Fréttir frá:

Björg Pálsdóttir í Dk. Vestbirk højskole

Katrín og Jakobína Vestjyllandshøjskole

Hrafnhildur í Dk. Ryslinge højskole

Valgeir í Dk.
Musik&teaterskolen

Hanna í Sv.
Ingesunds Folkhögsk.

Guðna í Dk.
Krogerup Højskole

Guðnýju Mörtu DK
Grundtvigs højskole

Viðari í No.
Sandvik fhs.

Ingþóri í No.
Karmøy fhs.

Ágústínu í Dk.
Ryslinge fhs.

Bjarna í Dk.
Uldum højskole


Sólveigu í Dk.
Oure Idrætshøjskole

Önnu í Dk.
Den Skandinaviske Designhøjskole

Bergþór í Dk. Borupshøjskole


Fréttir frá Lýðháskólanemum


Björg Pálsdóttir Vestbirk Hojskole.

Vestbirk hojskole er fyrst og fremst músíkskóli í 18 eða 20 vikur. Fyrsta vikan fer í það að láta okkur kynnast. Þessa viku er mikið skemmtilegt um að vera. Svo á maður að velja um Fög. Liniefag er aðalfag. Tilvalgsfag eru valfög sem maður velur með Liniefag. Liniefag er aðalfagið sem maður velur sér og skipaðar hljómsveitir út frá því. Liniefag sem voru í boði þessa önn voru:

Rock: Á þessari braut er fólk sem spilar Rokktónlist. Computermusic: Á þessari braut lærir maður að búa til tölvutónlist. Jazz: Á þessari braut er spilaður Jazz. Cross Over: Þetta er brautin sem ég er á. Cross Over er braut þar sem allsskonar hljóðfærum er blandað saman og spiluð allskonar tónlist. Funk & Fusion: Á þessari braut er Funk tónlist spiluð. Sangskriver: Þessi braut er fyrir þá sem semja lög sjálfir og maður lærir að útsetja þau. Musical: Þetta er söngleikjadeild. Í lok annarinnar sýna þau söngleikinn. Folkemusik & Klassisk er líka kennd en því miður voru ekki nógu margir nemendur hérna til þess að fylla upp í þessar brautir.

Tilvalgsfag: það er svo rosalega misjafnt hvað er kennt hverja önn en allar upplýsingar eru á heimasíðu skólans.

Kennararnir eru hreint út sagt yndislegir og rosalega gott samband milli kennara og nemenda. Í þessum skóla er mikið um að vera og mikið að gerast. Það er allt gert fyrir okkur og við erum nokkur frá öðrum löndum og við fáum dönskukennslu ef við viljum. Annars ræður maður hvort maður talar ensku eða dönsku en hérna tala allir dönsku.

Í 2 vikur seinnipart annarrinar gerum við leikrit. Og í ár vorum við með leikrit sem hét “Afsporet” og var mjög skemmtilegt og var uppselt á allar sýningarnar.

Við höldum Concerta. Fyrst spilum við fyrir krakkanna í skólanum, og svo í lok skólans höldum við risastóra tónleika. Við höldum 4 tónleika í ár.

Seinnipart annarrinnar er farið í stúdíó, hver hljómsveit og Musical fá 2-3 lög sem tekin eru upp á geisladisk. Svo þegar maður útskrifast fær maður mynd af öllum nemendunum og geisladiskinn.

Ég mæli rosalega með þessum skóla. Kær kveðja Björg! Ef þið viljið vita eitthvað meira þá hef ég e-mail: bjorg85@hotmail.com og heimasíðu, og þar er fullt af myndum frá skólalífinu: Http://blog.central.is/gitargirl

Annars er heimasíða skólans: Http://www.vestbirk-hojskole.dk  Ef þið viljið senda fyrirspurn til skólans þá er e mailið: info@vestbirk-hojskole.dk 


Katrín Sif Ingvarsdóttir og Jakobína Ósk Sveinsdóttir i Vestjyllandshøjskole i Dk.

13.10.2005

Í skólanum okkar, sem heitir Vestjyllandshøjskolen, eru um 30 nemendur og mikið og náið samband er á milli kennara og nemenda. Til að mynda búa kennararnir næstum allir á skólalóðinni og borða með okkur ásamt fjölskyldum sínum á hverjum degi. Fyrsta vikan í skólanum fer algjörlega í að kynnast fólki, umhverfi og námsgreinum sem maður getur síðan valið á milli. Fögin sem um var að velja í ár voru:

Ecology. Hvorug okkar er í þessu fagi en okkur skilst að það fjalli um jarðyrkju og hvernig má nýta náttúruna á umhverfisvænan hátt. Nemendur þessa áfanga hafa t.d. byggt risastórt hálmhús en það var áður en við komum hingað
Pictorial art:
Nemendur læra ýmsar gerðir listmálunar, jafnvel ljósmyndun.
Theater: Hér lærum við að skapa karaktera og vinna með þá. Einnig hvernig við getum notað okkar eigin líkama til tjáningar.
Music:
Við erum hvorugar í tónlist en þegar við vorum búnar að vera hérna í 1 viku sýndi tónlistarhópurinn hvað þau höfðu gert á þessum stutta tíma og það var nokkuð tilkomumikið. Ceramics: Hér fá nemendur að hafa nokkuð frjálsar hendur en hafa þó alltaf leiðsögn kennara.
Dans A: Í þessum tímum er boðið uppá margvíslega danskennslu. Dansarnir sem kenndir verða á haustönn eru t.d. Vestur Afrískur dans – samba reggae – capoeira (sem er samt eiginlega bardagaíþrótt) – fönk/breik og ýmislegt fleira.
Dans B: Í þessum tímum er kenndur Flamengo dans.
Storytelling/writing: Við erum ekki í þessum tímum en um skriftarsmiðju er að ræða þar sem nemendur skrifa ljóð, sögur og ævintýri og ýmislegt fleira.
Video Art: Hér læra nemendur að skapa listrænar videomyndir.
Voice-training: Nemendur í þessum tímum (enn á ný ekki við samt) læra að beita röddinni og nota hana eins og nafnið kannski gefur til kynna.
Heimspeki: Hér er um að ræða ótrúlega áhugasaman kennara sem er eflaust gaman að ræða við um heimspeki, ef maður skildi svo góða dönsku!
Salsa Big Band: Salsa Stórhljómsveit. Fusions Kitchen: Þema eldhús þar sem nemendur elda einu sinni í viku fyrir skólann og alltaf eitthvað ákveðið þema.
Sport/outdoor: þetta valdi enginn í ár.... en hér er um útivist að ræða eins og nafnið gefur til kynna. Percussion: Þessum tímum er hægt að líka við stomp. Við lærum á mismunandi trommur og mismunandi takta. rosalega gaman... eins og þetta allt reyndar.

Okkur finnst vera full fáir í skólanum, við bjuggumst við fleirum ef satt skal segja. Samt sem áður er alls ekki hægt að segja að við höfum orðið fyrir vonbrigðum! Námið fór nefnilega fram úr okkar björtustu væntingum og þessir frábæru kennarar sem hérna eru.

Vestjyllandshojskole er ökólógískur skóli, þ.e.a.s. að hér er bara borðaður lífrænt ræktaður maður. Maturinn hérna er mjög góður og alltaf mikil veisla og mikið fyrir honum haft.

Á hverjum degi eftir morgunmat þrífur hver nemandi sinn stað í “sameigninni” (tekur um 5-10 mínútur) og síðan er morgunfundur þar sem við hittumst og gerum eitthvað skemmtilegt saman. Á kvöldin er oftast eitthvað um að vera, tónleikar, kóræfing, íþróttir, sund og annað skipulagt.

Inn á milli er síðan hægt að taka þátt í ýmsum námskeiðum auk þess sem farið verður til Berlínar 9. nóvember í menningarferð. Eftir jól verður síðan farið til Kúbu!

Við gætum talað endalaust finnst okkur bendum frekar á heimasíðu skólans sem er mjög ítarleg. www.Vestjyllandshojskole.dk 

Katrín Sif Ingvarsdóttir og Jakobína Ósk Sveinsdóttir

efst upp

Hrafnhildur í Ryslinge højskole

29.09.2004

Héðan frá Ryslinge højskole er allt frábært að frétta! Hérna í skólanum eru um 85 manns núna og svo koma fleiri í október. Það eru mörg fög í boði í skólanum svo að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Ég valdi dönsku fyrir útlendinga sem aðalfag, það er mjög fínt til að rifja upp dönskuna, svo valdi ég dansk kultur og samfund, það er snilldar áfangi, við erum mest í ferðalögum um Fjón (skólinn er sko á Fjóni) og það er alltaf mjög gaman. Svo er ég í landart, þar erum við bara að gera allt á milli himins og jarðar!  Síðan valdi ég etik, það er svona blanda af sálfræði, félagsfræði og heimspeki, þar er bara rætt um allt mögulegt. En fyrir utan fögin sem ég er í þá eru fullt af öðrum, til dæmis tónlist, photo, dans, hönnun, leiklist, teikning, keramik, íþróttir, friluftsliv, drama, alþjóðleg lína, tónlist frá Ecuador og margt fleira. Annirnar skiptast i tvennt, það er ein önn frá ágúst til október og svo önnur frá oktomber til desember. 

Skólinn er mjög fínn og það er mjög góð aðstaða hérna. Ryslinge er lítill bær með um 2000 íbúum en það eru ekki nema 20 km til Odense svo það þarf ekki að fara langt til þess að komast í bæinn. En það eru nokkur hús hérna í skólanum, í einu húsinu er heimavistin, vid búum öll þar nema ein stelpa, en hún er dagnemi.  À kvöldin þá er oft eitthvað skipulagt en annars er alveg nóg að gera. Ìþróttahúsið er opið, svo eru sjónvörp á nokkrum stöðum, svo er hægt að fara í tölvuverið, pool, fara í lyftingarsalinn, spila borðtennis eða fótboltaspil,spila allskonar spil eða bara spjalla vid hina, það þarf allavega engum að leiðast hérna því að það er alveg nóg að gera eftir skóla. Svo í október þá fer allur skólinn til Barcelona, það á án efa eftir að vera frábært!

Èg sé svo alls ekki eftir því að hafa farið í lýðháskóla! Það er eitthvað sem allir ættu að prófa. Ryslinge er frábær, hann er med mörg fög og leggur ekki áherslu á neitt sérstakt fag heldur er með mjög fjölbreytt úrval af fögum,svo það er mjög blandaður hópur af krökkum hérna með mimunandi áhugasvið og það er ekkert mál að kynnast fólkinu. Flestir koma hérna án þess að þekkja nokkurn svo það standa allir í sömu sporunum þegar þeir koma og þá er bara að byrja að spjalla og kynnast fólkinu!

Kveðja frá Ryslinge www.ryslinge.dk
Hrafnhildur

efst upp

::Valgeir i Musik og Teaterhojskolen::

13.09.2004

Musik og Teaterhojskolen i Toftlund, Danmörk er lítill skóli, sunnarlega á Jótlandi, u.þ.b 20 km frá Sondeborg, og u.þ.b 40 km frá Flensborg í Þýskalandi. Skólinn rúmar um 60 nemendur, en eins og er erum við aðeins 30 nemendur, sem að getur verið mjög gott. Þar á meðal erum við þrír Íslendingar, ein frá Lettlandi, ein frá Ungverjalandi og ein frá Kína. Eins og nafnið gefur til kynna, þá eru þrjár brautir hérna. Tónlist, leiklist og söngur. Námið er hálft ár, og það er hægt að velja 19 eða 12 vikur.
Ég mæli með því að fólk taki lengra námið, því menn kynnast mjög vel á fyrstu vikunum. Ég er á tónlistarbraut, og veit því lítið um leiklistina, nema eitt af valfögum mínum er leikhús fyrir tónlistarbraut. Kennarinn þar er mjög fær, og ég er mjög ánægður með þá tíma. Í stuttu máli, þá er sviðsframkoma, og meðferð (laga) texta kennd sem að kemur vel út. Einnig er hér kennd hljóðtækni sem að er stúdíóvinna og hljóðvinnsla yfirhöfuð. Ég er einnig mjög ánægður með þá tíma. Kennarinn er mjög fær, og við höfum afnot af stúdíóinu 24 tíma sólarhrings. Tæknilega séð er skólinn nokkuð vel búinn. Það er kennt á Pro Tools sem að er án efa eitt ef öflugustu og skemmtilegustu forritum sem eru í gangi í dag. Skólinn á einnig mjög vandaða hljóðnema, góða Mackie mixera, öll helstu hljóðfæri og magnara. Þetta hljómar kannski fráhrindrandi fyrir suma, en stelpunum sem að eru í hljóðtækni líkar mjög vel, því að kennarinn er kona, og hún fer vel yfir allt og allir þurfa að prufa sjálfir. En, varast ber að draga færni hennar í efa, því að húnn vinnur í virtu studíói í London, og hefur meðal annars unnið með Tom Jones, og fleiri stórum nöfnum sem að ég man ekki í augnablikinu. Svo er tónfræði, sem að er gott, því að þegar ég byrjaði þá vissi ég lítið sem ekki neitt í því. Svo eru nokkur valfög í viðbót þar á meðal íþróttir, en það er nú bara að spila blak eða fótbolta og busla í sundlauginni. Einnig er líka hægt að velja kór. Ekki samt venjulegur kirkjukór, heldur jazz / blues kór. Svo er þetta bara allt um tónlist og henni tengt.

Við búum í tveggja manna herbergjum, og erum í fullu fæði hérna. Þó að þetta virðist vera dýrt, þá er það ekki í raun, ef fæði og húsnæði er reiknað inn í dæmið, einnig um helgar. Það er mikil samvinna í hópnum sem er hérna núna, og allir staðráðnir í að láta þetta ganga, sem að maður er ekki vanur heima á Íslandi. Þegar ég var búinn að vera hérna í viku, þá var ég farinn að þekkja alla álíka vel og hefði tekið mig 1-2 mánuði á heima. Við þurfum að gera öll helstu heimilisstörf, en, það er nú bara partur af því að búa hérna.

Skólinn er mjög virkur í öllu sem gerist í bænum. Meðal annars verður sett upp sýning, sem að við komum til með að flakka með á milli bæja hér í Danmörk. Einnig förum við í ferð, en í ár verður farið til Berlín, í Þýskalandi.

Toftlund er lítill bær, um 4.000 ibúar. Það er ekki lestarstöð hérna, en samt kom bærinn mér á óvart. Það er bíó, sundlaug, íþróttamiðstöð, helstu verslanir og veitingastaðir hér. Þó bærinn sé fámennur, þá mætti kannski líkja stærðinni við Akureyri. Þó er lítið sem ekki neitt um bari eða skemmtistaði. Þannig að heilt yfir þá er ég ánægður með dvölina hérna, og ef fólk hefur áhuga á að eyða 19 vikum í tónlist eða leiklist, þá mæli ég með að fólk prufi þennann skóla. Allar upplýsingar fást á heimasíðu skólanns, www.musikogteater.dk eða e-mail: kontor@musikogteater.dk 

efst upp


:: Hanna, Ingesunds Folkhögskola í Svíþjóð ::

30.02.2004

Sæl mín kæra María og afsakaðu hvað ég skrifa seint...

Hér er bara svo mikil stanslaus gleði og mikið að gera oftast að ég tími ekki að sitja fyrir framan tölvuna. Òtrúlegt en satt þá er skólinn næstum búinn og ég sé að ég hefði kannski átt að skrifa örlítið fyrr því það er svo margt sem ég þarf að segja frá og ég veit varla hvar ég á að byrja. Vell.. hír gós...

Skólinn heitir Ingesunds Folkhögskola og liggur við smábæinn Arvika í Svíþjóð. Brautin heitir "Fältbiologi och naturvård", eða líffraeði og umhverfisvernd.

Vissi varla hvað ég var að fara útí en valdi þetta vegna þess að mig langaði að vita meira um umhverfisvernd og fannst þetta ágætur grunnur. Kennarinn sem ég talaði vid áður en ég kom út sagði að við myndum fá að læra um mörg svið innan líffræðinnar og umhverfisverndar og að þetta væri frábært fyrir þá sem hefðu áhuga á þessum málum en kynnu ekkert. Nó sjitt... höfum gert svo óendanlega margt skemmtilegt og lært svo mikið.
Hér er smá listi:
*Ùlfaleit (fundum enga úlfa en fundum spor eftir þá og einn frosinn, hálfuppétinn elgskálf sem úlfur hafði drepið)
*fuglamerkingar
*fuglaskoðunarferðir (gengur kannski ekki sem best, loksins þegar mar er búnað stilla inn kíkinn þá flýgur fuglinn burt)
*vorum viku á vesturströnd Svíþjóðar þar sem við skoðuðum sjávardýr, umhverfisvæn klósett, steina, blóm, geitur, dýr í útrýmingarhættu og fuglaþvottastöð fyrir fugla sem lent hafa í olíuslysum
*líffræði
*efnafræði og edlisfræði (ok.. ekki svo skemmtilegt kannski)
*heill snjóþotudagur med öllum skólanum
*höfum drepið vatnakrabba sem sýktir voru af krabbapest
*veitt mýflugur í háfa
*tekið botnssýni úr vötnum og skoðað það sem lifir þar
*gönguskíðaferðir
*hef verið í gospelkór skólans
*í afródansi
*verið í smíðum þar sem ég gerði mína eigin frábæru djembe-trommu
*hef verid heilaþvegin um mikilvægi þess ad borða lífrænt ræktaðan mat
*hef stundum verið að tapa mér af bræði yfir því hvað fólk getur verið heimskt og eigingjarnt og er á góðri leið með að rústa þessari fallegu plánetu, oft af tómri græðgi
*höfum hitt indjánahöfðingja sem sagði okkur að hugsa 7 kynslóðir fram í tímann og reyna að gera það sem í okkar valdi stendur til að þeir sem á eftir okkur koma fái að fæðast inn í fallegan og grænan heim
*kynnst miklum vistvænum möguleikum í sambandi við orkunotkun (sólarrafhlöður og fleira)
*óendanlega margar skógarferðir og hef prófað að höggva niður tré og líka hringbarka tré..

Við eigum eftir ad fara í fleiri blóma,fugla, skordýra og skógarferðir og hápunkturinn verður þegar við förum í viku skoðunarferð til Noregs í lok skólans.

Kennararnir eru meiriháttar og ég hef eignast frábæra vini og til dæmis ætla 4 þeirra að fylgja mér heim og rúnta um landið með mér í sumar.. snilld.

Þetta er smá sýnishorn. Heimasíða skólans er http://ingesunds-folkhogskola.regionvarmland.se/

Kær kveðja úr sænska vorinu

Hanna litla

efst upp

:: Guðni, Krogerup Højskole í Danmörku ::

25.02.2004

Hér er alveg frábært að vera. Skólinn liggur i útjaðri Humlebæk sem er um 8.000 manna bær á Norður-Sjálandi, 35. min til Køben med lest og 10. min til Helsingør sem er um 30.000 manna bær. Aðalbyggingin er meira en 200 ára gamall herragarður sem var gerður upp 1950. Síðan hafa verið byggðar nokkrar viðbyggingar, t.d íþróttasalur og lítill bíósalur med skjávörpu og nokkrar svefnálmur.  Kennararnir eru 16 og flestir búa í götu sem liggur við skólann.
Hér eru 70 nemendur nítján strákar og fimmtíu og ein stelpa. Flestir eru á aldrinum 19 til 25 ára. Sá elsti er 39 ára. Kennararnir eru súper og einu sinni i viku borðum vid heima hjá þeim í höllum og eldum fyrir þá og fjölskyldur þeirra. Flestir krakkarnir komu án þess að þekkja nokkurn, sem ég tel mjög gott.  Þannig kynnist maður flestum og blandast best í hópinn.  Ég held samt að það sé ekki verra að kunna eitthvað í dönsku áður en maður byrjar, svo maður sé ekki alveg týndur fyrsta mánuðinn.
Í dag er miðvikudagur og ég vaknaði klukkan 7. Ég fór í sturtu, borðaði, sópaði ganginn minn sem er mitt hlutverk i morgunþrifunum og klukkan 9 var “morgensamling” en þá syngjum við þar til allir eru almennilega vaknaðir og förum yfir helstu mál liðandi stundar. Síðan fór ég i tíma kl. 10:00, ef tíma skyldi kalla, því við horfðum á mynd i bíósalnum og fengum popp og kók. Í þessum tímum, sem heita Paradisets børn, lærum við m.a. um evrópska kvikmyndaleikstjóra og verk þeirra. Klukkan 12.30 er hádegismatur og svo hef ég frí til klukkan sex og þess vegna get ég skrifað þessar línur núna hehe.
Maður velur sér fjórar námsgreinar og það er það einasta sem er þannig séð skyldumæting í. Annars er alltaf eitthvað að gerast en maður ræður mikið sjálfur hverju maður tekur þátt í.  Í mars förum við svo til Prag i 10. daga. Svo ef maður á extra 100.000 kall í vasanum getur maður farið i 3. vikna ferð til Kína þegar skólinn endar, sem er 15. mai. Úr mínum hópi eru það 12 sem fara.
Þegar maður á frítíma, sem ég hef ekki oft, getur maður spilað borðtennis, badminton, fótboltaspil, snóker, horft á videó, farið í sauna, lyftingarsalinn eða bara hangið í tölvum sem eru nettengdar allan sólarhringinn. Það ætti engum að leiðast allavega.
Þetta er heilmikid batterý hér með 16. háskólagegna kennara sem flestir búa í húsum sem byggð voru fyrir þá.  Hér eru 3 kokkar og 3 adstoðarmenn i eldhúsinu og 2 smiðir sem sjá um viðhald á húsunum og þess háttar.  Svo er bara að kynda þessar stærðar byggingar plús hinar og þessar uppákomur á vegum skólans sem allt kostar sitt.  Ríikið gefur rausnarlegan styrk ár hvert, og ég held ekki að svo miklir peningar séu afgangs eins og er á Íslandi. Þetta fyrirkomulag tel ég nauðsynlegt til að skapa þennan góða samfélagsanda sem hér ríkir. Allavega þá er þetta meiriháttar gaman, hressir og skemmtilegir krakkar sem allir vilja prófa eitthvað nýtt og spennandi.
Mér gekk kannski betur ad aðlagast og blandast i hópinn þar  sem ég skildi næstum allt sem fram fór frá fyrsta degi. En auðvitað er það ekkert “must”.  Nú erum við 4 frá Íslandi og ég þekki þau kannski einna minnst því þau hafa svolítið dregið sig saman sem gerist bara sjálkrafa þegar fólk ekki skilur hvað fram fer.
Ég mæli eindregið med Lýðháskóla fyrir þá sem langar kannski aðeins að breyta til.

Guðni í Krogerup Højskole í Danmörku

Heimasíða skólans er:  http://www.krogerup.dk

efst upp

:: Guðný Marta, Grundtvigs højskole í Danmörku ::

27.01.2004

HæHæ María!

Af því að ég var nú búin að lofa þér að senda þér línu um lífið hér på Gurndtvigs højskole er upplagt að gera það núna þar sem ég á nokkrar mínútur í pásu!
Í fyrsta lagi er þetta hreint út sagt ædislegt! Við erum um 60 nemendur hérna núna, nokkrir fara heim núna um mánaðarmótin og svo aðrir um mánaðarmótin febrúar- mars. Fyrsti dagurinn hérna var mjög spennandi þar sem auðvitað maður var búin að gera sér hugmyndir um hvernig þetta allt liti út. Hvernig herbergi maður fengi, hvernig maturinn yrði, hvernig fólk væri hérna og svo framvegis. Við komum inn i þetta risastóra glerhýsi og höfum eiginlega ekki farið út úr því aftur. Hér er allt undir sama þaki sem maður þarf að gera yfir allan daginn. Allar skólastofurnar, mötuneytið, svefnherbergin, partýherbergin og sjónvarpsherbergi. Auðvitað getur maður farið niður í Hillerød ef maður vill eða út í búð, en við erum að reyna að venjast því að vera fátækir námsmenn og reynum því ekki að eyða neinum pening af viti. Það er alls ekki svo erfitt, þar sem við getum fengið mat 5 sinnum á dag. Stærsta áhyggjuefnið mitt aður en ég kom hingað var maturinn. Maður er nú svo góðu vanur heima hja mömmu, en þetta er nú bara mjög finn matur hérna, ekkert til að kvarta undan!
Krakkarnir sem eru hérna eru æðislegir, ætli meðalaldurinn hérna sé ekki um svona 20 ár, allskyns fólk hvaðan af úr heiminum. Allir hér í þeim eina tilgangi að "socialisera" og kynnast. Kennaranir hér eru einnig frábærir, flestir búa hér i næsta nágrenni við skólann, sem gerir það að verkum að þeir eru mjög inní öllu sem gerist hér innan veggja skólans, og sambandið vid kennarana er mjög gott.
Hér í skólanum getur maður lært allt fra söng og dansi upp í politik, mjög gott úrval af alls kyns skemmtilegum fögum. Við stelpurnar ákváðum að reyna ad finna listamanninn í okkur og völdum teikningu, photo, myndskreytingu og keramik...og við erum ekki frá því að eftir svona fyrstu vikurnar leynist bara ofsalega góður listamaður í okkur!!
Ég get ekki annað sagt en að þetta er bara eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert í mjög langan tíma, mjög ánægð med þessa ákvorðun að koma hingað, og er hæstánægð með það að vera hérna næstu 5 mánuði!!!!

Heimasíða skólans er: http://grundtvigs.dk/

Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig til þess að gera mér það kleift að vera hérna!!!
Kær kveðja
Gudný Marta


efst upp
 

:: Viðar, Sandvik í Noregi ::

26.01.2004

Sæl

Ég hefði vist átt að vera löngu búinn að þessu þannig að ég ætla ad gefa mér smá tíma til að gera þetta núna.

Ég er á Sjø & Fjellsport línunni en auk þeirra er Kunstfag, Digital Foto&Design, Motorsport Mix, Trend & Design, International Linje, Jesus Mission, Jesus 2U og svo Bo & Fritid sem er fyrir fatlaða krakka.. Á minni línu erum vid búin að gera massa skemmtilega hluti: Fara á kanó, kayak, klettaklifur, fjallgöngur, sofa í hinu og þessu eins og gapahuk (skýli/hálft tjald) gamma (búið til úr trjám og torfi, eins og indjánatjald í laginu) og svo skálum og líka undir berum himni. Núna eftir áramót eigum við svo eftir að fara á skíði, snjóbretti, sofa i snjóholum og igloo, skjóta rjúpur, fiska og fara i 4 daga segltúr a opnum bát svo það er nóg að gera.

Aðbúnaðurinn er mjög finn þó að herbergið mitt sé ekki það besta í skólanum, en það er reyndar alveg allt í lagi. Skólinn er alltaf búinn fyrir 4 á daginn og þá eru kennararnir duglegir við ad brydda upp á ýmsu fyrir okkur s.s. að hafa sundlaugina opna, badminton, blak, fótbolti, bandí, körfubolti, mynd a stóru tjaldi og ýmislegt fleira. Skólinn er nefninlega 17 km. fyrir utan bæinn svo við getum ekki dundað okkur í bænum eftir skóla. Þetta er mjög dýrt dæmi, en ég var svo heppinn ad fá tvo styrki, annann uppá 11000 Nkr. og hinn uppá 27000Nkr. Við erum bara tveir útlendingar hérna, ég og stelpa frá Indlandi, en svo er einn strákur sem er hálf íslenskur, en hann talar reyndar ekki íslensku. Ég er einn af elstu nemendunum hérna en flestir eru 16-18 ára.

Nordmenn eru mjög vingjarnlegir við mig (kannski vegna þess að ég er frá Íslandi?) Ég er búinn að eignast mjög góða vini sem ég á án efa eftir að halda sambandi við í nánustu framtíð.

Við höfum engin próf enda ekkert bóklegt nám hérna (nema ég tók skotvopnaleyfi sem valfag fyrri hluta fyrstu annarinnar)

Eftir 10 daga fer allur skólinn í snjóbrettaferð til Svóþjóðar og í lok maí förum við í skólaferð til Túnis, sem greiðist reyndar sér þannig að við getum ákveðið hvort við viljum fara eða ekki, Það ætla held ég allir að fara nema stelpan fra Indlandi.

Þetta er kristinn skóli en það þýðir samt ekki að þú þurfir að vera kristin til að vera hérna, ég held að hópurinn skiptist svona nokkurn veginn jafn, kristnir og trúlausir og svo er indverska stelpan hindúi.
Bloggið mitt er: www.vidarinoregi.blogspot.com

Heimasíða skólans er:  www.sandvik.fhs.no

Ha Det Bra

Viðar, midt i Norge

efst upp

:: Ingþór, Karmøy í Noregi ::

02.09.2003

Hæ hæ.
Ég er nú búin að trassa þetta lengi og búin að hafa mikið að gera en ég er búin að vera í Karmøy FHS í Noregi núna frá 02/03 og það ár hefur verið það besta í mínu stutta lífi.
Ég fór í nám sjúkraliða þar eða rednig  og beredskap eins og það heitir, og var líka í fagi sem heitir helse og sosial. Það getur orðið svoldið skrýtið þegar þú flytur inn á einum degi með 90 öðrum og eyðir einum vetri með þeim, en það er bara eitthvað sem að allir   ættu að prufa. Ég var mjög hræddur í byrjun ársins þ.s. að ég var lagður í einelti þegar ég var í skóla á Íslandi en í þessum skóla er gengið út frá því að allir séu jafnir sem við og erum öll. Það eru engin próf, allir gera það sem þeir vilja þegar, þeir vilja og við höfðum mjög gaman á kvöldin með að búa til stuttmyndir. Við vorum alltaf að skipuleggja og framkvæma æfingar á sjúkrabílnum og svo um helgar var bara farið að skemmta sér á einhverjum barnum.
Það er altaf nóg að gera í skólanum og í kringum hann. Þetta var mín besta upplifun í skóla frá því að ég byrjaði og þegar það er í boði að ferðast líka þá er enn meira gaman eins og þegar allur skólin fór til Kína og ferðaðist þar um 2 vikum áður enn SARS kom upp þar, en þar voru 90 manneskjur saman komnar til að fræðast og (skemmta sér ) en þar var verslað ódýrt, farið í skóla, farið í heimsóknir í fátækrahverfin,farið til kínverska múrsins sem að ég arkaði um 3 kílómetra á. Allt annað gert líka sem myndi fylla síðuna ef ég héldi áfram :) Við fórum nokkur til Úkraínu í maí og vorum þar með hjálparstarf og fórum keyrandi frá skólanum í vestur Noregi alla leið til Úkraínu og það er mögnuð lífsreynsla.
Ég hafði aldrei séð svo mikla fegurð þegar ég er að ferðast því að ég flýg alttaf hvert sem að ég þarf að fara en þarna keyrðum við í gegnum Svíþjóð og tókum bát þaðan til Póllands og keyrðum í 2 daga í gegnum það með stoppi í Varsjá og líka á landamærunum til Úkraínu þar sem ég kynntist kommúnista í fysta skipti.
Ég ætlaði bara að tala um skólan en það er bara frá alltof miklu að segja.  Segjum sem svo að ég þyrfti að segja eitthvað um skólann í einni setnigu, það yrði þá: "Má ég fara aftur í skólann"  því að ég vil vera þar. 

Heimasíða Karmøy folkehøgskule er:  www.skolelei.no/

Kveðja Ingþór
Hilsen Ingthor

efst upp


:: Ágústína, Ryslinge folkehøjskole ::

18.08.2003

Nú er ég komin i Ryslinge højskolen hér á Fjóni!
Ég ætla ad setja upp bloggsíðu þar sem hægt er ad lesa fréttir um mig og hvernig lýdhaskólinn er hérna!  
www.gustadani.blogspot.com

Hej, hej
Ágústína Gunnarsdóttir

Lesið um Ryslinge folkehøjskole hér


efst upp


:: Bjarni, Uldum folkehøjskole í Danmörku ::

12.06.2003


Þú baðst mig víst um að skrifa um það hvernig það væri að vera í lýðháskóla svo ég er að hugsa um að gera það.
Ein spurningin í bréfinu sem ég fékk var hvernig við þrífumst í skólanum. Það er náttúrulega mismunandi eftir fólki hvernig því finnst að breyta svona gjörsamlega um umhverfi. Persónulega fannst mér þetta alveg frábært að fara svona í burtu og hitta fólk þar sem enginn þekkir neinn. Þegar allir byrja frá sama punkti þá er ekki svo mikil hópaskipting og þessi leiðindabarátta sem maður hefur séð heima um hverjir eru vinsælir og ekki. Það þýðir samt aldrei að það verði ekkert í þá áttina. Einn þátturinn er líka að fólkið hérna er komið á þann aldur að það er komið yfir þetta leiðindaskeið, eða eins langt yfir það og það kemst. Ég hef samt tekið eftir því að það eru sumir hérna sem að eru með svolitla fordóma gegn þeim sem að geta ekki tala mikla dönsku eða tala hana mjög bjagaða. Það finnst alltaf svona fólk og maður verður bara að sætta sig við það. 
Persónulega held ég að þetta væri ekki vitlaust að fólk sem hefur lent í einelti eða eru í þunglyndi myndi prófa að fara í lýðháskóla. Því að það er tekið við þér nákvæmlega eins og þú ert og enginn þekkir þig. Það tekur náttúrulega tíma að kynnast fólki að kynnast fólki þannig ef fólk gefst upp strax þá er ekkert að marka. Með þessu eru ég samt ekkert að segja að það eigi að smala öllu þunglyndu fólki og fólki sem hefur lent í einelti saman og senda það í lýðháskóla. Meira svona hugmynd um að það væri ekki vitlaust að hafa þetta við hendina til að geta tekið sér frí frá öllu.
Það er eitt sem að fólk ætti samt að passa sig á áður en það fer af stað í lýðháskóla. Það er að vera að búin að skoða skóla og finna skóla sem hefur að bjóða eitthvað sem það sem það hefur áhuga á. Ég var hálf latur við að skoða skóla og var eiginlega ekkert að nenna að vera að standa í því að fletta í gegnum bæklinga. Svo ég valdi bara þann fyrsta sem ég sá að var með tónlist og tölvur. Ég tel sjálfan mig mjög heppinn því að þessi skóli (Uldum Høskole) hentaði mér allveg 99% og ég held að ég hefði varla geta verið heppnari með skóla. Hann býður upp á allt sem mig hefur langað að læra eða hef áhuga á. Eins og t.d. tölvur, tónlist, sálfræði, heimspeki og sirkus trix (halda 3 boltum á lofti,  halda diskum á lofti með stöng o.s.f.). Svo er það einnig að lenda með góðum herbergisfélaga. Það er stór þáttur í því að það sé gaman í skólanum. Ég hefði ekki geta verið heppnari því að sá sem að lenti með mér í herbergi var sá eini í skólanum sem hlustaði á heavy metal.  Plús að hann spilaði á gítar svo ég gat alltaf spurt hann ef ég vissi ekki hvernig átti að taka eitthvað grip.
Svona til að taka það fram líka að þegar ég kom hingað til Danmerkur þá fékk ég hálfgert menningarsjokk og stærsta ástæðan fyrir því var þetta með áfengislögin. Að fara út í búð og get keypt sér bjór var bara eitthvað sem mér fannst rosalega skrítið að geta gert. Og það tók mig smá tíma að venjast þessu (þó verð ég að viðurkenna að mér finnst 16 ára aldurstakmark til að kaupa bjór svolítið lítið og held ég að það væri nær að hafa það 18 ár, þó það sé víst “uncool” að segja það á Íslandi). Það sem ég tók hinsvegar eftir var það hvað það er allt miklu afslappaðara í kringum áfengisneyslu. Það að detta í það var ekkert tiltökumál og þýddi það ekki að maður þyrfti að drekka eins mikið og maður gæti. Ég held að ég hafi einu sinni eða tvisvar á þessum tæpu 7 mánuðum sem ég hef verið hérna séð einhvern svo ofurölvaðan að hann geti ekki staðið í lappirnar eða liggja áfengisdauðan einhverstaðar. Fólk er náttúrulega mismunandi hæft til að haga sér hér eins og annarstaðar og ekkert hægt að draga undan því. Ég sjálfur er orðinn mikið betri við meðhöndlun á áfengi og búinn að finna mér mín takmörk  Þetta er bara ekkert svona rosalega spennandi eins og heima því að það er ekki bannað. Jæja nóg komið af áróðri um áfengi.
Mín ástæða fyrir því að fara í lýðháskóla var í stuttu máli: Lífsreynsla, prufa eitthvað, taka mér frí frá öllu heima og kynnast öðruvísu fólki. 

Bjarni på Uldum højskole

Uldum folkehøjskole

efst upp


:: Sólveig ::

03.06. 2003

Hæ hæ! Èg heiti Sólveig og er 20 ára. Èg er  í iþróttalýdháskóla á Fjóni í Danmörku, Oure Idrætshøjskole.  Það eru um það bil 100 nemendur í lýdháskólanum og vid búum öll í litlum húsum, 9 til 14  manns í hverju húsi.
Èg bý med alveg frábæru fólki. Flestir eru a svipuðm aldri og ég en það eru nokkrir um þrítugt líka. Èg er eini Íslendingurinn í skólanum og annar útlendingurinn, hinn er stelpa frá Noregi, mér finnst þad  vera mjög gott. Ég held ad ég hafi lært meira á því.
Þad er hægt ad velja  á milli 8 brauta: fótbolta, adventure, hav exlpore, dans, skíða, bretta, sport og idræt(alls kyns íþróttir) og aerobicbraut. Èg er sjálf á aerobicbrautinni. Èg er að læra ad kenna þad sem kemur aerobic við, s.s. pallar, high/ low, body toning og margt fleira. Þó ad ég sé nokkuð mikið í aerobic salnum, þá er það alls ekki það eina sem ég geri hérna. Við höfum haft margs konar valgreinar, sem er þá oft eithvað sem tengist íþróttum, en oft líka eithvad med sköpun, leiklist og tónlist. Hvert valfag er í um tad bil 2 til 3 vikur og svo skiptir maður. Èg er búin ad læra um íþróttameiðsl,anatomiu, íþróttasálfræði, ég hef haft myndlist og kvikmyndanámskeið og margt fleira.
Þrisvar í viku er það sem er kallad fysisk training, þá höfum vid þurft að hlaupa, hjóla synda eða haft aerobic. Síðustu 2 mánuðina máttum við svo velja okkur þad sem okkur þótti skemmtilegast.
Aðstaðan í skólanum er alveg frábær. Þad er sundlaug hérna, stór íþróttasalur, dans og aerobic salir, listasmiðja, tónlistarherbergi, klifursalur og 21 m. klifurturn, fótboltavöllur, golfvöllur, tennisvellir,
línuskautar, fjallahjól, strandablakvellir, seglbretti, match racer bátur, kajakar og lyftingasalur. Við eru líka med okkar eigin kaffihús.  Vid borðum alltaf í matsalnum og fáum alveg rosalega góðan mat.
Á kvöldin og um helgar er alltaf mikið ad gera, manni leiðist aldrei. Þá hefur maður tækifæri til ad prófa það sem aðrar brautir eru ad gera. t.d. sigla á kajökum eða surfa á seglbrettum, eða spila handbolta inni í salnum eða eithvað slikt.  Èg er búin ad fara í nokkur ferdalög med skólanum. Það sem stendur upp úr er ferð til Kanaríeyja. Aerobicbrautin og fótboltabrautin fóru á íþróttahótel á eyjunni Lanzarote. www.clublasanta.com.
Við prófuðum margt þar og nutum þess svo sannarlega. Þad var alveg frábært.
Þad er svo margt sem ég er búin ad upplifa hérna ad ég þyrfti að skrifa heila bók til ad koma öllu fyrir.
Þetta er án efa það skemmtilegasta sem ég hef gert!  Kennararnir hérna eru alveg frábærir og ég er búin ad eignast helling af nýjum vinum.  Ég er búin ad læra svo margt, ekki síst um sjálfa mig.
Þessi skóli er fyrir alla. Maður þarf alls ekki ad vera topp íþróttamanneskja til ad koma hingað, bara að hafa áhuga á íþróttum. 
Skoðið heimasíðu skólans Oure íþróttalýðháskóli

efst upp


:: Anna ::

02.10.2002

Hæ krakkar heima á Íslandi.
Ég var beðin um að segja ykkur svolítið frá lýðháskólanum sem ég er á.

Den Skandinaviske Designhøjskole er hönnunarlýðháskóli sem liggur út í sveit rétt fyrir utan Randers og 30 km. frá Århus.

Skólinn er með rými fyrir 70 nemendur sem flestir búa á  heimavist skólans. Núna eru aðeins tvær sem ekki búa hérna.
Nemendurnir eru allt frá átján upp í fjörtíu og eitthvad.  Það er ein kona í eldri kantinum en hún er önnur þeirra sem ekki býr hér. Flestir krakkarnir eru á bilinu 20-25 ára.
Í ár eru 16 Norðmenn, 4 Svíar, 1 Færeyingur, 1 Íslendingur, 1 Japani og 1 Kínverji auk Dananna svo það er fjölbreytni í hópnum og danskan er ríkjandi í kennslunni. Hún er það líka hjá mér í vöruhönnun þó svo að annar kennarinn sé norskur og hinn sænskur.
Maturinn er frábær, lífrænn að mestu og svo er alltaf matur fyrir grænmetisætur og fólk med mjólkuróþol.

Hér er hægt ad velja um þrjár brautir: Vöruhönnun, Textíl og klæðnad og
grafíska hönnun. Sú braut sem maður velur verður aðalfagið en auk þess eru þrenns konar valfög og einu sinni í viku kemur utanaðkomandi einstaklingur og kynnir eitthvad fyrir okkur sem tengist því sem vid erum ad læra.
Kennararnir eru skemmtilegir og afar líbó. Þad eru engin próf en þess er þó krafist af nemendum að þeir vinni vel og standist "deadlines". En vinnan borgar sig. Í fyrra til dæmis, komust allir nemendurnir héðan í inntökupróf í stóru hönnunarháskólunum.
Allir nemendur fá lykil sem gengur ad öllum verkstæðum skólans og tónlistarherberginu.
Skólinn er sá skóli í Danmörku sem hefur bestu aðstöðuna, það er nánast allt til alls og okkur er frjálst ad nota það.
Þannig að ef mann langar ad logsjóða stól um miðja nótt er sem sagt ekkert sem stendur í vegi fyrir því....
Við erum með bar í skólanum um helgar og það er reynt ad hafa þema í partíunum til ad auka á fjölbreytnina, en þad er líka stutt í bæinn.
Vid förum þessa önnina í námsferð til Suður-Frakklands. Við erum búin að fá ýmiss konar undirbúning sem er ólíkur því sem ég á að venjast ad heiman, t.d var vínsmökkun í fyrradag þar sem kom vínsérfræðingur og kynnti fyrir okkur vín frá Suður-Frakklandi.
Einnig kom franskur mannfræðingur og félagsfræðingur sem hefur verið búsettur í 25 ár í Danmörku og talaði um "mødet med det fremmede".  Ferðin verður mjög spennandi og segi ég kannski frá henni síðar.
Endilega bara hafa samband vid mig eda skólann til ad forvitnast frekar... 

María á Norrænu upplýsingaskrifstofunni er með tölvupóstfangið mitt.

Skrifa kannski meira seinna
Kveðja Anna 

www.designhojskolen.dk

Bergþóra í Borups højskole i Kaupmannahöfn
Jæja þá er ég búin að vera í rúman mánuð hérna í Kaupmannahöfn en ég er í Borups hojskole sem er í hjarta Kaupmannahafnar aðeins 5 mínútna göngufjarlægð á Strikið. Í skólanum eru u.þ.b 60 krakkar á öllum aldri. Við búum ekki á heimavist í skólanum eins og í flestum lýðháskólum heldur leigjum við flest úti í bæ en einnig eru mjög margir Danir hérna sem eiga heima með fjölskyldum sínum í Kaupmannahöfn. Það er svo mikið að segja frá að ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja.
             Danskan er nú ekki orðin nógu góð hjá mér en ég efast ekki um að það komi. Allir hérna vilja að maður tali bara dönsku og ekkert allir vilja tala við mann ensku sem er kannski bara ágætt af því að þá nær maður dönskunni fyrr. Oftast eru þó samtölin þannig hjá manni að þau tala á dönsku og ég svara á einhverri dönsk-ensku. Við erum 4 Íslendingar hérna, einn strákur sem að er búinn að vera hérna síðan í sumar, og þrjár stelpur sem byrjuðum núna og erum allar á svipuðum stað í dönskunni.
            Kúrsarnir hérna eru mjög skemmtilegir. Það er engin aðallína í skólanum en eru eiginlega 5 línur þ.e: Billedkunst, Historie, Musik, Teater og Film+Computer. Í þessum línum eru svo ýmsir áfangar s.s ljómyndun, myndlist, saga arkitektúrsins, listasaga og dans en þetta eru áfangarnir sem ég er í svo er líka kvikmyndagerð, kvikmyndatónlist, kvikmyndasaga, samspil, kór, raddþjálfun, leiklist, teikning, graffísk hönnun og margt fleira, svo er einn áfangi sem að allir krakkarnir taka en í honum koma ýmir gestafyrirlesarar og tala um allt milli himins og jarðar. Það er reyndar svolítið erfitt að fylgjast með í þeim áfanga þar sem að þetta fólk talar misjafnlega skýra dönsku. Í lok mars skiptum við svo um fög. Einnig er hægt að halda áfram þegar að ég er búin með þessa önn en það eru u.þ.b 20 krakkar í skólanum sem eru búnir að vera síðan í sumar en mér skilst að þeir megi eiginlega gera það sem að þeir vilja svo lengi sem það er tengt billedkunst.
            Á kvöldin er svo ýmislegt að gerast, skólinn er opinn til klukkan 22:00. Núna er nýbúið að stofna kvikmyndaklúbb og einnig er alltaf kvikmynda og kaffihúsakvöld á miðvikudögum. Það er alltaf eitthvað í hverri viku eins og t.d skautaferð, bíóferðir o.fl. Á föstudagskvöldum er svo góður matur eldaður en þá er nemendunum skipt í hópa og við eldum en þá ráðum við hvað við eldum.  Í síðustu viku var mexíkanskt þema sem var rosalega flott og oftast er svo kíkt í bæinn eftir á. Mest allt er svo innifalið í skólaverðinu en mér skilst að ríkið styrki svona lýðháskóla mjög vel.
            Í maí förum við svo í ferð til Rómar í 4 daga sem verður ábyggilega ótrúlega gaman en sú ferð er einnig mikið niðurgreidd. Ég veit líka að þeir sem að eru búnir að vera hérna síðan í sumar fá líka að fara í skíðaferðalag til Ítalíu.

Ég get sko alveg mælt með þessum skóla kennararnir eru líka æðislegir en þeir virðast vera í vinnuni allan daginn og skemmta sér ekkert minna en við nemendurnir, þeir taka þátt í öllu.  Þeir koma oft á föstudagskvöldin okkar og eru oft í skólanum þegar að skólinn er búinn þá eru þeir oft þarna til að hjálpa manni ef að maður vill vera lengur og vinna í einhverju verkefni.

Þið getið fengið meiri upplýsingar um kúrsa og þessháttar á heimasíðu skólans www.borups.dk  e-mail: borups@borups.dk  þau senda ykkur líka bækling ef að þið viljið. Einnig er ég með blogg síðu ef þið viljið fylgjast með lífinu hérna í Köben: www.blog.central.is/beggakvaran

 

efst upp

     
     


Vefhönnuður: Grétar Orri