DANSKA Í DANMÖRKU!
Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri, í samstarfi við Skóladeild
Akureyrarbæjar og Sproghøjskolen á Kalø á Jótlandi, munu standa fyrir tveggja
vikna námskeiði í dönsku fyrir nemendur í 7. 8. 9. og 10. bekk grunnskóla.
Námskeiðið verður haldið á lýðháskólanum á Kalø á Jótlandi dagana 11.- 25. júní
nk.
Kennt verður fyrir hádegi 11 morgna, 4 kennslustundir daglega. Eftir hádegi
verður skipulagður frítími. Farið verður í skógarferðir, siglt á kanó og margt
fleira spennandi gert. Einnig verður farið í tvær ferðir á vegum skólans um
nágrennið.
Þátttökugjald verður um 80.000 krónur. Innifalið eru ferðir, kennsla, fæði,
húsnæði og 2 skoðunarferðir. Íslenskir fararstjórar verða með hópnum allan
tímann.
Vegna forfalla eru 4 sæti laus fyrir 9. og 10. bekkinga.
MIKILVÆGT AÐ SKRÁ SIG STRAX. Skráning fer fram með tölvupósti til
mariajons@akureyri.is