2. bekkur SM

 

Hér mun ég skrifa fréttir af skólastarfi bekkjarins.

Umsjónarkennari: Sigríður Magnúsdóttir

 

Maí 2008

Úbbs - tíminn líður hratt og ég hef ekki verið að skrifa mikið um bekkinn hér.  En skólastarfið hefur gengið mjög vel.  Þessar vikurnar er árgangurinn allur saman og kemur það vel út enda þekktust öll börnin vel.  Við opnuðum á milli stofa og blönduðum hópnum þannig að þau kynnist enn betur og prófi að vinna með öðrum en sínum eiginlegu bekkjarfélögum. 

 

Desember 2007

Í desember höfum við einbeitt okkur að jólum og öllu sem snýr að þeim.  Auk þess að sinna íslensku og stærðfræði áfram. Við fórum í heimsókn á Minjasafnið og fræddumst um jólahald í gamla daga.  Við bökuðum piparkökur sem runnu ljúflega niður í foreldra sem komu í morgunmóttöku.    Ekki má gleyma að nefna kaffihúsaferðina okkar sem farin var í miklu frosti en við vorum mjög dugleg að ganga í kringum jólatréð á torginu og syngja þannig að okkur varð ekkert kalt. 

Að lokum vil ég óska ykkur gleðilegra jóla og heillaríks komandi árs.

 Þakka gott haust með börnunum ykkar, það eru forréttindi að fá að kenna svona góðum börnum!
 

Nóvember 2007

Miklar umræður hafa spunnist um það hvar á eyjunni við viljum búa.  Hvar er gott að búa?  Í nálægð við ána, við skóginn, í firði eða hátt uppi í fjöllum?  Hvað og hver ræður því hvar við búum?  Út frá þessum spurningum kviknuðu umræður um það hvernig löndum er stjórnað og vissu börnin heilmikið um það.  Eftir miklar umræður og fræðslu frá kennara var gengið til kosninga um stjórnarhætti á eyjunni okkar.  Kosið var um lýðræði eða konungsstjórn.  Atkvæði féllu þannig að tveir vildu konungsstjórn og 17 lýðræði. 

31. október 2007

Eyjan okkar Máney er nú orðin lífvænleg og því höfum við verið að undirbúa för okkar þangað.  Að mörgu er að hyggja og þessa dagana höfum við rætt um það hvað við tökum með okkur, hvernig við fermum skipið, um öryggi á sjó en einnig um hin ýmsu störf um borð í skipum.  Á morgun ætlum við í heimsókn um borð í Húna til að fá enn betri vitneskju.

 

10.október 2007

Í gær horfðum við á myndina um Surtseyjargos og í lok dagsins gaus hjá okkur.  Það var mikil spenna enda vall út rauðlituð froða sem byrjaði að þekja hafið (blár kreppappír). Þannig varð landið okkar til en enn sem komið er er það bara auðn enda tekur langan tíma áður en gróður og annað líf nær að festa rætur.  Á morgun ætlum við að hafa leynilega kosningu um nafn á landið okkar, það verða alvöru kjörseðlar, kjörklefi og allar græjur!  
 

 

1.október 2007

Í dag unnum við með sléttar tölur og oddatölur í stærðfræði, það gekk vel en við þurfum að vinna áfram með tölurnar upp í 100 og munum gera það áfram. 

Kennaranemarnir Sigrún Rósa og Sunna kenndu sína fyrstu kennslustund í bekknum í dag og gekk það mjög vel.  Þær voru með ritun.