Norrænar rætur tunga- saga- menning

Málþing um norrænt samstarf og menningu í Ketilhúsinu á Akureyri þriðjudaginn 14. desember kl.13:00 – 15:00

Fyrirlesarar: Svavar Gestsson, fyrrum formaður Norræna menningarsjóðsins og fyrrum sendiherra í Danmörku. Bogi Ágústsson, frétta- og dagskrágerðarmaður RÚV og formaður Norræna félagsins í Reykjavík, Aðalsteinn Davíðsson cand.mag og Þórhallur Guðmundsson, sjúkraþjálfari.
Fundarstjóri: Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV
Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis

 

http://www.nordplusonline.org/var/ezwebin_site/storage/images/media/images/nordplus_logo/3949-1-eng-GB/nordplus_logo_imagelarge.gif

Menntaáætlun Nordplus

Norrænir styrkir til nágrannasamstarfs 10. desember 2010, frá kl. 13:00 – 16:00. Kynningarráðstefnan verður á Hótel Sögu, salnum Stanford, 2 hæð (inngangur Guðbrandsgötu).
Kynnið ykkur dagskrá ráðstefnunnar hér


Tilkynnt um tilnefningar til Bókmennaverðlauna Norðurlandaráðs.

Gyrðir Elíasson og Ísak Harðarson tilnefndir til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2011 fyrir Íslands hönd!
Kynnið ykkur nánar á www.norden.org
 

Tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs birtar
1. desember

Miðvikudaginn 1. desember kl. 12.00 að
dönskum tíma verður gert opinbert hverjir
hafa  verið tilnefndir til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs 2011.
Lesið meira á www.norden.org

                                                                                    ljósmyndari: Ane Cecilie Blichfeldt 


Upplýsingar um Náttúru- og umhverfisverðlaunin

2011 Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2011 verðlauna sjálfbæra ferðaþjónustu. Verðlaunin sem nema 350.000 dönskum krónum, verða veitt fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem hefur verið í fararbroddi og stuðlað að því að gera ferðaþjónustu á Norðurlöndum umhverfisvænni.

Náttúru- og umhverfisverðlaunin verða nú veitt í 17. sinn. Verðlaunin, sem veitt eru af Norðurlandaráði, nema 350.000 dönskum krónum.

Öllum er heimilt að senda inn tillögur um verðlaunahafa. Í tillögunum þarf eftirfarandi að koma fram auk rökstuðnings:

Lesið meira á www.norden.org

Loftslagsmál verða í brennidepli í formennskuáætlun Finna í Norrænu ráðherranefndinni 2011
Finnar fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á árinu 2011. Þeir hafa ákveðið að á formennskuári verði megináhersla lögð á alls slags aðgerðir til að stemma stigu við loftslagsbreytingum. Markmið er að styrkja stöðu Norðurlanda sem brautryðjenda og sameinaðs afls í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.
Lesið meira um formennskuáætlun Finna hér á www.norden.org


Börn og unglingar eiga að læra meira um loftslagsmál.
11. nóvember verður Norræni loftslagsdagurinn haldinn hátíðlegur með fjölmörgum viðburðum víða um Norðurlönd. Norrænu menntamálaráðherrarnir standa fyrir þessum degi sem á að vekja börn og unglinga til vitundar um leiðir til að sporna gegn loftslagavandanum.
Kynnið ykkur nánar á heimasíðunni
www.norden.org

"Årets Nordiske Kulturfestival for Børn og Unge 2013 - 2014."
3 milljónir DKK til menningarhátíðar fyrir börn og unglinga

 Norræni menningarsjóðurinn hefur eyrnamerkt þrjár milljónir danskra króna til „Norrænnar menningarhátíðar barna og ungmenna árið 2013-2014."
Öllum pottinum verður úthlutað til einnar allsherjar menningarhátíðar sem getur þó innihaldið fleiri smærri verkefni og viðburði. Krafan er að börn og ungmenni frá öllum Norðurlöndunum fái tækifæri til þátttöku. Sjóðurinn leggur áherslu á fjölbreytni í menningarlegum tjáningarformum t.d. með röð verkstæða innan myndlistar, ljósmyndunar, tónlistar, bókmennta, leikhúss/nýsirkuss, kvikmynda og dans. Leiðbeiningar fyrir umsækjendur eru hér á dönsku.
Umsóknarfrestur er: 15. febrúar 2012.

Sækið um fjármagn til undirbúningsverkefna núna!
Nú þegar geta áhugasamir sótt um allt að 30.000 dönskum krónum til undirbúningsverkefna sem enda með umsókn til Norræna menningarsjóðsins til fjármögnunar „Norrænnar menningarhátíðar barna og ungmenna árið 2013-2014."
Umsóknarfrestur er: 1. mars 2011.


Norðurlandaráðsþing 2010 verður haldið í Reykjavík frá þriðjudeginum 2. nóvember til fimmtudagsins 4. nóvember.
Fyllgist með fréttum af þinginu og viðburðum því tengdu á heimasíðu Norurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar hér

Frasar.net
Tæki til tjáskipta á dönsku og íslensku

Miðvikudaginn 27. október, kl. 16.00, bjóða Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Félag dönskukennara til málþings í Norræna húsinu í tilefni af formlegri opnun nýs hjálpartækis, Frasar.net, sem er ætlað að auðvelda tjáskipti á dönsku og íslensku með aðstoð máltækni. Søren Haslund, sendiherra Danmerkur, mun opna máltækið og flutt verða tvö erindi. Pia Jarvad, fræðimaður hjá Dansk Sprognævn, heldur fyrirlestur um orðtök (idiomer) í dönsku og Auður Hauksdóttir kynnir máltækið og notagildi þess, m.a. í dönskukennslu.
Lesið meira um málþingið og máltækið
hér


Norrænir styrkjamöguleikar á ýmsum sviðum
Kynningafundir 2. og 3. nóv. í Reykjavík

Í tengslum við þing Norðurlandaráðs 2. - 4. nóvember verða haldnir kynningafundir um samnorræna styrkjamöguleika á nokkrum sviðum. Fundirnir eru skipulagðir af verkefnisstjóra norræns samstarfs hjá Impru í samvinnu við Norræna húsið.
Fundirnir verða þrír og eru þemaskiptir:

Styrkir til menningar og lista, 2. nóvember kl. 15-17, Listaháskóli Íslands -
Styrkir til nýsköpunar og rannsókna, 3. nóvember kl. 9-11, Norræna húsið
Styrkir til umhverfis- og orkumála, 3. nóvember kl. 14-16, Norræna húsið

Styrkirnir eru fyrir fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og einstaklinga, þó breytilegt eftir sviðum.

Skráning á kynningarfundina fer fram á netfanginu: norden@nmi.is - nauðsynlegt er að tilkynna á hvaða fund er verið að skrá mætingu. Vinsamlegast tilkynnið mætingu fyrir 1. nóvember.

Nánari upplýsingar um kynningafundina er að finna hér

 

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2010

Danski kvikmyndaleikstjórinn Thomas Vinterberg, handritshöfundurinn Tobias Lindholm og framleiðandinn Morten Kaufmann hljóta eftirsóttustu kvikmyndaverðlaun Norðurlanda fyrir kvikmyndina SUBMARINO.

Lesið meira á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs hér

Styrkjanámskeið á Akureyri

Þriðjudaginn 19. október kl. 16:00 -18:00 mun María Jónsdóttir, forstöðukona Norrænu upplýsingaskrifstofunnar, fara yfir mögulega fjármögnun norrænna menningarverkefna í Deiglunni Kaupvangsstræti 23.

Dagskrá:

• Norræni Menningarsjóðurinn
• Aðrir norrænir sjóðir
• Hvernig skrifa ég góða umsókn
• Hugmyndir að norrænum samstarfsverkefnum

Skráning er með tölvupósti til mariajons@akureyri.is eða í síma 460 7000 fyrir kl. 16:00 mánudaginn 18. október.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.


                                       

Ókeypis námskeið um flutning til hinna Norðurlandanna -
 á Akureyri

Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, vekur athygli á námskeiði ætluðu fólki sem hyggur á flutning til hinna Norðurlandanna. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Eures, evrópska vinnumiðlun, og Norrænu upplýsingaskrifstofuna á Akureyri. Um er að ræða stutt námskeið þar sem farið verður yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga við flutning. Fulltrúi frá upplýsingaþjónustu Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, fer yfir atriði eins og skráningu, húsnæðisleit og sjúkratryggingar og fulltrúi frá Eures veitir góð ráð varðandi atvinnuleit. Þátttakendum gefst færi á að bera fram spurningar.

Tímasetning: Mánudagurinn 18. október kl. 17.30
Staðsetning: Deiglan, Kaupvangsstræti 23 á Akureyri.

Námskeiðið er ókeypis, öllum opið og hentar öllum þeim sem hyggja á flutning hvort sem er vegna atvinnu, náms eða annarra erindagjörða.

Hafa ber í huga að nauðsynlegt er að skrá sig á námskeiðið
fyrir kl 12:00 18. október með tölvupósti til mariajons@akureyri.is eða á Norrænu upplýsingaskrifstofunni í síma 462 7000.

 

Vinabekkir óskast!

Tveir bekki í Dalby skole i Kolding í Danmörku óska eftir vinabekkjasamstarfi við íslenskan skóla. Um er að ræða tvo áttundu bekki með 18 nemendur í hvorum bekk.

Þau stefna á að koma til Íslands 30. apríl - 6. maí 2011.

Áhugasamir eru beðnir að senda tölvupóst á mariajons@akureyri.is eða hringja
í 462 7000

Norrænt tungumálaátak

Norræna upplýsingaskrifstofan stendur fyrir málstofu á ráðstefnu um menntamál í Íþróttahöllinni á Akureyri 1. október 2010. Málstofan tengist „Norrænu tungumálaátaki“ og ýmsum möguleikum sem leynast innan norræna tungumálasamstarfsins.

Hver er staðan í dag? Eigum við að halda áfram að tala saman á skandinavísku þegar við hittum frændur okkar frá öðrum norrænum ríkjum eða eigum við að halla okkur að enskunni?

Kynntir verða möguleikar fyrir þá sem vilja beita sér fyrir varðveislu norrænna tungumála í málstofunni „Norrænt tungumálaátak.”

Ýmsar nytsamar slóðir og Norrænt tungumálaátak:
María Jónsdóttir frá Norrænu upplýsingaskrifstofunni

Styrkir til norrænnar samvinnu á sviði menntamála
Menntaáætlun Nordplus 2008-2011
Guðmundur Ingi Magnússon

Er norrænt vinabekkjasamstarf einhvers virði. Sprogpiloter, hvað er nú það?
Anna Kristjana Ásmundsdóttir dönskukennari í Flúðaskóla


Menntaáætlun Nordplus 2008-2011

1. Nordplus Junior: 15. október nk. - undirbúningsheimsóknir. Ferðastyrkir til að hitta samstarfsaðila og undirbúa umsókn um skólaheimsóknaverkefni (fyrir Junior eða Sprog og kultur) fyrir umsóknarfrestinn 1. mars 2011, fyrir skólaárið 2011-2012.

Sjá nánar hér

2. Nordplus Nordiske Sprog og Kultur 15. október nk - umsóknarfrestur fyrir tungumálaverkefni (EKKI skólaheimsóknaverkefni). Hér eru m.a. veittir styrkir til námsefnisgerðar, skipulag ráðstefna og námskeiða, stofnun samstarfsneta, útgáfu rita, orðabóka- og íðorðavinnu, og máltækniverkefna.

Sjá nánar hér


Gerður Kristný hlýtur barnabókarverðlaun

Gerður Kristný hlýtur Barna-og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins 2010 fyrir skáldsöguna Garðurinn. Ólína Þorvarðardóttir formaður ráðsins og prófessor Dagný Kristjánsdóttir afhentu Gerði Kristnýju verðlaunin sem nema um 1,2 milljón íslenskra króna í Alþingishúsinu.

Lesið meira á www.norden.org

 

Tríó Gáman frá Danmörku                                                                  Ljósmyndari Jette J¢rs

Harmóníka – Blokkflauta – Fiðla – Víbrafónn og Orgel.

Meginviðfangsefni Gáman tríósins er að tvinna saman gamla norræna alþýðutónlist og nýjar tónsmíðar. Tríóið hefur leikið víða á Norðurlöndum og vakið athygli fyrir einstaklega fallega og áhugaverða efnisskrá og heillandi hljóðheima. Meðlimir tríósins eru þekktir              tónlistarmenn í heimalandi sínu Danmörku.

Tónleikar fyrir unga sem aldna á eftrtöldum stöðum:

1. september í Norræna húsinu kl. 21:00
2. september í Sláturhúsinu á Egilsstöðum kl. 20:00
3. september í Gamla Bauk á Húsavík kl. 21:00
4. september í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri kl. 20:00

Aðgangseyrir er kr. 1.000.-

Tónleikaferð Gámunnar er styrkt meðal annarra af Norræna menningarsjóðnum

 

The Good Heart tilnefnd til kvikmyndaverðlauna
Norðurlandaráðs 2010.

Fimm magnaðar kvikmyndir keppa um kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2010 NCFP 2010 Icons Nordic Council Film Prize

Kvikmyndin The Good Heart er framlag Íslands til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs   2010.

24/08 2010 Fimm áhrifaríkar en jafnframt afar ólíkar norrænar kvikmyndir keppa um hin eftirsóttu kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs á þessi ári. Íslenski leikstjórinn og handritshöfundurinn Dagur Kári og framleiðendurnir Þór Sigurjónsson og Skúli Fr. Malmquist eru tilnefndir til verðlaunanna fyrir kvikmyndina The Good Heart og keppa við eina mynd frá hverju hinna norrænu ríkjanna: Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð.

Lesið meira á heimsíðunni www.norden.org

Tilnefningar til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs verða birtar 24. ágúst.

Norræna upplýsingaskrifstofan vekur athygli á að yfirlit norrænna styrkja til m.a. menningarmála er komið á styrkjasíðuna.

Nú styttist í að umsóknarfrestur renni út fyrir þá sem ætla að sækja um styrki í þessari lotu til Norræna menningarsjóðsins. Síðasti dagur er 1. september
 

Torgið Óða á menningarnótt

Norræna félagið í Reykjavík býður uppá viðamikla dagskrá á menningarnótt.
Sjá nánar
hér.

Jónsmessuleikar í Kjarnaskógi

Norræna upplýsingaskrifstofan og Norræna félagið á Akureyri taka þátt í árlegum Jónsmessuleikum í Kjarnaskógi 23. júní
kl. 18:00-20:00. Getraunir fyrir börn og fullorðna um Norðurlöndin og norrænt samstarf. Snobrød og pølser að dönskum sið og margt fleira spennandi fyrir fjölskylduna.

Kynnið ykkur kortið af svæðinu hér


Norrænir handverksdagar 2010

Norræna félagið á Akureyri mun í samstarfi við Handverkshátíðina að Hrafnagili standa fyrir Norrænum Handverksdögum dagana 10. – 12. ágúst.

Lesið meira um handverksdagana hér


Frétt frá Norræna menningarsjóðnum

Yfir 40 milljónum úthlutað til norræns menningarstarfs

Norræni menningarsjóðurinn hefur nýlokið júníúthlutun sjóðsins og hafa 30 norræn verkefni fengið samanlagt 2,1 milljón danskra króna eða ríflega 44 milljónir íslenskra króna.

Meðal styrktra verkefna eru:
Nordisk Music Camp 2010 for blinde og svagsynede i Hellerup
Multietniske medietræf for nye nordboere I Århus
Kill-Town Death Fest på Nørrebro

Lesið nánar um úthlutanir og sjáið lista yfir styrkt verkefni á: www.nordiskkulturfond.org
 

Þrír stjörnurithöfundar í upplestri ársins
”Töfraheimar Norðursins”


              
Foto:  Mia Ajvide                                 Foto: Lena Kaaberbol                          Foto:Christopher Lund

Textar rithöfundanna Johns Ajvide Lindqvist frá Svíþjóð, Lene Kaaberbøl frá Danmörku og Andra Snæs Magnasonar hafa verið valdir út fyrir upplestrarhátíðina Í ljósaskiptunum sem haldin verður í fjórtánda skipti á Norrænu bókasafnavikunni dagana 8.-14. nóvember.

Norræna félagið stendur fyrir Í ljósaskiptunum sem er stærsta upplestrarhátíð á Norðurlöndunum og ein sú stærsta í heiminum. Í fyrra tóku 2000 stofnanir á Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum þátt í hátíðinni; alveg frá Íslandi í norðvestri til Litháen í suðaustri.


Lesið meira hér

Þrír norrænir bankar fá Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2010

 

Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2010 fara til þriggja banka, Merkur Andelskasse, Ekobanken og Cultura Bank. Bankarnir hljóta verðlaunin fyrir græna og sjálfbæra stefnumótun.


Lesið meira á www.norden.org

 

Norska tónskáldið Lasse Thoresen fær tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs 2010

Tónskáldið og prófessor í tónsmíðum Lasse Thoresen fær tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2010 fyrir verkið Opus 42.

Ljósmynd: Laila Meyrick

Lesið meira um tónlistarverðlaunin á www.norden.org


Ókeypis lýðháskólanám fyrir þrjá Íslendinga í Færeyjum

Føroya Fólkaháskúli býður upp á lýðháskólanám í vestnorrænum fræðum í haust sem býðst þremur íslenskum ungmennum á aldrinum 17-19 ára ókeypis. Innifalið eru ferðir til og frá Færeyjum sem og skólagjöld, þ.e. nám, matur og gisting. Námið stendur yfir frá 16. ágúst til 17. desember 2010. Skólinn býður jafnframt þremur Grænlendingum og 10-12 Færeyingum upp á sama nám. Það verður kennt í færeysku, sögu, bókmenntum, heimspeki og skapandi fögum. Kennt er á færeysku, dönsku eða skandinavísku. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans www.haskulin.fo
 

Sumarnámskeið í norskum fræðum

Norgesskolen býður ungu fólki á aldrinum 9-18 ára upp á nám í norskum fræðum, þ.e. norsku, samfélagsfræði og sögu. Um er að ræða þriggja vikna námskeið frá 4. -23. júlí. Lofað er skemmtilegri og innihaldsríkri tómstundadagskrá í sveitasælunni. Frekari upplýsingar má nálgast á www.norgeskolen.no


Ævintýri ungs fólks í Lahti

Dagana 28. júní. – 4. júlí 2010 næstkomandi verður haldið vinabæjamót í Lahti í Finnlandi. Vinabæir Akureyrar á hinum Norðurlöndunum auk Lahti eru Ålesund í Noregi, Randers í Danmörku og Västerås í Svíþjóð.

Þátttakendur og verkefni Til mótsins er boðið ungu fólki á aldrinum 16 - 20 ára, 17 fulltrúum frá hverju landi. Sérstaklega er leitað að fólki sem hefur tekið þátt í skapandi starfi og tómstundastarfi af einhverju tagi. Áherslur listasmiðjanna í ár eru á norrænt samstarf og menningu. Þema vikunnar er "Norden i världen ? Världen i Norden?"

Áhugasamt ungt fólk á aldrinum 16-20 ára skráir sig hjá Maríu Jónsdóttur á Norrænuupplýsingaskrifstofunni. Netfang mariajons@akureyri.is eða í síma 462 7000.

Skráningarfrestur er til kl. 13:00 miðvikudaginn 19. maí n.k.

Nánari upplýsingar hér


Norræni menningarsjóðurinn veitir veglegan styrk:
66 milljónir til leiklistarverkefnis frá Eyrarsundi yfir Atlantsála

Norræni menningarsjóðurinn ákvað í dag að veita norræna leiklistarverkefninu „Udvandrerne“ 66 milljón króna styrk. Viðamikið söng- og leikverk greinir frá sögu útflytjenda og fólksflutninga séð með augum Íslendinga, Svía og Dana. Heimabyggðin lamast þegar maður einn leggur land undir fót. Lítið samfélagið fer ekki varhluta af hræringum úti í hinum stóra heimi.

Borgarleikhúsið í Málmey, leikhúsið FÅR302 í Kaupmannahöfn og íslenski leikhópurinn Vesturport hljóta styrk Norræna menningarsjóðsins, sem nemur 66 milljónum króna (3 milljónum danskra króna), til að setja nýskapandi leiksýningu á svið undir heitinu „Udvandrerne“ (Útflytjendurnir).

Lesið meira á www.norden.org


 

Margt smátt gerir eitt stórt
Hugsaðu hnattrænt og framkvæmdu heima fyrir

Málþing um umhverfismál á Akureyri

Staðsetning: Hótel KEA 
miðvikud. 5. maí kl. 14:00-16:30

Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri, í samstarfi við Staðardagskrá 21 á Akureyri, vill með þessu málþingi um umhverfismál vekja athygli á brýnum málaflokki. Haldið verður áfram umræðu um umhverfismál allt frá því smáa til hins stóra og við fræðumst um niðurstöður Loftslagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn og hver verða næstu skref. Hver er hnattræn staða umhverfismála nú, hvernig er norrænu umhverfissamstarfi háttað, hvað er að gerast í umhverfismálum á landsvísu og ekki síst hvað er að gerast í nágrenni okkar?.

Dagskrá:

Setning Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra

Þátttaka Íslands í norrænu samstarfi að umhverfismálum
Danfríður Skarphéðinsdóttir - sérfræðingur í umhverfisráðuneyti

Íslenskur umhverfisveruleiki
Stefán Gíslason - umhverfisstjórnunarfræðingur UMÍS ehf Environice

„ ...og framkvæmdu heima fyrir.”
Sigríður Stefánsdóttir –verkefnastjóri Akureyri

Hugleiðing um umhverfi Akureyrar
Pétur Halldórsson - útvarpsmaður

Liffræðileg fjölbreytni og „Count down 2010.“
Jón Ingi Cæsarsson - varaformaður umhverfisnefndar Akureyrarbæjar

Spörum orku, peninga og útblástur
Sigurður Ingi Friðleifsson – framkvæmdastjóri Orkuseturs

Vistvæn atvinnusköpun - úrgangur er verðmæti
George Hollanders - stjórnarformaður Iðngarða

„Svo vex tréð sem greinin er sveigð." Leikskólinn Kiðagil í átt að Grænfána
Drífa Þórarinsdóttir - leikskólakennari Kiðagili

Fundarstjóri er Pétur Halldórsson

Aðgangur ókeypis - Allir velkomnir
 

 


 

 

Kynningarfundir um norræna og evrópska menningarsjóði.

Staðsetning:
Hvíti bærinn Borgarnesi, 26. apríl kl. 11:00 - 13:00
Ráðhúsloftið Stykkishólmi, 26. apríl kl. 15:00 - 17:00
Leifsbúð í Búðardal, 27. apríl kl. 10:00 - 12:00
Þróunarsetrið á Hólmavík 27. apríl kl.15:00 -17:00
Þróunarsetur Vestfjarða á Ísafirði 28. apríl kl. 14:00-16:00

Norrænu upplýsingaskrifstofan á Akureyri, Norræna húsið og Upplýsingaþjónusta menningaráætlunar Evrópusambandsins í samstarfi við Menningarráð Vesturlands og Menningarráð Vestfjarða og aðra, boða til kynningarfundar á norrænum og evrópskum menningarsjóðum.

Flestir þeir sem vinna með menningartengd verkefni þurfa að sækja um styrki til fjármögnunar þeirra. Til hvaða verkefna, frá hverjum og hvernig er hægt að fá styrki?

Kynning verður á: Norræna menningarsjóðnum, Menningargáttinni/Kulturkontakt Nord og Menningaráætlun Evrópusambandsins.

Farið verður yfir helstu áherslur þegar sótt er um styrki og umsóknareyðublöð sjóða verða kynnt.

Fyrirlesarar eru: María Jónsdóttir forstöðumaður Norrænu upplýsingaskrifstofunnar á Akureyri, Þuríður Helga Kristjánsdóttir starfsmanna- og verkefnastjóri Norræna húsinu og Rósa B. Þorsteinsdóttir forstöðumaður Upplýsingaþjónustu menningaráætlunar Evrópusambandsins.

Aðgangur ókeypis.

 

Fréttir frá Norræna menningarsjóðnum

Yfir 90 milljónir til norræns menningarstarfs
Norræni menningarsjóðurinn hefur nýlokið úthlutun úr fyrsta úthlutunarpotti árið 2010 og hafa 65 verkefni víðsvegar frá Norðurlöndum fengið samtals yfir 4 milljónir danskar krónur.

Meðal verkefna sem hlotið hafa styrki má nefna: Sabaar African Festival på Åland Nordisk Ballet Konference, Linköping Kristendommens historie på Grønland, Finland Nordiske mesterskaber for DJs, København Verdensmusik Aida Nadeem, Oslo og Stavanger

Lesið nánar hér og skoðið lista yfir verkefnin 65 sem hafa fengið styrki á heimasíðu sjóðsins www.nordiskkulturfond.org

 

Finnska skáldkonan Sofi Oksanen fær bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2010 Sofi Oksanen

Finnska skáldkonan Sofi Oksanen hlýtur
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2010
fyrir verkið Puhdistus (Hreinsun).

Með þriðju skáldsögu sinni sýnir Sofi Oksanen
(fædd 1977) virkilega hvað í henni býr.
 
Á ríkan og tjáningarfullan hátt fléttar hún hér                       
saman frásögn  um sögulega viðburði,                                  ljósmyndari Toni Härkönen
hernám Sovétmanna í Eistlandi, og
brennandi alþjóðlegt vandamál í samtímanum,
mansal á Eystrasaltssvæðinu.

Lesið meira á www.norden.org

 

Norræna ráðherranefndin efnir til samkeppni meðal hagfræðinga

Norræna ráðherranefndin, í samstarfi við fjármálaráðuneytið í Danmörku, efnir til samkeppni meðal hagfræðinga með verðlaunum sem nema 250.000 danskra króna. Verðlaunin, þar á meðal fyrstu verðlaun sem eru 150.000 danskar krónur, verða veitt fyrir bestu greiningu á því hvort efnahagsstefna undanfarins hagsveiflutímabils hafi verið í samræmi við markmið um stöðugleika í hagsveiflu.

Lesið meira hér

 

Næsti umsóknarfrestur Norræna menningarsjóðsins er 1. apríl

Nýjar áherslur Norræna menningarsjóðsins árið 2010

Norræni menningarsjóðurinn styrkir norrænt lista- og menningarsamstarf, fagfólks sem leikmanna.

Frá og með 1. janúar 2010 gengu í gildi fimm nýjar áherslur Norræna menningarsjóðsins. Sjóðurinn leggur áfram metnað í að styrkja norrænt menningarsamstarf í víðum skilningi.

• verkefni fyrir og með börnum og unglingum
• verkefni með áherslu á aukna þekkingu á mismunandi tungumálum Norðurlandanna og þýðingu tungumálsins við að varðveita menningu
• verkefni sem hvetja til þátttöku nýrra Norðurlandabúa í norrænu menningarsamstarfi
• verkefni sem unnin eru á fámennum svæðum á Norðurlöndum
• verkefni sem hvetja til samstarfs á milli vestnorrænu landanna (Færeyja, Grænlands og Íslands) og hinna Norðurlandanna

Lesið meira hér


Dönsku-klúbbur Norræna félagsins á Akureyri

Dönsku klúbburinn er ætlaður grunnskólabörnum sem búa yfir kunnáttu í dönsku eftir búsetu ytra. Markmið klúbbsins er að skapa vettvang fyrir börnin til að viðhalda dönskunni sem þau hafa þegar tileinkað sér í Danmörku. Þeim gefst tækifæri til gegnum leik og starf að þjálfast í hlustun og tjá sig á dönsku í góðum félagsskap.

Lesið meira hér
 

Þrettán tilnefndir til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2010

Tilkynnt hefur verið hverjir eru tilnefndir til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2010.

Tónskáldin Daníel Bjarnason og Þuríður Jónsdóttir eru tilnefnd fyrir Íslands hönd til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs. Tilkynnt verður um hver hlýtur verðlaunin þann 1. júní. Tónlistarverðlaunin verða afhent á þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík í lok október

Lesið meira um tilnefnigar á www.norden.org


Lýst eftir skapandi frumkvöðlafyrirtækjum

Mannaskiptaáætlun Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna fyrir viðskipti og iðnað.
Stækkaðu tengslanetið, lærðu og miðlaðu þekkingu þinni. Frestur til að skila inn umsóknum rennur út 31. mars 2010.

Lesið meira á www.norden.org


Skáldastund á Amtsbókasafninu

 4. mars kl. 16:15 - 17:00.

 


Stórskáldin Einar Már Guðmundsson handhafi bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og Peter Laugesen, sem tilnefndur er til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2010, munu lesa úr verkum sínum og eiga góða stund með gestum Amtsbókasafnsins fimmtudaginn 4. mars frá kl. 16:15 -17:00.

Dynamo + Peter Laugesen og Einar Már Guðmundsson:
Sambræðingur  jazz, ljóð- og vídeólistar á Græna hattinum á Akureyri
4.mars kl. 21.00


Mynd: Peter Laugesen og Christian Vuust                 Mynd:Einar Már Guðmundsson

Christian Vuust Dynamo jazzband er á ferð um Norðurlönd 28.feb. - 11.mars 2010. Þeir byrja í Færeyjum og koma síðan til Íslands og spila í Norræna húsinu 3. mars kl. 20:00 og á Græna hattinum á Akureyri 4. mars kl. 21.00.

Samstarfsaðilar um heimsókn listamannanna til Akureyrar eru: Christian Vuust, Amtsbókasafnið, Græni hatturinn, Jazzklúbbur Akureyrar, Norræna upplýsingaskrifstofan og Tónlistarskólinn á Akureyri.
Norræni menningarsjóðurinn og fleiri sjóðir hafa styrkt tónleikaför hópsins.

Lesið meira um listamennina hér

Nordplus - Comenius - Etwinning

Norrænir og evrópskir styrkjamöguleikar fyrir leik- grunn- og framhaldsskólastigið

Umsóknarfrestir nálgast óðfluga, enn er þó tími til að tengjast evrópskum kollegum eða skoða endurmenntunarmöguleika.
Ragnhildur Zoega og Áslaug Jónsdóttir frá landskrifstofu Nordplus og Comenius
vísa á tækifæri í erlendu samstarfi

Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26 kl. 12:30, 19. janúar 2010.

Skráið ykkur hjá mariajons@akureyri.is fyrir kl 16:00 mánudaginn 18. janúar.

 

Áherslur og umsóknarfrestir Norræna menningarsjóðsins árið 2010

Nýjar áherslur sjóðsins

Norræni menningarsjóðurinn styrkir norrænt lista- og menningarsamstarf, fagfólks sem leikmanna.

Frá og með 1. janúar 2010 ganga í gildi fimm nýjar áherslur Norræna menningarsjóðsins. Sjóðurinn leggur áfram metnað í að styrkja norrænt menningarsamstarf í víðum skilningi.

• verkefni fyrir og með börnum og unglingum

• verkefni með áherslu á aukna þekkingu á mismunandi tungumálum Norðurlandanna og þýðingu tungumálsins við að varðveita menningu

• verkefni sem hvetja til þátttöku nýrra Norðurlandabúa í norrænu menningarsamstarfi

• verkefni sem unnin eru á fámennum svæðum á Norðurlöndum

• verkefni sem hvetja til samstarfs á milli vestnorrænu landanna (Færeyja, Grænlands og Íslands) og hinna Norðurlandanna

Lesið meira hér