Upplýsingar um skrifstofuna.


Lausar stöður hjá Norrænu ráðherranefndinni eru hér

Fylgist með norrænum fréttum á:
www.norden.org

19/1 2012
Norrænt samstarf um tölvuský

12/1 2012
Brátt verður samanburður á æðri menntun á Norðurlöndum auðveldari

12/1 2012
KreaNord opnar nýja vefsíðu

2/1 2012
Nýr starfsmannastjóri hjá Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni


1/1 2012

Hittið stjórnmálamennina og kynnið þeim hugmyndir ykkar

1/1 2012
Silvia Modig, varaformaður Norðurlandaráðs 2012

9/1 2012
Vignir Jóhannsson sýnir hjá Norrænu ráðherranefndinni

 

:: Nýjasta nýtt ::

 

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki í Nordplus áætlunina.

Umsóknafrestur er 1. mars 2011. Umsóknir eru fylltar út gegnum ARS umsóknarkerfið:

Nánari upplýsingar má finna á www.nordplus.is og www.nordplusonline.org. Mikilvægt er að kynna sér upplýsingar í Nordplus handbókinni um viðeigandi áætlun. Handbókina er hægt að nálgast á nordplus.is

 

KreaNord opnar nýja vefsíðu

KreaNord heldur áfram að efla stöðu Norðurlanda sem forystusvæðis í menningar- og sköpunariðnaði. Fræðist um skapandi greinar á Norðurlöndum, skráið ykkur og tengist  stærsta tengslaneti á sviði skapandi greina á Norðurlöndum.


Kynnið ykkur nánar á www.norden.org                                             ljósmynd: www.norden.org

 

Á árinu 2011 voru 15 íslensk menningarverkefni styrkt um tæplega þrjátíu milljónir íslenskra króna

Árið 2011 úthlutaði Norræni menningarsjóðurinn 23,4 milljónum DKK til 232 norrænna menningarverkefna, sem unnin verða í norrænu samstarfi. 15 íslensk verkefni hlutu 1.393.000 DKK eða tæplega 30 milljónir íslenskar krónur.

Eftirfarandi hlutu styrki: 

Umsækjendur

DKK

List án landamæra and Share music

50.000

Draumasmiðjan

100.000

Hugvísindastofnun H.Í

50.000

Listahátíð Reykjavíkur

98.000

Ars Boralis

200.000

Leiklistarsamband Íslands

70.000

Nordklúbburinn - Ungmennadeild Norræna félagsins

35.000

Byggðasafn Skagfirðinga

15.000

Háskóli Íslands

70.000

Norrænir músíkdagar 2011 - Tónskáldafélag Íslands

150.000

Sögusvuntan (The Pocket Theatre)

150.000

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum

150.000

FLISS - Félag um leiklist í skólastarfi

100.000

Minjasafn Austurlands

80.000

Tangófélagið Reykjavík

75.000

Samtals

1.393.000

Nánari upplýsingar um úthlutun Norræna menningarsjóðsins hér

Næsti umsóknarfrestur sjóðsins er 1. febrúar


Þrjár bækur tilnefndar til vestnorrænu barnabókaverðlaunanna

Í sjötta sinn eru nú þrjár bækur tilnefndar til barna- og unglingabókaverðlauna Vestur-Norðurlandaráðs, þ.e. ein bók frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi. Bókmenntaverðlaunin eru veitt annað hvert ár og eru 60.000 danskar krónur.  
                                                                                                      Ljósmyndari Magnus Fröderberg/norden.org Kynnið ykkur tilnefndar bækur á www.norden.org

Leiðtogafundur Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í Reykjavík

Hvíta-Rússland og ESB-samstarf norrænu ríkjanna og Eystrasaltsríkjanna eru á dagskrá leiðtogafundar Norðurlandaráðs og Eystrsaltsráðins í Reykjavík fimmtudaginn 8. desember.
Fundurinn er haldin í framhaldi af fundi forsætisnefndar Norðurlandaráðs og munu fundarmenn m.a. ræða hvort fara skuli fram á árlega ESB-skýrslu frá ríkisstjórnum Norðurlanda.
Kynnið ykkur nánar hér á www.norden.org

 

Tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2012

Dómnefnd bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
hefur tilkynnt tilnefningar til bókmenntaverðlauna        
Ljósmyndari Johannes Jansson/norden.org
Norðurlandaráðs 2012

Frá Íslandi eru rithöfundarnir Bergsveinn Birgisson tilnefnur fyrir skáldsöguna „Svar við bréfi Helgu“ og Gerður Kristný tilnefnd fyrir ljóðabókina „ Blóðhófnir.“ Verðlaunahafi verður valinn á fundi dómnefndar í      Reykjavík vorið 2012. Verðlaunin
nema 350.000 dönskum krónum. Nánari upplýsingar um tilnefnda
rithöfunda og verðlaunin á: norden.org/bokmenntaverdlaunin.


Norræni menningarsjóðurinn kynnir nýja umsóknarfresti.


Árið 2012 verða breytingar hjá Norræna menningarsjóðnum á umsóknarfresti og umsóknarupphæð. Þessar breytingar eru gerðar til að koma til móts við þá rúmlega 1200 umsækjendur sem sótt hafa um styrki til sjóðsins undanfarin ár og vænta skjótrar afgreiðslu.

Breytingarnar eru:
Sjóðurinn býður upp á fjóra árlega umsóknarfresti framvegis og verður hægt að sækja um allt að 500.000 DKK á hverjum tíma. 

Umsóknarfrestir hjá Norræna menningarsjóðnum árið 2012 eru:
1. febrúar
1. apríl
1. september
1. október.

Leiðbeiningar fyrir umsækjendur á íslensku eru
hér


Sameiginlegt átak á COP17 í Durban           Ljósmyndari Silje Bergum Kinsten/norden.org

The Nordic way er skýr og markviss samvinna Norðurlandanna á  COP17, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem haldin
verður í Durban í Suður Afríku 28. nóv.- 9. des. 2011.

Norræna ráðherranefndin tekur þátt í ráðstefnunni og mun kynna mótaðar tillögur að lausnu
m á loftslagsáskorununum. Nefndin mun einnig koma með dæmi um það hvernig megi höndla loftslagskreppuna.

Norrænu forsætisráðherrarnir kynntu nýlega sameiginlega stefnu að grænum hagvexti. Á ráðstefnu SÞ í Durban mun ráðherranefndin kynna  norrænt frumkvæði að aðildasamstarfi auk sýningar um hagkvæmni í orkunýtingu á sveitarstjórnarstigi. Báðir viðburðirnir vísa til sameignlegs norræns átaks sem hafa það að markmiði að draga úr CO2 útblæstri með sértækum, hnitmiðuðum og þverfaglegum verkefnum fyrir sjálbæra þróun og samfélag. Lestu meira um Norrænu ráðherranefndina á COP17.


Íslensk-norræn veforðabók gefin út
ISLEX íslenskt-norrænt veforðabókarverkefni, orðabók
til birtingar á vefnum með íslensku sem grunntungumál og þýðingum á sænsku, norsku og dönsku, er orðin að veruleika og var hún formlega opnuð í dag á degi íslenskrar tungu.     
                                                                              
Ljósmyndari Ane Cecilie Blichfeldt                 
Uppflettiorð í bókinni eru 50.000.
             
                                         
Kynnið ykkur nánar á www.norden.org


Formennskuáætlun Norðmanna 2012

Sjálfbært velferðarríki frá norrænum sjónarhóli og framþróun þess er meginþráður í formennsku Norðmanna í Norrænu ráðherranefndinni á árinu 2012.

Norðmenn munu á formennskuárinu fjalla um viðfangsefni‚ sem blasa við norrænu velferðarríkjunum‚ hvernig við getum tekist á við þau með því að skoða gangverk velferðarríkisins og hvernig hið opinbera getur leyst verkefni sín á skilvirkari hátt. Það á einnig við um samstarf hins opinbera við aðila vinnumarkaðarins og aðra‚ þar á meðal félagasamtök‚ til að leita sameiginlegra lausna‚ sem sátt ríkir um í þjóðfélaginu.

Hér getið þið pantað eða hlaðið niður  Formennskuáætlun Norðmanna 2012


Eyðublað fyrir tilnefningar til Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2012

Árið 2012 veitir Norðurlandaráð Náttúru- og umhverfisverðlaunin í 18. sinn. Verðlaunin eru 350 þúsund danskar krónur.

Þema 2012

Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs, árið 2012, verða veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem hefur með góðu fordæmi og á árangursríkan hátt unnið að því að efla líffræðilega fjölbreytni í nærumhverfi sínu eða á alþjóðavettvangi og/eða aukið þekkingu almennings á þessu sviði.

Eyðublaðið er aðgengilegt HÉR

Tilnefningar skal senda inn í síðasta lagi 12. desember.


Norræni loftslagsdagurinn er í dag 11.11.´11Nordisk Klimadag d. 11. november …
Þema ársins er loftslag og matur

Heimasíða Norræna loftslagsdagsins er
aðgengileg hér


„Neysluhegðun ungs fólks skiptir máli"
Þátttaka í loftslagsmálum frá unga aldri gerir ungt fólk að meðvituðum neytendum. Það er fyrst og fremst mikilvægt að gera unga fólkinu ljóst að dagleg innkaup skipta máli, segir Christine Antorini ráðherra barna- og menntamála Danmerkur, sem stendur ásamt öðrum norrænum menntamálaráðherrum að Norræna loftslagsdeginum 11. nóvember.

Lesið meira hér


Hyggur þú á lýðháskólanám eftir áramót?

Umsóknarfrestir styrkja til lýðháskólanáms á vorönn 2012 eru:

1. des. hjá Norræna félaginu. Nánari upplýsingar hér.
1. des. hjá Ungmennafélagi Íslands. Nánari upplýsingar hér.

Áður en hægt er að sækja um styrk þarf skráningu á lýðháskóla að vera lokið og staðfesting frá skólanum að hafa borist.

Landsskrifstofur lýðháskóla á Norðurlöndum bjóða upp á leitarvélar sem auðvelda leit að lýðháskólum. Landsskrifstofurnar finnið þið hér.


Svíi Rapp-kóngur Norðurlanda

Fimmtán ára gamall Svíi Adam Kanyama kom, sá og rappaði til sigurs þegar keppt var til úrslita í norrænu Rap It Up keppninni í heimaborg hans, Stokkhólmi föstudaginn 14. október.

Adam Kanyama tókst á við keppendur frá Íslandi, Danmörku, Noregi og Finnlandi í úrslitunum
 
Í niðurstöðu dómnefndar sagði að Adam Kanyama hefði sigrað eftir frábæra frammistöðu á sviðinu þar sem hann sýndi með fádæma sjálfsöryggi og húmor, að hér kann að vera ein af stjörnum framtíðarinnar í norrænu rappi - eki síst þegar litið er til aldurs hans.      
ljósmynd: Carl Liungman

Sænska rappstjarnan Adam Tensta afhenti verðlaunin, andviriði 1.000 evra, heyrnartól frá Beats By Dre og upptökutíma hjá The Salazar Brothers í Redline hljóðverinu í Stokkhólmi.

Nánari upplýsingar um rapp-keppnina eru hér
 


Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2011 Verðlaunahafi ársins fundinn

Breska leikkonan Helen Mirren tilkynnti í dag hverjir hljóta Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2011.



Sænska kvikmyndin SVINALÄNGORNA (BEYOND) er besta norræna kvikmyndin 2011 og því hljóta Pernilla August leikstjóri myndarinnar, og Lolita Ray meðhandritshöfundur hennar og framleiðendurnir Helena Danielsson og Ralf Karlsson Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs á þessu ári. Heiðursformaður dómnefndar, Helen Mirren, greindi frá þessu á fréttamannafundi í Kaupmannahöfn.

Kynnið ykkur nánar á www.norden.org


Menningarsúpa í Deiglunni
Næsta Menningarsúpa sem haldin er í samstarfi AkureyrarAkademíunnar og Menningarmiðstöðvarinnar í Listagili verður þriðjudaginn 4. október kl. 12:00
í Deiglunni.

Dagskrá:

María Jónsdóttir hjá Norrænu upplýsingaskrifstofunni minnir á styrki sem hægt er að sækja um nú á haustdögum.

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir kynnir verkefnastyrki Menningarráðs Eyþings sem auglýstir verða til umsóknar í október
.
Arna Guðný Valsdóttir kynnir innsetningu sem sett verður upp á “Degi hússins” í AkureyrarAkademíunni þann 13. október nk.

Skráning í Menningarsúpu á listagil@listagil.is


 

 

 

 

 

Hvar finnum við styrki til norrænna verkefna með börnum og unglingum?

Námskeið í Brekkuskóla á Akureyri
Föstudaginn 30. september kl. 09:30-12:00

Ungt fólk á Norðurlöndum á sífellt erfiðara með að skilja tungumál hvers annars, þrátt fyrir aukna umferð yfir landamæri. Norræna ráðherranefndin hefur ýtt úr vör spennandi verkefnum þar sem áhersla er lögð á að auka skilning norrænna barna á tungumálum grannþjóðanna. Eitt þessara verkefna er Norræna tungumálaátakið.  Verkefnisstjóri Norræna tungumálaátaksins, Bodil Aurstad, miðlar þar Norðlendingum og öðrum úr reynslubrunni sínum og vekur athygli á þeim möguleikum sem leynast til spennandi starfa með börnum og unglingum. Fyrirlestur Bodil Aurstad hefur yfirskriftina: „Hvordan bidrar vi til en bred horisont for unge borgere av Island - Norden - Verden?“

Mögulegir norrænir styrkir verða einnig kynntir þ.á.m. nýjar áherslur hjá Nordplus. Farið verður yfir hvernig góð umsókn er unnin.

Kynnið ykkur dagskrá hér
 

 


 



 



Kvikmyndin Brim er framlag Íslands til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs


2011 Fimm norrænar kvikmyndir tilnefndar til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2011

banner til nrf pris 2011
                                                                                                      Mynd af heimasíðu Norðurlandaráðs

Fimm áhrifaríkar en jafnframt afar ólíkar norrænar kvikmyndir keppa um hin eftirsóttu kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs á þessi ári. Íslenski leikstjórinn Árni Ólafur Ásgeirsson, handritshöfundurinn Ottó Geir Borg og framleiðendurnir Þórir Sigurjónsson, Skúli Fr. Malmquist, Grímar Jónsson og Gísli Örn Garðarsson eru tilnefndir til verðlaunanna fyrir kvikmyndina BRIM og keppa við eina mynd frá hverju hinna norrænu ríkjanna: Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð.

Lesið meira um tilnefningar á heimasíðu Norðurlandaráðs hér

 


Norrænn Menningarviðburð Ársins: Norræn menningarhátíð barna og ungmenna árið 2013-2014!

Hafið þið hugmynd að menningarverkefni með börnum og unglingum á Norðurlöndum?

Þið getið sótt um þrjár milljónir danskra króna fyrir meiriháttar menningarhátíð! Norræni menningarsjóðurinn hefur eyrnamerkt þrjár milljónir danskra króna „Norrænni menningarhátíð barna og ungmenna árið 2013-2014."

Á tímum aukinnar alþjóðavæðingar vill Sjóðurinn vekja áhuga barna og ungmenna á norrænni menningu með eftirminnilegum stórviðburði - eða fleiri smærri viðburðum. Norræni menningarsjóðurinn vill styrkja verkefnafrömuði sem brenna í skinninu eftir að skapa stórviðburð barna og ungmenna. Það hefur afgerandi þýðingu að börn og ungt fólk, á aldrinum12-18 ára, frá öllum Norðurlöndum - Finnlandi, Svíþjóð, Noregi, Íslandi, Danmörku og Álandseyjum, Færeyjum og Grænlandi - fái tækifæri til þátttöku. Sjóðurinn leggur áherslu á fjölbreytni í menningarlegum tjáningarformum t.d. með röð verkstæða innan myndlistar, ljósmyndunar, tónlistar, bókmennta, leikhúss/nýsirkuss, kvikmynda og dans.

Umsóknarfrestur fyrir „Norræna menningarhátíð barna og ungmenna árið 2013-2014" er 15. febrúar 2012.

Fræðslu- og tengslafundur verður haldinn fyrir væntanlega umsækjendur í Kaupmannahöfn föstud. 14. oktober 2011, kl 12.00-16.00.

Sjá nánar hér



Svíinn Mats Gustafsson fær
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2011

Sænski saxófónleikarinn og tónskáldið
Mats Gustafsson hlýtur Tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs 2011.

Lesið meira um tónlistarverðlaunin hér

                                                                                          Ljósmyndari Cato Lein
 

Scandic hótelin hljóta umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs

Scandic-keðjan hlýtur verðlaunin fyrir að stuðla að sjálfbærri ferðaþjónustu á Norðurlöndum og um allan heim. Meðvituð umhverfisstefna og litlar einfaldar aðgerðir hafa haft í för með sér mikinn ávinning. Norrænu umhverfisverðlaunin verða afhent ásamt þremur öðrum norrænum verðlaunum, fyrir bókmenntir, kvikmyndir og tónlist, á Norðurlandaráðsþingi í byrjun nóvember.

Lesið nánar um umhverfisverðlaunin hér



RAP IT UP: LEITAÐ AÐ HIP-HOP HÆFILEIKAFÓLKI 2011

Keppnin Rap it Up er opin öllum ungum röppurum á aldrinum 14-22 ára sem rappa á norrænni tungu og búa á Norðurlöndum. 

Rap It Up keppnin fer fram með gagnvirkum hætti
á heimasíðunni www.rapitup.org.
Keppendur hlaða upp einföldum myndböndum á síðuna og dómnefnd velur bestu framlögin.  Dómnefndin samanstendur af m.a. sænska útvarpsmanninum Ametist Azordegan og röppurunum Johan "Organismen" Hellqvist (Svíþjóð), Per Vers (Danmörku) og Redrama (Finnlandi). Lokakeppni verður síðan haldin í             
                       Organismen. Fotograf Christer Carlsson_
Svíþjóð 30. september og sigurvegarinn fær bæði
verðlaunafé og tækifæri til að taka upp í fyrsta flokks hljóðveri í Stokkhólmi með viðurkenndum upptökustjóra.

Að Rap It Up standa Samband Norrænu félaganna með stuðningi frá Norræna menningarsjóðnum og Norrænu ráðherranefndinni. Meðal samstarfsaðila eru Norðurlandasvið Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Brussel (UNRIC) og sænsk-norska hiphop tímaritið Kingsize

.Lesið meira um keppnina hér
 


6 íslensk menningarverkefni styrkt um ríflega 15 milljónir króna

Norræni menningarsjóðurinn hefur úthlutar 8,745 milljónum DKK til 75 menningarverkefna, sem unnin verða í norrænu samstarfi. Íslendingar eru þátttakendur í 49 verkefnanna og er Ísland upphafsland 6 verkefna sem hlotið hafa samtals 695.000 danskar krónur eða ríflega 15 milljónir íslenskra króna.

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir íslensku styrkþegana.
Tangofélagið í Reykjavík 75.000 DKK
FLISS (Félag um leiklist í skólastarfi) 100.000 DKK
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum 150.000 DKK
Sögusvuntan (The Pocket Theatre) 150.000 DKK
Tónskáldafélag Íslands 150.000 DKK
Háskóli Íslands 70.000 DKK

Lesið meira um úthlutina hér



Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fagna hálfrar aldar afmæli

Norrænu bókmenntaverðlaunin eru æðsta viðurkenning sem hægt er að fá fyrir fagurbókmenntir á Norðurlöndum. Bókmenntaverðlaunin voru þau fyrstu af fjórum verðlaun sem stofnað var til af Norðurlandaráði og þeim fylgja oft mikil athygli og heiður. Tólf ritföfundar hafa verið tilnefndir til bókmenntaverðlaunanna.  Fulltrúar Íslands eru Gyrðir Elíasson og Ísak Harðarson. Kynnið ykkur tilnefnda rithöfunda hér.


Tólf tilnefndir til Norrænu tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2011
Tilnefningar til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs hafa verið gerðar opinberar. Íslendingarnir
Kynnið ykkur vefsíðu Norrænu tónlistarverðlaunanna hér


Norræna ráðherranefndin efnir til samkeppni um kennslutæki til að efla norrænan málskilning
Nánari upplýsingar um samkeppnina eru á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar


Norræna upplýsingaskrifstofan minnir á:
Sækið um fjármagn til undirbúningsverkefna núna!

Nú þegar geta áhugasamir sótt um allt að 30.000 dönskum krónum til undirbúningsverkefna sem enda með umsókn til Norræna menningarsjóðsins til fjármögnunar „Norrænnar menningarhátíðar barna og ungmenna árið 2013-2014."
Umsóknarfrestur er: 1. mars 2011.

"Årets Nordiske Kulturfestival for Børn og Unge 2013 - 2014."

3 milljónir DKK til menningarhátíðar fyrir börn og unglinga

 Norræni menningarsjóðurinn hefur eyrnamerkt þrjár milljónir danskra króna til „Norrænnar menningarhátíðar barna og ungmenna árið 2013-2014."
Öllum pottinum verður úthlutað til einnar allsherjar menningarhátíðar sem getur þó innihaldið fleiri smærri verkefni og viðburði. Krafan er að börn og ungmenni frá öllum Norðurlöndunum fái tækifæri til þátttöku. Sjóðurinn leggur áherslu á fjölbreytni í menningarlegum tjáningarformum t.d. með röð verkstæða innan myndlistar, ljósmyndunar, tónlistar, bókmennta, leikhúss/nýsirkuss, kvikmynda og dans. Leiðbeiningar fyrir umsækjendur eru hér á dönsku
Umsóknarfrestur er: 15. febrúar 2012.


Danska fyrir byrjendur
Lýsing: Námskeið fyrir þau sem litla dönsku hafa lært en langar að kunna meira. Markmið námskeiðsins er að auka skilning þátttakenda á dönsku með hlustun, lestri og tali. Stuðst verður við námsefni kennarans og ein nýleg dönsk smásaga verður lesin. Alice Emma er dönsk að uppruna, er kennari að mennt en hefur búið á Akureyri síðan 1973. Námskeiðið hefst 23. febrúar 2011.

Nánari upplýsingar hér


Sænskunámskeið í Framnäs í Svíþjóð.
Árlegt sænskunámskeið verður haldið í lýðháskólanum í Framnäs í Svíþjóð dagana
31. júlí -10. ágúst 2011.
Verð er 820 evrur. Innifalið er kennsla, fullt fæði, húsnæði og ferðir sem eru í námskrá.
Umsóknarfrestur er til 15. maí næst komandi.

Kynnið ykkur upplýsingar um staðsetningu, aðbúnað og hvert senda á umsókn HÉR Kynnið ykkur námskrá HÉR


NORDJOBB
Nordjobb gefur ungu fólki á aldrinum 18-28 ára tækifæri til að upplifa Norðurlöndin með því að vinna, búa og taka þátt í menningaratburðum norræns lands yfir sumarmánuðina.
Umsóknartímabilið hófst þann 21. janúar og lýkur þann 31. maí.
Sækið um núna HÉR

Kynnið ykkur tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2011 á heimasíðunni www.norden.org


Vitið þér enn – eða hvað? Samtal um rætur
Sumarsólstöðum 19. til 21. júní 2011

Fólkvangur um norrænar, keltneskar, samískar og grænlenskar rætur -ráðstefna með list, iðju og uppákomum.

Mardöll – félag um menningararf kvenna í samstarfi við AkureyrarAkademíuna, Jafnréttisstofu, Norrænu upplýsingaskrifstofuna, Listasumar, Handraðann, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Vanadíso.fl.Mardöll – félag um menningararf kvenna í samstarfi við AkureyrarAkademíuna, Jafnréttisstofu, Norrænu upplýsingaskrifstofuna, Listasumar, Handraðann, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Vanadíso.fl.

Markmiðið er að skapa frjótt samtal um menningararfinn, kvenlægar rætur og skapandi framtíðarsýn,milli fræða, lista og iðju, kvenna og karla frá ólíkum menningarsvæðum Norðurs.

Aðaltungumál ráðstefnunnar er enska, en listviðburðir og vinnustofur nýta önnur tungumál.
Kynnið ykkur dagskrá og annað hér


Norrænt tungumálaátak
Heimasíða Norræna tungumálaátaksins er fróðlegur vettvangur fyrir kennara, nemendur og áhugafólk um norræna tungu.
Síðan er aðgengileg hér


Norrænir styrkir
Ágætu landsmenn. Athugið að þessa dagana og næstu vikur (janúar - apríl) renna út umsóknarfrestir ýmissa styrkja til norræns samstarfs og verkefna. Á styrkjasíðu Norrænu upplýsingaskrifstofunnar hefur verið sett upp dagatal (umsóknarfrestir) helstu styrkja til menningarstarfs.


Nordplus_rammprgr_logo

Norræna tungumála- og menningaráætlun Nordplus 2011 (Nordplus Nordiske Sprog- og kulturprogrammet)
Auglýst eftir styrkjum til verkefna á sviði Norðurlandatungumála og til námsferða í grunn- og framhaldsskólum Tungumála- og menningaráætlun Nordplus er sérstakur vettvangur helgaður norrænum tungumálum. Þau lönd sem standa að áætluninni eru Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð. Einnig eiga sjálfsstjórnarsvæðin Færeyjar, Grænland og Álandseyjar ásamt samíska málsvæðinu aðild að áætluninni.

Tungumála- og menningaráætlun Nordplus hefur alls til umráða 6.517.480 danskar krónur (DKK) til starfsemi sinnar árið 2011. Þar af eru 2.000.000 DKK sérstaklega ætlaðar námsferðum nemenda og starfsfólks grunn- og framhaldsskóla.
Kynnið ykkur nánar hér

Menntaáætlun Nordplus 2011
Auglýst eftir styrkjum til samvinnu á sviði menntunar á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum Nordplus menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar stuðlar að gæðum og nýsköpun í menntakerfum Norðurlanda og Eystrasaltslanda með styrkjum til ýmiskonar samstarfsverkefna og samstarfsneta. Heildarfjármagn menntaáætlunar Nordplus starfsárið 2011 er u.þ.b. 8 miljónir evra.
Menntaáætlun Nordplus samanstendur af fjórum undiráætlunum: Nordplus Junior, Nordplus fyrir háskólastigið, Nordplus Voksen, Nordplus Horisontal. Sérstök áhersla árið 2011 er lögð á loftlagsmál sem á við allar undiráætlanirnar fjórar.
Kynnið ykkur nánar hér



269 norræn menningarverkefni fengu milljónir í styrki árið 2010
Norræni menningarsjóðurinn veitti 27,4 milljónir DKK til 269 norrænna menningarverkefna.
14 íslensk verkefni hlutu 1,849 milljónir DKK eða ríflega 38 milljónir IKR.
Norræni menningarsjóðurinn fékk yfir 1200 umsóknir árið 2010 - sem er nýtt met. Fjöldi umsókna jókst um 4 prósent á milli ára og gildum umsóknum (sem uppfylla kröfur sjóðsins og eru teknar fyrir af stjórn) hefur fjölgað um heil 6 prósent.
Íslenskum umsóknum fjölgaði verulega árið 2009 og aftur árið 2010 (frá 2008-2009 voru það 29 prósent og frá 2009-2010 um 16 prósent) Þessi aukningu tengist efalaust þeim fjárhagserfiðleikum sem skullu á þjóðinni 2008.
Árið 2011 hefur sjóðurinn yfir að ráða 27 milljónum DKK sem veittar eru umsækjendum menningar-samstarfsverkefna á Norðurlöndum.

Fyrsti umsóknarfrestur er 1. febrúar. Hægt er að sækja um allt að 500.000 DKK. Upplýsingar eru aðgengilegar á heimasíðu Norræna menningarsjóðsins www.nordiskkulturfond.org og að auki veitir Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri upplýsingar og aðstoð.
Lesið meira  hér



Gleðilegt ár kæru landsmenn og þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á liðnu ári.

 

 


Formennska Norðmanna 2012
í Norrænu ráðherranefndinni


Norræni menningarsjóðurinn Sjóðurinn styrkir menningu og listir í víðum skilningi, bæði atvinnufólk og áhugamenn. Næsti umsóknarfrestur: 1. febrúar 2012

 


Baltisk mobilitetsprogram
Sameiginlegar mannaskiptaáætlanir Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna

Nordisk eTax
Skattar á Norðurlöndum

 


 

 



 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 







   Fréttir 2010
Fréttir 2009
Fréttir 2008
Eldri fréttir
   
        


Vefhönnuður: Grétar Orri