Gullmolar nemenda
 
2. SM 22.11.07
 
Tvær stúlkur voru að leita af strokleðri á gólfinu og fundu það ekki.  Kennarinn sagði :Hafið ekki áhyggjur af þessu, stofan verður tekin á eftir og þá finnst það.  Tekin! Hrópuðu nemendur og misskildu greinilega orð kennarans.
 
2. IOI  27.8.07
 
Ræddum um mismunandi gerð fjölskyldna.
Stúlka segir: Veistu að mamma mín á 2 alvöru systkini og 2 gervi systkini.
 
 
1. IOI  12.1.07
Vorum að spjalla um það hvernig við hefðum haft það um helgina og hvað hefði verið brallað.
Þá kemur einn úr bekknum og segir: Vissir þú af nýju sundlauginni sem er komin?
Já, í Hrafnagili?
Nei, þarna í bjór.
?
Nei, ég meinti í Vín! :-)
 
1. IOI
 Talið barst að einni stúlku í bekknum sem er nett og fíngerð.
 Einn spyr:  Er hún dvergur?
Annar svarar: Nei, því að þá væri hún með skegg!
 
1. IOI
  Má ég fá spæjarapylsu?
  Vildi fá spægipylsu.
  1. IOI
  Mamma mín er ófrísk en samt er pabbi ekki heima.  Hann er út á sjó.
  Kom í umræðum um hvernig börnin verða til.
  1. SM
 Sigga, njósnarinn?
 Hver er umsjónarmaður?
 
 1. SM
Ég fékk enga kartöflu!
Viltu fá mína (spyr einn kennarinn)?
Nei, borðaðu hana bara en þú skalt líka spyrja Siggu M því hún er svo gráðug!
 
1. IOI
Ég er með spena í munninum Ingibjörg!
Nú?
Já, en það kemur samt ekki mjólk úr honum.