Gleðilegt ár kæru landsmenn og þakkir fyrir ánægjulegt
samstarf á liðnu ári.
2. des.
Málþing
Breyting hefur orðið á fyrirlestrum málþingsins þ.s. Helgi Hjörvar boðaði forföll.
Arnfríður Aðalsteinsdóttir verkefnisstjóri hjá Jafnréttisstofu hleypur í skarðið og flytur spennandi erindi um jafnréttisfræðslu í skólum og hvernig hún kemur byggðaþróun við.
Barnajól í
Ketilhúsinu

Jólahefðir ólíkra menningarheima 6.des
klukkan 14-16, allir velkomnir
Samstarfsverkefni Norrænu upplýsingaskrifstofunnar,
Menningarmiðstöðvarinnar í Listagili,
Alþjóðahúss,
Nýbúadeildar Oddeyraskóla, Tónlistarskóla Akureyrar og
fleiri.
Verkefnið er styrkt af Menningarráði Eyþings
Dagskrá Barnajóla verður aðgengileg á síðunni á föstudag.

Er grasið grænna hinum megin
Norrænt samstarf á krepputímum
Málþing 2. desember 2009 kl. 16:00-18:00 í Ketilhúsinu á Akureyri
Markmið með málþinginu er að skapa tækifæri til umræðu um stöðu fólks varðandi búsetuskilyrði á krepputímum. Hverjar eru aðstæður ungs fólks. Hvaða norrænu samstarfsúrræði eru til. Getum við lært af frændþjóðunum? Flutningur úr landi er hann jákvæður eða neikvæður fyrir þjóðfélagið? Hvernig er að flytja heim í ríkjandi samfélagsástand.
Fyrirlesarar:
Gestur Guðmundsson,
prófessor í félagsfræði menntunar:
Norræn úrræði fyrir atvinnulaust ungt fólk.
Arnfríður Aðalsteinsdóttir,
verefnisstjóri hjá Jafnréttisstofu
Jafnréttisfræðsla í skólum, hvernig kemur hún byggðaþróun
við?
Soffía Gísladóttir,
forstöðumaður Vinnumálastofnunar Norðurlandi eystra:
Eru Akureyringar á förum?
Arnaldur Bárðarson,
prestur við Glerárkirkju:
Á leið til Noregs.
Brynja Harðardóttir,
lýðheilsufræðingur og myndlistakona:
Heimkoma.
Fundarstjór er Sigrún Stefánsdóttir, stjórnarformaður Norrænu upplýsingskrifstofunnar
23. nóv. 2009

Menntaáætlun Nordplus
Norrænir styrkir til nágrannasamstarfs
Kynningarráðstefna á Hótel Sögu, salnum Stanford, 2. hæð
11. desember 2009 frá kl. 14:00 - 16:30
11. nóv. 2009
Norræna upplýsingaskrifstofan tekur þátt í Alþjóðlegri athafnaviku
Norræna upplýsingaskrifstofan tekur þátt í
Alþjóðlegri athafnaviku með upplýsingum um Norræna
menningarsjóðinn og aðra norræna sjóði á ráðgjafatorgi í
Ketilhúsinu 19. nóvember.
Alþjóðleg athafnavika á Íslandi 16.-22.
nóvember 2009

Lausn vandamála felst í athafnasemi. Með Alþjóðlegri
athafnaviku á Íslandi geta allir lagt hönd á plóg við að
færa fram eitthvað jákvætt til samfélagsins. Þar á meðal
þú!
Nú geta allir, menntastofnanir, sveitarfélög, fyrirtæki,
stofnanir, félagasamtök, hópar og einstaklingar efnt til
viðburðar í þeim tilgangi að virkja þjóðina til jákvæðra
verka. Aðilar í stuðningsumhverfi atvinnu- og menningarlífs
á Norðurlandi leggja sitt af mörkum og standa fyrir
eftirfarandi dagskrá á Akureyri.
16. nóv. 2009

Ókeypis námskeið um flutning til hinna Norðurlandanna – á Akureyri
Norræna félagið vekur athygli á námskeiði ætluðu fólki
sem hyggur á flutning til hinna Norðurlandanna. Námskeiðið
er haldið í samvinnu við Eures, evrópska vinnumiðlun, og
Norrænu upplýsingaskrifstofuna á Akureyri. Um er að ræða
stutt námskeið þar sem farið verður yfir helstu atriði sem
hafa þarf í huga við flutning. Fulltrúi frá
upplýsingaþjónustu Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló
Norðurlöndum, fara yfir atriði eins og skráningu,
húsnæðisleit og sjúkratryggingar og fulltrúi frá Eures
veitir góð ráð varðandi atvinnuleit. Þátttakendum gefst færi
á að bera fram spurningar.
Tímasetning: Miðvikudagur 18. nóvember kl. 16.30
Staðsetning: Deiglan, Kaupvangsstræti 23 á Akureyri.
Námskeiðið er ókeypis, öllum opið og hentar öllum þeim sem
hyggja á flutning hvort sem er vegna atvinnu, náms eða
annarra erindagjörða. Hafa ber í huga að nauðsynlegt er að
skrá sig á námskeiðið fyrir 18. nóvember nk. á netfanginu
mariajons@akureyri.is eða á Norrænu upplýsingaskrifstofunni
í síma 462 7000.
13. nóv. 2009
Nýjar hnattvæðingaráætlanir eiga að styrkja samkeppnishæfni Norðurlandanna
Norðurlöndin vinna nú að nýjum áætlunum á sviði menningar og sköpunar, heilsu og velferðar, orku- og samgöngumála, byggingageirans og rafrænna vísinda (e-science). Áætlanirnar eru á þeim sviðum sem norrænu ríkisstjórnirnar hafa ákveðið að leggja áherslu á með það að markmiði að efla starfið við að takast á við verkefni sem hnattvæðingin hefur í för með sér.
Lesið meira á www.norden.org
11. nóv. 2009
Nýr forstöðumaður Norrænu stofnunarinnar á Grænlandi/NAPA
Leise Johnsen hefur verið ráðin forstöðumaður Norrænu stofnunarinnar á Grænlandi/NAPA frá og með 15. febrúar 2010.
Lesið meira á www.norden.org
10. nóv. 2009
Norræni loftslagsdagurinn 11. nóvember.
Norræni loftslagsdagurinn verður haldinn hátíðlegur 11. nóvember, en hann er hluti af undirbúningi fyrir loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP15), sem haldin verður í Kaupmannahöfn í desember.
Lesið meira á heimasíðu Menntamálsráðuneytisins www.mrn.is
Norræn bókasafnavika 9 - 15 nóvember 2009
Lesið meira um bókasafnsvikuna hér
02. nóv. 2009
Helgi Hjörvar kjörinn forseti Norðurlandaráðs
Helgi Hjörvar alþingismaður verður forseti
Norðurlandaráðs. Helgi Hjörvar var kjörinn forseti
Norðurlandaráðs á Norðurlandaráðsþingi í Stokkhólmi á
fimmtudag. Helgi Hjörvar fæddist 1967, hann var fyrst
kjörinn á Alþingi árið 2003, fyrir Samfylkinguna. Helgi varð
fulltrúi í Norðurlandaráði árið 2007 og fer fyrir íslensku
sendinefndinni í Norðurlandaráði árið 2009.
Helgi Hjörvar tekur við af sænska þingmanninum Sinikka
Bohlin um næstu áramót en þá tekur Ísland við formennsku í
Norðurlandaráði.
26. okt. 2009
Fylgist með daglegum fréttum af Norðurlandaráðsþinginu á
www.norden.orgForsetinn fjallar um atvinnuleysi ungs fólks
Lars Løkke Rasmussen: Mikilvægt að viðhalda norrænum þrýstingi á ESB
Forsætisráðherra Noregs vill ekki
veita Íslendingum sértæka lánafyrirgreiðslu
Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs
telur fjármálakreppuna og loftslagsmál vera mikilvægustu
norrænu málefnin. Á leiðtogafundinum á þriðjudag ítrekaði
hann mikilvægi þess að ríkisstjórnir og innri markaðurinn
tækju ábyrgð á kreppunni.
Norræna upplýsingaskrifstofan er lokuð
Norræna upplýsingaskrifstofan er lokuð 26. okt. til og
með 29. okt. Sendið tölvupóst á starfsmann vegna áríðandi
erinda.
Norðurlandaráðsþing 27.- 29. október í Stokkhólmi
Norðurlandaráðsþing 61. þing Norðurlandaráðs verður haldið dagana 27. til 29. október 2009, í þinghúsinu í Stokkhólmi. Þema leiðtogafundarins sem haldinn verður á þinginu er Norðurlöndin og ESB.
Nánar um þingið á www.norden.org
Verðlaunahafi 2009
Danski kvikmyndaleikstjórinn Lars von Trier
og framleiðandinn Meta Louise Foldager fá kvikmyndaverðlaun
Norðurlandaráðs 2009.
Lesið rökstuðning dómnefndar og fleira á
www.norden
7. okt. 2009

Möguleg fjármögnun til menningarstarfs
Kynning á Akureyri
Flestir þeir sem vinna með menningartengd verkefni þurfa að sækja um styrki til fjármögnunar þeirra. Til hvaða verkefna, frá hverjum og hvernig er hægt að fá styrki?
Sérstök áhersla á þessari kynningu verður lögð á Norræna menningarsjóðinn. Markmið sjóðsins er að efla norrænt menningarsamstarf og er starfssviðið breitt og nær til lista- og menningarsviðsins, jafnt fagfólks sem leikmanna.
Einnig verður farið verður farið yfir aðra sjóði tengda norrænu menningarsamstarfi
7. okt. 2009
Sænska verkefnið 'I Ur og Skur' hlýtur umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs
Sænska skólaverkefnið I Ur og Skur hlýtur náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2009. Dómnefnd umhverfisverðlaunanna ákvað þetta á fundi, sem haldinn var á Íslandi á miðvikudag. Umhverfisverðlaunin, sem eru 350.000 danskra króna eða um 47.000 evrur eru nú veitt í fimmtánda sinn.
Verðlaunin eru að þessu sinni veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem á einstakan hátt hefur skapað gott fordæmi við að fá fólk til að stunda útivist og auka skilning á þýðingu náttúrunnar fyrir andlegt og líkamlegt heilbrigði.
Lesið meira á
www.norden.org
Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2009:
Lesið meira á www.norden.org
Norræna upplýsingaskrifstofan í samstarfi við
Listasumar og Alþjóðahús kynnir:
KREPPA OG KÆRLEIKUR - NÝIR ÍSLENDINGAR í NÝJU
LANDI
í Ketilhúsinu og Deiglunni á Akureyarvöku
Laugardaginn 29. ágúst frá kl. 14 - 18
Dagskrá
Kreppu og kærleiks er hér
Gagnrýnar ljósmyndir af
innflytjendum á Norðurlöndum
Óhefðbundin farandsýning á ljósmyndum af innflytjendum til Norðurlanda er nú á ferð um Norðurlönd. Um er að ræða ljósmyndasýningu Henrik Saxgren; Stríð og kærleikur (Krig og kærlighed), en sýningin hefur hlotið mikið lof. Sýningin er ein af lokasýningum Listasumars á Akureyri og er hingað komin á vegum Norrænu upplýsingaskrifstofunnar á Akureyri. Með framlagi frá Norræna menningarsjóðnum til verkefnisins „Nýir Norðurlandabúar í norrænu samstarfi” var unnt að senda sýninguna á milli Norrænu upplýsingaskrifstofanna sem allar eru staðsettar á landsbyggðinni hjá frændþjóðunum fimm.

Hvað gerðist á Kalø? Horfðu til baka!
Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri efnir til ritgerðarsamkeppni fyrir Kalø -fara undir yfirskriftinni ,,Lífsreynsla á Kalø.” Með Kalø-förum er átt við ungmenni sem tóku þátt í dönskunámskeiðinu „Kan man lære dansk“ á árunum 2004-2008. Umfjöllunarefnið er dönskunámskeið á Kalø, sú reynsla sem Kalø-farar öðluðust og lærdómurinn sem fékkst. Hverju skilaði dvölin?
18. ágúst
Meiri ójöfnuður í norrænu menntakerfi
Munur mælist nú meiri í norrænum menntakerfum en fyrr. Árangur nemenda ræðst sífellt meira á félagslegum þáttum og fjárhagsstöðu foreldra. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem gerð var fyrir Norrænu ráðherranefndina, þar sem árangur norrænna nemenda í síðustu PISA könnun er borinn saman.
30. júlí 2009
Umsóknarfrestur um lýðháskólastyrk framlengdur!
Umsóknarfrestur fyrir lýðháskólavist
á Norðurlöndum skólaárið 2009 - 2010 hefur verið framlengdur. Hægt
er að nálgast umsóknareyðublað á skrifstofu Norræna félagins að
Óðinsgötu 7 eða fá það sent á tölvupósti.
Sjá nánar á heimasíðu NF
www.norden.is
Íþróttalýðháskólar í Danmörku:
Ungmennafélag Íslands hefur gert samstarfssamning við íþróttalýðháskóla í Danmörku. Listi yfir skóla, umsóknareyðublað styrks og aðrar upplýsingar eru aðgengileg á heimasíðunni www.umfi.is
1. júlí 2009
Norræna upplysingaskrifstofan er lokuð vegna sumarfrís starfsmanns í júlí.
23. júní 2009
Jónsmessuleikur í Kjarnaskógi þriðjudaginn 23. júní kl. 18:00 - 21:00
Framandi heimar er yfirskrift árlegra Jónsmessuleika í Kjarnaskógi. Norræna félagið á Akureyri og Norræna upplýsingaskrifstofan verða á svæðinu eins og undanfarin ár. Pylsur og "snobrød, " getraun og upplestur verða á svæðum þeirra sem eru nr. 1 og nr. 9 á korti leikanna sem afhent verður við komu í skóginn.
12. júní
Sýning norska listamannsins
Kaare Espolin Johnson er opnunarsýning Listasumars 2009 á Akureyri.
Kaare Espolin Johnson fæddist í
Surnadal í Noregi árið 1907 og lést í Osló árið 1994.
Espolin nafn Kaare, kemur frá
Espihóli í Eyjafirði, en þaðan eru ættfeður hans i föðurætt.

Norður Norðmenn telja Kaare Espolin Johnson vera „sinn“ listamann. Þeir líta á hann sem fremsta túlkanda mannlífs í Norður Noregi og fremstan þeirra sem túlkað hafa lífsbaráttu þeirra í hinni stórbrotnu og á tíðum óblíðu náttúru. Mikilfenglegar myndir af fiskveiðum og fiskvinnslu við Lófóten bera vott um áhrif evrópskrar nýbylgju í málaralist millistríðsáranna (Matisse, Chagall, Cézannes).
Norski sendiherrann Margit Fredrikke Tveiten mun opna sýningu á verkum Kaare Espolin Johnson föstudaginn 19. júní, kl. 17:00 í Ketilhúsinu á Akureyri
Kynnið ykkur dagskrá í
tengslum við sýningu Kaare Espolin Johnson
HÉR
Sýningin er styrkt af Norræna
menningarsjóðnum
11. júní
Nýtt á heimasíðu Norræna menningarsjóðsins!
Á heimasíðu Norræna menningarsjóðsins er nú hægt að nálgast yfirlit norrænna tvíhliða sjóða eða „bilaterale fonde.“ Heimasíða sjóðsins er www.nordiskkulturfond.org
Athugið að næsti umsóknarfrestur sjóðsins er 1. september!
8. júní
Finnski klarinettleikarinn Kari Kriikku fær Norrænu tónlistarverðlaunin
Finnar hreppa tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs á þessu ári en þau fær klarinettuleikarinn Kari Kriikku. Kari Kriikku nýtur mikillar hylli á alþjóðavettvangi og er þekktur fyrir framúrskarandi tónlistarflutning og sem sendiherra nútíma tónlistar.
18. maí.
Ævintýri ungs fólks í Ålesund í Noregi
Fyrstu vikuna í ágúst verður haldið
vinabæjamót í Ålesund í Noregi. Vinabæir Akureyrar á hinum
Norðurlöndunum auk Ålesund eru Randers í Danmörku, Västerås í
Svíþjóð, og Lahti í Finnlandi. Til mótsins er bo
ðið
ungu fólki á aldrinum 16-20 ára, 16 fulltrúum frá hverju landi. Að
auki verða með í för 2 fararstjórar og stjórnmálamenn frá
Akureyrarbæ.
Sérstaklega er leitað að fólki sem
hefur tekið þátt í skapandi starfi og tómstundastarfi af einhverju
tagi. Þema vinnusmiðjanna er „Hafið tengir okkur saman“. Unnið
verður með eftirfarandi flokka: Ljósmyndun, neðansjávarljósmyndun,
trébátinn, vatnaíþróttir, veiðiferð, allt gott sem frá hafinu kemur,
veggmálun, með hafið sem skapandii uppsprettu, kórsöng (sjávarsöng)
og heimildir (fréttir frá mótinu). Engin krafa er gerð um sérstaka
kunnáttu, allir geta verið með. Sundkunnáttu er þó krafist vegna
þátttöku í neðansjávarljósmyndun.
Lesið meira
hér

13. maí
Nýr samstarfsráðherra Íslands
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra er norrænn samstarfsráðherra.
foto: www.norden.org
27. apríl
Áfram ókeypis menntun á Norðurlöndunum
Norrænu menntamálaráðherrarnir undirrituðu samkomulag þann 23. apríl, sem tryggir námsmönnum á Norðurlöndunum aðgang að æðri menntun í öllum aðildarríkjum Norrænu ráðherranefndarinnar. Ísland fær undanþágu frá samkomulagi sem gert er um greiðslur milli landa, en tekur þátt í samstarfinu á jafnræðisgrundvelli.
22.apríl
Staða forstöðumanns NAPA laus til umsóknar
Norðurlandastofnunin í Nuuk á Grænlandi, NAPA, auglýsir starf
forstöðumanns frá 1. mars 2010. Umsóknir þurfa að berast fyrir 3.
maí 2009.
20. april 2009
Norrænar sumarbúðir í Hillerød fyrir 11-14 ára börn.
Árlegar sumarbúðir Norrænu félaganna
verða í Hillerød í Danmörku frá 28. júní til 5. júlí með þátttöku 90
barna frá öllum Norðurlöndunum. Boðið verður upp á spennandi
kanósiglingu, ýmsar íþróttir, útivist, tónlist og skapandi smiðjur.
Norræna félagið í Noregi og Norræna félagið á Akureyri greiða
þátttöku tveggja barna frá Akureyri. Skilyrði er að foreldrar séu í
Norræna félaginu og verður tekið tillit til fjölskylduaðstæðna við
val á þátttakendum.
Skráning er í síma 462 7000 til og með 29. apríl.
Frændur okkar Norðmenn hafa selt
barmmerki sem á stendur „Nordiske venner av Island“ til styrktar
þátttöku íslenskra ungmenna í norrænum verkefnum. Norræna félagið á
Akureyri ætlar að styrkja það sem á vantar eða 1200 NOK per barn.
Samtals fara 10 börn frá Íslandi og íslenskur fararstjóri fylgir
hópnum.
Lesið meira um sumarbúðirnar hér
Þarftu að bæta dönskukunnáttuna?
Norræna upplýsingaskrifstofan og
Húsið, upplýsinga- og menningarmiðstöð, bjóða upp á örnámskeið í
dönsku fyrir einstaklinga sem hyggja á nám eða störf í Danmörku.
Eftirmiðdagskennsla verður mánudag 27/4, miðvikudag 29/4,
þriðjudagur 5/5 miðvikudag 6/5. Námskeiðsgjöld eru krónur 7.000 og
3.500 fyrir fólk án atvinnu.
Kennari er Anette Kristensen
Skráning og nánari upplýsingar eru í síma 4627000.
17. apríl 2009
Mikill áhugi á skipulagi norræna menningarsamstarfsins
Umdeildar skipulagsbreytingar í
norræna menningarsamstarfinu verða til umræðu á fundi fulltrúa
flestra menningar- og listgreina í dag.
dag hefst umræða norrænna þingmanna um áhrif skipulagsbreytinga í
menningarsamstarfinu sem gerðar voru fyrir tveimur árum.
Breytingarnar á norræna menningarsamstarfinu mættu frá upphafi
andstöðu úr lista- og menningarlífinu, og þess vegna er eftirvænting
og áhugi mikill fyrir opinberum umræðum um málið. Menningar- og
menntamálanefnd Norðurlandaráðs stendur fyrir umræðufundinum og
verður sérstaklega fjallað um upplifun og reynslu listamanna af
menningarsamstarfinu: „Skipulagsbreytingarnar höfðu mikil áhrif í
norrænu menningarlandslagi og nú er tímabært að hlusta á sjónarmið
listamanna og starfsmanna menningargeirans um áhrifin. Við þurfum að
skoða hvort ný samstarfsform og styrkjakerfi virki sem skyldi",
segir Mogens Jensen formaður menningar- og menntamálanefndar
Norðurlandaráðs.
Námsvist við alþjóðlegan menntaskóla
Auglýst er eftir umsóknum um skólavist við alþjóðlegan menntaskóla í Fjaler í Noregi. Skólinn er rekinn sameiginlega af Norðurlöndunum í tengslum við Rauða krossinn. Nám við skólann tekur tvö ár og lýkur því með viðurkenndu alþjóðlegu stúdentsprófi, International Baccalaureat Diploma (IB). Kennsla fer fram á ensku.
Íslensk stjórnvöld eiga aðild að rekstri skólans og býðst skólavist fyrir einn nemanda. Nemandi þarf sjálfur að greiða uppihaldskostnað sem nemur um það bil 45.000 norskum krónum á ári auk ferðakostnaðar. Nánari upplýsingar má finna á vef skólans: http://www.uwc.org.
Lesið meira á vef menntamálaráðuneytisins www.mrn.is
6. apríl 2009
VERÐLAUN SEM VEKJA ATHYGLI Á BÆTTRI LÝÐHEILSU Á NORÐURLÖNDUM
Norræna ráðherranefndin og Norræni lýðheilsuháskólinn veita norræn lýðheilsuverðlaun til að vekja athygli á mikilvægi aðgerða til að tryggja heilbrigði og vellíðan almennings. Þær fela í sér að bæta félagslegar, líkamlegar og andlegar aðstæður í umhverfinu, þætti sem hafa áhrif á lífsstíl svo og skipulag og vinnulag á heilbrigðisstofnunum. Norrænu lýðheilsuverðlaunin 2009 verða veitt einstaklingi, samtökum eða stofnun sem stuðlar að bættri lýðheilsu á Norðurlöndum, hvort heldur í einu landi sem er öðrum norrænum ríkjum fyrirmynd, eða í öllum ríkjunum.
03-04-2009
Per Petterson hlýtur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2009
Norski
rithöfundurinn Per Petterson hlýtur Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs árið 2009 fyrir
skáldsöguna "Jeg forbanner tidens elv".
Lesið meira á www.norden.org
Per Petterson
Foto: Torunn Nilsen
16.
mars

Námskeið um flutning til Norðurlandanna – á Akureyri
Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd
vekur athygli á námskeiði ætluðu fólki sem hyggur á flutning til
Norðurlandanna. Um er að ræða stutt námskeið þar sem farið verður
yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga við flutning, til að mynda
varðandi skráningu, atvinnu og húsnæði auk þess sem þátttakendum
gefst færi á að bera fram spurningar. Þjónusta Halló Norðurlanda og
heimasíða verður einnig kynnt. Tímasetning: Fimmtudagur 26. mars kl.
17.00 (Námskeiðið stendur yfir í 1 – 2 klukkustundir). Staðsetning:
Deiglan, Kaupvangsstræti 23 á Akureyri. Námskeiðið er ókeypis, öllum
opið og hentar þeim sem hyggja á atvinnu í þessum löndum, halda
þangað til náms eða annarra erindagjörða. Hafa ber í huga að
nauðsynlegt er að skrá sig á námskeiðið fyrir 23. mars í síma 511
1808 eða á netfangið hallo@norden.is.
11.mars 2009
Fræðslukvöld um Grænland í tilefni
hópferðar á slóðir Eiríks rauða á Suður- Grænlandi
Fræðslukvöldið verður fimmtudaginn 26. mars kl. 20:00 í kaffiteríu Amtsbókasafnsins við Brekkugötu
Á fræðslukvöldinu verða stuttar frásagnir um sögu norrænna manna á Grænlandi, um konubátinn o.fl. í menningu Inúíta og um náttúrufar svæðisins sem ferðast verður um. Þá verður sagt frá skipulagi ferðarinnar og spurningum svarað. Allir eru velkomnir á fræðslukvöldið og er aðgangur ókeypis.
Örfá sæti eru laus í ferðina, sem verður 14.-21. júlí í sumar. Ferðin er á vegum Norræna félagsins í fararstjórn Guðmundar Sigvaldasonar.
Einstakt tækifæri á sérstæðri upplifun
Nánari upplýsingar hjá Norrænu upplýsingaskrifstofunni í síma 462 7000
Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin ============================================================ AFMÆLISÁR NÁTTÚRU- OG UMHVERFISVERÐLAUNA NORÐURLANDARÁÐS
Í ár verða Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs veitt í fimmtánda sinn. Verðlaunin eru 350.000 danskar krónur og í ár er þemað verkefni sem hvatt hafa Norðurlandabúa til að stunda meiri hreyfingu úti í náttúrunni.
„Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2009 verða veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem á einstakan hátt hefur stuðlað að góðu fordæmi við að fá fólk til að stunda útivist og sem hefur aukið skilning á mikilvægi náttúrunnar fyrir andlegt og líkamlegt heilbrigði.“ Tilnefningar skal senda til sendinefndar Dana í Norðurlandaráði fyrir kl. 12.00 föstudaginn 24. apríl 2009.
Nýtt skipulag menningarmála verður grandskoðað
Þingmenn frá öllum Norðurlöndunum vilja að afleiðingar endurskipulagningar menningarmála fyrir tveimur árum verði rannsakaðar. Breytingu menningarmálaráðherranna á norrænu menningarsamstarfi var frá upphafi mótmælt af norrænu lista- og menningarlífi. Nú á opinber rannsókn að fara fram til að kanna afleiðingar breytinganna.
Lesið meira á www.norden.org
9. febrúar 2009
Á slóðum Eiríks rauða á Grænlandi 14.-21. júlí í sumar
Norræna félagið Akureyri efnir til
hópferðar á slóðir norrænna manna á Suður-Grænlandi í sumar. Farið
verður til Bröttuhlíðar, að Görðum, til Hvalseyjarkirkju og víðar.
Einstakt tækifæri á sérstæðri upplifun.
Fræðslukvöld vegna ferðarinnar verður í mars, allir velkomnir. Það
verður nánar auglýst síðar. Fararstjóri verður Guðmundur
Sigvaldason.
Nánari upplýsingar hjá Norrænu upplýsingaskrifstofunni í síma 462 7000
4. febrúar 2009
Nýr samstarfsráðherra á Íslandi

Ný ríkisstjórn tók til
starfa á Íslandi sunnudaginn 1. febrúar og eins og búist var
við er Jóhanna Sigurðardóttir úr Samfylkingunni forsætisráðherra.
Búið er að ráðstafa öðrum ráðherrastólum og verður Kolbrún
Halldórsdóttir Vinstri hreyfingunni grænu framboði næsti
samstarfsráðherra.
Lesið meira á www.norden.org