Hádegismatseðlar í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar.
Um áramótin sl. kom til framkvæmda breyting á
skólamatseðlum leik- og grunnskóla bæjarins. Um tilraunaverkefni er að
ræða þar sem ákveðið var að hafa sama matseðil í öllum skólunum.
Meginmarkmiðið með þessari breytingu er að tryggja að öllum skólabörnum
standi til boða hollur og næringarríkur hádegisverður.
Matseðillinn nær yfir sjö vikur í senn og er stefnt að því að hann verði
mjög sýnilegur á heimasíðum skólanna. Þar verður hægt að skoða
matseðilinn fyrir hvern dag, sjá innihaldslýsingu máltíða og þegar fram
líða stundir verður hægt að sjá útreiknað næringargildi matarins.
Matseðlarnir og innihaldslýsingarnar hafa verið unnar af sérfræðingum.
Tilgangurinn með þessum breytingum er að gera foreldrum kleift að
fylgjast vel með þeirri næringu sem skólinn býður upp á. Undanfarin ár
hafa einnig borist ábendingar frá foreldrum sem eiga börn bæði í leik-
og grunnskólum bæjarins þess efnis að oft geti verið erfitt að samræma
matseðla heimilanna við matseðla skólanna. Er vonast til að
tilraunaverkefni þetta komi til móts við óskir þessara foreldra.
Akureyrarbær hefur gert samning við birgja er annast sölu á kjötvörum,
fiski, ávöxtum og grænmeti. Með þeim samningi er reynt að tryggja gæði
og ferskleika þeirrar vöru sem boðið er upp á í hvert sinn, þar sem
bærinn gerir ákveðna kröfu um gæði og ferskleika. Samið hefur verið við
sérfræðinga um eftirlit með gæðum hráefnisins.
Ólöf Erla Ingólfsdóttir matartæknir í leikskólanum Iðavelli vann
uppskriftirnar og setti saman matseðlana.
Guðrún Adolfsdóttir matvælafræðingur hjá Rannsóknarstofunni Sýni yfirfór
matseðlana og skoðaði þá m.t.t. útboðs, fjölbreytni og ráðleggingar
Landlæknisembættisins – Lýðheilsustöðvar.
Rannsóknarþjhónustan ProMat ehf mun taka að sér að fylgjast með gæðum
hráefnisins.