3.SG.
1.október 2008
Jæja nú eru komnar fleiri myndir inná síðuna okkar. Ýmsar myndir af nýjustu vinnu okkar í landnáminu.
1.febrúar 2008
Kominn nýr mánuður og byrjar febrúar á rólegu nótunum. Eins og þið vitið þá er vetrarfrí eftir tveggja daga skemmtun hérna í skólanum.
Í dag var bara venjulegur skóladagur fyrir utan kulda og snjó.Við fóru í risaeðlulandið okkar og byrjuðum á því í vikunni að tala um landbúnaðinn, húsakostinn og fæðu því eitthvað er það sem við þurfum á að halda á nýja landinu okkar, síðan lukum við vikunni með því að leira það sem við vorum búin að tala um. Ég er búin að setja inn myndir frá því á landnáms krækjunni okkar.
Ég vil
bara minna alla á að á mánudaginn er
furðufata-bolludagur
og mega börnin koma með bollur í nesti.
bestu
kveðjur
Sunna Guðmundsdóttir
25.janúar 2008
Jæja nú er komið nýtt ár og enn einn nýr kennari. Ég er ofsalega ánægð að vera kominn hingað í 2.SG til að kenna þessum krökkum. Þau eru öll alveg meiriháttar og tel ég námið hjá þeim hafa gengið mjög vel. Við erum byrjuð á fullu í risaeðlueyjunni okkar og erum að fara að byggja okkur hús og því um líkt. Hér getið þið skoðað myndir frá þeirri vinnu.
kær kveðja
Sunna
26. september
Börnin eru með blað í skilaboðaskjóðunni varðandi námsefnakynninguna sem verður nk. föstudag.
Unnum töluvert í gær og í dag með sléttar tölur og oddatölur. Þetta vafðist aðeins fyrir þeim þegar þau áttu að vinna með þetta. Gott væri ef foreldrar gætu rætt þetta svolítið heima. Gæti verið gaman að breyta þessu í leik, td. að taka fyrsta staf í bílnúmerum og spyrja hvort hann sé oddatala eða slétt tala.
3. september
Jæja þá er skólinn byrjaður og við í 2HF erum búin að koma okkur fyrir í nýju stofunni og gera hana svona að "okkar". Fyrsta vikan fór rólega af stað og notuðum við hana svona aðeins til að kynnast betur og gerðum margt skemmtilegt, fórum til að mynda út á gatnamót að telja bíla í stærðfræði og unnum síðan með niðurstöðurnar. Einnig fannst krökkunum mjög spennandi að fræðast um himingeiminn og gerðum við líkan af sólkerfinu og geimfara. Við munum vinna áfram með landnámsverkefnið okkar og er næsta skref að taka fyrir Jörðina.
Umsjónarkennari: Sunna Guðmundsdóttir