|
Að sækja um lýðháskólavist
UMSÆKJENDUM ER BENT Á
AÐ MIKILVÆGT ER AÐ KYNNA SÉR ÞAÐ SEM STENDUR HÉR FYRIR NEÐAN!
Upplýsingar um leitarvélar
Þegar finna á lýðháskóla á vefnum er
mjög gott að nota leitarvélarnar sem boðið er upp á á heimasíðum
dönsku, norsku og sænsku skrifstofanna. Athugið að í
Finnlandi er boðið upp á bæði finnsku- og sænskumælandi skóla.
Sláið inn tímabilið sem þið óskið
eftir, staðsetningu í landinu og hvað það er sem þið viljið leggja
aðal- áherslu á. Leitarvélin kemur þá upp með þá skóla sem
ættu að henta ykkur.
Hvernig þið berið ykkur að þegar
sótt er um
Byrjið á því að sækja um
skólann. Það gerið þið beint á netinu eða með því að panta
bækling frá skólanum, útfylla umsóknina sem fylgir honum og
senda í
pósti til skólans. Flestir skólar fara þó fram á rafræna umsókn.
Þegar staðfesting hefur borist um
skólavist þá sækið þið um þá styrki.
Styrkir til lýðháskóladvalar:
Norræna félagið á Íslandi veitir allar upplýsingar er varða
styrki til lýðháskóladvalar. Kynnið ykkur málið
hér.
UMFÍ
Ungmennafélag Íslands er með samstarfssamning við nokkra
íþróttalýðháskóla og aðra skóla í Danmörku og veita styrki til skólavistar.
Kynnið ykkur þetta á heimasíðu UMFÍ
hér
Góð ráð:
Til að forðast að lenda í
fjárhagskröggum er góð regla að eiga fyrir skólagjöldunum áður en
haldið er út. Gerið fjárhagáætlun. Allar upplýsingar um
kostnað við lýðháskólavistina er að finna á heimasíðum skólanna.efst upp
|