Talnakver

eftir

Þórarin Eldjárn

 

Núll 

Núll er ekkert nema plat

núll er minna en lítið.

Núll er hvergi, núll er gat

núll er svona skrítið.

 

 

Einn, ein, eitt 

Þarna stendur Einar einn

- ein er sól að skína -

einum fleiri en ekki neinn.

Eitt er tunglið fína.

 

 

Tveir, tvær, tvö 

Fætur mína tel ég tvo

í tvennt má hendur flokka.

Sama virðist venjan sko

um vettlinga og sokka.

 

Þrír, þrjár, þrjú 

Enn þá gerast ævintýr

í ótrúlegu magni:

Ganga saman þrjár og þrír

með þrjú í barnavagni.

 

 

Fjórir, fjórar, fjögur 

Fjóra strengi fiðlan ber

sem fjórum tónum valda.

Gengur á fjórum fótum hér

með fjóra spena Skjalda.

 

Fimm 

Á hvorri hendi fingur fimm

á fæti líka tærnar.

Þegar kisa gerist grimm

greyið sýnir klærnar.

 

Sex 

Á köku loga kerti sex

Kata blæs á ljómann.

Hún flýtir sér því vaxið vex

og vellur út í rjómann.

 

 

Sjö 

Hún Vika fæddi fimm plús tvo

fannst þá vænkast hagur.

Valdi hún nöfn á syni svo:

Sjö voru skírðir DAGUR.

 

 

Átta 

Jólasveinar aðeins átta

ofan komu úr fjöllunum.

Einn var farinn heim að hátta

og hringja jólabjöllunum.

 

Níu 

Menn sem eru þrisvar þrír

þeir eru orðnir níu.

Útkoman er alveg skýr:

Einum færri en tíu.

 

 

Tíu 

Tíu eru tær á þér

tíu saman fingur.

Vitirðu þetta víst þá er

að veistu hvað þú syngur

 

Tuttugu 

Tær og fingur tuttugu

teldu dáldið betur

ef að þú í alvöru

eitthvað reiknað getur.

 

Hundrað 

Kaupið sem hann Kalli fær

krónur eru hundrað.

Tíu sinnum tíu þær

teljast sé þeim splundrað.

 

 

Þúsund 

Jóhann komst í vanda við

sitt vanalega þrjú-sund.

Í lauginni hvergi gáfust grið:

Gestir voru þúsund.

 

Óteljandi 

Við Mývatn er allt myrkt og svart

mýið villt og galið.

Óteljandi er svo margt

að enginn fær það talið.