Velkomin á
vef skrifstofunnar!
Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri var formlega opnuð 13. október 1996.
Norræna ráðherranefndin hefur stuðlað að opnun 8 slíkra skrifstofa á Norðurlöndunum.
Auk þess eru Norrænar upplýsingaskrifstofur í Eystrasaltsríkjunum
þremur og í Pétursborg í Rússlandi. Aðalhlutverk Norrænu
upplýsingaskrifstofanna er að veita upplýsingar um norrænt samstarf og stuðla að samvinnu þeirra sem vinna að norrænum
verkefnum.
Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri hefur á seinni árum lagt mikla
áherslu á möguleika ungs fólks í norrænu samstarfi, norræna
styrki til menningarstarfs og menningarleg tengsl við
Norðurlöndin.
Skrifstofan stendur að norrænum menningarviðburðum í
samstarfi við ýmsa aðila. Þeir sem hafa hugmyndir að spennandi
verkefnum eru eindregið hvattir til að hafa samband.
Norræna upplýsingaskrifstofan Akureyri
Kaupvangsstræti 23
600 Akureyri
Sími: 462 7000
Símbréf: 462 7007
Netfang:
mariajons@akureyri.is
Forstöðumaður:
María Jónsdóttir
Fundir, kynningar og pöntuð viðtöl frá kl. 09:00-13:00 alla virka
daga.
Opnunartími er kl. 13:00 og 16:00 alla virka daga.
|