Flutningur á milli Norðurlandanna

Námskeið um réttindi og skyldur einstaklinga við flutning milli Norðurlandanna verður haldið í Deiglunni á  Akureyri, föstudaginn 6. febrúar 2009, kl. 13.00 – 16.00
Markhópurinn er fyrst og fremst starfsfólk í afgreiðslu og annað starfsfólk sem í starfi sínu þarf að veita upplýsingar um réttindi og skyldur þeirra sem fara frá eða koma til landsins.
Fyrirlestrarnir eru bæði ætlaðir sem endurmenntun og einnig sem góð undirstaða fyrir nýbyrjaða starfsmenn.

Nánari upplýsingar veitir Arna Frímannsdóttir verkefnisstjóri Halló Norðurlanda á Íslandi sími: 511-1808 netfang: hallo@norden.is

 

19. janúar 2009

Ný tækifæri í menntun og mannaskiptum milli Norðurlanda og Eystrasaltsríkja

Auglýst hefur verið eftir umsóknum í Nordplus áætluninni,  Nordplus leiðir fólk saman þvert á landamæri Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna (Photo: Magnus Fröderberg/norden.org)
sameiginlegri mannaskipta- og
Nordplus leiðir fólk saman þvert
á landamæri Norðurlanda og Eystrasaltsríkja.
Samtals eru rúmlega 50 milljónir danskrar króna eða um 8 milljónir Evra til skiptanna. Árlega njóta um 10.000 manns góðs af hinum ýmsu styrkjum áætlunarinnar. Þetta árið eru loftslags- og umhverfismál í brennidepli.  Lesið meira á www.norden.org

Foto: Magnus Fröderberg/norden.org

8. janúar 2009

Svíar fara með formennsku í Norðurlandaráði árið 2009

1. janúar 2009 tóku Svíar við formennsku í Norðurlandaráði af Finnum sem stýrðu starfsemi ráðsins á liðnu ári. Nýr forseti, sem kjörinn var á Norðurlandaráðsþingi í Helsinki í október, er Sinikka Bohlin þingmaður og fulltrúi í Norðurlandaráði.

Íslendingar við stjórnvölinn hjá Norrænu ráðherranefndinni árið 2009

Íslendingar tóku við formennsku í Norrænu ráðherranefndinni þann 1. janúar. Norrænu ríkin fimm skiptast á að fara með formennsku í nefndinni og hvert land setur sitt mark á samstarfið á formennskutímanum. Íslendingar leggja áherslu á öryggi til sjós á Norður-Atlantshafi og beina einnig sjónum að norræna velferðarkerfinu á samdráttartímum svo og að hnattvæðingarverkefnum

Lesið meira á heimasíðunni www.norden.org


2. janúar 2009

Kynning á norrænu menningarstarfi og  norrænum menningarsjóðum

Menningarráð Eyþings í samstarfi við menntamálaráðuneytið, Norræna húsið, Norrænu upplýsingaskrifstofuna á Akureyri og Hvalasafnið á Húsavík boða til kynningarfundar um norrænt samstarf og norræna menningarsjóði.

Fundurinn verður haldinn í Hvalasafninu á Húsavík föstudaginn 9. janúar kl. 10:30 – 14.30

Lesið meira hér

 

30. desember 2008

Sænska ríkisstjórnin styrkir fjárhagsstöðu sænsk-íslenska samstarfssjóðsins.

Sænska ríkisstjórnin hefur nú í lok árs ákveðið að styrkja enn frekar fjárhagslega stöðu sænsk-íslenska samstarfssjóðsins en hann hefur árlega úthlutað ferðastyrkjum vegna verkefna á sviði menningar, menntunar og vísinda í löndunum tveimur.

Lesið meira á heimasíðu Menntamálaráðuneytisins
 

 Ljósmyndarinn Henrik Saxgren (Photo: )
Gagnrýnar ljósmyndir af innflytjendum á Norðurlöndum

Óhefðbundin farandsýning á ljósmyndum af innflytjendum til Norðurlanda er nú á ferð um Norðurlönd. Um er að ræða ljósmyndasýningu Henrik Saxgren; Stríð og ást, en sýningin hefur hlotið mikið lof.

Lesið meira á www.norden.org    

Ljósmyndarinn Henrik Saxgren
                                                                                         
                                                                                                                                        

Niðurstaða nýrrar skýrslu: Norræni menningarsjóðurinn vísar veginn í norrænu menningarsamstarfi



Mikill stuðningur er við Norræna menningarsjóðinn í norrænu menningarlífi. Þetta er ein af niðurstöðum nýrrar matsskýrslu um starf sjóðsins. Í skýrslunni kemur fram að sjóðurinn gegni mikilvægu hlutverki í norrænu menningarsamstarfi og mælt er með því að í framtíðinni gegni hann enn veigameira hlutverki. Þá á sjóðurinn einnig að færast nær umsækjendum og menningarpólitískum veruleika.

Lesið meira á www.norden.org

 
Niðurstöður skýrslunnar er hvatning
til að halda áfram starfi sjóðsins,
segir Karen Bue framkvæmdastjóri
Norræna menningarsjóðsins.
Foto: Johannes Jansson
*

Tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2009

Tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs liggja nú fyrir. Fulltrúar landanna í dómnefnd hafa tilnefnt 12 bækur eftir norræna höfunda. Í ár eru verk frá Færeyjum og Grænlandi líka tilnefnd en engin tilnefning barst frá málsvæði Sama.

Lesið meira um tilnefninguna á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar www.norden.org

Hátíðlegt heimboð á fjölmenningarlega vísu:

Laugardaginn 22. nóv. buðu erlendir íbúar á Norðurlandi gestum og gangandi að kíkja heim í stofu Heimboðið fór fram í Ketilhúsinu frá kl.14 til 17 og ríkti þar hátiðarstemning og nutu gestir veitinga frá hinum ýmsu heimshornum. Norræna upplýsingaskrifstofan, Norræna félagið á Akureyri og hérbúandi Norðurlandabúar stóðu að norrænni stofu í jólabúningi. Þar var að finna eitt og annað sem einkennir norræn jól og boðið var uppá glögg og piparkökur. Óhætt er að segja að heimboðið hafi verið velsótt og margur fengið að bragða á framandi réttum hjá hinum stofunum sem voru frá Póllandi, Þýskalandi, Filippseyjum og Indlandi.

 

Hátíðlegt heimboð á fjölmenningarlega vísu:

Fjármögnun menningarverkefna.

Norræna upplýsingaskrifstofan vekur athygli á að næsti umsóknarfrestur Norræna menningarsjóðsins er 1. febrúar. Umsóknarfrestur annarra norrænna sjóða er frá janúar og fram á vor fyrir verkefni sem vinna á sumar og haust 2009.

Kynning á Norræna menningarsjóðnum og öðrum norrænum styrkjum verður haldin í Deiglunni á Akureyri, fimmtudaginn 13. nóvember kl. 14:00-16:00.

Hvernig er góð umsókn unnin? Hvað þarf að koma fram í umsókn? Farið verður yfir nokkur grundvallaratriði þegar sótt er um styrki.

María Jónsdóttir sér um kynningu og George Hollanders segir frá reynslu sinna af því að sækja um hjá Norræna menningarsjóðnum.

Þátttökugjald er 1000 kr.

Skráning með tölvupósti til mariajons@akureyri.is fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 12. nóv.


Lýðháskólastyrkir

Umsóknarfrestur vegna styrkjar til lýðháskólanáms vorið 2009 hefur verið framlengdur til 15. nóvember. Ákveðið hefur verið að veita sex styrki í stað þriggja á vorönn. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar má sækja á skrifstofu Norræna félagsins að Óðinsgötu 7 í Reykjavík. Einnig má hafa samband í síma 5510165 eða gegnum netfangið stefan@norden.is

Norræna upplýsingaskrifstofan er lokuð frá 10. okt. - 17. okt.
Sendið tölvupóst vegna erinda á mariajons(hjá)akureyri.is

Kynningar á Norður- og Austurlandi

María Jónsdóttir, starfsmaður Norrænu upplýsingaskrifstofunnar á Akureyri, verður með kynningu á Menntaáætlun  Norplus og Tungumála- og menningaráætlun Nordplus á eftirtöldum stöðum á Norður- og Austurlandi: Þórshöfn 10/10 og 11/10, Vopnafirði 13/10, Seyðisfirði 13/10 , Egilsstöðum 14/10 og Reyðarfirði 15/10.

Einnig mun verða boðið upp á viðtalstíma þ.s. fólk getur fengið upplýsingar um norræna lýðháskóla, Nordjobb, hvernig hægt er að fjármagna norræn samstarfsverkefni, tungumálanámskeið, norrænar sumarbúðir eða annað sem fólk vill fræðast um.

Kynning á Nordisk kulturfond og öðrum norrænum sjóðum á Eskifirði 16. okt. 10:00-13:00.

Lesið meira hér

Kristín Helga fékk barnabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins.

Bókin Draugaslóð eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur hlaut Barna- og unglingsbókaverðlaun Vestnorræna ráðsins. Um er að ræða alþjóðleg verðlaun, sem eru veitt annað hvert ár og stendur því valið milli bóka sem gefnar hafa verið út á tveggja ára tímabili í þremur löndum: Íslandi, Færeyjum og Grænlandi.
Lesið meira á www.mbl.is

KVIKMYNDIR UM UMBURÐARLYNDI TIL ÞESS AÐ BÆTA NORRÆNAN MÁLSKILNING

Norðurlönd í bíó (Norden i Bio) er kennsluverkefni sem byggir á kvikmyndum og er því ætlað að bæta skilning norrænna nemenda á norðurlandatungumálunum. Skólaárið 2008/2009 beinist verkefnið að 15-19 ára nemendum. Þemað er UMBURÐARLYNDI – hugmyndin er að auka umburðarlyndi, samkennd og tungumálaskilning með nýjum norrænum stuttmyndum.
Síðastliðið ár tóku rúmlega 1000 skólabekkir á millistigi frá öllum Norðurlöndum þátt og viðbrögð meðal kennara voru mjög jákvæð. Markmiðið er að 1200 bekkir; rúmlega 30.000. nemendur á Norðurlöndum noti efnið.

Fimm valdar norrænar stuttmyndir túlka Norðurlönd eins og þau eru í dag og hugtakið umburðarlyndi frá ýmsum sjónarhornum. • Lífsvatn (Svíþjóð, 2004) eftir Babak Najafi • Ofsóknaræði (Danmörk, 2007) eftir Jesper Troelstrup • Tveir gegn einum (Noregur, 2007) eftir Alexander Kayiambakis • Góðir gestir (Ísland, 2006) eftir Ísold Uggadóttir • Að lifa, að vera til (Finnland, 2007) eftir Reetta Aalto
Lesið meira á www.norden.org

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2008: Tilnefningar ársins opinberaðar
Kvikmyndin Brúðguminn hefur hlotið tilnefningu í ár til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Leikstjóri er Baltasar Kormákur, handritshöfundar Baltasar og Ólafur Egill Ólafsson og framleiðendur Agnes Johansen og Baltasar fyrir Sögn ehf.
Lesið meira á www.norden.org

TILNEFNDIR TIL TÓNLISTAVERÐLAUNA NORÐURLANDARÁÐS ERU ....

Lokið hefur verið við tilnefningar til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs árið 2008. Í ár eru þemun söngleikir og tónlistarsjónleikir. Verðlaunahafi verður valin í byrjun október og verðlaunin afhent á Norðurlandaráðsþingi í lok október. Dómnefnd Tónlistaverðlauna Norðurlandaráðs tilnefnir annað hvort ár tónlistarmenn eða -hópa til verðlaunanna og annað hvort ár tónverk núlifandi tónskálds. Þetta árið stendur valið milli tónverka og þemun eru söngleikir og tónlistarsjónleikir. Valið byggir meðal annars á því hvaða áherslur hafa verið lagðar áður í þemum tónlistaverðlaunanna.
Lesið meira á www.norden.org


 GAGNRÝNIR ÁKVÖRÐUN UM AÐ NOTA ENSKU SEM VINNUTUNGUMÁLS

Heidi Grande Røys samstarfsráðherra Noregs gagnrýnir ákvörðun Norðurlandaráðs æskunnar (UNR) um að nota ensku sem vinnutungumál. „Norrænu tungumálin sem vinnutungumál eru ein af undirstöðum norræna samstarfsins. Skilningur okkar á tungumálum hvers annars hefur styrkt tengingu okkar Norðurlandabúa með líkum gildum, menningu og landfræðilega. Norrænt samstarf myndi missa mikið ef enska yrði tekin upp sem sameiginlegt vinnutungumál í samstarfi Norðurlandanna“, segir Grande Røyes.
Lesið meira á www.norden.org

„ÁST Á NORÐURLÖNDUM“ Á NORRÆNU BÓKASAFNSVIKUNNI 2008

Norræna bókasafnsvikan verður haldin í 12. sinn dagana 10. til 16. nóvember. Vikan er einn af stærstu upplestrarviðburðum Norðurlanda og jafnvel í heiminum öllum. Bókasafnsvikan verður haldin í rúmlega 2.600 bókasöfnum, skólum og félögum á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Í fyrra tóku 2.600 stofnanir í átta löndum þátt í vikunni. Bókasafnsvika undir nafninu „Í ljósaskiptunum“ er haldin árlega í nóvember í bókasöfnum og skólum á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Stærsti upplestrarviðburðurinn verður þann 10. nóvember kl. 09.00 fyrir börn og kl. 19.00 fyrir fullorðna. Þemað er ástin til Norðurlandanna og markmiðið er að lýsa í bókmenntunum, tengslum Norðurlandabúa til heimalands og Norðurlandanna í heimsmyndinni.
Lesið meira á www.norden.org

NORRÆNIR HANDVERKSDAGAR HALDNIR AÐ HRAFNAGILI Í EYJAFIRÐI 4. – 7. ÁGÚST 2008

Norræna félagið á Akureyri stendur fyrir Norrænum handverksdögum í vikunni fyrir hina árlegu handverkshátíð að Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit.

Um er að ræða fjóra námskeiðsdaga þar sem hægt er að velja mismunandi námskeið. Áhersla verður lögð á notkun gamalla handverksaðferða í nýjum búningi.

Að þessu sinni hefur Norræna félagið fengið 4 kennara til liðs við sig, alla tengda Skals Håndarbejdsskole í Danmörku. Þeir eru: Björk Ottósdóttir Dietrichson, kennari á Skals. Jytte Marie Kodal, kennari á Skals. Inge-Marie Regnar, kennari og eigandi fyrirtækisins Filteriet. Helga Jóna Þórunnardóttir, kennari og eigandi verslunarinnar Nálarinnar í Reykjavík.

Félagsmenn Norræna félagsins fá 3000 kr. afslátt af fyrsta námskeiðinu og 1000 kr. afslátt af hverju námskeiði sem tekið er þátt í eftir það.

NORRÆN VEFGÁTT UM ALMANNATRYGGINGAR

Þessi vefgátt er gerð af yfirvöldum um almannatryggingar á Norðurlöndunum.

Vefgáttin er ætluð þeim sem flytja og/eða stunda atvinnu eða nám í öðru Norðurlandanna. Vefgáttinni er ætlað að veita leiðbeiningar um hvaða landslög eiga við í hverju tilviki. Einnig er að finna upplýsingar um ýmsar greiðslur sem viðkomandi kann að eiga rétt á. Á vefgáttinni er hægt að finna hlutaðeigandi yfirvöld í viðkomandi landi og krækjur til þeirra.

Lesið meira á www.norden.org

Nu taler vi dansk!

Námskeið í dönsku þ.s. aðaláhersla er lögð á talað mál og hlustun.
Áhugasamir eru beðnir að hafa samband sem fyrst við Maríu í síma 462 7000 eða með tölvupósti til mariajons@akureyri.is

Norræna félagið á Akureyri – Aðalfundur 2008        

Aðalfundur Norræna félagsins á Akureyri verður haldinn fimmtudaginn 22. maí nk.
Fundurinn hefst kl. 20.00, að Glerárgötu 26, 2. hæð.  Venjuleg aðalfundarstörf. 
Gestur fundarins er Guðmundur Sigvaldason, en hann mun kynna hugmynd að ferð félagsins sumarið 2009 um víkingaslóðir norrænna manna í Mið- og Norður-England.
Allir velkomnir.

Stjórnin.


Norrænir handverksdagar að Hrafnagili dagana 4. - 7. ágúst

Norræna félagið á Akureyri stendur fyrir Norrænum handverksdögum með þátttöku frábærra  kennara frá Skals håndarbjedsskole. Hlutir sem unnir verða á námskeiðinu verða til sýnis í anddyri Amtsbókasafnsins dagana 4. - 7. maí 2008.

Lesið meira um námskeiðið hér

 

Ævintýri ungs fólks í Västerås í Svíþjóð.

Dagana 4. - 9. ágúst verður haldið vinabæjamót í Västerås í Svíþjóð.  Til mótsins er boðið ungu fólki á aldrinum 16-20 ára, 16 fulltrúum frá hverju landi.
Unnið verður í fjórum smiðjum: Frásagnarlist, sirkussmiðju, tónlistarsmiðju, dans- og hreyfismiðju og siglingasmiðju. Engin krafa um sérstaka kunnáttu, allir geta verið með

Lesið meira hér

Danska í Danmörku fyrir íslenska grunnskólanema.

Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri, í samstarfi við Skóladeild Akureyrarbæjar og Europahøjskolen í Danmörku hafa staðið fyrir vellukkuðum tungumálanámskeiðum fyrir íslenska grunnskólanema (7. - 10 bekk) undanfarin fjögur ár.
117 nemendur og 11 íslenskir kennarar hafa tekið þátt og hefur almenn ánægja verið með námsdvölina. 

Í ár eru 18 pláss í boði fyrir nemendur í 8. og 9. bekk grunnskóla. Kennsla fer fram í skólastofu í fjórar kennslustundir fyrir hádegi og eftir hádegi er kennt að mestu leyti utandyra í stórbrotnu umhverfi skólans og verður boðið upp á eitt og annað spennandi fyrir unga fólkið.

Heimasíður námsskeiðanna 2006 og 2007 eru aðgengilegar á heimasíðu Norrænu upplýsingaskrifstofunnar www.akmennt.is/nu

Verkefnið hefur hlotið styrk frá Nordplus Sprog og Kultur en án hans væri það vart framkvæmanlegt. 

Skráning er hafin á næsta námskeið sem haldið verður 8. - 22. júní og eru áhugasamir hvattir til að hafa samband sem fyrst með tölvupósti til mariajons@akureyri.is eða í síma 462 7000.

Söngvísur og baráttuljóð

í Deiglunni á Akureyri laugardaginn 19. apríl kl. 15:00
Í tilefni af útkomu norrænu söngbókarinnar ’Ska nya röster sjunga’

Fram koma Bengt Hall frá Svíþjóð ritstjóri söngbókarinnar og harmonikkuleikari og Per Warming frá Danmörku, rithöfundur, söngvaskáld og söngvari. Þeir félagar munu taka lagið og spjalla stuttlega um tilgang og tilurð söngbókarinnar.

Aðrir flytjendur eru Gunnar Guttormsson, Þórarinn Hjartarson og Solveig Hrafnsdóttir, Kristján Hjartarson og Kristjana Arngrímsdóttir.

Kynnir: Pétur Pétursson læknir.

Lesið meira hér

Námsvist við alþjóðlegan menntaskóla
Auglýst er eftir umsóknum um skólavist við alþjóðlegan menntaskóla í Fjaler í Noregi. Skólinn er rekinn sameiginlega af Norðurlöndunum í tengslum við Rauða krossinn. Nám við skólann tekur tvö ár og lýkur því með viðurkenndu alþjóðlegu stúdentsprófi, International Baccalaureat Diploma (IB). Kennsla fer fram á ensku.

Íslensk stjórnvöld eiga aðild að rekstri skólans og býðst skólavist fyrir einn nemanda. Nemandi þarf sjálfur að greiða uppihaldskostnað sem nemur um það bil 40.000 norskum krónum á ári auk ferðakostnaðar. Nánari upplýsingar má finna á vef skólans: http://www.uwc.org.

Sjá nánar á heimasíðu Menntamálaráðuneytisins

Snorri West
Snorri West verkefnið í Manitoba er frábært tækifæri til að bæta enskukunnáttuna, kynnast öðruvísi starfsumhverfi, mynda ný vináttubönd og jafnvel hitta ættingja. Allt á slóðum Vestur-Íslendinga. Margir hafa síðar farið í skiptinám til Kanada.

Nú býðst fólki einnig tækifæri til að fara til *Ontario *og er sótt um það á www.snorri.is

Verkefnið er niðurgreitt af aðilum vestra. - Umsóknarfrestur til miðnættis föstudaginn 4. apríl n.k

Ásta Sól Kristjánsdóttir, verkefnisstjóri info@snorri.is Óðinsgötu 7 101 Reykjavík S: 551-0165

Menntaáætlun Nordplus 2008-2011
Umsóknarfrestur í Nordplus Junior, Háskólastig, Horisontal og Voksen hefur verið framlengdur til 21. apríl 2008.
Umsóknarfrestur í Tungumála- og menningaráætlun Nordplus 2008-2011 framlengdur til og með 18. mars.
Sjá nánar á www.ask.hi.is

Kynningarkvöld vegna Færeyjaferðar sumarið 2008
Í tengslum við fyrirhugaða ferð á vegum Norræna félagsins á Akureyri til Færeyja verða haldin tvö kynningarkvöld þar sem m.a. verða sýndar myndir, rætt um staðhætti, náttúru og menningu og farið yfir helstu atriði Færeyingasögu.

Lesið meira hér 

Langar þig í ,,Nordjobb,” nám eða önnur ævintýri í Danaveldi?

Nu taler vi DANSK!
Norræna upplýsingaskrifstofan, NF og Húsið á Akureyri kanna áhuga á dönskunámskeið. Áhersla verður lögð á einfalt talmál, danska menningu og samfélag. Námskeiðið er ætlað fyrir aldurshópana 15 -17 ára á laugardögum og á miðvikudögum fyrir 18-25 ára. Ef næg þátttaka fæst hefjast námskeiðin um miðjan febrúar og standa fram í apríl. Samtals 32 kennslustundir.

Áhugasamir hafi samband við Maríu í síma 462 7000, eða með tölvupósti á mariajons@akureyri.is
 

4 MILLJÓNIR Í STYRK TIL ÞÝÐINGA ÍSLENDINGASAGNA
Norræni menningarsjóðurinn hefur samþykkt að veita styrk að upphæð 300.00 danskar krónur til að þýða Íslendingasögurnar á norsku, sænsku og dönsku. Sögunum 40, sem eru meðal þess þýðingarmesta í norrænum menningararfi, á að miðla til nýrra kynslóða á nútímamáli. Þetta er stærsta þýðingarverkefni sem ráðist hefur verið í á Norðurlöndum og er áætlað að það muni kosta um 17 milljónir danskra króna, eða ríflega 200 milljónir íslenskra króna.

Lesið meira á www.norden.org
 

LOFTSLAGSSÝNING VALIN NORRÆN SÝNING ÁRSINS

Tímasetningin gæti varla verið betri. Norræni menningarsjóðurinn hefur ákveðið að sýningin „IMPACT – Art in the age of climate change” verði Norræn sýning á tímabilinu 2008-2010. Sýningin verður opnuð á sama tíma og loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna verður haldin í Kaupmannahöfn árið 2009. Sú ráðstefna verður einn mikilvægasti stjórnmálaviðburður sem nokkru sinni hefur verið haldinn í Danmörku. Ráðstefnan eða leiðtogafundurinn, sem haldin verður dagana 30. nóvember til 11. desember 2009, mun vekja heimsathygli. Valið á loftslagssýningunni, felur í sér að Menningarsjóðurinn mun styrkja hana með 3 milljónum danskra króna.

Lesið meira á heimasíðunni www.norden.org


Rammaáætlun Nordplus 2008-2011
Opnunarráðstefna verður haldin í Norræna Húsinu þann 1. febrúar 2008
klukkan 12:30 - 17:00

Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins, Landsskrifstofa Nordplus á Íslandi, býður til opnunarráðstefnu í tilefni nýrrar Nordplus menntaáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar.

Lesið meira hér

Möguleg fjármögnun til menningarstarfs	
Námskeið á Akureyri
Skipuleggjandi: Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri í samstarfi við Gilfélagið
Flestir þeir sem vinna með menningartengd verkefni þurfa að sækja um styrki til fjármögnunar þeirra.
Til hvaða verkefna, frá hverjum og hvernig er hægt að fá styrki?
Norræni menningarsjóðurinn, aðrir norrænir og innlendir sjóðir verða kynntir.
Tími og staður
Námskeiðið verður haldið í Ketilhúsinu á Akureyri fimmtud. 24. janúar 2008 kl. 11:00 – 16:00
Lesið meira hér

2. janúar 2008

Færeyjaferð Norræna félagsins á Akureyri árið 2008

Nú er komið að næstu ferð Norræna félagsins á Akureyri og verður að þessu sinni haldið til Færeyja. Jónas Helgason, kennari við Menntaskólann á Akureyri hefur tekið að sér að  skipuleggja og undirbúa ferðina, og hefur sett saman saman grófa ferðaáætlun sem skoða má á vefnum: http://www.simnet.is/jonas.helgason/Faereyjar/

Skráning er alfarið hjá Jónasi Helgasyni. Tölvupóstfang hans er aðgengilegt á heimasíðu ferðarinnar.

24. des. 2007

Norræna upplýsingaskrifstofan óskar landsmönnum árs og friðar með
þakklæti fyrir samstarfið á árinu.

18. des. 2007

Fæst styrkur til næsta verkefnis?

Þann 27. og 28. desember gefst áhugasömum kostur á að fá fræðslu um Norræna menningarsjóðinn og aðra norræna sjóði. Farið verður í gegnum umsóknarferli og góð ráð gefin. Fólki gefst kostur á að koma með sínar hugmyndir eða drög að umsókn sem rýnt verður í. Hámark fimm manns komast að í hvern hóp. Áætlaður tími er 2-3 klst. Áhugasamir sendi tölvupóst til mariajons@akureyri.is Kostnaður á mann er 1500 krónur

30. nóv. 2007

TILNEFNINGAR TIL BÓKMENNTAVERÐLAUNA NORÐURLANDARÁÐ

Tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs hafa verið birtar. Fulltrúar landanna í dómnefndinni hafa tilnefnt 12 verk eftir norræna höfunda. Í ár eru tilnefnd verk frá Færeyjum og samíska málsvæðinu en engin tilnefning barst frá Grænlandi.

Verðlaunahafi bókmenntaverðlaunanna 2008 verður valinn á fundi dómnefndarinnar í Stokkhólmi þann 29. febrúar næstkomandi

Frá Íslandi eru rithöfundarnir Bragi Ólafsson tilnefndur fyrir skáldsöguna Sendiherrann og  Kristín Steinsdóttir er tilnefnd fyrir skáldsöguna Á eigin vegum.

Lesið meira um aðrar tilnefningar á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar www.norden.org

27. nóv. 2007

Aðventuævintýri á Akureyri

Á aðventunni þarf engum að leiðast á Akureyri og nágrenni.  Boðið verður
upp á eitt og annað
  spennandi fyrir alla aldurshópa. Kynnið ykkur
viðburðina á heimasíðu Akureyrarbæjar

14. nóv. 2007

Dagskrá í Háskólanum á Akureyri á degi íslenskrar tungu

Á degi íslenskrar tungu 16. nóvember nk. mun Finnur Friðriksson aðjúnkt flytja erindi undir yfirskriftinni „Íslenskt mál: Fljótum við sofandi að feigðarósi?" og Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur og aðjúnkt mun lesa upp úr nýútkominni bók sinni „Nonni og Selma - fjör í 1. bekk.“ Dagskráin fer fram í stofu K201 á Sólborg og hefst kl. 15:00. Allir velkomnir.

Lesið meira hér

6, nóv. 2007

NÝ VINABÖND TIL FLEIRI LANDA

Eystrasaltsríkin þrjú eiga nú jafnan rétt á þátttöku í Nordplus áætluninni á við Norðurlöndin fimm. Nordplus er stærsta mennta- og rannsóknaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar. Nýju Nordplus áætluninni 2008- 2011 var ýtt úr vör á ráðstefnu sem haldin var í Kaupmannahöfn dagana 8. og 9. nóvember. Nordplus áætlunin hefur 63,7 milljónir danskra króna fjárhagsáætlun á árinu 2008.

Lesið meira hér

5. nóv. 2007

NORRÆNA BÓKASAFNSVIKAN SLÆR MET

Stærsti upplestrarviðburður á Norðurlöndum, Norræna bókasafnsvikan, hefst mánudaginn 12. nóvember, með upplestri á sama tíma á öllum Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Þetta er í ellefta sinn að Norræna bókasafnsvikan er haldin. Á þessu ári taka fleiri bókasöfn og skólar þátt en nokkru sinni áður. Fyrir hádegi verður lesið úr Ronju ræningjadóttur og Línu langsokk eftir Astrid Lindgren á skólabókasöfnum og leikskólum, og klukkan 19.00 hefst það sem kallast "setið í rökkrinu". Þá er kveikt á kertum í þúsundum bókasafna og samkomuhúsum og lesið úr "Kristínu Lavransdóttur" eftir norsku skáldkonuna og nóbelsverðlaunahafann Sigrid Undset (1882-1949).

Þemað í ár er "Konan á Norðurlöndum" og markmiðið er að sýna sterkar og sjálfstæðar kvenpersónur í norrænum bókmenntum. Noræna bókasafnsvikan tengist í ár eitt hundrað ára fæðingarafmæli Astrid Lindgren, sem skýrir bókavalið.

Samband Norrænu félaganna (FNF), almannatengslanefnd bókasafna á Norðurlöndum og Norræna ráðherranefndin standa að verkefninu, sem er með þeim stærstu í sinni röð. Tugþúsundir íbúa á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum taka þátt í viðburðum sem haldnir verða á meðan á bókasafnsvikunni stendur. Í fyrra tóku 2.350 bókasöfn, skólar og Norrænu félögin í átta löndum þátt.

lesið meira á www.bibliotek.org

31. okt. 2007

NORÐURLÖNDIN LÁTI AÐ SÉR KVEÐA Í ALÞJÓÐASAMSTARFI

Norrænt svæði þar sem efnahagur er góður, atvinnulíf virkt og stöðugleiki ríkir í stjórnmálum getur notið byrs í alþjóðasamstarfi. Á mörgum sviðum geta Norðurlöndin verið í fararbroddi í alþjóðamálum. Þetta segja þeir Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar og Jan-Erik Enestam framkvæmdastjóri Norðurlandaráðs. Þessir tveir æðstu embættismenn norræna samstarfsins skrifa sameiginlega grein í tilefni af Norðurlandaráðsþingi, sem sett verður um mánaðamótin í Ósló.

Lesið meira og kynnið ykkur hvað er að gerast á Norðurlandaráðsþinginu í Osló á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs www.norden.org

25. okt. 2007

Norrænar stuttmyndir brúa bil milli tungumála

Norðurlöndin í bíó skólaárið 07/08
Þema: Uppvaxtarárin

Nýtt og aðgengilegt kennsluefni fyrir 5. - 8. bekk um Norðurlönd og tungumál Norðurlanda.

- 5 norrænar stuttmyndir á DVD-diski - Kennsluleiðbeiningar og fjölbreytt verkefni - Lifandi og gagnvirk heimasíða - Norðurlönd, norrænar tungur, kvikmyndagerð, menning og samfélag
Verð aðeins kr. 2.815 með sendingarkostnaði og vsk.

Heimasíða verkefnisins:  www.nordenibio.org

Námskeið verður haldið fyrir kennara og skólastjórnendur á Akureyri 22. nóvember 2007 kl. 14.00 - 17.30 Skráning er hafin í síma 462 700 netfang mariajons@akureyri.is

Í Reykjavík 28. nóvember 2007 kl. 14.30 - 17.00 Skráning er hafin í síma 551016
netfang norden@norden.is

22. okt. 2007

Norðurlandaráðsþing 2007
Norðurlönd - lönd sem standa saman

Árlegt Norðurlandaráðsþing verður haldið dagana 30. október til 1. nóvember í Ósló. Þingið hefst með leiðtogafundi þar sem forsætisráðherrar og leiðtogar stjórnarandstöðu í löndunum og sjálfstjórnarsvæðunun ræða viðbrögð við loftslagsbreytingum.

Lesið meira um þingið á heimasíðunni www.norden.org

18. okt. 2007

Upphaf nýrrar Norplus áætlunar

Ný Nordplus áætlun verður kynnt á ráðstefnu í Kaupmannahöfn dagana 8.-9. nóvember. Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, Bertel Haarder menntamálaráðherra Danmerkur og Roma Žakaitiené menntamálaráðherra Litháen halda setningarræður.
Lesið meira á www.norden.org                                            Foto: Johannes Jansson/norden.org

17. okt. 2007

Málþing um loftslagsbreytingar sem haldið var á Akureyri 11. okt. var vel sótt.  Um 110-120 manns komu og hlýddu á og tóku þátt í umræðum.

Málþingið er aðgengilegt á vef Háskólans á Akureyri www.unak.is

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs

Norðurlöndin geta lært af Albertslund segir Connie Hedegaard umhverfisráðherra Danmerkur.
Lesið meira á www.norden.org

9. október 2007

Norrænt menningarsamstarf

Málþing um norrænt menningarsamstarf verður haldið á Hótel Héraði á Egilsstöðum 16. október 2007 kl. 13.00 – 16.30.

Menningarráð Austurlands heldur málþing um norrænt menningarsamstarf. Tilefnið er meðal annars það að út er að koma ritið Á jaðrinum – på ytterkanten, sem er samstarf Menningaráðanna á Austurlandi og í Vesterålen í Noregi. En á milli þessara svæða hefur verið formlegt menningarsamstarf í nokkur ár. Gestur málþingsins er nýr sendiherra Noregs á Íslandi Margit Tveiten. Fyrirlesarar eru Max Dager forstöðumaður Norræna hússins á Íslandi, María Jóna Jónsdóttir forstöðumaður Norrænu uplýsingaskrifstofunnar og Unnur Stefánsdóttir formaður vinabæjanefndar Norræna félagsins á Íslandi.

Dagskrá málþingsins er aðgengileg hér

Listin að gráta í kór fær kvikmyndaverðlaunin

Sýnum fleiri norrænar kvikmyndir á Norðurlöndum sagði leikstjórinn Peter Schønau Fog sem hlýtur kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2007, ásamt framleiðandanum Thomas Stenderup og Bo hr Hansen handritshöfundi,. Verðlaunin nema jafnvirði 4 milljónum íslenskra króna.
                                                                                      
Foto: Johannes Jansson/norden.org
Lesið meira á heimasíðunni
www.norden.org

1. október 2007

ER ÁHRIFA FARIÐ AÐ GÆTA?

Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri, í samstarfi við Viðskipta og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri, stendur fyrir málþingi um loftlagsbreytingar 11. okt. 2007 í Ketilhúsinu á Akureyri kl. 14:00-17:00.  Handhafi Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs árið 2006,   Færeyingurinn, rithöfundurinn og prófessorinn Bogi Hansen er aðalfyrirlesari málþingsins. Auk Boga mæta til leiks Árni Snorrason forstöðumaður Vatnamælinga Orkustofnunar, Haraldur Ólafsson prófessor í veðurfræði við HÍ, Steingrímur Jónsson prófessor í haffræði við HA og sérfræðingur við Hafrannsóknastofnunina og Héðinn Valdimarsson sérfræðingur við Hafrannsóknastofnunina, Tómas Jóhannesson jarðeðlisfræðingur Veðurstofu Íslands og Hjalti Jón Sveinsson formaður Umhverfisnefndar Akureyrar.
Foto: Magnus Fröderberg /norden.org

Málþingið er í boði Saga Capital Fjárfestingarbanka hf.

Dagskrá málþingsins er aðgengileg hér

29.ágúst 2007

Norræn ráðstefna, Menning fyrir lífið  verður haldin í Lundi í Svíþjóð dagana  3.-5. október n.k. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 7. september.
Skráðir þátttakendur eru nú um 330.

Skráning og upplýsingar eru á heimasíðunni www.skane.se/kulturivarden
Dagskrá ráðstefnunnar getur þú kynnt þér hér


29.ágúst 2007

 

Dansk-íslenska félagið, í samvinnu við Stofnun Árna Magnússonar, mun standa fyrir dagskrá í minningu Stefáns Karlssonar handritafræðings í Norræna húsinu sunnudaginn 16. september kl. 14:00.

 

23.ágúst 2007

Norrænar stuttmyndir brúa bil milli tungumála

Í vetur munu 25.000 nemendur á öllum Norðurlöndunum læra
að skilja betur tungumál hver annars. Verkefnið Norðurlöndin
í Bíó verður í ár kynnt fyrir 10-12 ára nemendum og er þemað
Uppvaxtarárin. Með hjálp góðra kvikmynda eflist tungumálakennsla grannþjóðanna á Norðurlöndum. Þetta samnorræna átak er m.a. styrkt af Norrænu ráðherranefndinni og skandinavísku kvikmyndastofnununum.

Samband Norrænu félaganna (FNF) og Norrænu upplýsingaskrifstofurnar standa að verkefninu Norðurlöndin í bíó með útgáfu mynddisks (DVD), sem á eru fimm norræna stuttmyndir. Að auki býðst kennurum nýtt kennsluefni með leiðbeiningum. Markmiðið er að námsefnið nýtist nemendum í 5.- 8. bekk á öllum Norðurlöndunum.

Námsefnið er pantað á heimasíðunni www.nordenibio.org. Þar er að finna kennsluefni, leiðbeiningar og samtalslista sem hægt er að hlaða niður. Þar eru einnig spjallþræðir þ.s. nemendur og kennarar hafa möguleika á að skiptast á skoðunum um tungumál og kvikmyndir sem tengjast verkefninu.

Lesið meira hér

14. ágúst 2007

KVARTETT DORTHE HØJLAND
á síðasta HEITUM FIMMTUDEGI sumarsins

 

Kvartettinn skipa:
Dorthe Højland – saxófónn
Jacob Højland – píanó
Andreas Dreier – kontrabassi
Søren Olsen – trommur

 

Dorthe Højland bíður gestum sínum í ferðalag í myndum og tónum um hálendi Íslands. Hún hefur áður ferðast um víðerni og á stórfenglegustu staði á hálendi landsins í fylgd með sænska ljósmyndaranum Fredrik Holm og nú er hún búin að semja tónlist við litskyggnurnar, sem Fredrik tók í ferðinni. Samhliða tónlistinni á fimmtudaginn verður sýning á „slightmyndum“ úr ferðinni. Kvartett Dorthe Højland er skipaður framúrskarandi góðum hljóðfæraleikurum, sem eru,, í röð fremstu ungu jazzleikara Dana og þessir myndtónleikar hafa fengið lofsamlega dóma.

Tónleikarnir verða haldnir í DEIGLUNNI á Akureyri 16. ágúst, kl 21:30 og fá Norrænir félagar 50% afslátt gegn framvísun skírteinis NF.

10. ágúst 2007

Norræna menningargáttin (Kulturkontakt Nord) auglýsir umsóknarfresti styrkja fyrir íslenska listamenn, menningarstarfsemi og gestavinnustofur.  Umsóknarfrestir eru 24 ágúst, 2. september og 9. september.
Kynnið ykkur málið á heimasíðu stofnunarinnar www.kknord.org

30. júlí. 2007

Munið umsóknarfrest Norræna menningarsjóðsins 1. ágúst og kynnið ykkur umsóknarfresti og möguleika hjá Kulturkontakt Nord (athugið að umsóknarfrestir eru 5. ágúst og 24. ágúst)

19. júní 200

Menning fyrir lífið

Dagskrá og skráning á Norrænu ráðstefnuna, Menning fyrir lífið, sem haldin verður í Lundi
3. - 5. október nú aðgengileg heimasíðu Kultur Skåne

19. júní 2007

Norrænt sagnanámskeið að Reykjum í Hrútafirði

Norrænt sagnaþing verður haldið á Reykjum í Hrútafirði dagana 22-27. júlí. Norrænir sagnaþulir hafa hittst í einu Norðurlandanna í 30. viku ársins í 15 ár og nú er komið að Íslandi. Á meðan á ráðstefnunni stendur gefst þátttakendum tækifæri til þess að taka þátt í námskeiðum sem ætlað er að auka færni og sagnavitund.
Lesið meira á heimasíðu Félags leiðsögumanna

25. maí 2007

Tilbúin, viðbúin, nú: Nýir styrkir til norrænna listamanna

Það ætti að gleðja listamenn og menningarstarfsmenn og -stofnanir á Norðurlöndum að nýir styrkir felast í nýjum samstarfsramma. Ný norræn stofnun, Norræna menningargáttin, auglýsir í dag eftir umsóknum frá starfandi listamönnum á öllum Norðurlöndunum.

Listamenn og menningarstarfsmenn eiga nú í fyrsta sinn kost á því að sækja um styrki úr tveimur áætlunum. Annars vegar er um að ræða styrki til lista- og menningarverkefna, og hins vegar til mannaskipta- og dvalarverkefna. Norræna menningargáttin hefur umsjón með báðum áætlununum.

Lesið meira á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar

22. maí 2007

Ævintýri ungs fólks í Randers

Dagana 6. til 11. ágúst næst komandi verður haldið vinabæjamót í Randers í Danmörku. Vinabæir Akureyrar á hinum Norðurlöndunum auk Randers, eru Ålesund í Noregi, Västerås í Svíþjóð og Lahti í Finnlandi.

Þátttakendur og verkefni Til mótsins er boðið ungu fólki á aldrinum 16 - 20 ára, 16 fulltrúum frá hverju landi. Sérstaklega er leitað að fólki sem hefur tekið þátt í skapandi starfi og tómstundastarfi af einhverju tagi. Unnið verður í fjórum smiðjum: Söngsmiðju, smiðju hlutverkaleikja, listasmiðja og smiðju heimildamyndagerðar. Engin krafa um sérstaka kunnáttu, allir geta verið með.

Gisting og ferðir:
Gist verður í skóla í Randers. Ferðalög, gisting og fæði eru án endurgjalds fyrir þátttakendur. Áhugasamt ungt fólk á aldrinum 16-20 ára getur skráð sig í hjá Maríu Jónsdóttur hjá Norrænu upplýsingaskrifstofunni í netfanginu mariajons@akureyri.is eða í síma 462 7000.
 
Skoðið heimasíðu verkefnisins:  www.NOVU2007.dk

Skráningarfrestur er til 30. maí n.k.

Akureyrarbær og Norræna upplýsingaskrifstofan

15. maí 2007

Aðalfund Norræna félagsins á Akureyri

verður haldinn miðvikudaginn 16. maí kl. 20.00, Glerárgötu 26, 2. hæð.

Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf ásamt kosningu formanns og tveggja stjórnarmanna. Spennandi ferðakynning fyrir sumarið 2008. Léttar veitingar. Félagsmenn og aðrir áhugasamir um norrænt samstarf (sem vilja ganga til liðs við góðan félagsskap) hvattir til að fjölmenna.

14. maí 2007

Íbúðaskipti við danska fjölskyldu í eina viku (18/7 - 26/7).

Dönsk fjölskylda (4 fullorðnir og 1 barn) óskar eftir að íbúðaskiptum við fjölskyldu á Reykjavíkursvæðinu í eina viku í sumar.  Tímabilið er 18. júlí - 26. júlí.

Áhugasamir hafi samband við Maríu með tölvupósti til mariajons@akureyri.is

8. maí 2007

Spurningar - Ný Nordplus áætlun

Allir sem hafa áhuga geta haft áhrif á áherslur í starfi styrkjaáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar á sviði menntunar, Nordplus árin 2008 -2011. Myndið ykkur skoðun á mögulegu samstarfi Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna þriggja á sviði menntunar og komið áliti ykkar á framfæri. Stjórnarnefnd Nordplus á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum mun fjalla um tillögur sem berast á fundi sínum um miðjan júní. Eyðublaðið með spurningum er á norsku og sænsku.

Lesið áfram (sk) á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar

3. maí 2007

Kammerkór Eric Ericsons frá Stokkhólmi hlýtur Tónlistarverðlaun

Kammerkór Eric Ericsons frá Stokkhólmi hlýtur Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 2007 og er umsögn dómnefndar eftirfarandi: "Kammerkór Eric Ericsons gegnir mikilvægu hlutverki og er fyrirmynd kóra í Svíþjóð, á Norðurlöndum og um allan heim vegna framúrskarandi listrænnar tjáningar og frábærra gæða.

Lesið meira á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar

25. apríl 2007

Ertu 17 - 20 ára?  Þá er þetta kannski eitthvað fyrir þig!

Velkommen til en helt spesiell nordisk opplevelse!

Norræna félagið í Noregi býður ungu fólki, með áhuga á umhverfi og útilífi, þátttöku í spennandi verkefni dagana 29. júli – 3. ágúst 2007.

Kynntu þér dagskrá og annað hér

24. apríl 2007

Fullbókað er á dönskunámskeiðið fyrir grunnskólanema (7. - 10. bekk) á Kalø. 

16. apríl 2007

Brynhildur hlýtur Norrænu barnabókaverðlaunin Brynhildur Þórarinsdóttir fær Norrænu barnabókaverðlaunin 2007 fyrir bækurnar Njálu, Eglu og Laxdælu. Brynhildur er fædd 1970. Hún er M.A. í íslenskum bókmenntum og lauk kennsluréttindanámi árið 2005 við Háskólann á Akureyri, þar sem hún starfar nú. Hún hefur skrifað skáldsögur og smásögur fyrir börn og unglinga og hlotið viðurkenningar fyrir verk sín, m.a. íslensku barnabókaverðlaunin 2004 fyrir „Leyndarmál ljónsins”, Vorvinda IBBY 2003 fyrir Njálu, og verðlaun fyrir smásögu í samkeppni Félags móðurmálskennara. Hún er bæjarlistamaður Akureyrar júní 2006-maí 2007.
Lesið meira á heimasíðu
Rthöfundasambands Íslands www.rsi.is

2. apríl 2007

Bergljót Jónsdóttir ráðin framkvæmdastjóri Norrænu menningargáttarinnar

Skrifstofa nýja norræna menningarsamstarfsins opnar þann 1. apríl. Bergljót Jónsdóttir fyrrum framkvæmdastjóri Menningarhátíðarinnar í Bergen hefur verið ráðin framkvæmdastjóri skrifstofunnar til næstu fjögurra ára. Nýja stofnunin sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina nefnist Norræna menningargáttin. Skipuð hefur verið stjórn stofnunarinnar og hópar sérfræðinga settir á laggirnar.

Lesið meira á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar www.norden.org

23. mars 2007

Nýjungar og breytingar í Norðurlandasamningunum

Námskeið um réttindi og skyldur einstaklinga við flutning milli Norðurlandanna verður haldið í Deiglunni á  Akureyri, fimmtudaginn 29. mars 2007, kl. 13.00 – 16.30
Markhópurinn er fyrst og fremst starfsfólk í afgreiðslu og annað starfsfólk sem í starfi sínu þarf að veita upplýsingar um réttindi og skyldur þeirra sem fara frá eða koma til landsins.
Fyrirlestrarnir eru bæði ætlaðir sem endurmenntun og einnig sem góð undirstaða fyrir nýbyrjaða starfsmenn.

Nánari upplýsingar veitir Esther Sigurðardóttir verkefnisstjóri Halló Norðurlanda á Íslandi sími: 511-1808 netfang: hallo@norden.is

21. mars 2007

Auglýsing frá menntamálaráðuneytinu:

Námsvist við alþjóðlegan menntaskóla

Auglýst er eftir umsóknum um skólavist við alþjóðlegan menntaskóla í Fjaler í Noregi. Skólinn er rekinn sameiginlega af Norðurlöndunum í tengslum við Rauða krossinn. Nám við skólann tekur tvö ár og lýkur því með viðurkenndu alþjóðlegu stúdentsprófi, International Baccalaureat Diploma (IB). Kennsla fer fram á ensku.

Íslensk stjórnvöld eiga aðild að rekstri skólans og býðst skólavist fyrir einn nemanda. Nemandi þarf sjálfur að greiða uppihaldskostnað sem nemur um það bil 40.000 norskum krónum á ári auk ferðakostnaðar. Nánari upplýsingar má finna á vef skólans: http//www.uwc.org.

Auglýst er eftir umsækjendum um skólavist fyrir skólaárið 2007-2008. Umsækjendur skulu hafa lokið sem svarar einu ári í framhaldsskóla, hafa gott vald á ensku og vera á aldrinum 16 - 19 ára. Umsóknir berist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 13. apríl næstkomandi. Skóladeild ráðuneytisins veitir nánari upplýsingar í síma 545 9500. Umsóknareyðublöð eru á vef ráðuneytisins www.mrn.is

12. febrúar

Heimasíða Finnlands vegna formennskuársins

Finnland fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2007.  Finnar hafa opnað frábæra heimasíðu og þar sem hægt er að kynna sér áherslur formannsársins.  Einnig eru á síðunni bráðskemmtilegur spurningaleikur og ljósmyndasamkeppni sem allir ættu að skoða.

Skoðið síðuna hér

7. febrúar

Norræna félagið á Akureyri býður upp á tvær ferðir í sumar:

Ævintýri á íslenskum söguslóðum í Noregi.   

Ferð á vegum Norræna félagsins á Akureyri frá 11. – 18. júní um vesturströnd Noregs. Flogið verður til Bergen 11.júní og ferðast um söguslóðir á láð og legi í viku. Litið við á fornum þingstöðum, höfðingjasetrum, síldarslóðum og tónlistar- og næturlíf kannað í Bergen. Þátttakendur verða að vera vel göngufærir og heilsuhraustir. Takmarkað sætaframboð.

og/eða

  Finnland – land sumarævintýra og vetrardrunga, Nokia og Múmínálfa.

Vikuferð í byrjun ágúst. Flogið á Stokkhólm og ferjan tekin til Helsinki.. Ferðast verður um suðurströnd Finnlands frá Porvoo/Borga til Rauma. Þetta er leið um miðaldabæi landsins þar sem saga finnsku þjóðarinnar lúrir við hvert horn. Við gistum jafnt í “villum” sem herbröggum og lærum að veiða okkur til matar og kynda saunu. Takmarkað sætaframboð.

  Suður-Grænland

Hafinn er undirbúningur fyrir hópferð til Suður-Grænlands 10.-17. júlí í sumar. Fararstjóri og skipuleggjandi er Guðmundur Sigvaldason.

Áhugasamir um þessar ferðir hafi samband við Maríu á Norrænu upplýsingaskrifstofunni

6. febrúar 2007

Ný vefsíða um norrænt menningarsamstarf!!!

Á vefsíðunni www.kulturkontaktnord.org eru nýjustu upplýsingar um nýtt skipulag norræns menningarsamstarfs og nýjar menningaráætlanir

5. febrúar 2007

NORRÆN ÁHERSLA Á FRJÁLS FÉLAGSSAMTÖK

Norræna ráðherranefndin auglýsir um þessar mundir verkefnastyrki fyrir frjáls félagasamtök innan ramma styrkjaáætlunar sem ýtt var úr vör árið 2006. Markmið áætlunarinnar er að styrkja borgarasamfélagið á svæðinu og stuðla að svæðasamstarfi.

Áætlunin styrkir þríhliða samstarf á Eystrasaltssvæðinu þar sem minnst einn aðili frá Norðurlöndunum, einn frá Eystrasaltsríkjunum eða Póllandi og einn frá Norðvestur-Rússlandi eða Hvíta-Rússlandi taka þátt.

Áhuginn fyrir áætluninni var mjög mikil þegar hún var kynnt og margar umsóknir bárust. Það er mjög ánægjulegt að við getum boðið frjálsum félagasamtökum þann möguleika að þróa saman og framkvæma verkefni þvert á landamæri, segir Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.

Lesið meira hér

Nýjar áherslur í Nordjobb

Ungt fólk á aldrinum 18 til 28 ára getur sótt um sumarstöf á vefsíðu Nordjobb. Enda þótt norræn ungmenni hafi alltaf haft mikinn áhuga á Nordjobb gerir Fredrik Jakobesen, nýr verkefnisstjóri, sér vonir um að nýjar áherslur skili sér í enn fleiri umsóknum.

"Það er áskorun að byggja á þeim grunni sem lagður var í upphafi og á þessu ári munum við setja Norðurkollusvæðið og Eyrarsundssvæðið í brennidepil sem helsta vaxtarsvæði Nordjobb."

Lesið meira á heimsasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar

23. janúar 2007

Menning fyrir lífið er yfirskrift norrænnar ráðstefnu í Lundi í Svíþjóð dagana 3. - 5. október 2007.  Þar mun verða fjallað um tengsl menningar, heilbrigðis og lífsgæða. Heimasíður ráðstefnunnar eru: www.skane.se  og  www.umea.se/alias/nordisksamverkan

Lesið meira hér...