Jólabakstur

Þeytt deig

Lakkrístoppar

2 stk eggjahvíta
1 dl púðursykur
1 dl sykur
3 msk lakkrískurl
(súkkulaði þeir sem vilja, c.a. 25 g)
 

Aðferð:
Eggjahvítur eru þeyttar.
Sykrinum er bætt saman við og þeytt meira þar til hann er alveg runninn saman við.
Þá er lakkrískurli blandað úti og súkkulaði ef það er líka notað.
Sett á plötu með teskeið og bakað við 170 gráður í 11-13 mínútur. Þetta verða um 2 plötur af kökum.

 

Kornflextoppar

2 stk eggjahvíta
1 1/4 dl sykur
1 dl kókosmjöl
1 dl kornflex
30 g súkkulaði
50 g rúsínur
 

Aðferð:
Þeytið eggjahvítur og sykur vel saman.
Saxið súkkulaðið. Blandið öllu saman við með sleikju.
Sett á plötu með tveim teskeiðum og bakað við 180 gráður í 10-12 mínútur.Þetta verða um 2 plötur af kökum.

 

Hrært deig

"Subway"kökur

75 g smjörlíki
2 msk sykur
1 1/2 dl púðursykur
1 dl flórsykur
1/2 tsk vanillusykur
1 egg
2 1/3 dl hveiti
1/2 tsk matarsódi
75 g súkkulaði
 

Aðferð:
Smörlíki og sykur (allar gerðir) hrært vel saman með rafmagnshandþeytara. Þá er eggi bætt saman við og hrært vel. Því næst er hveiti og matarsóda hrært saman við. Síðast er súkkulaði blandað út í. Deigið er sett á plötu með matskeiðum og bakað við 175 gráður í 12 mín. Þetta verða um 12 kökur.
 

Súkkulaðibitakökur

100 g smjörlíki
1 1/4 dl sykur
1/2 dl púðursykur
1 egg
2 1/2 dl hveiti
1/4 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
50 g súkkulaði
1 tsk vanilludropar

Aðferð:
Smörlíki og sykur hrært vel saman. Þá er eggi bætt saman við og hrært. Því næst er hveiti, matarsóda, salti og vanillu hrært saman við. Síðast er súkkulaði blandað út í. Deigið er sett á plötuna með teskeiðum og bakað við 175 gráður í 10 mín. Þetta verða tæpar 2 plötur af kökum.
 

Hnoðað deig

Piparkökur

2 dl hveiti
1 tsk kanill
1/2 tsk negull
1/2 tsk engifer
pipar á hnífsoddo
1/2 tsk matarsódi
45 g smjörlíki
3/4 dl sykur
2 msk síróp
1/4 dl mjólk eða vatn

Aðferð:
Hveiti og kryddi blandað saman við. Þá er sykri, sírópi, vatni eða mjólk blandað saman við og deigið hnoðað. Það má bæði fletja deigið út og útbúa kökur með formum eða búa til litlar kúlur. Bakað við 175 gráður í 10 mínútur. Þetta verða tæpar 2 plötur af kökum.

 

Engiferkökur

10 dl hveiti
8 dl púðursykur
250 g smjörlíki (smjör)
1 tsk lyftiduft
2 egg
1 tsk natron (matarsódi)
2 stk engifer
1 tsk negull
1 tsk kanill

Aðferð:
Hnoðað og kælt. Mótað í kúlur og sett á plötu, ýtt aðeins ofan á þær. Bakað við 170 gráðu hita í um það bil 10 mínútur.

 

Jólatertur
 

Vínarterta  hvít

225 sykur
225 g smjörlíki
4 egg
250 g hveiti
½ tsk lyftiduft
½ tsk vanilludropar 

Aðferð:  Smjör og  sykur hrært vel saman.  Þá er eggjum bætt saman við einu og einu í einu og vanilludropar.  Hveiti og lyftiduft er hrært rólega saman við.  Deiginu er skipt í tvo hluta og smurt á pappírsklæddar bökunarplötur.  Bakað við 220 °C í 10-12 mín.  Kælt   plötunum er skipt í tvennt og partarnir fjórir settir saman með sultu.

  

Vínarterta brún

225 sykur
225 g smjörlíki
4 egg
250 g hveiti
2 msk kakó
½ tsk kanill
¼ tsk engifer
¼ tsk negull
½ tsk vanilludropar 

Krem: 
125 g smjörlíki
2 ½  dl flórsykur
1 egg
½ tsk vanilludropar


Aðferð:  Smjör og  sykur hrært vel saman.  Þá er eggjum bætt saman við einu og einu í einu og vanilludropar.  Hveiti, lyftidufti og kryddi er hrært rólega saman við.  Deiginu er skipt í tvo hluta og smurt á pappírsklæddar bökunarplötur.  Bakað við 220 °C í 10-12 mín.  Kælt   plötunum er skipt í tvennt og partarnir fjórir settir saman með smjörkremi.

 

Jólakonfekt 

Bountykúlur

4 dl flórsykur
4 dl kókosmjöl
3 msk lint smjör
1 eggjahvíta

Allt að 4 msk rjómi eða mjólk bætt í
Deigið á að vera frekar blautt.
Búnar til kúlur og þeim velt upp úr súkkulaði. 

 

Hnetusmjörsbitar

1 bolli sykur
1 bolli sýróp
1 bolli hnetusmjör
2 ½ bolli rice krispies
2 ½ bolli corn pops
ljóst  hjúpsúkkulaði 

Hitið saman í potti vð vægan hita sykur, síróp.  Hrærið hnetusmjöri saman við og látið hitna saman.  Blandið korninu saman við með hröðum handtökum og látið í skúffu.

Hjúpsúkkulaði brætt og smurt ofaná.  Skorið í litla munnbita þegar súkkulaðið er við það að storkna. 

 

Heysátur 

2 bollar gróft skornar saltstangir
½ bolli salthnetur
1 bolli corn pops
100 g suðusúkkulaði
100 g karamellufyllt súkkulaði
20 g palmín ef vill 

Bræðið súkkulaði og látið aðeins kólna.  Blandið saltstöngum, salthnetum og corn pops saman í skál,  hellið súkkulaðiblöndunni yfir.  Látið í lítil pappírsform.

 

Appelsínusúkkulaði 

250 g suðusúkkulaði
100 g appelsínufyllt súkkulaði
¼ dl rjómi
3 tsk rifinn appelsínubörkur 

Setjið súkkulaðið og rjóma í pott og bræðið í vatnsbaði.  Hrærið þar til blandan er jöfn.  Bætið appelsínuberki út í.  Setjið í lítil form og kælið.

 

Gott til jólanna 

Hrískökur 

60 g smjör
5 msk sýróp
100 g suðusúkkulaði
100 g rice crispis 

Setið smjór og suðusúkkulaði saman í pott og látið bráðna.  Blandið rice crispis saman við og setið í pappírsform.  Látið kólna. 

Jólakarlar 

 1 l. mjólk
200 g brætt smjörlíki
100 g ger
100 g sykur
1300 g hveiti 

1 tsk kardemommudropar

Búið til gerdeig.  Deigið látið hefast og síðan skipt í kúlur.  Úr hverri kúlu er búinn til jólakarl og rúsínur settar sem augu og tölur á fötin.  Bakað þar til það er gullinbrúnt

  

Súkkulaðihnútar 

3 dl mjólk
100 g smjörlíki
2 msk þurrger
500 g hveiti
4 msk sykur
1 tsk salt
2 egg
1 tks kardimommudropar
150 g súkkulaði 
kanilsykur ef vill 

Aðferð:
Hitið mjólkina og smjörið saman.
Blandið þurrefnunum saman og gerinu.
Setjið eggin og ylvolga mjólkina út í ásamt kardimommudropum.
Hnoðið deigið og látið hefast í 30 mín.
Fletjið út og smyrjið bræddu súkkulaðinu yfir ½ deigið
Leggið  helminginn yfir hinn.
Skerið í lengjur og bindið hnút úr hverri lengju.
Raðað á plötu og bakað við 175-200°  í 15 mín.