Bakstur í vali

 

Gerbakstur

Salami, pepperoni, eða spægipylsubrauð 

2 ½ tsk ger
4 dl volgt vatn
1 tsk salt
2 dl rúgmjöl
5-6 dl hveiti 

       Setjið vatn og ger í skál og látið gerið leysast upp. Setjið salt, rúgmjöl og 3 dl af hveiti samanvið, hrærið vel. Setjið hveiti útí þar til hægt er að hnoða deigið. Látið það svo lyfta sér í skálinni í 30 mínútur á hlýjum stað, setjið hreint viskastykki yfir skálina.

       Á meðan deigið lyftir sér þá saxið þið ½ - 1 lauk, 40-80 g af spægipylsu, pepperoni eða salami og takið til 30 g af rifnum osti og 1 tsk af þurrkaðri steinselju. Þetta hnoðið þið svo saman við deigið þegar það er búið að lyfta sér.

       Mótið 1-2 brauðhleifa úr deiginu og látið það lyfta sér á bökunarplötu í 30 mínútur. Hitið ofninn í 200 gráður – blástur.

       Skerið með beittum hníf tíglamunstur í yfirborðið á brauðinu, penslið með vatni og bakið í 20-30 mínútur.  

Hægt er að nota ýmsar fyllingar, t.d. að hafa meiri ost, beikon, ólífur, sólþurrkaða tómata eða hvað annað sem ykkur dettur í hug. Eins má auka magnið sem gefið er upp hér.

 

Sætt gerdeig

Kanilhringur

1 dl volg mjólk
2 1/2 tsk þurrger
1/4 tsk salt
1/2 tsk kardimommur
2 tsk sykur
50 g brætt smjörlíki
1 egg
4 dl hveiti

fylling:
20 g lint smjörlíki
2 msk kanilsykur
rusínur, marsipan eða súkkulaði eftir smekk

Eplalengja

1 1/2 dl mjólk
2 tsk þurrger
1 msk sykur
25 g smjörlíki
3 1/2 dl hveiti

Fylling:
1 epli
20 g lint smjörlíl
1 msk kanilsykur

Bakað við 200-225°C í 20 mín.

Aðferð:
Vökvinn er velgdur að 37°C. Þurrger er sett út í.
Þvínæst sykri, salti, smjörlíki, eggi og braðefnum bætt í. Að síðustu er hveitinu bætt smá saman út í og hrært. Þegar deigið er orðið hæfilega þykkt er það hnoðað á borðinu. Látið lyfta sér um stund og tekið til í fyllinguna á meðan. Þá er deigið tekið og hnoðað létt aftur og breitt út í aflanga köku.

Ef kanilhringur er viðfangsefnið er smjörið borið á allt deigið og kanilsykri stráð yfir. Ef vill má setja rúsínur, marsípan eða súkkulaðibita á. Deiginu er rúllað upp eins og snúðadeigi. Lengjan er sett á bökuarplötu í hring og klippt ofan í hana með 1 1?2 cm millibili. Þá er snúðunum velt til sitthvorrar áttar þannig að úr verði hringur.

Ef um eplalengju er að ræða er eplunum raðað á miðju deigsins sem búið er að pensla með smjöri. Kanilsykri stráð yfir og skorið í brúnirnar eins og mynd sýnir.

 

Ýmislegt

Súkkulaðikaka
 

2 1/2 dl hveiti
2 dl sykur
1/2 tsk matarsódi
1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
2 1/2 msk kakó
1 egg
11/2 dl léttmjólk
3/4 dl matarolía
1 tsk. vanilludropar
 

Súkkulaðibráð:
1 msk bráðið smjör
3 msk kakó
3 dl flórsykur
3–4 msk vatn
1/2 tsk vanilludropar


Aðferð
1. Kveikið á ofninum og stillið hann á 180 °C.
2. Allt hráefni sett í skál og hrært saman með handþeytara
(ekki rafmagns).
3. Skiptið deiginu í 2 lítil tertuform.
4. Bakið í miðjum ofni í 15–20 mínútur.
Súkkulaðibráð
1. Bræðið smjörið við vægan hita.
2. Bætið kakó, flórsykri, vatni og vanilludropum út í og hrærið
saman.
3. Smyrjið á kökubotnana þegar þeir hafa kólnað.

 

Kleinur  

½ kg hveiti ( 8 dl)
125 g sykur (1 ½) dl
1 msk lyftiduft
½ tsk hjartarsalt
½ tsk kardemommuduft

Blanda öllum þurrefnum saman í skál, búa til holu í miðjuna til að setja vökvann í.

 2 dl súrmjólk
½ dl mjólk
1 egg
3 msk matarolía

Hræra vel saman með sleif og hnoða svo á bekknum. Breiða út c.a. 1 cm þykkt, hafa hveiti undir svo að deigið festist ekki við bekkinn. Skera í ræmur og svo á ská, gera gat í miðju og snúa svo kleinunni. Strá aðeins hveiti á bökunarplötu og raða kleinunum þar á meðan beðið er eftir steikingu. Steikja í vel heitri feiti og láta fituna renna vel af.