NÝ VINABÖND TIL FLEIRI LANDA
Eystrasaltsríkin þrjú eiga nú jafnan rétt á þátttöku í Nordplus áætluninni á við Norðurlöndin fimm. Nordplus er stærsta mennta- og rannsóknaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar. Nýju Nordplus áætluninni 2008- 2011 var ýtt úr vör á ráðstefnu sem haldin var í Kaupmannahöfn dagana 8. og 9. nóvember. Nordplus áætlunin hefur 63,7 milljónir danskra króna fjárhagsáætlun á árinu 2008.
Við setningu ráðstefnunnar sagði Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar að sögulegt skref væri stigið í norrænni áætlun með því að hún væri nú opin fyrir samstarfi milli Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Roma Žakaitien menntamálaráðherra Litháen var sammála. Hún vitnaði í ræðu sinni í Albert Einstein:
"Markmið menntunar hlýtur að vera að þjálfa einstaklinga, sem geta hugsað og framkvæmt sjálfstætt, en sjá jafnframt að mikilvægasti árangurinn í lífinu er að vera til gagns fyrir samfélagið."
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra var stolt af nýju áætlunininni. Ísland hefur mikla reynslu af því að nemendur fari utan til náms:
"Nordplus er sú áætlun sem náð hefur einna mestum árangri í norrænu samstarfi. Rúmlega 10.000 einstaklingar taka þátt í henni árlega. Áætlunin stuðlar að því að brúa bil og mynda vinabönd milli landa okkar."
Gard Titlestad deildarstjóri hjá Norrænu ráðherranefndinni sagði við samantekt í lok ráðstefnunnar, að hnattvæðingin væri komin til að vera. Það er orðin sameiginleg áskorun allra að laða að hæft starfsafl. Nordplus samstarfið skiptir miklu máli í starfi norrænu samstarfsráðherrana við að efla samstarfið á Eystrasaltssvæðinu.
Áætlunin nær til menntunar á öllum stigum, frá leikskóla til símenntunar. Nordplus Horisontal mun styrkja þverfagleg tengslanet. Nordplus Junior styrkir tengslanet leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Nordplus æðri menntun mun stuðla að samstarfi milli æðri menntastofnanna. Nordplus Voksen mun halda áfram að þróa samstarf um fullorðinsfræðslu. Fyrsti umsóknarfrestur fyrir allar Nordplus áætlanirnar er 1. mars 2008.
Nánar um ráðstefnuna: http://www.welcomehome.dk/Default.aspx?ID=1216