|
Skilaboð
Miðvikudagur 1. feb | Alda
Í dag var 6. bekkur var að
steikja fisk og þau notuðu uppskrift úr bæklingi sem þau fengu á Húna í
september. Þeim fannst fiskurinn góður og vildu fá uppskriftina til að
geta eldað heima. Hér er hún:
400 - 600 g ýsa eða þorskur,
skorin í bita. Í poka er sett 2 dl hveiti, 1 tsk salt, 1/4 hvítur pipar,
1 tsk paprikuduft og 1 tsk timjan. Þetta er hrist saman og svo er
fiskinum bætt úti og hann hristur með þannig að hann verðu hjúpaður með
blöndunni. Hitið olíuna vel á pönnunni með og steikið fiskinn á báðum
hliðum, passa að hafa pönnuna ekki of heita. Borið fram t.d. með
kartöflum og grænmeti.
kveðja Alda
Miðvikudagur 1.
feb | Alda
Bollakökur
Það er komin uppskrift af
súkkulaðibita-bollakökum undir Gott með kaffinu
Hópar í vali voru að baka ýmsar gerðir af bollakökum í vikunni og
var þessi vinsæl.
kveðja Alda
Þriðjudagur 10. jan | Alda
Hjá flestum hópum eru
annarskil í lok vikunnar. Hefð er fyrir pizzubakstri í síðasta tímanum
og með því er drukkin djús. Mikil veisla :) Uppskrift af pizzabotni er
undir tenglinum Gerbakstur.
kveðja Alda og Stína
Fimmtudagur 17. nóv | Alda
Nú styttist í jólin :)
Jólabakstur hefst í byrjun desember í heimilisfræðitímum og hér til
hliðar er tengill með uppskriftum sem við höfum notað síðustu ár ásamt
ýmsu öðru góðgæti sem fær að fylgja með.
kveðja Alda og Stína
|