Áherslur og umsóknarfrestir Norræna menningarsjóðsins árið 2010

Nýjar áherslur sjóðsins

Frá og með 1. janúar 2010 ganga í gildi fimm nýjar áherslur Norræna menningarsjóðsins.

Sjóðurinn leggur áfram metnað í að styrkja norrænt menningarsamstarf í víðum skilningi.

Norræni menningarsjóðurinn styrkir norrænt lista- og menningarsamstarf, fagfólks sem leikmanna.

• verkefni fyrir og með börnum og unglingum

• verkefni með áherslu á aukna þekkingu á mismunandi tungumálum Norðurlandanna

og þýðingu tungumálsins við að varðveita menningu

• verkefni sem hvetja til þátttöku nýrra Norðurlandabúa í norrænu menningarsamstarfi

• verkefni sem unnin eru á fámennum svæðum á Norðurlöndum

• verkefni sem hvetja til samstarfs á milli vestnorrænu landanna (Færeyja, Grænlands

og Íslands) og hinna Norðurlandanna

Umsóknarfrestir 2010

1. Fyrir umsóknir til og með 100 000 DKK eru fimm umsóknarfrestir árið 2010:

Umsóknarfrestur:                     Afgreiðsla umsókna:

1. febrúar                                        Í síðasta lagi 6. apríl

1. mars                                           Í síðasta lagi 6. maí

1. apríl                                             Í síðasta lagi 8. júni

1. september                                 Í síðasta lagi 5. nóvember

1. október                                      Í síðasta lagi 9. desember

2. Fyrir umsóknir hærri en 100 000 DKK eru tveir umsóknarfrestir 2010:

Umsóknarfrestur:                     Afgreiðsla umsókna:

1. febrúar                                      12. maí

1. September                                 1. desember

Sjóðurinn styrkir ekki verkefni sem þegar eru hafin (áður en Sjóðurinn hefur afgreitt umsókn).

Þátttaka "Nýrra Norðurlandabúa" í norræna menningarstarfinu fær meira vægi árið 2010.

Sjóðurinn metur verkefni sem „norrænt" ef að minnsta kosti þrjú norræn lönd/sjálfstjórnarsvæði vinna að því
sem þátttakendur, umsjónaraðilar eða eru þema verkefnisins.

Stjórn Sjóðsins ákvað á fundi sínum, í Kaupmannahöfn 26.-27. nóvember, að Sjóðurinn gæti til reynslu í eitt ár,
fellt niður kröfu um þriggja landa samstarf, ef sótt er um styrk til verkefnis sem eflir þátttöku

nýrra Norðurlandabúa í norræna menningarsamstarfinu. Ákvörðunin þýðir að Norræni menningarsjóðurinn getur,
að verkefnamati loknu, veitt styrk innan þessa ákveðna áhersluþáttar til tvíhliða verkefna þ.e.a.s. samstarfsverkefna
á milli tveggja landa/svæða.

Heimasíða sjóðsins: www.nordiskkulturfond.org