

Skiptidvöl Norrænna ríkisstarfsmanna
Norræna ráðherranefndin hefur síðan 1979 veitt styrk til þess að gera ríkisstarfsmönnum kleift að stunda tímabundið nám eða störf á starfsvettvangi sínum í ríkisstofnunum á hinum Norðurlöndunum. Fyrir 30. nóvember ár hvert þarf að sækja um skiptidvöl næsta almanaksárs.
Umsóknum og fyrirspurnum skal beina til Fjármálaráðuneytisins:  asta.lara.leosdottir@fjr.stjr.is.
Nánari upplýsingar um verkefnið á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar: www.norden.org

Norrænn þýðingastyrkur
Markmiðið með styrkjaáætluninni er að stuðla að fleiri útgáfum vandaðra norrænna bókmennta á öðrum tungumálum en því upprunalega. Með áherslu á tengsl norrænu þýðingastyrkjanna við hvert málsvæði fyrir sig er stefnt að því að efla og auka dreifingu þýddra norrænna bókmennta.

Samstarf við Eystrasaltsríkin:

Mannaskiptaáætlunin fyrir opinbera stjórnsýslu
styrkir embættismenn og aðra opinbera starfsmenn til að fara í námsheimsóknir og þjálfun í öðru ríki, auk þess sem tækifæri gefst til eftirmenntunar og tengslamyndunar.
Mannaskiptaáætlunin fyrir atvinnulíf og iðnað
styrkir starfsmenn í atvinnulífinu og iðnaði til námsheimsókna og þjálfunar í öðru ríki, auk þess sem tækifæri gefst til eftirmenntunar og tengslmyndunar.
Mannaskiptaáætlunin á sviði menningar
styrkir tengslamyndun til lengri og skemmri tíma, listamannadvalir og mannaskipti atvinnulistamanna í öllum listgreinum.

Norræna barna og ungmennanefndin (NORDBUK)
Veitir styrki til verkefna þar sem börn og unglingar eru virkir þátttakendur.  Veittir eru styrkir til stofnana/samtaka og til einstakra verkefna þar sem áhersla lögð á að efla samkennd og áhuga á menningarlegum, pólitískum og félagslegum málefnum Norðurlandanna.
Stofnunum ber að sækja um fyrir komandi starfsár í síðasta lagi 1. október.
Umsóknarfrestur fyrir verkefnastyrki:
1. febrúar, 1. apríl, 1. september og 1. nóvember

Norrænir starfsmenntunarstyrkir
Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands veita nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnskólapróf eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í iðnskólum eða framhaldsnáms iðnskólakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á Íslandi. Nánari upplýsinga hjá Mennta - og Menningarmálaráðuneytinu

Menntaáætlun Nordplus: 
Nordplus horisontal: á að stuðla að samvinnu á milli sviða menntageirans og styðja samstarfsnet og verkefni sem ná til fleiri en einnar undiráætlana Norplus. Umsóknarfrestur 1. mars.
Nordplus fyrir háskólastig:
á að stuðla að samvinnu á milli skóla á háskólastigi í þátttökulöndunum og myndun samstarfsneta þar sem skiptist er á upplýsingum um reynslu, gott fordæmi og niðurstöður byggðar á nýsköpun og þeim miðlað. Einnig á að stuðla að samvinnu skóla á háskólastigi og annarra stofnana og félagasamtaka sem starfa á sviði háskólamenntunar.  Umsóknarfrestur: 1. mars
Nordplus Junior:
á að stuðla að þróun og samvinnu á sviði grunn- og framhaldsskóla (vegna undirbúnings til frekara náms- og iðnmenntunar) milli þátttökulandanna og styðja samstarfsnet leik-, grunn- og framhaldsskóla. 1. mars.
Nordiske sprog:
hefur það að markmiði að bæta málskilning á Norðurlöndum jafnfram því að auka áhuga, þekkingu og skilning á norrænni menningu, málum og lífsháttum.  Umsóknarfrestur 1.mars
Nordplus Voksen:
á að stuðla að þróun samvinnu, samstarfs og samstarfsneta þeirra sem vinna að fullorðinsfræðslu (menntastofnana sem og fyrirtækja, félaga og óháðra félagasamtaka) jafnframt því að stuðla að gæðaþróun og nýsköpun á öllum sviðum fullorðinsfræðslu. Umsóknarfrestur 1. mars

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins www.ask.hi.is Veljið Norrænt samstarf“ til að komast á síðuna.

Styrkir til lýðháskóladvalar á Norðurlöndum
Norræna félagið á Íslandi hefur umsjón með styrkjum til lýðháskóladvalar. Kynnið ykkur málið á www.norden.is

Styrkir til dvalar á völdum íþróttalýðháskólum
Ungmennafélag Íslands hefur gert samning við íþróttaskóla í Danmörku.  Kynnið ykkur málið á heimasíðu þeirra www.umfi.is

 

 



Vefhönnuður: Grétar Orri