Mánudagurinn 21. júní 2004
Við vöknuðum kl.7 í morgun og fórum í morgunmat. Eftir morgunmatinn fórum við til Jan, við horfðum á myndina Anja og Viktor og eftir myndina lærðum við svolitla málfræði. Síðan var hádegismatur og kl.13 fórum við að sigla með Henrik á kajökum. Þegar við vorum komin niður að sjó kom hellirigning en þegar allir voru búnir að hlaupa heim og sækja sér regnstakk kom steikjandi hiti og sólskin. Þegar við vorum búin að því fórum við í kaffi og eftir það var fráls tími. Fyrir kvöldmatinn lásum við nokkur Andrésblöð og í kvöld fáum við svo kvöldkaffi.
Hörður og Ólafur Ólafs.
Sunnudagurinn 21. júní 2004
Í dag fórum við í Djurs Sommerland. Við lögðum af stað með rútu frá Kalø um hálf 11 um morguninn og komum á staðinn um hádegisbil. Eftir það dreyfðum við okkur um garðinn og skemmtum okkur konunglega í öllum stærstu tækjunum. Þar á meðal var Rafting sem rennbleytti alla, rússíbani sem maður bókstaflega varð að fara aftur í, og vatnsrússíbani sem gusadi vatninu yfir okkur. Þegar allir voru svo orðnir vel blautir eftir tækin, kom loksins rigningin sem spáð hafði verið. Þegar við komumst loksins í rútuna voru allir orðnir rennandi blautir, ískaldir og dauðþreyttir eftir langan og skemmtilegan dag í Djurs Sommerland. Á leiðinni heim í rútunni varð einhver bið svo að við komum of seint í kvöldmat í fyrsta skipti, en hér er mikil áhersla lögð á að koma á réttum tíma í mat. Þó að rigningin hafi verið adeins kaldari en við bjuggumst við, held ég að allir hafi verið sáttir við daginn og að þetta hafi verið einn skemmtilegasti dagur ferðarinnar.
Eyrún, Heiddís, Pála og Eva
Laugardagurinn 20. júní
Vistin hér i Danmörku
Við áttum að skrifa eitthvað sem heitir pistill. Við erum ekki alveg vissar um hvað það er en við ætlum að reyna. Hann á að vera um hvad okkur finnst um vistina hér. Fyrsta daginn fannst okkur alveg ömurlegt að vera hér, okkur fannst maturinn ógeðslegur og vatnið var gult og ógeðslegt á bragðið. Herbergin viðbjóður, við vorum líka þreyttar með hausverk og í fýlu, síðan þekktum við ekki neinn þannig að það var ekkert rosalega gaman. Síðan næsta dag skánaði ástandið aðeins en ekkert rosalega mikið. Okkur fannst vatnið enn ógeðslegt og við vildum bara fara heim. Svo fór allt að skána, við kynntumst íslensku krökkunum og líka nokkrum dönskum. Okkur byrjaði að líka maturinn betur og allt fór að verða miklu skemmtilegra. Maturinn er mjög fjölbreyttur, sérstaklega í kvöldmatnum, oftast stórt hlaðborð. Samt finnst okkur íslenski maturinn hennar mömmu betri. Það er matartími hér sex sinnum á dag: morgunmatur, morgunkaffi (saftevand), hádegismatur, kaffitími, kvöldmatur og kvöldkaffi. Hérna þurfum við að hreyfa okkur allveg helling á hverjum degi og einn daginn þurftum við að hjóla 25 km. Fólkið hér er mjög almennilegt og hér er búið að vera fullt af skrítnu útlensku fólki, sem voru að byggja hús úr heyi, og það sagði alltaf hæ og góðann daginn. Við erum búnar að læra alveg helling í dönsku og náum pottþétt samræmdu. Það er búið að vera alveg ædislega gaman og okkur langar helst til að vera lengur, samt hlökkum við til að koma heim. Við söknum allra heima en nú verðum við að hætta því við verðum að fara í kvöldmat.
Þetta er skrifað af Helgu og Erlu!!
19.6.2004
Heil og sæl
Kennari á svæðinu er að vinna í þessu með myndavélina fyrir okkur en þetta
gengur brösulega. Ef í hart fer setjum við þetta bara inn þegar við komum heim.
Pistlar frá krökkunum koma innan tíðar.
Við vorum að koma úr 25 km hjóltur. því eru allir þreyttir glaðir og ánægðir, þó
fóru ekki allir með. Á morgun fórum við til Djurs-sommerland og hlökkum mikið
til.
Segjum þetta gott i bili, bestu kveðjur
Fjóla og Magga
Föstudagurinn 18. júní 2004
Dagurinn byrjadi á kennslu hjá Jan. Hann kenndi
okkur um skólana, kveðjur og venjur hjá Dönum. Eftir hádegismatinn var svo smá
hvíld áður en við fórum í tíma til Henriks.
Að þessu sinni fórum við gangandi að sjá Kalø slotsruin eða Kalø
hallarrústirnar. Þær voru byggðar af konungi sem einu sinni ríkti yfir Danmørku
en hann vildi að allir lytu hans stjórn og vildi geta haft allt undir "control".
Henrik sagði í stuttu máli frá søgu þessara rústa og sagði meðal annars að þær
væru misgamlar því það hefði verið byggt oft við til að styrkja turninn og
múrinn, þess vegna eru hleðslurnar mismunandi. Við skoðuðum okkur um þarna í smá
tíma þó að Fjóla og Magga væru alveg að fara á taugum því að þeim fannst vid
klifra kannski aðeins of mikið. Svo løbbuðum við bara heim og nokkrir krakkar
løbbuðu niður í Kaløs isbar og fengu sér danskan ís. Eftir það var kvøldmatur og
svo seinna fórum við í leiki og þá aðallega leik sem heitir Kubb sem gengur út á
að skjóta niður kubba þeirra úr hinu liðinu. Svo kom langþráður svefntími, þó að
margir gætu ekki sofnað því að "halmbyggererne" voru að fara næsta dag og voru
að fagna, eilítið of hátt kannski.
Helen, Jónína og Sólrún
Fimmtudagurinn 17. júní 2004.
Dagurinn byrjaði á næringaríkum morgunverði eins og venjulega. Svo hittum vid dönsku krakkana og fórum í leiki sem Henrik hafði kennt okkur og við kenndum dönsku krökkunum. Það var skemmtilegt og svo fórum við inn í skólastofuna og Jan talaði við okkur dágóðan tíma og kenndi dönsku krökkunum um Ísland. Við spjölluðum svo við dönsku krakkana. Svo þegar þau fóru þá fórum við til Århus og versluðum og sumir fengu kaupæði. Svo var fengið sér að borða, sumir á McDonalds og aðrir á Pizza Hut. Svo fórum við bara heim og dunduðum okkur eitthvað hérna heima. Fleira er ekki hægt ad segja um þennan dag.
Kær kveðja Hildur, Sara og Kristín.
Miðvikudagurinn 16. júni 2004
Vid vöknuðum klukkan 7:30 og fórum í morgenmad. Svo fórum við í 4 dönskutíma með Jan til 10 minutter í 12. Eftir mat þá hittum við Henrik og með honum fórum við í DGI Karpenhøj sem eru íthróttabúðir og líka svona eins og goðasafn. Þar eru styttur úr tré af gömlu goðunum t.d Ódinn, Þór, Fenrisúlfinum, hamri Þórs, skipinu sem fór til Heljar með dauða fólkið sem var byggt úr nöglum dauða fólksins o.fl. Þar fórum við í marga leiki og hlustuðum á sögur um goðin. Við fórum inní hring sem átti að vera múrinn í kringum Ásgarð. Múrinn var gerður úr tréklumpum sem köðlum var vafið utan um og við fórum í leik sem virkaði þannig að við áttum að klifra á köðlunum allan hringinn og áttum að komast á sama stað og við byrjuðum á. Svo á meðan á því stóð þá fékk Inga gat á hausinn og það var ekki gott. Eftir það fórum við að skoða meira m.a. gamlan smíðaskúr með miklum köngulóavef og stórum köngulóm! Svo löbbuðum vid lengra og fórum inní stóran skúr og sóttum kassa sem við áttum að nota í leik sem við ætluðum að fara næst í. Svo fórum við niður brekku og Henrik kenndi okkur leik sem var reyndar bara skemmtilegur í byrjun... Leikurinn gekk út á það að kasta skeifum á nagla og ef maður hitti ekki þurfti að hlaupa refsiferð upp brekku að svörtum skúr. Það voru margir ekkert smá þreyttir og illt í hálsinum og maganum. Eftir það fórum við í "veislu" í "Valhöll" og fengum svínakex og eplabjór...(eða þannig) reyndar fengum við bara lífræn kex, eplasafa og epli..(tss...). Eftir það fóru sumir í axakast og fengu mikla útrás af því ;) svo fórum við bara í rútuna sem við komum í, heim. Þetta var bara skemmtilegur og góður dagur. :)
Kveðjur :
Inga, Gréta og Ásdís.
15/6 2004 Heil og sæl Í dag þriðjudag vöknuðum við í rigningu og rukum út og tókum af snúrunum. Dagurinn byrjaði eins og venjulega á dönskutímum hjá Jan. Við fórum m.a. á internetið og gerðum verkefni tengd stjórnmálum i Danmörku. Einnig var krökkunum skift í hópa og unnin voru mismunandi verkefni á öllu skólasvæðinu. Kennslan er mjög markviss og lifandi og þjálfar alla þætti tungumálsins. Í útivistinni eftir hádegi þjálfast krakkarnir í að hlusta og fara eftir fyrirmælum á dönsku auk þess sem þeir hreyfa sig mikið og skemmta sér vel. venlig hilsen fra Kalø 14/6 2004 Sæl aftur! I gær sunnudag tókum við því rólega. Flestir fóru á ströndina og skemmtu sér vel. Ef satt skal segja var okkur fararstjórunum farin að ofbjóða umgengnin á sumum herbergjanna (þó eru þolmörk okkar nokkuð há i þessum efnum). Við gripum því til þess ráðs að efna til samkeppni um snyrtilegasta herbergið. Okkur til mikillar ánægju voru klútar og kústar komnir á loft um leið. Þegar við mættum í eftirlitsferð voru öll herbergin orðin virkilega fín, jafnt hjá strákum sem stelpum. Við höfðum lofað verðlaunum en höfum ekki ennþá getað afhent þau vegna anna. Í dag hélt kennslan áfram af fullum krafti fyrir hádegi inni í kennslustofu og eftir hádegi úti í skógi þar sem við fórum í 3ja klst. kraftgöngu með Henrik. Hann fjallar mikið um samspil mannsins og náttúrunnar og tókst vel að vekja athygli krakkanna á ýmsu í náttúrunni. Í dag var líka þvottadagurinn mikli - fararstjorarnir eru mjög ánægðir með að tímar þvottabrettanna eru liðnir. Þvegnar hafa verið um 30 gallabuxur og margvíslegir bolir í allskyns litum, flokkaðir eftir kúnstarinnar reglum. Komið hefur í ljós að mjög mikilvægt er að setja fram skilyrdi þess efnis að krakkarnir komi einungis með svartan eða hvítan fatnað sem bæði er straufrír og má fara í þurrkara!!! Hér eru nú allar snúrur fullar af glæsilegum fatnaði en sem betur fer er brakandi þurrkur. Því miður hefur ekki ennþá tekist að koma myndunum á tölvutækt form en við gefumst ekki upp - fjöldi manns vinnur í því að aðstoða okkur. Þá segjum við þetta gott bili. Bestu kveðjur frá Kalø 12/6 2004
Hej alle sammen
Í dag laugardag er afmælisdagurinn hans Ólafs Páls við héldum áfram í
dönskutímunum með Jan og det gik fint. Veðrið var svipað og í gær, skýjað og
rigning annað slagið en hlýtt. Eftir hádegi fórum við til Ebeltoft með bus.
Þar gengum við í gegnum gamla bæinn og keyptum okkur auðvitað ís. Flestir fóru
líka í sund og skemmtu sér konunglega á stökkbrettinu! Eftir sundferðina fórum
við í supermarket og leiðinni á strætóstoppistöðina kom HELLIDEMBA og allir urðu
hundvotir en það kom ekki að sök þar sem það er svo hlýtt.
Hér hefur ekki verið kveikt á sjónvarpi síðan við komum og reyndar vitum við
ekki hvar það er. Við höfum aðgang að tölvum á bókasafninu. Í upphafi ætludum
við að takmarka aðgang að tölvunum en síðan hefur komið í ljós að engin þörf er
á því þar sem þær eru notaðar mjög í hófi. Á morgun þurfum við ekki að vakna
fyrr en um kl. 9. Vid höfum heyrt að í kvöld standi til náttfatapartý og þar sem
við erum stödd á erlendri grund byrjar þad snemma og stendur ekki lengi yfir.
Keyptar voru léttar veitingar i tilefni afmælisdagsins.
Tak i dag
11.06.2004
Heil og sæl aftur
Í dag, föstudaginn 11. júni, kynntumst við enn einum góðum Dana. Hann heitir
Jan og kennir krökkunum dönsku fyrir hádegi. Námið gekk vel i dag og þeim fannst
þetta ekki eins erfitt og þau bjuggust við. Í miðjum frímínútum komu þrumur og
eldingar og alveg hellidemba. Okkur fannst þetta mjög spennandi og sumir þustu
út og urðu rennandi blautir á örskammri stundu.
Því miður forfallaðist Henrik eftir hádegi og því fór Jan med okkur í gönguferð
til Rønde sem er lítill bær í 3 km. fjarlægð frá Kalø. Enda vorum sumir orðnir
svolítið langeygir eftir því að komast i sjoppu. Í Rønde keyptum við okkur ís og
fórum i supermarket. Þetta var hressandi gönguferð og á leiðinni heim kom aftur
hellidemba. Jan stakk upp a því að bíða í 5 mínútur þar til rigningin hætti og
það fannst okkur mjög fyndið en eftir 5 mínútur hætti rigningin og það gátum við
haldið áfram.
Það sem eftir var dag og fram á kvöld dunduðu krakkarnir sér við hitt og þetta.
Eins og góðum mæðrum sæmir höfum við reynt að koma unglingunum í svefn á
skikkanlegum tíma og það hefur gengið þolanlega því þetta eru allt saman yndælis
BÖRN.
venlig hilsen frá Kalø
11.06.2004
1. bréf frá Danmerkurförum
Hér er frábært veður og frábært fólk!!!
Um klukkutíma seinkun var á fluginu út og því komum við ekki hingað
fyrr en kl. 3 í nótt. Henrik tók þá á móti okkur með saftevand og
boller. Margir voru býsna syfjaðir þegar þeir voru vaktir kl. 9:30 í
morgun.
Eftir morgunverð kynnti Ulla svæðið fyrir okkur og krakkarnir fengu
tækifæri til að koma með spurningar. Ulla er yndælis kona, hún
talaði hægt og hvatti krakkana til að tala dönsku.
Eftir hádegi var Henrik med 2 1/2 klst leikjaprógram. Hann er
virkilega skemmtilegur og gengur mjög vel að fá krakkana i lið með
sér. Leikirnir hristu hópinn vel saman og í þessum leikjum þurftu
krakkarnir að tala heilmikið dönsku. Framfarirnar hafa orðið miklar
í dag! Krakkarnir voru nokkuð þreyttir og dasaðir eftir langt
ferðalag, stuttan nætursvefn og ótrulega mikið sólskin. Hitinn var
yfir 20 gráður í dag og við kíktum aðeins á "ströndina". Við höfum
þurft að leggja áherslu á við krakkana að bera vel á sig sólavörn
sem hefur gengið ágætlega. Margir hafi þó roðnað aðeins í dag.
Við höfum komist að því að krakkarnir eru sérstaklega hræddir við
skordýr en strákarnir hafa gaman af því að skoða þau og hefur þessi
áhugi orðið til þess að þeir reyna ótrúlega á sig i dönsku til að fá
bæði upplýsingar og tæki til skordýraveiða!!!
Nú á eftir ætlum við að halda stuttan fund med krökkunum og fara
yfir umgengni, dagskrána næstu daga o.s.frv.
Þann17 júni munu koma til okkar krakkar úr 8. bekk i Rønde og í þeim
hópi er ein íslensk stelpa sem hefur búið hér i 3 ár. Einnig er i
athugun að við hittum krakka frá Mols en þar er íslenskur kennari.
Greinilegt er að allt er gert til þess að gera dvöl okkar hér
ánægjulega og lærdómsríka.
Við höfum reynt að tengja myndavélina en það hefur ekki gengið enn, við reynum að fá aðgang að öðrum tölvum á morgun og vonandi getum við sent ykkur myndir.
Það getur verið möguleiki fyrir þig að setja einhverjar upplýsingar á heimasíðuna þó myndir fylgi ekki med, því við hvöttum foreldra til að fylgjast med upplýsingum á heimasíðunni.
Segjum þetta gott i bili
venlig hilsen fra Kalø
Fjóla og Magga