
Skáldastund á Amtsbókasafninu á Akureyri
4. mars kl. 16:15 - 17:00.
Stórskáldin Einar Már Guðmundsson handhafi bókmennta-verðlauna Norðurlandaráðs og Peter Laugesen, sem tilnefndur er til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2010, munu lesa úr verkum sínum og eiga góða stund með gestum Amtsbókasafnsins fimmtudaginn 4. mars frá kl. 16:15 -17:00.


Mynd: Peter Laugesen og Christian Vuust Mynd:Einar Már
Guðmundsson
Christian Vuust Dynamo jazzband er á ferð um Norðurlönd 28.feb. - 11.mars 2010. Þeir byrja í Færeyjum og koma hingað til Íslands og spila í Norræna húsinu 3. mars kl. 20:00 og á Græna hattinum á Akureyri 4. mars kl. 21.00. Miðaverð er 2000 kr.
Í ferðinni mun sveitin stíga á
stokk með röð þekktra norrænna skálda.
Danska ljóðskáldið Peter Laugesen,
sem tilnefndur er til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2010, kemur fram á
öllum tónleikum sveitarinnar en auk hans munu ljóðskáld í hverju landi sem
heimsótt er koma fram með þeim en þau eru: Einar Már Guðmundsson (Ísland),
Jóanes Nielsen (Færeyjar) og Jörgen Lind (Svíþjóð).
DYNAMO
Christian Vuust
Dynamo er danskt jazzband
með fimm af kunnustu jazztónlistarmönnum Dana auk skáldsins
Peter Laugesen.
Vídeólistamaðurinn Iben West sér um myndræna hluta allra tónleikanna.
Tónlistarmennirnir bandsins eru: Christian Vuust, tenórsaxófón og
tónsmíðar; Jakob Buchanan, flygilhorn/trompet, Jakob Bro, gítar,
Nicolai Munch-Hansen, bassi; og Jeppe Gram, trommur
VÍDEÓLIST + LJÓÐLIST + JAZZ = DYNAMO 
Christian Vuust Dynamo gaf út sína fyrstu plötu, Strøm, árið 2009. Platan hefur fengið lofsamlega dóma í dönskum fjölmiðlum: ”Stemningsmættet intenst” skrifar jazznyt.blogspot.com. ”Dynamoer i stærk strøm” skrifar Århus Stiftstidende.
Hljómsveitarmeðlimir hafa ólíkan
bakgrunn á hinum ýmsu tónlistarsviðum s.s. jazz, rokki og raftónlist.
Afstaða Dynamo gagnvart jazztónlist er opin og afslöppuð.
Vídeólistamaðurinn, Iben West víkkar út tónleikaupplifunina með því að skapa
myndir sem varpað er á léréft á staðnum. Iben hefur m.a. unnið með dönsku
grúppunum Nephew og Sorten Muld.
Samstarfsaðilar um heimsókn listamannanna til Akureyrar eru: Amtsbókasafnið, Græni hatturinn, Jazzklúbbur Akureyrar, Norræna upplýsingaskrifstofan og Tónlistarskólinn á Akureyri.
Tóndæmi: www.christianvuust.com
Tónleikaferðalagið er
styrkt af:
Nordisk Kulturfond,
Århus Kommunes Kulturudviklingspulje, Statens Kunstråd, A. P. Møller og Hustru
Chastine Mc-Kinney Møllers Fond til almene Formaal, JazzDanmark, DJBFA, Fondet
for Dansk-Islandsk Samarbejde, og Dansk Musikerforbund.