Hvað gerðist á Kalø? Horfðu til baka!
Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri efnir til ritgerðarsamkeppni fyrir Kalø -fara undir yfirskriftinni ,,Lífsreynsla á Kalø.”
Með Kalø-förum er átt við ungmenni sem tóku þátt í dönskunámskeiðinu „Kan man lære dansk“ á árunum 2004-2008.
Umfjöllunarefnið er dönskunámskeið á Kalø, sú reynsla sem Kalø-farar öðluðust og lærdómurinn sem fékkst. Hverju skilaði dvölin?
Var þetta þroskaför?
Hvað kom á óvart?
Kalø-farar eru hvattir til að setjast niður, leika sér að orðum og rifja upp ævintýrin og segja lífsreynslusögu sína af Kalø. Hvernig var að mæta nýju tungumáli? Er það reynsla til framtíðar sem Kalø-farar búa að?
Skilafrestur ritgerða er 1. október 2009.
Þátttakendur senda eitt eintak ritgerðar í pósti til Norrænu upplýsingaskrifstofunnar, Kaupvangsstræti 23, 600 Akureyri.
Nafn, heimilisfang og
þátttökuár á Kalø eiga að fylgja í umslaginu.
Einnig á að senda ritgerðina í tölvupósti til
mariajons@akureyri.is og merkja póstinn ritgerðasamkeppni. Nafn sendanda
þarf að koma fram í póstinum.
Þriggja manna dómnefnd mun velja úr innsendum ritgerðum og veitt verða verðlaun fyrir bestu ritgerðirnar.
Norræna tungumála- og menningaráætlun Nordplus styrkti verkefnið.