Kjöt- og fiskréttir í vali

 

 

Mousaka (grískur réttur)

 2 dl saxaður laukur       
30 g smjörlíki eða 2 msk olía
250 g nautahakk
1 hvítlauskrif
1 litil dós tómatmauk
2 tsk salt
¼ tsk pipar
1 tsk sykur
½ tsk rósmarín
4 stórar kartöflur
2 egg
1 dl mjólk
1 dl rifinn ostur

 Aðferð

  1. Saxið laukinn
  2. Rífið ostinn
  3. Hitið smjörlíkið/olíuna og brúnið laukinn
  4. Bætið hakkinu á pönnuna og brúnið það
  5. Bætið útí pressuðum hvítlauk, tómatmauki, salti, pipar, sykri og rósmarín. Látið malla á vægum hita í 5 mín.
  6. Flysjið kartöflur (ef þarf) og skerið þær í þunnar sneiðar (í rifjárni). Látið helming af kartöflum í botn á smurðu eldföstu móti.
  7. Látið kjötblönduna ofan á kartöflurnar og drefið restinni af kartöflunum yfir.
  8. Þeytið saman egg og mjólk og hellið yfir kartöflurnar.
  9. Dreifið rifnum osti yfir réttinn. Látið mótið inn í miðjan ofn og bakið við 180°c í 45 mín.

Berið fram með salati.