Kynningarkvöld vegna Færeyjaferðar sumarið 2008

Í tengslum við fyrirhugaða ferð á vegum Norræna félagsins á Akureyri til Færeyja verða haldin tvö kynningarkvöld þar sem m.a. verða sýndar myndir, rætt um staðhætti, náttúru og menningu og farið yfir helstu atriði Færeyingasögu.

Kynningarnar verða sem hér segir:

Þriðjudaginn 26. febrúar (myndasýning, menning í Færeyjum)

Miðvikudaginn 27. febrúar (saga Færeyja, Færeyingasaga, færeysk náttúra)

Dagskráin hefst klukkan 20:00 bæði kvöldin í stofu H1 á Hólum, nýbyggingu Menntaskólans á Akureyri.

Umsjón með þessum kynningarkvöldum hafa menntaskólakennararnir Jónas Helgason, Valdimar Gunnarsson og Þórir Haraldsson. Kynningar þessar eru öllum opnar. 

Aðgangseyrir er 1.000 kr.  Félagsmenn í Norræna félaginu greiða 500 kr.