Velkomin á heimasíðu 3. bekkinga í Brekkuskóla
Veturinn 2008 - 2009
11.september 2008.
Í stærðfræðinni höfum við verið að rifja upp hundrað, tug og einingu. Við erum farin af stað með stafsetningu og munum taka hana markvisst fyrir í vetur. Á mánudaginn fengum við skemmtilega heimsókn. Þá kom Sturla Ásgeirsson og útdeildi árituðum plakötum.
Fyrsta heimanám vetrarins kemur heim á morgun og minnum við á mikilvægi þess að haldið sé vel utan um það og börnin temji sér að skila á réttum tíma.
Við stefnum á að fara í berjamó þriðjudaginn 16.september og þá þurfa börnin að koma með léttan bakpoka sem í er nesti og lítil berjadolla. Íþróttir falla ekki niður þennan dag hjá 3.IÓ.

29.ágúst 2008
Jæja það var nú margt skemmtilegt sem við gerðum í dag. Við byrjuðum daginn á því að horfa á Planet earth og fylgdumst með hnúfubak og kálfi hennar. Eftir það fórum við í göngutúr niður á Poll til að athuga hvort við yrðum það heppin að sjá andarnefjuna synda með kálfinum sínum. Viti menn, við fengum hálfgerða sýningu fyrir okkur, rosalega flott og gaman. Hér eru nokkrar myndir frá gærdeginum og deginum í dag.
Góða helgi
Sunna, Sigga og Inga Lilja
27.ágúst 2008

Sæl og velkomin aftur í skólann.
Það hafa bæst nokkur börn í árganginn hjá okkur ein stúlka í 3.SM sem heitir Ágústa Jenný, einn drengur í 3.IÓ sem heitir Ólafur Stefán og síðan stúlka og drengur í 3.SG sem heita Helga María og Elmar Blær og bjóðum við þau hjartanlega velkomin til okkar.
Kveðja Inga Lilja, Sigga og Sunna
2.júní 2008
Gleðilegt sumar

Kveðja
Ingibjörg, Sigríður og Sunna

27.maí 2008
Í sumarblíðunni notum við tækifærið til að læra úti við vorum með útistærðfræði og samfélagsfræðiverkefni um Naddodd og Hrafna Flóka. Auðvitað tókum við nokkrar myndir af þessum frábæru börnum sem þið getið skoðað hér.
Næsta fimmtudag ætlum við að labba í Brynju og á föstudaginn er grill og leikjadagur.
21. maí 2008
Í morgun fór 2. bekkur í fjöruferð að Gásum. Veðrið lék við okkur eins og sjá má á myndum úr ferðinni. Börnin skemmtu sér konunglega og voru til fyrirmyndar. Myndir úr fjöruferð.

23.apríl 2008
Hátíð hjá 2.SIS. föstudaginn 18.apríl höfðum við veislu til þess að hrista hópinn saman. Við höfðum keypt svala og popp og með því góðgæti horfðum við á Rattatouie sem var mikið fjör. Við gáfum árganginum sumardót sem vakti mikla lukku. Þið getið séð myndir frá þessum degi hér.
Gleðilegt Sumar :)
Sigga og Sunna.
22. febrúar 2008 (Ingibjörg)
Árshátíðin okkar
verður haldin nk. miðvikudag, sýning hefst kl. 16.30 og kaffisala verður að
henni lokinni.
Hópatímar falla niður þennan dag og því þurfa börnin ekki að koma með
íþróttafatnað í skólann né skólatösku en nesti þarf að fylgja.
Nemendur fara heim eftir kennslu eða í frístund árshátíðardaginn. Koma aftur 30
mín. fyrir sýningu í heimastofu.
Börn í fimleikahópi mega vera í fimleikafötum ef þau vilja.
Stúlkur í IÓI - mæta með bleikan bol/peysu
Strákar í IÓI - mæta með bláan bol/peysu
Æskilegt er að börnin komi með búninga í skólann nk. mánudag. Athugið að ekki er
víst að öll börnin þurfi búning.
Sunna mun senda sínum nemendum póst varðandi búninga.
kær kveðja og vonumst til að sem flestir sjái sér fært um að mæta
Ingibjörg, Sigríður og Sunna
18. febrúar 2008 (Ingibjörg, Sigríður og Sunna)
Föstudaginn 22. febrúar falla allir hópatímar niður vegna dagskrár á sal. Því þurfa nemendur ekki að koma með íþróttafatnað.

|
Skilaboð 25. janúar 2008 (Ingibjörg, Sigríður og Sunna) Heil og sæl
Við vildum aðeins segja ykkur frá hvað krakkarnir gerðu á þemadögum. Öðrum, þriðja og fjórða bekk var skipt upp í 12 hópa á sex stöðvar, tveir og tveir hópar voru saman á hverri stöð. Eins og þið vitið þá var þemað “Þorrinn”. Við reyndum að hafa hverja stöð eins mikið tengda honum og hægt var. Tökum við það fram að öll börnin fengu að fara á allar stöðvarnar þannig að fjölbreytnin var nokkuð mikil. Þau fengu að fara í heimilisfræði að gera lummur, föndra matartrog og hálsmen. Í myndmenntastofunni var fjallað um Ísland áður fyrr og gerðu börnin líkan af Íslandi og plaköt af víkingum. Handavinnustofan bauð uppá ullarþæfingu og heimastofur 2. bekkjar voru notaðar undir leiki barna áður fyrr. Arnór tónlistarkennari sá um söng og dans og síðast en ekki síst voru þjóðsögurnar okkar teknar fyrir í heimastofu 3.bekkjar. Í lokin var nokkurskonar uppskeruhátíð, þorrablót á sal skólans þar sem við sungum Minni kvenna og karla, Krummi svaf í klettagjá og auðvitað Þorraþrælinn. Þar var boðið upp á þorramat og síðan var marserað um skólann. Við munum setja myndir frá þessu inn á vefinn okkar þegar tími gefst til. Annars er ykkur velkomið að koma og skoða afraksturinn sem er til sýnis á miðhæðinni. Hér er krækja til að skoða sameiginlegar myndir frá þemadögum.
Bestu kveðjur Ingibjörg, Sigga og Sunna
7. janúar 2008 (SM) Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla! Þau börn sem eru byrjuð í handmennt (voru í myndmennt fyrir áramót) eru beðin um að koma með lófastóran stein í skólann. Þau munu þæfa utan um steininn. Í skólanum er mikið af óskilafatnaði og viljum við hvetja ykkur til að skoða úrvalið á annarri hæð skólans. Fatnaðurinn mun liggja frammi viðtalsdaginn 9. janúar.
20. desember 2007 (SM)
Við viljum óska ykkur
gleðilegra jóla og heillaríks komandi árs. Þökkum gott haust með
börnunum ykkar, það eru forréttindi að fá að kenna svona góðum börnum!
Mánudagur 26. nóvember | Ingibjörg
Heil og sæl! Okkur langar mikið að endurtaka kaffihúsaferð þar sem hún
lukkaðist afar vel í fyrra. Athugið að mánudagurinn 17. desember er starfsdagur kennara.
Bendum á að upplýsingar um skólahald í desember er að finna í
fréttabréfi sem var sent heim þann 29. nóvember. Mánudagur 26. nóvember | Ingibjörg
Tröppusöngur sl. vor Mánudagur 31. október | Ingibjörg Í tilefni af þemadögum unglingastigs förum við á leiksýningu á morgun. Leiksýningin stendur til 13.30 og því verður skólabílum seinkað. Mánudagur 15. október | Ingibjörg, Hulda og Sigríður
Útivistardagur Mánudagur 24. september | Ingibjörg, Hulda Morgunmóttaka, kaffiveitingar 2. bekkjar verður nk. föstudag kl.8.00. Námsefnakynning verður að kaffiveitingum loknum. Þriðjudagur 18. september | Ingibjörg Heimanám: þar sem starfsdagur kennara er á föstudaginn er ykkur frjálst að skila heimanámi fimmtudaginn 20. sept eða mánudaginn 24. Börnin munu fá nýjan heimanámspakka nk. fimmtudag. Föstudagur 14. september | Ingibjörg Minnum á starfsdag kennara föstudaginn 21. september. Fimmtudagur 13. september | Ingibjörg Þar sem nú eru dagar rigningar og bleytu viljum við minna foreldra á að senda börnin klædd eftir veðri í skólann. Einnig getur verið voðalega gott að hafa auka sokkapar eða sokkabuxur í töskunni :-) Mánudagur 10. september | Ingibjörg Enn er stundaskráin ekki alveg komin á hreint. Við munum senda hana um leið og hún er klár. Ekkert stress þó börnin komi án íþróttafata þessa vikuna! Föstudagur 7. september | Ingibjörg Allir í 2. og 3. bekk fara í sund mánudaginn 10. september! Unnið er að breytingu á stundaskrá yngsta stigs og verður ný stundaskrá send heim á mánudag. Allir í 2. og 3. bekk fara í sund framvegis á mánudögum og því eiga allir að mæta með sundföt í skólann á mánudag. Miðvikudagur 4. september | Ingibjörg, Hulda Athugið að enn vantar nokkrum nemendum flautur og talnagrindur. Ef þið eruð ekki klár á hvort barninu ykkar vantar slíkt getið þið sent póst á okkur kennarana. Þriðjudagur 28. ágúst | Ingibjörg
Skólaakstur
2007-2008 Mánudagur 27. ágúst | Ingibjörg
Frá og með
morgundeginum verður skólaakstur frá Brekkuskóla í Nausta- og Túnahverfi
og Innbæ eftirfarandi: Laugardagur 25. ágúst | Ingibjörg Þau börn sem eru í handavinnu þessa önnina eru beðin um að koma með stein í skólann. Steinn þessi á að vera á stærð við lófa þeirra. Með kveðju frá handmenntakennaranum, Ágústu. Föstudagur 24. ágúst | Ingibjörg Fyrstu skóladagarnir gengu vel. Við förum hægt af stað og erum svona smám saman að koma okkur fyrir ;-) Þau börn sem fengu ekki stundatöflu í gær fengu hana í dag, endilega kíkið í skilaboðaskjóðuna! Hópastarfið byrjar nk. mánudag. Ef e-h spurningar eru, endilega sendið þá póst. Því miður getum við ekki enn svarað ykkur varðandi heimaakstur og því mælumst við til að þið náið í börnin ykkar á mánudaginn. |