Brauð og ýmislegt
Hafrakex
6 dl haframjöl
3 dl hveiti
1 dl sykur
1 tsk lyftiduft
½ tsk hjartarsalt
125 g smjörlíki
1 dl mjólk
Þurrefnum blandað saman, smjörlíkið mulið saman við og mjólk bætt útí. Hnoðað saman og breitt frekar þunnt út með kökukefli. Skorið með kleinuhjóli í litla tígla eða ferkantaðar kökur.
Bakað við 100° C í 10-12 mínútur.
Gott með smjöri og osti.
Bananabrauð
1 dl sykur
100 gr smjörlíki
1 egg
1 banani
2 dl hveiti
1/2 tsk natron
1/4 tsk saltAðferð:
Smjörlíki og sykri er hrært saman , eggi og mörðum banana bætt út í. Þurrefnin eru sett síðast og hrært. Bakað við 160 °C í 60 mín.
Kryddbrauð, ættað úr Síðuskóla
1 ½ dl
hafragrjón
1 ½ dl
hveiti
1 ½ dl
púðursykur
1 ½ dl mjólk
½ tsk engifer
½ tsk kanill
½ tsk negull
1 tsk natron
Stillið ofninn á 170˚ gráður.
Allt hráefnið er sett í skál og hrært saman með sleif, uppskriftin passar í lítið jólakökuform. Brauðið er bakað í um 30-40 mín. Gott með smjöri og osti.
Tebollur
125 g sykur
2 egg
250 g hveiti
125 g smjörlíki
2 tsk lyftiduft
½ dl mjólk
1 tsk kardimommudropar
100 g súkkulaði – brytjað
v Stillið ofninn á 200 gráðu hita
v Þeytið sykur og egg vel saman með rafmagnshandþeytara
v Bræðið smjörlíkið
v Öllu nema súkkulaði er bætt í skálina og blandað rólega saman við
v Súkkulaðinu bætt útí
v Setjið með matskeið á bökunarpappír, hafið gott bil á milli þar sem kökurnar stækka
v Bakið í um það bil 15 mínútur
Jógúrtkökur/möffins
60 g brætt smjörlíki
2 1/2 dl hveiti
2 dl sykur
2 egg
1/4 tsk natron
1/4 tsk vanilludropar
1 dl karamellujógúrt/súrmjólk
1 dl súmjólk
50 g súkkulaðispænir
Aðferð:
Ofninn hitaður í 180 gráður.
Öllu blandað saman í skál og hrært saman með rafmagnshandþeytara, gott að setja
súkkulaðið síðast svo það bráðni ekki í smjörlíkinu. Sett með skeið í bréfform
og það haft hálffullt.
Bakað fallega brúnt í miðjum ofni í um 10 mínútur.
Hrært deig
Þegar hrært deig er gert:
*Smjör og sykur hrært saman þar til það er létt og ljóst.
*Eggjum bætt út í, einu í einu og hrært vel á milli.
*Þá er þurrefnum og vökva bætt í til skiptis og hrært í stutta stund.
*Ávöxtum/súkkulaði bætt í ef þeir eiga að vera í uppskriftinni.
Bollakökur (muffins) með súkkulaðibitum og vanillusmjörkremi
270 g sykur (3 dl)
150 g smjörlíki eða smjör (við stofuhita)
2 egg
240 g hveiti (4 dl)
1/2 tsk lyftiduft
1/2 dl mjólk
1 tsk vanilludropar
60 g 56% súkkulaði (eða bara það sem er til eða þykir gott, má líka sleppa)
Hitið ofninn í 170° c. Sjá aðferð við hrært deig. Setjið deigið í form, hafið þau hálf. Bakið í 16 - 18 mín. Kælið áður en kremið er sett á.
Vanillusmjörkrem
110 g smjör (mjúkt - við stofuhita)
1 tsk vanilludropar
450 g flórsykur
60 ml mjólk (rúml. hálfur dl)Notið rafmagnsþeytara eða hrærivél. Hrærið smjör og vanilludropa vel saman og bætið flórsykri og mjólk smátt og smátt útí þar til allt er vel blandað saman. Hrærið áfram þar til kremið verður létt og ljóst. Smyrjið því eða sprautið á kökurnar. Má setja matarlit ef þið viljið.
Jólakaka
70 g smjörlíki
3/4 dl sykur
2 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
1 dl mjólk
1 egg
1/2 tsk kardemommur
rúsínurBakað í 175° heitum ofni í smurðu formi í 40 mín.
Brúnkaka
70 g smjörlíki
3/4 dl sykur
2 dl hveiti
1/2 tsk kanill
1/2 tsk negull
1/2 tsk engifer
3/4 dl mjólk
1 egg
rúsínurBakað í 175° heitum ofni í smurðu formi í 40 mín.
Appelsínukaka
90 g sykur
90 g smjörlíki
1 egg
1/2 dl appelsínusafi
2 dl hveitiBakað í 175° heitum ofni í smurðu formi í 40 mín.
Marmarakaka
70 g smjörlíki
3/4 dl sykur
2 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
1 dl mjólk
1 eggDeigið er hrært og því skipt í tvo hluta
Þá er 1 msk kakó og 1?2 msk mjólk blandað saman við annan helminginn. Deigið er sett í formið þannig : fyrst er 1/2 af hvíta hlutanum sett í og þá er brúna deigið sett í og hinn 1/2 hvíta deigsins sett yfir.
Bakað í 175° heitum ofni í smurðu formi í 40 mín.
Þeytt deig
Þegar er bakað með aðferðinni þeytt deig:
*Egg og sykur þeytt saman fyrst, þar til blandan þykknar.
*Þá er þurrefnunum bætt saman við varlega með sleikju.
*Síðan vökva, smjöri og bragðefnumEkki má hræra þeytt deig mikið eftir að þurrefnin koma út í annars verður deigið seigt.
Engisprettukaka
200 g sykur
2 egg
150 g smjörlíki
6 msk heitt vatn
3 stk möndludropar
Grænn eða rauðu matarliturBakað við 170°C í hringformií c.a.
15 mín. Má setja glassúr yfir
Súkkulaðikaka
2 egg
1 dl sykur
1 1/2 msk hveiti
1/4 dl kartöflumjöl
1/2 tsk lyftiduft
1 msk kakóBakað í hringformi við 200°C í 15 mín.
Frosting:
100 g sykur
1/2 dl vatn
2 eggjahvítur
1/2 msk síróp
1/2 tsk vanilludroparSykur og vatn soðið saman í 12 mín eða þar til þykknar. Eggjahvítur þeyttar. Sykurlegi hellt út í í mjórri bunu ásamt sírópi og vanilludropum. Þeytt þar til kólnar.
Rúlluterta eða rjómaterta
2egg
3/4 dl sykur
1 msk heitt vatn
1 1/2 dl hveiti
1/2 tsk lyftiduft
1 msk kakó ef tertan á að vera brúnBakað í pappírsmóti 30x35 cm við 200°C í 10 mín. Rúllað upp með sultu eða hvítu kremi.
Krem:
2dl flórsykur
100 g smjörlíki
1 egg
1/2 tsk vanilludropar
(2 tsk kakó ef á að vera brúnt)
Sjónvarpskaka
150 g sykur
2 egg
1 tsk vanilludropar
125 g hveiti
1 tks lyftiduft
1 dl mjólk
25 g smjörBakað í hringformi í 15-20 mín þá er karamellan sett yfir og bakað í 10 mín.
Kókoskaramella:
60 g smjör
50 g kókosmjöl
60 g púðusykur
2 msk mjólk
Allt sett saman í pott og hitað.Bakað í 175° heitum ofni í smurðu formi í 40 mín.
Kókoskúlur
100 g smjör, lint – ekki bræða
1 dl sykur
3 dl haframjöl
2 msk. kakó
½ tsk. vanilludropar
2 msk. kalt kaffiSetjið allt saman í skál, blandið saman og rúllið í litlar kúlur. Veltið síðan kúlunum upp úr perlusykri eða kókos. Setjið kúlurnar í ísskáp í stutta stund.