16.-22. nóvember 2009
Lausn vandamála felst í athafnasemi. Með Alþjóðlegri athafnaviku á Íslandi geta allir lagt hönd á plóg við að færa fram eitthvað jákvætt til samfélagsins. Þar á meðal þú! Nú geta allir, menntastofnanir, sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök, hópar og einstaklingar efnt til viðburðar í þeim tilgangi að virkja þjóðina til jákvæðra verka.
Aðilar í stuðningsumhverfi atvinnu- og menningarlífs á Norðurlandi leggja sitt af mörkum og standa fyrir eftirfarandi dagskrá á Akureyri.
Frumkvæði og framkvæmdagleði
Á Amts-café
(Amtsbókasafninu) í hádeginu dagana 16.-20. nóv. kl. 12:15-12:45. Veitingar
seldar á staðnum.
Framsækið fólk flytur áhugaverð erindi úr ólíkum áttum.
Mánudagur 16. nóv: Akureyrarstofa og Markaðsstofa Ferðamála á Norðurlandi kynna starfsemi sína.
Þriðjudagur 17. nóv: Sigríður Bergvinsdóttir – nýting kartöflunnar og nýjungar í framreiðslu, og Garðsbúið ehf. – framþróun í landbúnaði.
Miðvikudagur 18. nóv: Vélfag ehf. og Raf ehf. – kröftug nýsköpunarfyrirtæki með nýjungar fyrir fiskvinnslu.
Fimmtudagur 19. nóv: Grasrót – iðngarðar og nýsköpun, og Laufabrauðssetrið – menningararfur og nýsköpun.
Föstudagur 20. nóv: Veitingastaðurinn RUB 23 og Samherji – frjósamt samstarf um nýsköpun í matvælaframleiðslu.
Drifkraftur og athafnasemi
í Ketilhúsinu fimmtudaginn 19. nóv. kl. 15:00-18:00.
Ráðgjafatorg: Aðilar frá Byggðastofnun, NORA, Norðurslóðaáætluninni (NPP), Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar, Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga, Vaxtarsamningi Eyjafjarðar, Menningarráði Eyþings, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Norðursprotum, Akureyrarstofu og Norrænu upplýsingaskrifstofunni munu vera á staðnum og veita upplýsingar um sína starfssemi og stuðningsumhverfi frumkvöðla og atvinnulífs á Norðurlandi.
Framkvæmd og sköpunargleði: Kynnt verða nokkur góð dæmi um drifkraftinn í norðlensku athafnalífi.
kl. 15:00: Grasrót – iðngarðar og nýsköpun.
kl. 15:30: Gebris - nýsköpunarverkefni í ferðaþjónustu.
kl. 16:00: Stofnun Vilhjálms Stefánssonar - Trossan.
kl. 16:30: Snjótöfrar og Jólasveinarnir í Dimmuborgum.
kl. 17:00: North Hunt – skotveiðitengd ferðaþjónusta.
kl. 17:30: Sævör ehf – Náttúrutengd köfun í ferðaþjónustu.
Auk þessara aðila verða fyrirtækin Ektafiskur og Bergmenn á staðnum og kynna starfsemi sína.
Málstofur í Háskólanum á Akureyri
í hádeginu dagana 17.-20. nóv. Sjá nánar á www.unak.is
Annað áhugavert í vikunni:
Frumkvöðlar verða á ferðinni og munu heimsækja nemendur í HA, MA og VMA og kynna verkefni sín. Skúffuskáld heimsækja fyrirtæki.
Allir viðburðir eru opnir öllum og án endurgjalds. Nánari upplýsingar má finna á www.akureyri.is og www.athafnavika.is