Danska í Danmörku
fyrir íslenska grunnskólanema.

Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri, í samstarfi við Skóladeild Akureyrarbæjar og Europahøjskolen í Danmörku
hafa staðið fyrir vellukkuðum tungumálanámskeiðum fyrir íslenska grunnskólanema (7. - 10 bekk) undanfarin þrjú ár. Þátttakendur, sem telja nú 85 nemendur og 8 kennara, hafa verið ánægðir með dvölina ytra og námskeiðið hefur skilað sér vel, þegar horft er til áhuga og færni nemenda í dönsku að því loknu sem og fleiru. Verkefnið hefur hlotið styrk frá Nordplus-Sprog en án hans væri það vart framkvæmanlegt.

Nú er skráning hafin á næsta námskeið. Það verður haldið á Europahøjskole á Kalø 14. júní (flogið út 13. júní) – 27. júní 2007. Flogið verður frá Keflavík til Billund. Áhugasamir hafi samband við Maríu með tölvupósti til mariajons@akureyri.is eða í síma 462 7000 (mánud. – fimmtud. 09:00 - 14:00).

Skoðið skýrslu Michaels Dal og heimasíðu námskeiðsins 2006 hér til vinstri.
 


Norræna upplýsingaskrifstofan vekur athygli á að fyrirhugað er dönskunámskeið fyrir grunnskólanema í júní 2007. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við skrifstofuna.



 

 

80 ára afmæli! 

Árið 2006 er Norræna félagið á Akureyri 70 ára og
Norræna upplýsingaskrifstofan 10 ára.

Við fögnum þessum tímamótum með kynningu á Glerártorgi  þann 25. nóvember kl. 13.00-17.00.  Komið og fáið upplýsingar um Norðurlöndin á Nýstárlegan hátt. Kynnist "Lifandi bókasafni".

"Sammenkomst" í Lóni er því miður aflýst vegna óviðráðanlegra orsaka.

Möguleg fjármögnun til menningarstarfs
Námskeið á Akureyri

Skipuleggjandi: Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri

Flestir þeir sem vinna með menningartengd verkefni þurfa að sækja um styrki til fjármögnunar þeirra.
Til hvaða verkefna, frá hverjum og hvernig er hægt að fá styrki?
Farið verður yfir helstu sjóði tengda evrópsku og norrænu menningarsamstarfi og einnig verða innlendir sjóðir skoðaðir.
Tími og staður
Námskeiðið verður haldið í Deiglunni, Kaupvangsstræti 23 á Akureyri fimmtud. 23. nóvember 2006 kl. 11:00 – 16:00

Lesið meira hér

Norræna bókasafnavikan 10 ára

Dagana 13.-19. nóvember verður norræna bókasafnavikan haldin í tíunda sinn. Rúmlega 2000 bókasöfn, skólar og samkomustaðir á Norðurlöndum og Eystrasaltssvæðinu taka þátt í verkefninu. Þann 13. nóvember er sjálfur dagur bókasafnanna „Ljósaskiptadagurinn", en þá verða lesnir kaflar úr „Ertu gunga Einar Áskell" (eftir Gunilla Bergström), „Robban og allir hinir félagarnir" (eftir Ole Lund Kirkegaard) og Grafarþögn (eftir Arnald Indriðason) á öllum þátttökustöðum. Þema ársins er morð, mystík, myrkur og áræði.

Það eru Samband norrænu félaganna, Kynningarsamtök norrænu bókasafnanna og norræna stofnunin Nordbok sem standa að bókasafnavikunni, sem er ein sú stærsta af sínu tagi.

Á Akureyri verður dagskrá á Amtsbókasafninu.  Kynnið ykkur dagskrá á vef Amtsbókasafnsins hér

Nýir íslenskir fulltrúar í nefndum Norðurlandaráðs

Steingrímur Sigfússon er nýr fulltrúi í Forsætisnefnd Norðurlandaráðs. Jón Kristjánsson hættir í Forsætisnefnd en verður í staðinn formaður Velferðarnefndar árið 2007.

Lesið meira á www.norden.org

Norrænt samstarf nær borgurum

Halldór Ásgrímsson, nýkjörinn framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, vill færa norrænt samstarf nær borgurunum og daglegu lífi þeirra. Hann vill jafnframt að Norðurlönd vinni með Evrópusambandinu gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi.

Lesið meira á www.norden.org

Tvær norrænar styrkjaáætlanir fyrir frjáls félagasamtök

Norræna ráðherranefndin hefur sett á fót tvær styrkjaáætlanir fyrir samstarfsverkefni frjálsra félagasamtaka á Norðurlöndum og nágrannasvæðum þeirra. Tilgangurinn er að efla borgaralegt samfélag í Norður-Evrópu og samvinnu yfir landamærin þar. Með frálsum félagasamtökum er átt við samtök (eða stofnanir) borgara um hvers konar málefni sem starfa ekki í hagnaðarskyni, stjórnast ekki beint eða óbeint af stjörnvöldum eða atvinnufyrirtæki og sinni ekki hagsmunagæzlu í atvinnulífinu.

Lesið meira hér

Akureyringar lesa norrænar bókmenntir.

Krimmahópurinn á Akureyri er að hefja sitt þriðja lesár. Þetta er föngulegur hópur fólks sem hefur lagt áherslu á lestur norrænna glæpasagna en gerir undantekningu nú á haustdögum. Lesárið hefst með bókinni Rokkað í Vittula, sem var tilnefnd af hálfu Svía til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2001, og hefur sópað að sér viðurkenningum og verðlaunum.  Bókin er eftir sænska rithöfundinn Mikael Niemi.

Hópurinn hvetur aðra lestrarhesta á Norðurlandi til að taka höndum saman og hittast einu sinni í mánuði og ræða góða bók. Velkomið er að tengjast Akureyrarhópnum og ekki væri verra ef hóparnir læsu sömu bækur og opnuðu við það möguleika á tengslum á milli bókaorma á Norðurlandi.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Maríu á Norrænu upplýsingaskrifstofunni mariajons@akureyri.is
 

Tilnefningar til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs

Tíu kvikmyndir frá Svíþjóð, Danmörku, Íslandi, Finnlandi og Noregi eru tilnefndar til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2006. Tilkynnt verður um verðlaunahafann 11. október næstkomandi, en verðlaunin verða afhent 1. nóvember í tengslum við Norðurlandaráðsþing í Kaupmannahöfn..

Dómnefnd skipuð fulltrúum allra norrænu ríkjanna hefur valið tvær kvikmyndir frá hverju landi. Verðlaunin nema 350.000 dönskum krónum eða sem svarar um 4,2 milljónum íslenskra króna og skiptast þau jafnt milli framleiðanda, handritshöfundar og leikstjóra.

Kynnið ykkur tilnefndar kvikmyndir á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar http://www.norden.org

Norden i bio

Norrænu félögin og Norrænu upplýsingaskrifstofurnar hafa tekið höndum saman og vinna nú að því að vekja athygli skóla á öllum Norðurlöndunum á verkefninu Norðurlöndin í bíó.
Markmið verkefnisins er að efla kunnáttu nemenda í tungumálum Norðurlandanna með hjálp nýlegra og áhugaverðra stuttmynda. Stuttmyndirnar fimm eru: Hjemmekamp (Noregur 2004), Perkele (Finnland 2004), Natan (Svíþjóð 2003); Móðan (Ísland 2004) og Fisk (Danmörk 2005). Aðaláhersla verkefnisins er tungumálakennsla og þema ársins 2006 er HÚMOR sem gefur möguleika á umræðum um hvað er líkt og hvað er ólíkt í kímni Norðurlandanna og þannig fá innsýn í þjóðarsál Norðurlandabúa. Kennsluefnið samanstendur af kvikmyndapakka sem pantaður er á heimasíðu verkefnisins og kennsluefni og öðrum spennandi möguleikum sem eru aðgengilegir á síðunni. Kynnið ykkur þennan frábæra  möguleika á
www.nordenibio.org

Vinabæjavika á Akureyri.

Dagana 26. júní - 2. júlí var haldið fjölmennt vinabæjamót á Akureyri.
Vinabæir Akureyrar eru:  Lahti, Randers, Västerås og Ålesund. Starsmaður Norrænu upplýsingaskrifstofunnar var þeirrar ánægju aðnjótandi að taka þátt í undirbúningi og var þetta allt hið ánægjulegasta ferli.
Ungt fólk frá öllum vinabæjunum setti skemmtilegan svip á bæinn þessa daga og afrakstur vinnu þeirra mátti heyra og sjá víða.
Skoðið heimasíðu fjölmiðlahópsins og kynnið ykkur hvað gert var:  www.NOVU2006.com

 

7. júní 2006

Ferðin gekk vel hjá Kaløförum.  Þau voru að skoða svæðið þegar ég hringdi kl. 11:08.  Fréttir verða settar inn á heimasíðu þeirra seinna í dag.

2. júní 2006

Fararstjórinn Thomas Ravnløkke Madsen hefur gert heimasíðu fyrir dönskunámskeiðið á Kalø.  Hér munu berast fréttir frá nemendum og kennurum og verða settar inn myndir.  Tenging á síðuna er hér til vinstri.

1. júní 2006

Norrænir starfsmenntunarstyrkir

Menntamálaráðuneyti Danmerkur og Noregs veita á námsárinu 2006-2007 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnskólapróf eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í iðnskólum eða framhaldsnáms iðnskólakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á Íslandi. Einnig er gert ráð fyrir að sams konar styrkir verði í boði til náms í Svíþjóð á næsta námsári. Fjárhæð styrks í Danmörku er 20.500 d.kr., Noregi 25.000 n.kr. og í Svíþjóð um 20-25.000 s.kr.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Menntamálaráðuneytisins

15.05.2006

Norræni menningarsjóðurinn

Úthlutað hefur verið hjá Norræna menningarsjóðnum og hlutu 7 af 11 umsóknum frá Íslandi styrki.
Norðurland kemur sterkt inn þ.s. Garðarshólmi á Húsavík og  verkefnið Draumasmiðjan, leikhúshátíð heyrnarlausra sem fram fer hér í bæ í júlí hlutu 200.000 danskar krónur hvort.  Einnig hlaut Minjasafnið veglegan styrk til samstarfsverkefnis sem og ráðstefna um vita og strandmenningu á Norðurlöndum sem haldin verður í Stykkishólmi nú í maí og Sigurbjörg Árnadóttir formaður stýrir.
Lesið meira um úthlutun úr Norræna menningarsjóðnum á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar www.norden.org og á heimasíðu Norræna menningarsjóðsins www.nordiskkulturfond.is

20.04.2006

33 nemendur hafa nú skráð sig á dönskunámskeiðið fyrir grunnskólanema á tungumálalýðháskólanum í Danmörku og er nú fullbókað.  Lesið um námskeiðið hér fyrir neðan 10.02.2006

24.03.2006

Auglýst er eftir umsóknum um skólavist við alþjóðlegan menntaskóla í Fjaler í Noregi. Skólinn er rekinn sameiginlega af Norðurlöndunum í tengslum við Rauða krossinn. Nám við skólann tekur tvö ár og lýkur því með viðurkenndu alþjóðlegu stúdentsprófi, International Baccalaureat Diploma (IB). Kennsla fer fram á ensku.

Lesið meira á heimasíðu Menntamálaráðuneytisins

 

13.mars.2006

Heimsókn á heimsmælikvarða!Lýrík. H.C Andersen, húmor og danskur jazz

Johannes Møllehave og
tríó Valdemars Rasmussen

   

Hinn vinsæli fyrirlesari Johannes Møllehave og Valdemar Rasmussens tríó frá Danmörku munu heimsækja Ísland nú í mars.
Kvölddagskrá verður í Norræna húsinu 20. mars kl. 20:00, í Gunnarsstofnun Skriðuklaustri 21. mars kl. 20:30 og í Deiglunni á Akureyri 23. mars kl. 20:30
Johannes Møllehave, sem er afar vinsæll fyrirlesari, mun fjalla um lýrík í Norræna húsinu, H.C. Andersen í Gunnarsstofnun og húmor í Deiglunni á þann hátt sem honum er einum lagið.
Ljúfir tónar frá tríói Valdemars Rasmussen eiga efalaust eftir að gleðja margan. Tríóið skipa Valdemar Rasmussen sem leikur á trompet, Jens Jefsen dem leikur á kontrabassa og Uffe Steen Jensen sem leikur á gítar. Allt eru þetta þekktir tónlistarmenn sem eiga langan og farsælan feril að baki.
Þessi heimsókn er samstarfsverkefni Norrænu upplýsingaskrifstofunnar á Akureyri og í Flensborg. Danir eru að endurgjalda heimsókn sem rithöfundurinn Einar Kárason og hljómsveitin Park Projekt fóru í til Danmerkur og Þýskalands í nóvember 2005. 

Samstarfsstofnanir á Íslandi eru: Norræna húsið í Reykjavík, Gilfélagið á Akureyri og Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri.

Verkefnið hefur hlotið styrk frá Norræna menningarsjóðnum.

Sýning á verkum danska myndlistarmannsins Helge Nordahl verður opnuð við sama tækifæri þann 23. mars, sem er dagur Norðurlandanna.

10.02.2006

DANSKA Í DANMÖRKU - Fermingagjöf til framtíðar!

Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri, í samstarfi við Skóladeild Akureyrarbæjar og Europahøjskolen á Kalø á Jótlandi, munu standa fyrir tveggja vikna námskeiði í dönsku fyrir nemendur í 7. 8. 9. og 10. bekk grunnskóla. Námskeiðið verður haldið á Europahøjskolen á Kalø á Jótlandi dagana 6.- 20. júní nk. Kennt verður fyrir hádegi 11 morgna, 4 kennslustundir daglega. Eftir hádegi verður skipulagður frítími. Farið verður í skógarferðir, siglt á kanó og margt fleira spennandi gert.
Verð er 98.000. Innifalið er:  Ferðir til og frá skóla, fæði, húsnæði og kennsla.
Áhugasamir hafi samband við Maríu í síma 462 7000 á opnunartíma skrifstofu sem er kl. 09:00-14:00 mánud. – fimmtud eða með tölvupósti til mariajons@akureyri.is

Umsóknareyðublað er aðgengilegt hér

Verkefnið er styrkt af Nordplus-Sprog

08.02.2006

Kynning á norrænum og evrópskum styrkjum í sal Brekkuskóla á Akureyri 22. febrúar kl. 14:00-15:30.

Norræna upplýsingaskrifstofan og Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins verða með kynningu á Nordplus-Junior styrkjum til nemendaskipta og ferða kennara á grunn- og framhaldsskólastigi.

Kennarar í leikskólum geta einnig sótt um styrk vegna kennaraskipta. Styrkir eru ávallt ferðastyrkir, ekki eru veittir styrkir til uppihalds. Athugið að ekki eru veittir styrkir til ferða utan Norðurlandanna.

Einnig verða kynntir Nordplus-Voksen styrkir til fullorðinsfræðslu og Sókrates/Comeníus styrkir ESB.

Skráið ykkur með tölvupósti til mariajons@akureyri.is. Skráningu lýkur á hádegi 21. februar 2005.

Athugið að umsóknarfrestur í Nordplus-Junior er 15. mars 2006 og í Nordplus-Voksen er 2. mars 2006.

17.01.2006

Gleðilegt ár góðir landsmenn og takk fyrir gott samstarf á síðastliðnu ári.

MINNI Á að næsti umsóknarfrestur NORRÆNA MENNINGARSJÓÐSINS er 1. FEBRÚAR!
Heimasíða sjóðsins er www.nordiskkulturfond.org

28.11.2005

Gilfélagið og Norræna upplýsingaskrifstofan kynna:

2.-3.desember; Myndlist í Deiglunni kl. 14:00-17:00. Sýning nemenda úr Myndlistaskólanum á Akureyri
3. desember; Jólagluggi Minjasafnsins opnar í Hafnarstræti 94. kl. 14:00

4.desember; Norræn jól í Deiglunni 13:00-15:00
Opið hús fyrir börn í boði nemendafélags Myndlistaskólans á Akureyri Sögur, söngur, myndlist og fleira fyrir börn ( yngri börn í fylgd fullorðinna).

15:30-17:30 Norræn jól í Deiglunni.  Opið hús.  Ýmislegt í boði sem tilheyrir jólum í þessum löndum.  Konný Kristjánsdóttir segir frá dönskum jólum. Þórarinn Hjartarson flytur norsk jólalög. Dúettinn Kvað flytur ljóð við tónlist.
Lifandi bókasafn: Þú getur fengið lánaða lifandi bók um hvernig er að vera í lýðháskóla, vera Nordjobbari, hvernig er að búa, starfa, ganga í skóla o.fl. í Danmörku og Noregi.
Café Rós í Blómavali hefur danskar “æbleskiver og saftevand” til sölu.

21. 11.2005

JULEFROKOST Deiglan 26.nóvember kl. 19:00

Þann 26.nóvember kl. 19:30 bjóða Gilfélagið, Norræna upplýsingaskrifstofan og Norræna félagið upp á jólahlaðborð í Deiglunni í samstarfi við Karólína restaurant.  Einar Kárason les úr völdum verkum. Kristjana Arngrímsdóttir syngur. Söngur glens og gaman. HA-bandið skemmtir.

Tekið á móti miðapöntunum í síma 462 7000 og 895 7923 og með tölvupósti til mariajons@akureyri.is mánudag 21. nóv. og þriðjudag 22. nóv. Mikilvægt að skrá sig sem fyrst!
Ath. takmarkaður sætafjöldi.
 

21. 11.2005


Eivör Pálsdóttir
í Deiglunni 8. desember

Hin frábæra söngkona Eivör Pálsdóttir heldur tónleika í Deiglunni fimmtudagskvöldið 8.desember kl. 21:00. Nánari upplýsingar veitir María í síma 462 7000 mánud.-fimmtud. á milli 09:00 og 14:00
ATH! Getum ekki tekið við kortum

04.11.2005

Norræna upplýsingaskrifstofan er lokuð 7. nóv-13. nóv.

Norrænt menningarsamstarf

Rithöfundurinn Einar Kárason og hljómsveitin Park Project, sem er skipuð einvala liði norðan- og sunnanmanna:
Pálmi Gunnarsson(bassi),
Kristjáni Edelstein (gítar),
Agnar Már Magnússon (píanó) og
Gunnlaugur Briem (trommur) munu
ferðast um Danmörku og til Þýskalands
og bjóða upp á skemmtilega kvöldstund
á hverjum stað með upplestri, tónlist og huggulegheitum.

Dagskrá verður í:
Nordatlantens Brygge i Kaupmannahöfn
Þriðjudag 8.11. kl. 20.00
Biblioteket i Horsens

Miðvikudag. 9.11. kl 19.00
Flensborghus í Flensborg

Laugardag 12.11. kl. 20

Í Dansk Centralbibliotek verður boðið upp á málverkasýningu íslenskra listamanna og fleira. skoðið heimasíðu Norrænu upplýsingaskrfistofunnar í Flensborg með því að smella á plakatið eða fara inn á heimasíðu skrifstofunnar sem er
www.nordisk-info.de

Þessi menningarveisla er samstarfsverkefni Norrænu upplýsingaskrifstofanna í Flensborg og á Akureyri. Í mars munu Íslendingar fá góða gesti frá Danmörk m.a. Johannes Møllehave og Valdemars Rasmussens Trio.

20.10.2005

Norræna upplýsingaskrifstofan er lokuð í viku 43 vegna kynningastarfa á lýðháskólamálum í Smáralind og vegna funda í tengslum við Norðurlandaráðsþingið.  Sendið tölvupóst og verður honum svarað eftir því sem hægt er.

Norðurlandaráðsþing 2005

Stærsti viðburður ársins í norrænu samstarfi - Norðurlandaráðsþing verður að þessu sinni haldið í Reykjavík dagana 25.-27. október 2005. Á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar www.norden.org er hægt að fá ferskar fréttir af þinginu.

Sambandsþing Norræna félagsins verður haldið í Reykjavík 22.-23. október og í tengslum við það verður kynning á norrænu samstarfi í Smáralindinni 2.-23. okt. www.norden.is

3.10.2005

Styrkir til háskólanáms í Finnlandi og Noregi

Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í Finnlandi og Noregi bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknarstarfa í þeim löndum. Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver styrkur kemur í hlut Íslendinga. Umsækjendur skulu hafa lokið BA- eða BS-prófi eða öðru sambærilegu prófi. Menntamálaráðuneytið framsendir umsóknir er uppfylla skilyrði sem nánar eru tilgreind í upplýsingum um styrkina. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu og einnig á eftirgreindum vefsíðum.
Lesa meira á vef Menntamálaráðuneytisins

22. sept. 2005

Dansk-íslenski samstarfssjóðurinn (Fondet for dansk-islandsk samarbejde) hefur fengið heimasíðu.  Næsti umsóknarfrestur er 15. okt.
Slóðin er
http://www.fdis.dk/

19. sept. 2005

Umsóknarfrestur um Nordplus-Voksen styrk vegna lýðháskóladvalar á vorönn 2006 er 15 nóvember 2005.  Allar upplýsingar er að finna á lýðháskólatenglinum hér fyrir ofan.  Einnig er hægt að hringja í Norrænu upplýsingaskrifstofuna eða í Norræna félagið ef þörf krefur.

12. sept. 2005

Norrænt rapp á netinu
Börn og unglingar á Norðurlöndum fá nýjan vettvang til að rappa á næstunni.
Opnuð verður heimasíða þar sem ungir rapparar geta birt rapp-kveðskap sinn og jafnframt leitað sér andagiftar hjá öðrum norrænum textahöfundum.
Verkefnið er liður í því að styrkja norrænan málskilning og hvetja ungmenni til að nota norrænu tungumálin. Þá á að vera hægt að nota vefsíðuna í skólastarfi og í tungumálakennslu.
Lesið meira á á www.norden.org

Norræn ljósmyndasamkeppni fyrir nemendur Norræna skólanetið og Norrænu félögin efna til ljósmyndasamkeppni fyrir norræna grunnskóla- og framhaldsskólanemendur. Viðfangsefnið er “Eftirlætisstaðurinn minn á Norðurlöndum”. Myndefnið má túlka á ýmsan hátt, það getur t.d. verið falleg náttúra, gott kaffihús, heimili ömmu eða sérhver annar staður öðrum stað sem hefur jákvæða merkingu fyrir nemandann. Nemendur á aldrinum 8-19 ára geta tekið þátt í samkeppninni. Ljósmyndirnar eiga að vera á stafrænu formi og eiga þeir sem taka vilja þátt að senda þær til Norræna skólanetsins í gegnum þar til gerða heimasíðu. Fyrstu verðlaun eru stafræn myndavél. Myndum skal skila á tímabilinu 1. september til 30. nóvember og verður besta myndin kjörin af gestum heimasíðunnar frá 1. desember til 30. janúar 2006.

Nánar:: http://www.nordskol.org
Taktu þátt í samkeppninni:: http://www.nordskol.org/favorit/

22. júlí 2005

Munið Norræna menningarsjóðinn!!
Umsóknarfrestur um styrk Norræna menningarsjóðsins er 1. september.  Heimasíða Norræna menningarsjóðsins er:
www.nordiskkulturfond.org

16. júlí 2005

Norrænir starfsmenntunarstyrkir

Menntamálaráðuneyti Noregs og Svíþjóðar veita á námsárinu 2005-2006 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir þar í landi. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnskólapróf eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í iðnskólum eða framhaldsnáms iðnskólakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á Íslandi. Fjárhæð styrks í Noregi er um 25.000 n.kr. og í Svíþjóð 20 - 25.000 s.kr.

Frestur til að skila inn umsóknum, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, er hér með framlengdur til 20. júlí nk. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.

04.07.2005

Lokað í júlí

Norræna upplýsingaskrifstofan er lokuð í júlí vegna sumarleyfis starfsmanns.
Vinsamlegast snúið ykkur til Norræna félagsins í Reykjavík í síma 551 0165.

Jónsmessuleikar í Kjarnaskógi

Dregið hefur verið í H.C Andersen getraun Norræna félagsins og Norrænu upplýsingaskrifstofunnar.  Vinningshafar eru, í flokki barna, Eva Björk Jóhannesdóttir, Steinahlíð 8.b. og í flokki fullorðinna Helena Ísaksen, Heiðarlundi 6e og hljóta þær bókapakka í boði Eddu útgáfu.  Óskum við þeim hjartanlega til hamingju um leið og við þökkum frábæra þátttöku í getraun og á svæði Norræna félagsins í Kjarnaskógi á Jónsmessuleikum.

21.06.2005

Árleg Jónsmessuhátíð í Kjarnaskógi verður haldin fimmtudagskvöldið 23. júní og ber yfirskriftina
"Í allra kvikinda líki"

Hátíðin hefst við Kjarnakot (neðra bílastæði) kl. 19, þar sem afhent verða kort af svæðinu, en 11 stöðvar verða hingað og þangað um skóginn, þ.m.t. á Hömrum. Í boði verða: leikrit, skúlptúrasýning, skógarundur og furðuverur, leikir, föndur, jurtalitun, getraunir, söngur, upplestur, furðusteinar og   óskasteinar, H.C. Andersen sögur, fornar slóðir, Jónsmessubrenna, kakó og grill.
Þátttakendur eru: Börn úr skúlptúrasmiðjum Götudansleikhúsið, Sýnir, Leikklúbburinn Saga, Minjasafnið á Akureyri, Félag steinasafnara, Laufáshópurinn, Leikhúskórinn, Norræna félagið, Norræna upplýsingaskrifstofan, Tónlistarskólinn á Akureyri, Skógræktarfélag Eyfirðinga, Skátafélagið Klakkur, Listasumar

13.06.2005

Danmerkurfarar eru komnir á áfangastað.  Allt gekk vel og er búið að skipta þeim upp í hópa. Fyrsta bréf frá fararstjórum er að finna hér til vinstri undir nafninu fréttir frá Kal¢.

Fyrsti pistill frá krökkunum er væntanlegur í dag og verður settur inn á síðuna um leið og hann berst.

26.05.2005

Listamannamiðstöðin í Dalsåsen í Noregi

Umsóknarfrestur um vinnuaðstöðu í Norræna listamannamiðstöðinni í Dalsåsen í Noregi rennur út 31. maí n.k. Listamannamiðstöðin er stofnun á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og var opnuð 1998. Markmið með listamiðstöðinni er að efla og þróa norrænt og alþjóðlegt samstarf með rekstri gestavinnustofa og annarri starfsemi tengdri listum. Vinnustofur fyrir listmálara, hönnuði o.fl. er að finna á staðnum.

Nánari upplýsingar/tengiliður: Elísabet Gunnarsdóttir, Nordisk Kunstnarsenter Dalsåsen, N-6810, Dale I Sunnfjord - s.: 0047-5773-7220 - tölvupóstur: artists.nkd@c2i.net - heimasíða: Nordisk Kunstnarsenter Dalsåsen www.nkdale.no/

 

03.05.2005

Danska í Danmörku 11.-25. júní

3 pláss laus á dönskunámskeið fyrir 9. - 10. bekkinga.  Hafið samband við Norrænu upplýsingaskrifstofuna sem fyrst með tölvupósti til mariajons@akureyri.is

Lesið meira um námskeiðið

03.05.2005

Nýtt heimilisfang Norrænu upplýsingaskrifstofunnar er Kaupvangsstræti 23, 600 Akuryeri ( í Deiglunni).  Nýtt símanúmer er 462 7000. 
Gamla faxnúmerið 4601 1460 verður notað fyrst um sinn.

26.04.2005

Norræna upplýsingaskrifstofan flytur í Deigluna í Grófargili!

Nú standa yfir flutningar á skrifstofunni og verður einhver röskun á símasvörun næstu daga.  Vinsamlegast sendið tölvupóst á mariajons@akureyri.is vegna áríðandi erinda.
Nánari upplýsingar um endanlegan flutning birtast hér innan skamms.

DANSKA Í DANMÖRKU!

Kynningarfundur verður í Deiglunni 18. apríl kl. 17:30 fyrir væntanlega og áhugasama nemendur á dönskunámskeið á Kalø 11. - 25. júní.  Nemendur frá sl. ári mæta og segja frá dvölinni í tali og myndum.
ATHUGIÐ AÐ MIKILVÆGT ER AÐ SKRÁ SIG STRAX, í allra síðasta lagi 25. apríl!


Opinn fundur í Deiglunni.
Hver er staða velferðarkerfisins ?

Norræna ráðherranefndin og Norðurlandaráð, í samvinnu við Norrænu upplýsingaskrifstofuna á Akureyri, boða til opins fundar um þróun velferðarkerfisins á Íslandi.
Fundurinn verður haldinn í Deiglunni í Listagilinu  föstudaginn 1. apríl kl. 18:00-20:00.  Aðgangur ókeypis.

Dönskunámskeið í Danmörku

Dönskunámskeið verður haldið á Kalø í Danmörku fyrir grunnskólanema.  Brottför er 11. júní og komið verður heim 25. júní.  Þetta er samstarfsverkefni Norrænu upplýsingaskrifstofunnar og skóladeildar Akureyrarbæjar. Allar upplýsingar veittar á Norrænu upplýsingaskrifstofunni
kl. 9.00-14:00 mánud. - fimmtud.

22.02.2005

Finnland – land sumarævintýra og vetrardrunga, Nokia og Múmínálfa.
  Í ár verður langferð Norræna félagsins á Akureyri til Finnlands.
Brottför verður laugardaginn 30. júlí og heimkoma 6. ágúst.  Flogið frá Keflavík beint á Helsinki.
Ferðast verður um suðurströnd Finnlands frá Porvoo/Borga til Rauma.
Upplýsingar og skráning með tölvupósti til mariajons@akureyri.is eða í síma: 466 1266 og 460 1462 á tímabilinu 09:00-14:00 mánud.- fimmtud.
Fararstjóri verður Sigubjörg Árnadóttir sem búið hefur í Finnlandi til margra ára. Lesið meira um ferðina hér

08.02.2005

Óskir um vinabekki á Íslandi:

Rørkjær skole i Esbjerg óskar eftir tengslum við 6. bekk
Ramløse skole i Helsinge óskar eftir tengslum við 6. bekk (30 nem.)
Kaptajn Johnsens skole, Frederiksberg óskar eftir tengslum við 6. bekk (19 nem.)
Blære skole í Árósum óskar eftir tengslum við 6. bekk (12 nem.)
Voldum skole óskar eftir tengslum við 7. bekk (17 nem).
Karolinelund skole í Silkiborg óskar eftir tengslum við 9.-11. bekk (16 nem í sérskóla)

Einnig eru óskir frá 2 norskum skólum sem óska eftir 7. og 9. bekk og sænskir skólar eru nokkrir.

04.01.2005

Kynning á Norrænum styrkjum í sal Brekkuskóla
 6. janúar kl. 14:00-17:00.

Norræna upplýsingaskrifstofan og Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins verða með kynningu á Nordplus-Junior styrkjum til nemendaskipta og ferða kennara á grunn- og framhaldsskólastigi.
Einnig verða kynntir Nordplus-Voksen styrkir til fullorðinsfræðslu og Nordplus-Nabo sem ætlaðir eru til samstarfs á milli Norðurlandaþjóðanna og grannsvæða þeirra í austri.
Kynntir verða stuttlega aðrir norrænir sjóðir og Sókrates/Comeníus styrkir ESB
Skráning fer fram hjá Maríu í síma 460 1462 eða með tölvupósti til mariajons@akureyri.is. Skráningu lýkur á hádegi 5. janúar 2005.

30.12.2004 

Kæru landar.  Ég vona að jólin hafi verið friðsæl og góð í faðmi fjölskyldunnar.
Óska ykkur öllum gleðilegs árs með kærri þökk fyrir ánægjulegt samstarf 2004.

30.12.2004 

Ágætu lýðháskólafarar

Gleðileg jól
Ekkert svar hefur borist ennþá við Nordplus-voksen umsókn okkar.  Við munum hafa samband við ykkur um leið og fréttir berast.

29.12.2004 

Danskur lýðháskóli með frábært tilboð til 6 lýðháskólanema

Lýðháskóli með áherslu á leiklist, dans og tónlist býður 6 íslenskum ungmennum 400 DKK í afslátt á viku á vorönn 2005 (tveir á hverja línu). Heimasíða skólans er www.musikogteater.dk þar sem umsóknareyðublað og allar upplýsingar er að finna.

09.11.2004 

Margt spennandi leynist í norrænu samstarfi

Í tilefni að norrænu bókasafnsvikunnar verður m.a. kynning á norrænum skólum/verkefnum/námskeiðum sem Akureyringar hafa tekið þátt í. Þessi skólar/námskeið/verkefni eru ennþá í boði og því kjörið tækifæri til að fá upplýsingar frá fyrstu hendi.

Miðvikudaginn 10. nóv. kl. 17:00, í nýju kaffihúsi Amtsbókasafnsins á Akureyri, verður kynning á:
· dönskunámskeiði í Danmörku
· sænskunámskeiði í Svíþjóð (Ásta Sigurðardóttir)
· sumarnámskeiði norrænu heimilisiðnaðarfélaganna (Guðrún  Hadda Bjarnadóttir)
· ferðum á framandi slóðir á vegum Norræna félagsins á Akureyri (Þórir Haraldsson)
· sumarnámskeiðum á norrænum lýðháskólum (María Jónsdóttir, Norrænu upplýsingaskrifstofunni)

Fimmtudaginn 11. nóv. kl. 17:00, í nýju kaffihúsi Amtsbókasafnsins á Akureyri verður kynning á:
· Nordjobb (Lilý Adamsdóttir, Bergþóra Benediktsdóttir)
· Lýðháskóladvöl
(Ösp Kristjánsdóttir og Petra Hrönn)
· Norrænir lýðháskólar og styrkir (María Jónsdóttir, Norrænu upplýsingaskrifstofunni)

09.11.2004 

Einu sinni var í Norðri . . .

Norræna bókasafnsvikan á Amtsbókasafninu 8.-14. nóvember

 

Dagskrá norrænu bókasafnsvikunnar er að finna á vef Amtsbókasafnsins á heimasíðu Akureyrarbæjar www.akureyri.is

 

04.11.2004

Fréttir frá Norðurlandaráðsþingi í Stokkhólmi

Rannveig Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, var   einróma kjörin forseti Norðurlandaráðs fyrir árið 2005.  Mikilvægasa markmið Rannveigar Guðmundsdóttur innan norræns samstarfs er að vernda og þróa norræna velferðarkerfið. Hún vill jafnframt að barist verði gegn fátækt og gegn verslun með börn og konur í nánu samstarfi við Eystrasaltsríkin og Rússland.


Lesið fleiri fréttir frá þinginu á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar www.norden.org

13.10.2004

Styrkur til lýðháskólanáms

Nordplus-Voksen styrkjum úthlutað til íslenskra nemenda á norrænum lýðháskólum:
Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri og Norræna félagið í Reykjavík hafa nú afgreitt umsóknir um Nordplus-voksen styrk til lýðháskóladvalar á Norðurlöndum. Umsækjendur voru 47 talsins og var potturinn tæmdur, en í honum voru 315.000 danskar krónur. Hver nemandi fékk 2000 danskar krónur í ferðastyrk og um rúmar 200 danskar krónur á viku í uppihaldsstyrk.
Þeir nemendur sem hyggja á lýðháskóladvöl á vorönn, eru hvattir til að kynna sér við hvaða skóla gerður hefur verið samstarfssamningur.

20.09.2004

Fólk á ferð

Halló Norðurlönd á Íslandi
í samstafi við Norrænu upplýsingaskrifstofuna og fleiri stofnanir, standa fyrir námskeiði um réttindamál einstaklinga sem flytja á milli Norðurlandanna.  Námskeiðið verður haldið miðvikudaginn 22. september, kl. 13.00 – 16.30 í Deiglunni í Grófargili á Akureyri og er ætlað embættismönnum og öllum þeim sem tengjast málefnum þeirra sem flytjast á milli Norðurlanda.
Kynnið ykkur dagskrá hér...

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.  Skráning fer fram í síma 460 1462 eða á tölvupóstfangið mariajons@akureyri.is

09.09.2004

Norrænir styrkir

Nordplus-junior er með aukaúthlutun fyrir skólaárið 2004-2005 og rennur umsóknarfrestur út 15. október n.k. Þessi styrkur er ætlaður til nemenda- og kennaraskipta (áður Nordplus-mini og Vestnorden).

Fleiri styrkir í Nordplus-styrkjaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar eru áhugaverðir í skólastarfið s.s. Nordplus-sprog. Skoðið heimasíðuna verkefnisins hér  þar sem allar upplýsingar er að finna.

Norræni menningarsjóðurinn og norrænir tvíhliða styrkir eru einnig áhugaverðir fyrir þá sem hafa hug á norrænu samstarfi. Hafið samband við mig og ég mun aðstoða ykkur til að finna réttu styrkina eða samstarfsaðilana.

Skoðið einnig styrkjasíðu skrifstofunnar

10.08.2004

FRÉTTATILKYNNING

Boðið til fréttamannafundar

Föstudaginn 13. ágúst funda norrænir ráðherrar sjávarútvegs, landbúnaðar, skógræktar og matvæla á Akureyri. Á fundinum verða samþykktar yfirlýsingar um fiskveiðar, landbúnað, skógrækt og málefni matvæla.

Boðið er til fréttamannafundar að ráðherrafundi loknum þar sem niðurstöður fundarins verða kynntar.

Fréttamannafundurinn verður haldinn föstudaginn 13. ágúst kl. 18.00 í Ketilshúsi á Akureyri.
Meira um fundinn á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar www.norden.org

19.07.2004

Norræna upplýsingaskrifstofan verður lokuð meira og minna í júlí. Áríðandi skilaboð er best að senda á tölvuóstfangið mariajons@akureyri.is 

26.06.2004

Lýðháskólafarar skólaárið 2004-2005
athugið að nú er umsóknareyðublað fyrir Nordplus-Voksen styrkinn komið á heimasíðuna.
Þið getið nálgast það hér....   umsókn
Umsóknir þeirra sem fara á haustönn verða afgreiddar 15. ágúst.  Meira um þetta síðar.

26.06.2004

Danmerkurfarar komnir heim
Grunnskólanemendurnir og kennararnir sem hafa dvalið í100% Danmörku sl. 1/2 mánuð á dönskunámskeiði, komu heim að morgni miðvikudags.  Mikil ánægja virðist með ferðina og verður spennandi að fá endanlega skýrslu.  Meira um þetta síðar.

 

23.06.2004

Jónsmessuleikar í Kjarnaskógi tókust vel,  Norræna félagið á Akureyri var með getraun sem gekk út á að svara átti 3 spurningum um Norðurlöndin.  Norrænar bækur voru veittar í verðlaun í fullorðins og barnaflokki.
Einnig var árleg fjáröflun hjá félaginu í formi pylsu-, safa- og snobrødsölu.  "Snobrødet" sem er mjög vinsælt meðal barna í Danmörku, gekk vel í landann og fengu færri en vildu.
Margir mættu í skóginn, sem þrátt fyrir rigningarúða, var Kjarniskógur yndislegur að vanda og rölti fólk á milli stöðva og náði sér í fróðleik, smakkaði ketilkaffi og fleiru og naut sýninga sem í boði voru.

21. júní 2004

MUNIÐ AÐ NÆSTI UMSÓKNARFRESTUR NORRÆNA MENNINGARSJÓÐSINS ER TIL 1. ÁGÚST!!!!

Lesið um síðustu úthlutanir og góðan árangur Íslendinga hér....

12.06.2004

Fleiri fréttabréf frá Danmörku er að finna hér!!!

11.06.2004

1. bréf frá Danmerkurförum

Hér er frábært veður og frábært fólk!!!
Um klukkutíma seinkun var á fluginu út og því komum við ekki hingað fyrr en kl. 3 í nótt. Henrik tók þá á móti okkur með saftevand og boller. Margir voru býsna syfjaðir þegar þeir voru vaktir kl. 9:30 í morgun.
Eftir morgunverð kynnti Ulla svæðið fyrir okkur og krakkarnir fengu tækifæri til að koma með spurningar. Ulla er yndælis kona, hún talaði hægt og hvatti krakkana til að tala dönsku.
Eftir hádegi var Henrik med 2 1/2 klst leikjaprógram. Hann er virkilega skemmtilegur og gengur mjög vel að fá krakkana i lið með sér. Leikirnir hristu hópinn vel saman og í þessum leikjum þurftu krakkarnir að tala heilmikið dönsku. Framfarirnar hafa orðið miklar í dag! Krakkarnir voru nokkuð þreyttir og dasaðir eftir langt ferðalag, stuttan nætursvefn og ótrulega mikið sólskin. Hitinn var yfir 20 gráður í dag og við kíktum aðeins á "ströndina". Við höfum þurft að leggja áherslu á við krakkana að bera vel á sig sólavörn sem hefur gengið ágætlega. Margir hafi þó roðnað aðeins í dag.
Við höfum komist að því að krakkarnir eru sérstaklega hræddir við skordýr en strákarnir hafa gaman af því að skoða þau og hefur þessi áhugi orðið til þess að þeir reyna ótrúlega á sig i dönsku til að fá bæði upplýsingar og tæki til skordýraveiða!!!
Nú á eftir ætlum við að halda stuttan fund med krökkunum og fara yfir umgengni, dagskrána næstu daga o.s.frv.
Þann17 júni munu koma til okkar krakkar úr 8. bekk i Rønde og í þeim hópi er ein íslensk stelpa sem hefur búið hér i 3 ár. Einnig er i athugun að við hittum krakka frá Mols en þar er íslenskur kennari.
Greinilegt er að allt er gert til þess að gera dvöl okkar hér ánægjulega og lærdómsríka.

Við höfum reynt að tengja myndavélina en það hefur ekki gengið enn, við reynum að fá aðgang að öðrum tölvum á morgun og vonandi getum við sent ykkur myndir.

Það getur verið möguleiki fyrir þig að setja einhverjar upplýsingar á heimasíðuna þó myndir fylgi ekki med, því við hvöttum foreldra til að fylgjast med upplýsingum á heimasíðunni.

Segjum þetta gott i bili
venlig hilsen fra Kalø

Fjóla og Magga

04.06.2004

Danska í Danmörku

Miðvikudaginn 9. júní leggja 21 ungmenni og 2 fararstjórar  land undir fót.  Ferðinni er heitið á 14 daga dönskunámskeið á Kalø á Jótlandi.  Þetta námskeið er það fyrsta sem haldið er fyrir grunnskólanemendur, 7. 8. og 9. bekk, frá Íslandi og því spennandi að fylgjast með hvernig til tekst. 
Við eigum von á fréttapistlum frá nemendum.  Pistlarnir verða settir inn á heimasíðuna um leið og þeir berast. 
Flestir nemenda eru frá Akureyri eða 15.  Frá Siglufirði koma tveir nemendur og frá Reykjavík koma 4 nemendur.

Fjólu Helgadóttir, dönskukennari og Margrét Th. Aðalgeirsdóttir sérkennari og skáti munu verða unga fólkinu til halds og trausts í Danmörku.

21.05.2004

18 vikur í lýðháskóla í Danmörku

Lýðháskólinn í Krogerup sem er staðsettur norðan við Kaupmannahöfn býður áhugasömu ungu fólki til KYNNINGARFUNDAR í húsnæði Norræna félagsins að Óðinsgötu 7, þann 4. og 5. júní kl. 14:00.

Komið og hittið  Rikke Forchhammer kennara frá Krogerup sem mun fræða um skólann og það sem skiptir máli varðandi skólavistina.
Rikke verður á Íslandi 3.– 6. júni í síma +45 4072 0127

Skoðið heimasíðu skólans sem er: www.krogerup.dk

18.05.2004

Brúðleikhússýningin "Mín jörð – þín jörð" verður í Leikhúsinu á Akureyri í dag. Sýningin kemur frá danska brúðleikhúsinu "Teatret Månegøgl" og það er leikarinn og rithöfundurinn Hanne Trolle sem stendur að leikhúsinu og þessari sýningu.
Lesið meira á síðu Akureyrarbæjar www.akureyri.is

17.05.2004

Menningin blómstrar á Akureyri!
Sunnudaginn 15. maí var sannkallaður dagur myndlistarinnar á Akureyri þ.s. fimm myndlistasýningar voru opnaðar á svæðinu:  Kenjar Goya á Listasafninu, sýning  akureyrskra listamanna á Safnasafninu, sýning Jóhönnu Friðfinnsdóttur í Deiglunni, nemendasýning Listnámsbrautar Verkmenntaskólans og sýning 8 listamanna frá Suður Jótlandi og Suður Slésvík í Ketilhúsinu, sem komu hingað í boði Gilfélagsins og Menningardeildar Akureyrarbæjar.  Hópurinn hlaut styrk frá Norræna menningarsjóðnum sem gerði þeim kleift að fjármagna ferðina hingað.  Anette Jensen á Norrænu upplýsingaskrifstofunni í Flensborg skipulagði ferðina.  Góð stemning var í Gilinu og mættu margir á opnun í Ketilhúsinu.


 

 

 

07.05.2004

Aðalfundur Norræna félagsins á Akureyri 
verður haldinn fimmtudaginn 13. maí 2004 kl. 20:00 í Glerárgötu 26, 2. hæð.

05.05.2004

    Farandsýning 8 listamanna
        

frá SuðurJótlandi og Suður Slésvík verður opnuð 15. maí í Ketilhúsinu á Akureyri.
Sýningin hefur verið í Norræna húsinu í Þórshöfn í  Færeyjum og í Hafnarborg í Hafnarfirði. 
Frumkvæði að þessari sýningu kemur frá Norrænu
upplýsingaskrifstofunni í Flensborg í Þýskalandi sem hefur lagt áherslu á að efla gott menningarsamband á milli Suður Jótlands/Suður Slésvíkur, Íslands og Færeyja.
Gestgjafar sýningarinnar á Akureyri eru Gilfélagið og Menningardeild Akureyrarbæjar.

Sýningin hlaut styrk frá Norræna  menningarsjóðnum    

05.05.2004

DANSKA Í DANMÖRKU!

Enn eru nokkur sæti laus á dönskunámskeið fyrir 13-16 ára ungmenni í Danmörku Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri, í samstarfi við Skólaskrifstofu Akureyrarbæjar og Sproghøjskolen á Kalø á Jótlandi, munu standa fyrir tveggja vikna námskeiði í dönsku fyrir nemendur í 7. 8. 9. og 10. bekk grunnskóla hér á landi.
Námskeiðið verður haldið á lýðháskólanum á Kalø á Jótlandi dagaba 9.- 23. júní nk.
Kennt verður fyrir hádegi 11 morgna, 4 kennslustundir daglega. Eftir
hádegi verður skipulagður frítími og kennslu fléttað þar inn. Reiknað með 3 frítímakennslustundum daglega. Farið verður í tvær ferðir á vegum skólans um nágrennið.
Þátttökugjald er 98.000 krónur. Innifalið eru ferðir, kennsla, fæði,
húsnæði og skoðunarferðir. Íslenskur fararstjóri verður með hópnum allan tímann.
Enn eru nokkur sæti laus og eru áhugasamir beðnir um að skrá sig sem fyrst hjá Norrænu upplýsingaskrifstofunni í síma 460 1462, netfang mariajons@akureyri.is.

Verkefnið er styrkt af Nordplus-Sprog, KEA og Dansk-íslenska samstarfssjóðnum.

16.04.2004

Jafnrétti

Málþingi um Kynja- og jafnréttissjónarmið í norrænu samstarfi, verður haldið á Akureyri þriðjudaginn 4.maí n.k.
Allar upplýsingar er að finna á heimasíðu Jafnréttisstofu www.jafnretti.is

Málþingi er opið öllum sem áhuga hafa á málefninu, en nauðsynlegt er að skrá sig á þingið hjá Jafnréttisstofu.

14.04.2004

Dönskunámskeið fyrir 13-16 ára ungmenni í Danmörku

Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri, í samstarfi við Skóladeild Akureyrarbæjar og Sproghøjskolen á Kalø á Jótlandi, munu standa fyrir tveggja vikna námskeiði í dönsku fyrir nemendur í grunnskólum Akureyrar.

Námskeiðið verður haldið á lýðháskólanum á Kalø 12.-26. júní 2004. Áhugasamir annars staðar af landinu geta skráð nemendur á biðlista í síma 460 1462.

30.03.2004

LÝÐHÁSKÓLNÁM 2004-2005

Norræna félagið og Norræna upplýsingaskrifstofan hafa gert samstarfssamning við lýðháskóla á Norðurlöndunum.
Lesið hér um hvaða skóla er að ræða

04.03.2004

VINABEKKIR Á NORÐURLÖNDUM!!!!

Margar óskir um vinabekki á Íslandi hafa borist.  Umsóknarfrestur um Nordplus-Voksen rennur út 15. mars og því mikilvægt að skólafólk bregðist skjótt við.  Hafið samband við Maríu í síma 460 1462 eða með tölvupósti mariajons@akureyri.is

Óskir um vinabekki:

10. bekkur (framhaldsskólaaldur) frá Borgundarhólmi óskar eftir tengslum við framhaldsskóla á Íslandi
9. bekkur frá Engebråten skole i Oslo.  (9. hjá okkur)
7. bekkur (8. bekkur), 19 nemendur í Løvvangsskolen í Hjallerup í Danmörk
6. bekkur (7. bekkur) í Brahetrolleborg skole í Fåborg í Danmörku
5. bekkur (6. bekkur), 17 nemendur í Voldum skole í Danmörku
4. bekkur (5.bekkur), Rørkjær Skole í Esbjerg í Danmörku
3. bekkur (4. bekkur), 13 nemendur í Linå skole í Silkeborg í Danmörku

24.02.2004

Ætlarðu á lýðháskóla í haust?????

Allir þeir sem hafa hugsað sér að sækja um lýðháskóladvöl í haust eru hvattir til að hafa samband við Norrænu upplýsingaskrifstofuna sem allra fyrst.

24.02.2004

Vefrit um norræn stjórnmál hefur göngu sín

Miðvikudaginn 25. febrúar kemur vefritið analysNorden út í fyrsta sinn. Viðfangsefni þess eru norræn stjórnmál í samtímanum. Vefritið er ætlað þeim sem vilja fá nánari innsýn í stjórnmálalíf á Norðurlöndum en hægt er að fá með því að lesa daglegar fréttir á vefnum www.norden.org.

Höfundar efnis á analysNorden: 

Svíþjóð: Kaa Eneberg. Fæddur í Finnlandi. Skrifaði um stjórnmál fyrir sænska blaðið Dagens Nyheter í 25 ár. Starfar nú sem rithöfundur og fræðimaður.
Danmörk: Lykke Friis fer með Evrópumál hjá atvinnurekendasamtökunum Dansk Industri. Hún fjallar oft um dönsk stjórnmál í fjölmiðlum.
Noregur: Per Norvik, stjórnmálaskýrandi hjá sjónvarpsstöðinni TV2. Hefur áður unnið hjá dagblöðunum Verdens Gang og Aftenposten og norska ríkisútvarpinu, NRK.
Finnland: Göran Djupsund, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann í Åbo (Vasa). Fjallar reglulega um stjórnmál í finnskum fjölmiðlum.
Ísland: Birgir Guðmundsson kennir við Háskólann á Akureyri og skrifar meðal annars stjórnmálaskýringar í Fréttablaðið.

05.02.2004

NORRÆNAR SUMARBÚÐIR

Den Nordiske Lejrskole og Kursuscenter stendur fyrir 7 daga sumarbúðum í Hillerød frá 28. júni – 4. júlí 2004 i samstarfi við Norræna félagið.  90 ungmenni á aldrinum 11 – 14 ára komast að.
Lesið meira....

05.02.2004

Beint flug til Kirkenes í Norður-Noregi sumarið 2004 
Samísk-íslenska vináttufélagið, SAMÍS stendur fyrir beinu leiguflugi til Kirkenes í Norður-Noregi í sumar.
Lesið meira um ferðina á heimasíðu Norræna félagsins

26.01.2004

Fullbókað er nú í ferð Norræna félagsins á Akureyri til Orkneyja.  Hægt er að skrá sig á biðlista á heimasíðu verkefnisins

09.01.2004

Norræna félagið á Akureyri og hinn frábæri leiðsögumaður og skipuleggjandi Jónas Helgason bjóða upp á ferð til Orkneyja í ágúst n.k.  Lesið meira um ferðina og skoðið heimasíðu verkefnisins hér

07.01.2004

Alþjóðaskrifstofan á Akureyri býður upp 5 vikna námskeið í íslensku.  Námskeiðið hefst 12 janúar.  Kennt verður tvisvar í viku tvo tíma í senn.

Nánari upplýsingar í Alþjóðaskrifstofunni, Glerárgötu 28, 3. hæð, sími:462 7255 – fax: 461 3634, tölvupóstfang: astofan@akureyri.is

24.12.2003

Norræna upplýsingaskrifstofan óskar öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Megi norrænt samstarf dafna og blómstra 2004.

Norræna upplýsingaskrifstofan verður lokuð frá 22. des. til 5. janúar.

16.12.2003

Nemendur sem eru á leið í norska lýðháskóla eru hvattir til að hafa samband við Norrænu upplýsingaskrifstofuna í síma 460 1462 eða  Norræna félagið í síma 551 0165 varðandi lýðháskólastyrk.

03.12.2003

Norræni menningarsjóðurinn hefur úthlutað 8,1 milljón danskra króna til norrænna menningarverkefna. Þetta er í sjötta úthlutun úr sjóðnum á þessu ári. Upphæðin skiptist á milli 78 verkefna innan sem utan Norðurlandanna. Alls bárust 243 styrkumsóknir um rúmlega 40 milljónir danskra króna.

Markmið Norræna menningarsjóðsins er að styrkja menningarsamstarf á Norðurlöndum. Sjóðurinn veitir styrki til menningar-, mennta- og rannsóknaverkefna sem minnst þrjú Norðurlandanna taka þátt í.

Ráðstöfunarfé sjóðsins í ár er um 25 milljónir danskra króna.

Meðal íslenskra verkefna sem fengu styrk eru:

Ísland

Samband barna- og unglingaleikhúsa á Íslandi, ”Norræn barnahátíð austan við sól, vestan við mána” fær 100.000 danskar krónur eða um 1,2 milljónir íslenskra króna í styrk.

Kennaraháskóli Íslands ”Staða menntunar í nútíma þekkingarþjóðfélagi Norðurlandanna” fær 150.000 króna eða nær 2 milljónir íslenskra króna í styrk.

www.nordiskkulturfond.org

03.12.2003

NORDJOBB!
Hægt er að sækja um Nordjobb núna og fram til 31. maí.  Ungt fólk á aldrinum 18-26 ára getur sótt um sumarvinnu á hinum Norðurlöndunum.  Athugið að þeir sem verða 18 ára eftir 1. júlí 2004 geta ekki sótt um fyrr en á næsta ári !!!!
Kynnið ykkur Nordjobb með því að klikka á logoið hér til hægri.

25.11.2003

16-19 ára ungmenni geta valið að taka eitt námsár á einhverju Norðurlandanna
Lesið samning hér...

20.11.2003

Norræna æskulýðsnefndin
boðar til kynningarfundar um styrkjamöguleika ungs fólks í norrænu samstarfi.
Fundurinn verður haldinn í menntamálaráðuneytinu, fimmtudaginn 27. nóvember, kl. 14:00 - 16:00 og er opinn öllum að kostnaðarlausu. Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig í síðasta lagi mánudaginn 24. nóvember nk. í síma 545-9530 eða í netfang asta.reynisdottir@mrn.stjr.is

lesið meira hér....

03.11.2003  

Takið þátt í norrænu bókasafnavikunni - Í ljósaskiptunum, 10.-16. nóvember  Kynnið ykkur dagskrána á heimasíðu verkefnisins

30.10.2003                                             

Yfirskrift formennskuáætlunar Íslands er Auðlegð Norðurlandanna:  Lýðræði, menning og náttúra.
                                                                               
Kynnið ykkur hvað fram fór á 55. þingi Norðurlandaráðs í Osló dagana 27.-29. október hér.

30.10.2003

Nýjar Nordplus áætlanir Norrænu ráðherranefndarinnar verða kynntar í Norræna húsinu 4. desember kl. 14.30 - 16.30.
Lesið nánar um hinar fimm nýju áætlanir: Nordplus sprog, Nordplus junior, Nordplus fyrir háskóla, Nordplus voksen og Nordplus nabo á heimasíðu Alþjóðaskrfstofu háskólastigsins

15.10.2003

Bókmenntakvöld í DEIGLUNNI

með ljóðskáldunum Per Helge frá Svíþjóð, Jóhanni Árelíuzi og Aðalsteini Svani Sigfússyni frá Akureyri

Ljóðskáldið Per Helge kemur til Akureyrar í boði sendiráðs Svíþjóðar. Hann mun gleðja okkur með ljóðum sínum og spjalli um lífið og tilveruna.
Jóhann Árelíuz skáld frá Akureyri var lengi búsettur í Svíþjóð. Hann mun lesa upp úr bók sinni og eiginkona hans, Kerstin Venables, mun lesa ljóð Jóhanns ort á sænsku.
Ljóðskáldið Aðalsteinn Svanur Sigfússon flytur ljóð sín.

Kynntar verða hugmyndir að stofnun norræns leshóps á Akureyri. María Jónsdóttir og Kristín Árnadóttir sjá um kynninguna.

Í Deiglunni, fimmtudaginn 16. október kl. 20:30. Aðgangur er ókeypis.

Lesið um Per Helge hér

13.10.2003

Ráðstefna um notkun upplýsinga- og fjarskiptatækni á Norðurslóðum
Arctic Council ICT Conference

Ráðstefna um notkun upplýsinga- og fjarskiptatækni á Norðurslóðum - m.a. til fjarkennslu og fjarlækninga á dreifbýlum svæðum Norðurslóða verður haldin á Akureyri  dagana 20–21 October, 2003.
Nánari upplýsingar er að finna á ráðstefnuvef Háskólans á Akureyri

09.10.2003

Fjórir skólastjórar fámennra skóla í Finnlandi heimsóttu í viku 41:  Valsárskóla, Hrafnagilsskóla, Hafralækjaskóla, Reykjahlíðarskóla, Brekkuskóla og Gunnar Gíslason deildarstjóra Skóladeildar.
Finnarnir voru yfir sig ánægðir með móttökurnar og óku sælir og glaðir áleiðis til Reykjavíkur í morgun (9. okt.)
Sjá umfjöllun um heimsókn þeirra á fréttasíðu Valsárskóla

02.10.2003

Í dag bárust þær fréttir að búið væri að afnema lýðháskólastyrk Norrænu ráðherranefndarinnar.  Þeir nemendur sem höfðu hugsað sér að sækja um styrk til Nordens Folkliga Akademi fyrir 15. nóvember, fyrir árið 2004, ættu að fylgjast með þessari heimasíðu.
Hvort önnur úrræði verða í boði er ekki ljóst á þessari stundu, en á síðunni munu birtast upplýsingar um leið og þær berast.
Þeir sem ætla/ætluðu í lýðháskóla í janúar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Maríu Jónsdóttur á Norrænu upplýsingaskrifstofunni.

30.09.2003

Teater og dans hafa breytt nafninu í Nordscen.  Ennþá er hægt að sækja um styrki og nú er það hægt beint á netinu.  Heimasíða þeirra er:  http://www.nordscen.dk

26.09.2003

Ég minni á að umsóknir um styrki eru í gangi núna. Til öryggis skulið þið ganga úr skugga um að umsóknarfrestur sé réttur á þeim styrk sem þið hafið hug á.

Umsóknarfrestur hjá Norræna menningarsjóðnum rennur út 1. október.
Umsóknarfrestur hjá Dansk-íslenska samstarfssjóðnum rennur út 15. október.
Umsóknarfrestur um styrk hjá NOMUS (Nordisk musikkomité) rennur út 15 október.
Umsóknarfrestur til NUK (Nordiska ungdomskommittén) rennur út 1.nóvember

02.09.2003
Lýðháskóladvöl gerir ungu fólki gott.  Lesið bréf frá lýðháskólanemum hér

28.08.2003
Laust er starf yfirverkefnisstjóra Nordjobb með aðsetur í Malmö.  Nánar hér

26.08.2003
Full ástæða er til að vekja athygli á styrk til starfsmenntunar í Noregi.  Styrkurinn er ætlaður Íslendingum sem hyggja á framhaldsnám eftir iðnskólapróf eða hliðstæða menntun, fyrir framhaldsnám iðnskólakennara, til undirbúnings kennslu í iðnskólum og til ýmiss konar starfsmenntunar  sem ekki er unnt að afla á Íslandi.
Umsóknarfrestur er framlengdur til 1. september

22.08.2003
Grunnskólar sem óska eftir vinabekkjum á hinum Norðurlöndunum, eru vinsamlegast beðnir um að útfylla sérstakt eyðublað sem er að finna hér.

22.08.2003
Umsóknarfrestur um Vestnorden er 1. október 2003.  Allar nánari upplýsingar um styrkinn og umsóknareyðublað er að
finna hér

20.08.2003
Breytingar væntanlegar á Nordplus-mini, Vestnorden og Nordskol styrkjakerfunum
Nordplus-mini sem er styrkur Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir grunnskólanemendur, Vestnorden-styrkur sem er fyrir 8.-10. bekki grunnskóla og 1. og 2. bekk framhaldsskóla og Nordskol ætlaður kennarum grunnskólans verða með sama umsóknarfrest og verið hefur og verður deilt út samkvæmt þeim reglum sem hafa verið í gildi
til og með
desember 2003.

Frá og með janúar 2004 munu þessir styrkir falla undir eitt styrkjakerfi sem kallast Nordplus.
Hvernig verður staðið að hinu nýja Nordplus er ekki ljóst í dag.  Upplýsingar verða settar inn á síðuna um leið og hlutirnir skýrast.