Gerbakstur
Í gerbakstri er lyftingin mjög mikilvæg.
Þurrger þarf tíma til að lyfta sér.
Best er að vökvinn sé volgur og skálin höfð á hlýjum stað meðan lyfting fer fram.
Í heimilisfræði er tíminn fljótur að líða og tími til lyftingar oft lítill. Við notum aðallega tvö ráð við lyftingu.
Það fyrra er að stilla ofnin á 40-50°C og láta skálina inn í 5-8 mínútur
Einnig er hægt að láta skálina ofaní heitt vatn í vaskinum í 10-30 mín.
Venjulega er allt sett í skálina nema 1/3- 1/4 hluti hveitisins sem er geymdur og settur út í eftir lyftingu. Þá er deigið fullhnoðað og brauðið mótað.
Gott er að leyfa brauðinu að lyfta sér í nokkrar mínútur á plötunni áður en það er bakað.
Fléttubrauð
1 dl heitt vatn
1 1/2 dl mjólk
2 1/2 tsk þurrger
5 dl hveiti
1 dl klíð
25 g smjörlíki
1/4 tsk salt
1 tsk sykur
birki ofaná
Ostaslaufur
1 dl mjólk
2 1/2 tsk þurrger
1/2 tsk salt
1/2 msk sykur
30 g smjörlíki
1 egg
4 dl hveiti
Rifinn osturAðferð:
Velgdu mjólkina og settu gerið út
Bættu salti. sykri eggjum og bræddu smjöri út í.
Þá er 3 dl hveiti sett út í og deigið látið lyfta sér um stund á hlýjum stað.
Deigð tekið og afgagngi hveitisins blandað saman við og deigið hnoðað og flatt úr í ferhyrnda köku. Osti dreift yfir helming deigsins og það brotið saman. Lengjan er skorin í 8 ræmur og snúið er upp á hverja ræmu í miðjunni svo úr verði slaufa. Bakað við 200°C þar til er orðið gullinbrúnt.
Eplalengja
1 ½ dl mjólk
2 tsk þurrger
25 g brætt smjörlíki
3 ½ dl hveiti
1 msk sykurFylling
½ - 1 epli
20 g lint/brætt smjörlíki
1 msk kanelsykurOfan á:
Mjólk og 1 msk kókosmjölAðferð:
Hitið mjólkina þannig að hún sé volg (37°), setjið í skál og gerið útí, látið bíða í nokkrar mínútur. Setjið smjörlíki, 3 dl af hveitinu og sykur útí og hrærið vel saman með sleif.
Látið lyfta sér í 15 mínútur á hlýjum stað. Bætið restinni af hveitinu saman við og hnoðið á bekk, passið að hafa hveiti á bekknum þannig að deigið festist hvorki við hann eða hendurnar. Breiðið deigið út í lengju, smyrjið/penslið miðjuna með smjörlíki, raðið eplabátum ofan á smjörlíkið og stráið kanelsykri yfir. Skerið upp í báðar hliðar á ská inn að miðju, leggjið svo ræmurnar til skiptis yfir eplin. Penslið með mjólk og stráið kókosmjöli yfir. Látið lengjuna lyfta sér í 20 mínútur og bakið við 200 gráður í 20-25 mínútur.
Pizzabotn fyrir 2.
1 ½ dl volgt vatn
1 ½ tsk þurrger
½ tsk sykur
½ tsk salt
1 msk matarolía
c.a. 3 dl hveiti (og meira ef þarf)
- Volgt vatn, ger og sykur sett í skál og látið bíða í 2-3 mín (gerið á að leysast upp)
- Salti og olíu bætt útí og hveitið sett smám saman þar til hægt er að hnoða deigið. Látið það lyfta sér í 10 mínútur í skálinni.
- Breiðið deigið út og setjið áleggið á, bakið við 220 gráðu hita, tekur um 10 mínútur (betra að fylgjast vel með).