2. bekkur IÓI         

14. mars

Unnum mikið í kristinfræði í vikunni.  Ræddum um krossfestingu Jesú og upprisu hans.  Einnig föndruðum við smá páskaföndur og höfðum gaman. 

Ekkert heimanám verður fyrr en eftir páska.

Gleðilega páska!

11. mars

Erna Sigríður á afmæli í dag, óskum við henni innilega til hamingju með daginn!

Dagurinn í dag fór að mestu leyti í stærðfræði þar sem við kláruðum þann hluta sem við ætluðum okkur fyrir páska. Einnig fórum við í svolitla upprifjun. Íslenska var líka mikill partur af deginum en við unnum í stafsetningu og málfræði.

10. mars

Unnum í Álfalandi í dag, töluðum um iðnað, innflutning og útflutning.  Út frá því unnu börnin lista með hlutum sem við getum flutt inn og svo annan lista með hlutum sem við getum flutt út.

3. mars

Dagur átti afmæli um helgina, óskum við honum innilega til hamingju með daginn!

Stella Marín eignaðist systkin í dag, óskum við henni innilega til hamingju með það!

29. febrúar

Í dag, hlaupársdag vill svo einkennilega til að tvö börn í bekknum eiga afmæli.  Þau Katrín Ó. og Valur eru 8 ára í dag. Innilega til hamingju með daginn. Að gefnu tilefni var tekin mynd af afmælisbörnunum sem sett verður á heimasíðu skólans.

Vikan einkenndist af árshátíðarundirbúning og svo sýningum.  Börnin voru svo afskaplega glöð þegar venjulegt skipulag komst á, þó svo allir hafi skemmt sér vel og staðið sig með mikilli prýði.

Heimanámspakki B fór heim í dag og ætti A-pakkinn að vera kominn til skila í skólann.  Svolítið hefur brugðið á því að heimanámi sé ekki skilað á tilteknum tíma og hef ég ekki gert mál úr því hingað til. En ef svo bregður við væri mjög gott að fá pakkann í skólann næsta virka dag.

24. febrúar

Við fengum skemmtilega heimsókn í skólann á föstudag. En þá komu þær stöllur Vigdís Dagbjartsdóttir og Sigrún Eldjárn og lásu upp úr bókum sínum. Einnig sögðu þær frá hvernig myndirnar í bókunum voru málaðar. Mjög skemmtilegt, börnin mín urðu heldur en ekki hissa þegar Sigrún sagðist hafa búið í Þjóðminjasafninu og að á hæðinni fyrir ofan hefði búið beinagrind.  Umluðu þetta fram og aftur þann tíma sem við vorum á sal.

21. febrúar

Árshátíð!

Árshátíðin okkar verður haldin miðvikudaginn 27. febrúar. Sýningin hefst kl. 16.30, kaffihlaðborð að sýningu lokinni.

Lífið gengur sinn gang hjá okkur í IÓI, æfingar eru hafnar fyrir árshátíð og erum við full tilhlökkunar.  Annars erum við að vinna með tölur í stærðfræði, helmingi meira og helmingi minna sem og samlagningu hærri talna.

Álfaland er auðvitað alltaf í vinnslu en einnig erum við að vinna í vináttu. Svolítið hefur borið á kvörtunum og kveinum hjá börnunum þar sem þau kvarta sárt undan hvort öðru.  Höfum verið með fundi til að ræða þessi mál en óvenjumikið hefur verið um árekstra þessa dagana. Ég þægi það með þökkum ef þið rædduð aðeins um þetta við börnin ykkar.

13. febrúar

Þetta var frábær dagur í dag.  Við byrjuðum á því að fara í svokallað stjörnuver en þar fengum við að sjá himininn í þrívídd. Einnig ferðuðumst við um himingeiminn og lentum m.a. á tunglinu.  Fræddumst um stjörnurnar, hvernig við getum fundið Pólstjörnuna og margt annað. Mögnuð upplifun.  Svo var haldið í stærðfræði, hópatíma og landnám.  Í landnámi ræddum við um sjávarútveg, Þorskastríðið en börnunum fannst mjög gaman að spjalla um það. Ræddum einnig um landhelgi Íslands, af hverju hún er og hvað fylgir því að hafa slíka landhelgi.  Semsagt frábær dagur :-)

12. febrúar

Ég vona að allir hafi haft það gott í vetrarfríinu.  Í gær fengu börnin að hlusta á Sinfoníuhljómsveit Akureyrar og þóttu mjög gaman.  Einnig var námið sett í fullan gír eftir fríið.

Í þessari viku höldum við áfram að ræða um vináttu og mikilvægi þess að vera kurteis og fara eftir reglum.  Börnin eru að standa sig mjög vel.

Heimanám kemur með börnunum nk. föstudag!

Á morgun fáum við sýningu í svokölluðu stjörnuveri hér í skólanum og er sú sýning í þrívídd. Fáum við fræðslu um himingeiminn ásamt fleiru.  Meiri fréttir um það síðar.

1. febrúar

Minni á furðufatadaginn nk. mánudag! Og svo ferðina í fjallið á þriðjudag, foreldrar eru velkomnir með! 

Á mánudag/bolludag mega börnin að sjálfsögðu koma með bollur í skólann !

30. janúar

Haldinn var bekkjarfundur í dag vegna síendurtekinna árekstra í frímínútum.  Fórum yfir bekkjarreglurnar og í framhaldinu var ákveðið að skrifa niður þær reglur sem eru í leikjum barnanna og hengja upp á vegg.  Ræddum einnig um vinskap og traust.

Áætlað er að halda furðufatadag nk. mánudag, þá mega börnin mæta í furðufötum í skólann að öðru leyti verður venjulegur skóladagur.

Þriðjudaginn nk. er ætlunin að fara með allan skólann upp í Hlíðarfjall.  Nánar auglýst síðar!

25. janúar

Myndir eru komnar inn af þorrablótinu hér!

Við skemmtum okkur konunglega í dag eins og sjá má af myndunum.  Fengum danskennslu í morgun og svo var haldið á þorrablót. Í lok dags hittist allur 2. bekkur og marseraði saman, rosa stuð!

Vikan gekk vel fyrir sig og er henni nánar lýst á forsíðunni okkar.  Venjuleg kennsluvika verður í næstu viku en svo minni ég á vetrarfríið sem hefst miðvikudaginn 6. febrúar!

Heimanámspakkarnir eru í töskum barnanna og er skiladagur ekki fyrr en 5. febrúar vegna vetrarfrís.  Góða helgi!

21. janúar

Anna á afmæli í dag, við óskum henni innilega til hamingju með daginn.

Dagurinn hófst auðvitað á því að syngja afmælissönginn fyrir afmælisbarnið. Síðan var unnið í stærðfræði áður en haldið var í sundlaugina.

Unnið var töluvert í landnáminu, ræddum landbúnað og allt sem honum tengist.  Ræddum einnig um það hvað vinna sé og hvernig starfskraftar þau myndu vilja vera. Það kom upp sú umræða að ef við værum með fólk í vinnu sem væri ekki að standa sig, hvað við myndum gera.  Sumir ætluðu bara að reka það strax, aðrir ætluðu að ræða málin við þau og einn kom með þá uppástungu að setja hann bara í erfiðari vinnu!  Já, þau eru alveg kostuleg þessi kríli!

Á morgun byrjar þemavinna sem verður út vikuna. Börnin þurfa því ekki að mæta með íþróttafatnað í skólann þessa daga.

14. janúar

Byrjuðum á Einingu 4 í dag, stórt skref fyrir krakkana og alltaf gaman að byrja á nýrri bók.  Ræddum um mánuðina, í hvaða röð þeir koma og hve marga daga hver og einn ber. Eðlilega var þetta pínku ruglingslegt fyrir þau og gott væri að þið rædduð þetta aðeins heima með þeim.  Einnig munu þau fá blað í næsta heimanámspakka sem fer nánar í þetta.

Hluti af bekknum fór út í sund í dag. Hinn hlutinn var í innilauginni hjá Hansínu. Þau sem voru í útilauginni hjá mér stóðu sig með stakri prýði enda svolítið skelfilegt að fara í köldu og stóru sundlaugina.  En allt tókst vel og við æfðum okkur í skriðsundi og bringusundsfótum. Þau fengu það verkefni að leggjast á gólfið heima 1x á dag og gera beygja, kreppa, sundur, saman 20x.  Það hefur sýnt sig að þetta beri góðan árangur ef vel er gert.

11. janúar

Vikan gekk vel fyrir sig, við erum svona að koma okkur af stað aftur.

Fyrsti heimanámspakki ársins er í töskunni þeirra. Meðfylgjandi pakkanum er blað með því hvernig við drögum til stafs.  Þar sem við erum að fara af stað með skriftarátak væri mjög gott að fylgja blaðinu þegar börnin skrifa heima.

8. janúar

Foreldrar hafa sumir lent í vandræðum með að svara spurningunum fyrir viðtalið.  Hér kemur svarið við algengustu spurningunum:

1.Þú ferð inn á mentor.is og skráir þig inn sem foreldri eins og þú ert vön/vanur. Vanti þig þennan aðgang þarftu að hafa samband við ritara.

2.Þegar þú ert komin inn áttu að geta séð aðgang nemandans undir myndinni af nemandanum(eða rammanum þar sem mynd á að vera) Þú skrifar aðganginn hjá þér.
3.Þú ferð nú út úr mentornum (eða útskráir þig efst til vinstri) og opnar hann svo aftur og notar þá aðganginn sem þú fannst undir myndinni sem við köllum nemendaaðgang.

4. Þegar þú ert komin þá inn getur þú farið inn í stöðumat neðst í valmyndinni vinstra megin á síðunni og þá kemur upp viðtalseyðublaðið.
5. Til að skrá inn í viðtalseyðublaðið þarf að velja tákn sem er blað og blár penni. Til að skoða spurningablaðið velur þú stækkunarglerið.

Gangi þér vel og hikaðu ekki við að hafa samband aftur ef þú skilur ekki.

 

4. janúar

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla!

Börnin eru með í skilaboðskjóðum sínum miða með fundartíma fyrir nk. miðvikudag. Ef tíminn hentar ekki getið þið haft samband við mig símleiðis á mánudaginn eða sent mér póst,  Einnig tóku sumir jólaskrautið sitt heim og er það í töskunni.

Hópatímarnir skiptast aðeins á þessari önn, við vildum ekki vera að rugla ykkur frekar með það og senda nýja töflu. Skiptingin hefur ekkert með sund og íþróttir að gera en bókasafn skiptist fyrir tölvur og myndmennt skiptist fyrir handmennt.

Fyrsti heimanámspakki ársins kemur á föstudaginn nk.

Árni Bent er hættur í skólanum en biður kærlega að heilsa öllum. Óskum við honum og fjölskyldu hans velfarnaðar í borginni.

19. desember

Minni á jólaballið sem verður fimmtudaginn nk. Nemendur mæta í stofuna sína kl. 8 og kl. 9.00 förum við upp á sal og dönsum í kringum jólatréð.  Öllu verður lokið kl. 10.00 en þá halda börnin heim, svo framalega sem þau eru ekki í vistun. En vistun opnar strax og jólaballi lýkur. Skólarútan fer kl. 10.15. Börnunum er frjálst að hafa með sér smákökur og drykk á jólaballið! Snyrtilegur klæðnaður. Börnin þurfa ekki að koma með skólatösku, lítill bakpoki/poki nægir.

18. desember

Fórum í kirkjuna í dag, séra Óskar tók á móti okkur.  Við sungum nokkur vel valin lög og skoðum brúðurnar sem kirkjan á.  Einnig var sungið á sal og því var mikið um söng í dag :-)

14. desember

Skipulag fyrir Litlu jólin er sem hér segir: 2. bekkur mætir í stofuna sína kl. 8.00.  Þar höfum við það rólegt og gott, skoðum jólakort og spjöllum. Dansað verður í kringum jólatré frá 9.00-10.00. Að því loknu fara börnin heim, vistun er opin fyrir þá sem þar eru skráðir. Athugið að tíminn hefur styst um 30 min. vegna breytts skipulags.

Vikan hefur gengið vel fyrir sig. Við lásum jólasögu um mömmuna sem átti 10 börn, börnin voru agalega óþekk og hjálpuðu mömmu sinni ekkert við undirbúning jólanna.  En allt endaði vel og spunnust skemmtilegar umræður á eftir um það hvernig við getum hjálpað foreldrum okkar fyrir jólin.

Minni á starfsdag kennara nk. mánudag!

Heimatilbúin bekkjarmynd er hér!  En ætlunin var að reyna að ná öllum bekknum en eins og gengur og gerist voru veikindi sem settu strik í reikninginn. Reynum aftur síðar.

Sum börnin eru með jólakortaefni í skólatöskunum auk nafnalista sem einnig er hægt að nálgast á bekkjarvefnum, www.akmennt.is/brek2000    Ekkert liggur á að skila jólakortunum en gott væri að fá þau á þriðjudag / miðvikudag í næstu viku.  Börnin munu útbúa jólaumslag fyrir kortin sem þau taka með heim á Litlu-jólunum.  
Við minnum svo á heimalesturinn en annað heimanám bíður næsta árs!

 

13. desember

Árni Bent á afmæli í dag, við óskum honum innilega til hamingju með daginn. Snáðinn er að flytja suður svo seinasti skóladagurinn hans hjá okkur verður á morgun.  Við óskum honum velfarnaðar í nýjum skóla og þökkum honum fyrir frábæran tíma!

Við erum svona smám saman að síga inn í jólagleðina, farin að föndra svolítið en búið er að klára allt námsmat. Börnin stóðu sig rosalega vel, enda vön því.

12. desember

Minni á jólagetraun Umferðarstofu og Lögreglu!  Endilega skila henni í skólann sem fyrst!

5. desember

Börnin eru með umferðargetraun í skilaboðaskjóðunni sinni. Gott er að fara yfir þetta með barninu, svara, merkja og koma svarseðlinum til mín.

Við munum hvíla Álfaland fram yfir áramót þar sem svo mikið er um að vera í desember.

4. desember

Við skelltum okkur á Minjasafnið í dag, skoðuðum kirkjuna en þar fengum við að heyra ýmsar skemmtilegar sögur frá gömlum tímum. Síðan var haldið í Nonnahús og gaman var að sjá hvað börnin voru athugul.  Þau tóku strax eftir myndunum og settu í samhengi við sögurnar sem ég hef lesið fyrir þau um Nonna.  Síðan settumst við niður og bjuggum til jólakort.  Eftir þetta allt saman var strætó tekinn upp að dyrum og við borðuðum nestið fyrir utan skólann, gaman, gaman.

Mikið verður að gera hjá okkur næstu daga en upplýsingar um það eru á heimanámsblaðinu!

Minni á morgunmóttökuna nk. föstudag frá kl. 8.00-9.00! Rúnstykki og kaffi verður til sölu fyrir lítið verð.

Kæru foreldrar/forráðamenn!  Ef þið hafið verið að velta fyrir ykkur hvar heimanám barnanna er, þá gleymdist að senda þau með það heim sl. föstudag. En það er komið í töskurnar núna!  Heimanámið er viðfangsminna en undanfarið en ef þið eigið í erfiðleikum með að klára það þá er það í góðu lagi :-)

30. nóvember

Tekinn var hópafmælissöngur fyrir þau börn sem hafa átt afmæli en það hefur alveg gleymst í annríkinu.

Minni á hittinginn í Kjarnaskógi á morgun!  Miði um það var settur í skilaboðaskjóðu barnanna fyrr í vikunni.

Frístundarbörnin eru með miða vegna fjölgreinafjörs en tveir dagar í desember munu eitthvað breytast.

Grettir skemmti sér mjög vel með Petru og fór heim með Birgi Frey.

28. nóvember

Í dag vorum við svo heppin að fá að sjá sýningu Möguleikhússins, Smiður jólasveinanna. Börnin skemmtu sér að mér sýndist mjög vel.

Við unnum mikið í stærðfræði í dag, vorum að æfa okkur í að telja peninga. Gott væri ef þið foreldrar gætuð leyft börnunum að telja peninga um helgina svo þau átti sig betur á þessu.

Drengirnir eru með afmælisboðskort í skilaboðaskjóðunni sinni.

27. nóvember

Kæru foreldrar, í tilefni mikilla föndurtíma framundan vil ég biðja ykkur um að athuga ástandið í pennaveskjum barnanna ykkar. Nauðsynlegt er að hafa skæri, lím og liti í góðu og nothæfu ástandi. Töluvert hefur verið um að börnunum vanti ýmsa hluti.

26. nóvember

Síðasta vika gekk mjög vel fyrir sig, börnin eru alltaf að koma mér á óvart. Þau eru alveg ótrúleg, unnu svo vel alla vikuna og voru til fyrirmyndar í einu og öllu. Svo stolt af þeim :-)

Á föstudaginn hófst dagurinn á tónmennt þar sem allur bekkurinn fór í einu og lærðu þau nýtt jólalag. Svo tók við samsöngur en þar byrjuðum við einmitt að æfa okkur í jólalögunum fyrir jólaballið. Hópatíminn gekk vel en svo slóum við þessu upp í kæruleysi og horfðum saman allir í 2. bekk og horfðum á mynd.

Við fengum skemmtilega heimsóknir, tvær mæður kíktu í heimsókn og skoðuðu aðeins starfið okkar :-) Alltaf gaman að fá heimsóknir.

ATH! Í skilaboðaskjóðu barnanna er miði frá foreldraráðinu!

20. nóvember

Við fengum góða gjöf í dag en stafabækurnar okkar sem virtust hafa farið á flakk í fyrra vor fundust!  Börnin voru yfir sig hrifin að fá þær í hendurnar og skoðuðu þær full af áhuga.  Þær koma heim í dag og eru í skilaboðaskjóðum barnanna.

Síðasta vika gekk vel fyrir sig og enduðum við á því að fara á Amtbókasafnið í tilefni dags íslenskrar tungu.  Þar vorum við frædd aðeins um Nonna, lesið upp úr bók eftir hann og að því loknu gengum við um sýningu safnsins. Við unnum með kvæði Jónasar Hallgrímssonar og ræddum um skáldið í leiðinni.  Þeim fannst alveg furðulegt að hann skyldi deyja út frá því að hafa fótbrotnað, aðeins 37 ára gamall.  Einnig ræddum við um það hvað skáldum er leyfilegt að gera en ekki okkur hinum. 

Ég fékk góða ábendingu frá foreldri áðan í pósti sem var búin að velta mikið fyrir sér heitinu á vísu Jónasar Hallgrímssonar, Heylóarvísa sem börnin fengu heim með sér síðastliðinn föstudag.  Það var með vilja gert að senda þetta svona frá okkur en við sendum upphaflegu útgáfuna af vísunni.  Síðar var línum bætt inn í vísuna og hún nefnd upp á nýtt eða Heiðlóuvísa. Gaman að hafa svona glögga foreldra sem halda manni við efnið :-) Ef þið viljið fræðast meira um hann Jónas bendi ég ykkur á síðuna hans: www.jonas.ms.is

Í lok dagsins var farið upp á sal og sungin íslensk lög.

13. nóvember

Sniðugur linkur hér um heimanám!

Í gær voru kosningar í Álfalandi, kosið var um hvort við vildum hafa konung eða forseta. Niðurstöður voru skýrar og varð lýðveldi fyrir valinu. 

Í sundtímanum fór ég í bringusund með þeim. Ég held að ég hafi aldrei séð jafn stóran hóp á þessum aldri standa sig svona vel í bringusundi. Þau eru orðin alveg ótrúlega góð, hvort sem um er að ræða skriðsund eða bringusund :-)

Steini P. kom í heimsókn til okkar í dag. Hann ræddi vel við börnin um umferðarreglur, reglur í landinu, heiðarleik og setti fyrir þau létt próf á töflu. Mikið var rætt og börnin fengu að njóta sín. Til gamans má nefna að hann spurði börnin hvort þau vissu hvað alþingismennirnir gerðu (bjóst nú ekki við að þau vissu það). Mikill fjöldi barnanna rétti upp hönd og voru með svar á reiðum höndum.  Steini varð mjög hissa að 7 ára gömul börn skyldu vita þetta en hann gerði sér ekki grein fyrir því að þau eru nú þegar orðnir þingmenn á sínu landi :-)

Endilega kíkið á landnámssíðuna okkar, þar er fullt af fallegum og skemmtilegum ljóðum eftir nemendur. Þið getið líka smellt hér!

8. nóvember

Vikan hefur gengið vel og börnin eru mjög vinnusöm og dugleg.  Hópatímarnir hafa gengið vel sem og bekkjartímarnir.  Fyrsti heimanámspakkinn kemur á morgun, föstudag.

Í næstu viku mun Steini P. lögreglumaður koma í heimsókn til okkar og rifja upp með okkur umferðarreglurnar.

Ég hef verið að/mun hafa samband við foreldra ýmist símleiðis eða í tölvupósti. Aðeins að segja frá hvernig gengur með börnin o.s.frv.

1. nóvember 

Það má segja að dagurinn í dag hafi verið ævintýri líkastur. Byrjuðum daginn á því að ganga niður að höfn og skoða Húna II.  Þar tók á móti okkur yndislegur maður að nafni Elli og sagði okkur ýmislegt um fiskveiðar fyrr og síðar.  Að því loknu var tekin kraftganga í skólann aftur og tekið smá nesti. Hópatíminn var á sínum stað og svo fengum við að sjá leiksýningu unglingastigsins. Þar var sýnt Latibær og Ávaxtakarfan, með mikilli snilld. Það verður erfitt að toppa þennan dag!

Minni á vetrarfrí nk. mánudag og þriðjudag!

31. október

Miklar umræður voru í dag í landnáminu. Rætt var um þá hluti sem þarf að huga að þegar maður kemur á nýtt land. Húsaskjól, þarf það, skiptir ferskt vatn máli, breytir jarðhiti einhverju, hvar er best að byggja hús.  Þarf gróðurland fyrir skepnur, hvað þarf að gera áður en vetur gengur í garð, hvernig geymum við matinn, þarf matarforða og þurfum við að taka tillit til náttúruhamfara?

Þið getið kíkt á hluta af umræðunum með því að smella hér!  Endilega kíkið!

Í tilefni af þemadögum unglingastigs förum við á leiksýningu á morgun. Leiksýningin stendur til 13.30 og því verður skólabílum seinkað.

Ekkert heimanám kemur á föstudaginn, vegna vetrarfrís.  Næsti heimanámspakki kemur því 9. nóvember.

30. október

Sjóferðin gekk mjög vel fyrir sig, reyndar féll einn útbyrðis en komum við honum til lífs aftur með blástursmeðferð og hjartahnoði.  Annar varð mjög sjóveikur og gátum við ekkert annað gert en að reyna að láta honum líða vel.  Við numum land við Skógarfjörð og erum að fara að koma okkur fyrir á nýja landinu. 

Námsráðgjafinn kom í heimsókn til okkar í morgun og ræddi hlutverk sitt við börnin.  Hún afhenti þeim bækling sem er í skilaboðaskjóðum barnanna.

25. október

Vikan gekk mjög vel fyrir sig, ég var reyndar í leyfi mánudag og þriðjudag og þá komu forfallakennarar inn. Höfðu þeir á orði að börnin væri mjög dugleg, þæg og vinnusöm. Reyndar ekkert sem ég vissi ekki fyrir (frekar montin af börnunum eins og þið sjáið).  Landnámið tók sinn tíma í vikunni en nú fer að koma að landtökunni.  Ákveðið hefur verið að sigla austan megin við landið og koma að landi við Skógarfjörð. 

Í stærðfræðinni höfum við verið að vinna með hin mismunandi form, fengu börnin að búa til litla brúðu sem er í skilaboðaskjóðum þeirra.  Skriftin hefur tekið miklum stakkaskiptum og skrifa þau orðið mjög fallega.

Í dag vorum við að ræða sjóferðina miklu á Álfaland. Inn í það spunnust miklar umræður um öruggi á sjó, neyðarnúmerið 112, hjartahnoð og blástursmeðferðina.  Einn í bekknum er svo harðákveðinn í því að faðir hans sigli með okkur og er margbúinn að bjóða okkur bátinn.  Ein stúlkan nefndi það að faðir hennar ætti björgunarvesti svo okkur er víst ekkert að vanbúnaði.

Góða helgi!

16. október

Dagurinn byrjaði á rólegum nótum og byrjuðum við á stuttu nuddi. Svo skelltum við okkur í mælingar í stærðfræði, unnum í skrift og að lokum hófum við vinnu í Alfræðiorðabókinni okkar. En hún er fólgin í því að börnin velja sér heima, á bókasafni, á netinu eða í skólanum bækur um efni sem þau eru forvitin um, koma með þær í skólann ásamt stórri stílabók (sem þau flest eru komin með í skólann). Þau skrifa upp úr fræðibókinni það sem vekur athygli þeirra og myndskreyta. Þetta er að öllu leyti frjáls vinna og þau geta farið á milli fræðigreina að vild. Þarna opnast þeim ný leið til að læra og skrásetja það sem þau hafa sjálf mestan áhuga á.  Þau eru óþreytandi og skemmta sér hvað best þegar þau geta kennt kennaranum eitthvað sem þau hafa uppgötvað. Þarna helst vel í hendur hin staðgóða sjálfsmenntun liðins tíma og upplýsingaaðgengi nútímans.

Minni á útivistardaginn nk. fimmtudag. Skautaferð!

15. október

Úr umræðum

Nú ætlum við að undirbúa landnám. Hvað er það sem við þurfum að taka með okkur, hvað ekki og hvers vegna?

Við þurfum að taka með okkur mat, föt, verkfæri og margt annað.  En líka hesta til að hjálpa okkur og geta farið á milli staða. En bíl? Nei, það er ekki hægt því við erum ekki með bílpróf!

12. október

Ég þakka fyrir frábær viðbrögð með stílabókina, er ég búin að fá þær all nokkrar í hendurnar. 

Við höfum verið að vinna aðeins með mælingar og fá þau m.a. blað heim í heimanámspakkanum sem ítrekar það sem við höfum verið að læra. Gefin eru dæmi á blaðinum um hvað á að mæla og svo er frjálst val hvað er mælt. Teiknuð er mynd af viðkomandi hlut. Ef einhverjar spurningar eru eða óvissa um hvernig eigi að framkvæma þessar mælingar, endilega sendið mér póst.

Í dag unnum við með ljóðið sem kom í heimanámi. Ræddum aðeins um ættjarðarljóð og úr varð eitt. (fleiri á leiðinni :)

Álfaland, Álfaland

fallegt og frítt

Fuglar fljúga fagrir

og bera fræ í  mold.

Þú fagra land

með fjöll og fossa,

fríða dali og jökla berð.

Með sól í hjarta og eld í æðum

ég alltaf elska þig.

 

Þessa dagana er búið að vera mikið um afmæli. Saga átti afmæli um daginn og Katrín í fyrradag. Óska ég þeim innilega til hamingju með daginn.  

9. október

Nýjar myndir eru komnar inn á landnámskrækjuna, til að sjá myndir getið þíð líka smellt hér!

8. október

Í dag var ekkert sund, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ætlaði að halda tónleika fyrir okkur en því miður komust þau ekki.  En eru væntanleg síðar.

Unnum við í stærðfræði, erum núna að læra að bæta 10 við tölu, t.d. 16+10 = 26 o.s.frv.  Héldum áfram að ræða um eldgosið og unnum vinnublað.  Umræður voru í morgun um það hvernig landið okkar liti út. Ein stúlkan sagði að við gætum ekki vitað hvernig landið liti út því við værum ekki búin að nema það. Einn gaurinn var þá fljótur að finna hvað hægt væri að gera, hann pabbi minn siglir bara með okkur á bátnum sínum!  Þau eru fljót að finna lausnir :-)

Ætlunin er að hver og einn búi til sína Alfræðiorðabók. Því vantar hverju barni eina stóra stílabók. Gott væri að fá hana í skólann sem fyrst.

7. október

Hér má sjá myndir frá afhjúpun landsins. Myndir af kosningunum koma inn fljótlega.

5. október

Kosningadagur!

Síðustu tveir tímarnir í dag voru teknir í kosningar.  Kosið var um hvað landið ætti að heita.  Sumir tóku sinn tíma í kjörklefanum enda um mikilvæga ákvörðun að ræða.  Atkvæðin voru alls 20 og enginn ógildur seðill.  Niðurstaðan varð sú að nefna landið Álfaland.  Höfuðstaður landsins er Álfheimur og eyjan er nefnd Eldgosaey. 

Myndir af kjörstað eru væntanlegar á netið!

Heimanámsblaðið er með öðru sniði þessa vikuna. En meðfylgjandi er tafla þar sem foreldrar geta skipulagt heimanámið með barni sínu yfir vikuna. Þetta er eingöngu val foreldra og því undir hverjum og einum hvort hann vilji nýta sér það.

Anna tók Gretti með sér heim og vildi Grettir þakka Kötu kærlega fyrir gestrisnina síðastliðna viku.

Góða helgi!

4. október

Þá varð gos! Það kom eldgos í stofunni í nótt og upp kom landið okkar.  Miklar pælingar eru núna í gangi um hvað landið eigi svo að heita en um er að ræða 4 nöfn sem velja þarf úr. Á morgun verða svo kosningar hjá okkur, kosningaklefinn er klár og atkvæðaseðlarnir í prentun.

Frétti af miklum rökræðum varðandi það hvort landið væri nú til í alvörunni eða ekki.  Hóparnir svoleiðis söfnuðust fyrir í stofunni í dag, allir vildu fá að sjá nýja landið. 

Nýju landnemarnir geta varla beðið eftir að nema land og eru strax farin að finna örnefni!

3. október

Það voru nú heldur betur hlutirnir sem gerðust hjá okkur í dag. Fyrst horfðum við á myndband með gosi Surtseyjar, ræddum vel um það og skoðuðum á töflu.  Svo framkölluðum við gos í stofunni okkar, börnin voru þvílíkt spennt og höfðu mjög gaman af.

Börnin fengu nýja bók í dag, stærðfræðibókin Vasareiknir.  En enn vantar nokkrum börnum vasareikni.

Næstkomandi föstudag ætlum við að mæla vegalengdir í stærðfræði. Að því tilefni eru börnin hvött til að koma með max box bíla í skólann ef til eru heima fyrir :-)

29. september

Ég þakka ykkur fyrir komuna í morgun og fyrir ánægjulegan fund. 

Við erum byrjuð að vinna með Ísland. Börnin eru að fylla helstu örnefni inn á landið og svo hálendi,láglendi, veður og fl.  Nú hvet ég ykkur foreldra að ræða þetta við börnin. Greinilegt er að þau vita ýmislegt, þessi börn en einn nemandi sýndi mér m.a. minnsta jökul landsins áðan, Ok. 

Við höfum aðeins byrjað á því fyrst á morgnana að nudda hvort annað. Þau tóku hvort annað í stólanudd í gær og féll það bara vel í hópinn. Tel ég það hjálpa þeim mikið, bæði að bera virðingu hvort fyrir öðru og finna nánd/tengsl auk þess sem þau finna að við erum ekki öll eins.

E.s. það stefnir í eldgos hjá okkur í næstu viku :-)

Góða helgi og hafið það sem allra best!

26. september

Börnin eru með blað í skilaboðaskjóðunni varðandi námsefnakynninguna sem verður nk. föstudag.

Unnum töluvert í gær og í dag með sléttar tölur og oddatölur.  Þetta vafðist aðeins fyrir þeim þegar þau áttu að vinna með þetta. Gott væri ef foreldrar gætu rætt þetta svolítið heima. Gæti verið gaman að breyta þessu í leik, td. að taka fyrsta staf í bílnúmerum og spyrja hvort hann sé oddatala eða slétt tala.

25. september

Í gær kom sr. Sólveig Halla og kynnti kirkjuprakkara. Börnin eru með miða með nánari upplýsingum í skilaboðaskjóðunni sinni.

20. september

Á morgun er starfsdagur og því frí fyrir nemendur.  

Við spjölluðum mikið í dag um hvernig Ísland varð til,hvernig landið leit út áður en maðurinn kom hingað, hvernig dýrin komust á land og einnig hvernig gróðurinn komst hingað. Í næstu viku munum við ræða hverjir komu hingað, hvað þeir höfðu með sér o.fl. Börnin urðu mjög áhugasöm um þetta og sum sögðust eiga bækur um þetta og gætu komið með þær í skólann.  Ég bannaði það ekki en sagði að það væri nóg að koma með eina - þeir sem það vildu.   

Í morgun kom allur árgangurinn saman og söng, mest á ensku því nú kunnum við þrjú lög á ensku og munum læra fleiri í vetur.    Annað hefur gengið vel, við erum komin á fullt í Einingu, unnum vinnubækur í íslensku auk þess að vera snillingar í ritun.  Nú er tónmenntin þannig að strákarnir fá 40 mínútur í fyrsta tíma á föstudögum og stelpurnar 40 mín í öðrum tíma - þá er ég með kennslu á móti Arnóri.  Þetta hefur gefið mjög góða raun og kemur að mínu mati báðum kynjum til góða.  

Í dag fá nemendur nýtt heimanám (A) sem á að skila föstudaginn 28. sept.  Margir eru enn með heimanám (B) sem má skila á mánudaginn.  Ég vona bara að þetta valdi ekki ruglingi.

18. september

Við byrjuðum á nýrri bók í gær, Pínulitla ritrún, fannst krökkunum mjög gaman að vinna í henni.  Við héldum áfram að vinna í heimsálfunum en því verkefni fer nú að ljúka.  Munum við þá fara í landnám.

Stærðfræðin vafðist ekki mikið fyrir þeim í morgun en þau voru alveg ótrúlega dugleg að reikna og vinna.

Heimanám: þar sem starfsdagur kennara er á föstudaginn er ykkur frjálst að skila heimanámi fimmtudaginn 20. sept eða mánudaginn 24.  Börnin munu fá nýjan heimanámspakka nk. fimmtudag.

14. september

Þá er allt að komast í fastar skorður hjá okkur hér í skólanum. Heimanám B er í töskum barnanna og Grettir okkar fær að fara heim með Ragnheiði Lóu þessa vikuna.

Vikan hefur gengið vel fyrir sig, börnin hafa unnið vel í tímum og eru spennt að læra um jörðina. Þessa dagana erum við að læra um heimsálfurnar og eru þau að búa til landakort í hópum. Einnig erum við að læra að leggja saman þrjár tölur í stærðfræði. Það er einmitt blað í heimanáminu sem kemur inn á það.  Gott er að leggja fyrst saman tvær tölur og skrifa á línuna (sem er fyrir ofan tölurnar) og svo leggja þriðju töluna við.

Í nestistímanum erum við að lesa um Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson.

Minni á starfsdag kennara föstudaginn 21. september!

Góða helgi!

12. september

Þetta var síðasti dagur Sigurgeirs hjá okkur en hann mun nú fara í annan skóla vegna búferlaflutninga. Þökkum við honum kærlega fyrir samveruna og óskum honum góðs gengis á nýjum stað.

Í dag er miði um fjölgreinafjör í skilaboðaskjóðum barnanna og hafa þá allir fengið slíkan.

Við kláruðum bókina okkar, Elsku Míó minn í dag en þau hafa hlustað spennt undanfarna daga. Byrjum við á nýrri bók á morgun.

11. september

Ný stundaskrá er í skilaboðaskjóðu barnanna.  Einnig er miði um fjölgreinafjör fyrir þau börn sem ekki eru í vistun.

Í dag fórum við í skrift, íslensku, ensku og stærðfræði. Sungum meðal annars tvö lög á ensku og myndaðist þessi skemmtilega stemning.  Ef þið viljið sjá textann getið þið smellt hér!

Þessa dagana erum við að rifja upp hvernig á að hafa vinnufrið í bekknum. Eins og gefur að skilja tekst það misvel upp en við erum í stöðugri framför :-)

10. september

Enn er stundaskráin ekki alveg komin á hreint. Við munum senda hana um leið og hún er klár.  Sund verður framvegis í 2 tíma á mánudögum og flauta í fyrstu tveim tímunum á föstudögum, 1/2 bekkur og 1/2 bekkur.  Skiptitímarnir verða að öllum líkindum þriðjudaga til föstudaga.  Ekkert stress þó svo börnin komi án íþróttafata þessa vikuna.

Bekkurinn fékk að láni geisladiskinn Óvitar en Kata okkar kom með hann í skólann. Við urðum frekar glöð og höfum nú þegar hlustað aðeins á hann.

7. september

Börnin fengu fyrsta heimanámspakkann sinn með sér í dag. Skiladagur er nk. föstudag.  Grettir er einnig kominn í umferð og fékk hann að fara með Sigurgeir heim þessa vikuna.

Meðfylgjandi í heimanámsmöppunni er einnig miði með upplýsingum um nk. mánudag en þá fara börnin í sund. Unnið er að betrumbótum á stundatöflunni og vonumst við til að geta sent nýja töflu með þeim heim á mánudag.

Góða helgi!

6. september

Til okkar komu tveir nemar í dag og fengu að fylgjast aðeins með okkur.  Unnum við í stærðfræðihefti þar sem við erum að æfa okkur í tölunum. Svo var unnið í skrift.  Jörðin var umræðuefni dagsins og var það mjög skemmtilegt.  Við ræddum um allt milli himins og jarðar, bókstaflega!  Það væri mjög gott ef þið gætuð aðeins spjallað um jörðina næstu daga, börnin geta þá jafnvel komið upp og frætt okkur hin :-) Það sem kom m.a. fram var að jörðin væri hnöttur, heimsálfurnar, norðurlöndin, hvað er þjóð, tungumál, veðurfar og síðast en ekki síst aðdráttaraflið! Sem þeim fannst mjög spennandi.

3. september

Í gær fengu börnin heimsókn, litla dóttir mín fékk að vera hjá okkur í fyrstu kennslustund. Við unnum í stærðfræði, skrift og svo aðeins í sólkerfinu. Næsta viðfangsefni okkar verður svo Jörðin. 

Enn vantar eitthvað af skóladóti hjá börnunum, minni á flautuna sem á alltaf að koma í skólann á föstudögum.  Arnór tónmenntakennari vill að börnin æfi sig heima á milli tíma og því er betra að hafa flautuna í töskunni. Blað mun fylgja fyrsta heimanámspakkanum :-)

Lestrarbækurnar komu heim með börnunum í gær og minni ég á mikilvægi þess að lesa daglega.

31. ágúst

Þá er vikunni lokið og allir fóru glaðir í helgarfrí.  Í vikunni unnum við mikið með sólkerfið, föndruðum m.a. geimfara sem er í töskum barnanna.  Í dag byrjuðum við að mála sólkerfið og ætlum að hengja það upp í næstu viku. 

Við fengum viðbót við bekkinn í dag, en ný stúlka að nafni Sólbjört er komin til okkar.  Hún hefur búið á Kanaríeyjum undanfarin ár og stundað þar skóla.  Börnin biðu spennt eftir henni í dag og tóku henni mjög vel.  En það kom mér svo sem ekki á óvart, þau eru svo indæl.

Heimalesturinn fer af stað í næstu viku. Björg mun senda bækur heim með þeim nk. mánudag.

Fallegt ljóð sem ég las fyrir börnin um sólina.
Þegar sólin er að vakna
og næturgalar næturinnar sakna
þá morgunn kallar á börnin sín
komið þið hingað snöggvast til mín,
því morgunn gefur birtu í mund
og ljós og líf sér hverja stund.
 
Þegar ljósið lifir og eigi deur
þá blómstrar heimurinn meir og meir
og fjöllin blasa við há og stór
og í trjánum syngur fuglakór
og blómin eru gul og rauð
og grasið fyrir kind og sauð.

28. ágúst

Í dag gerðum við skemmtilega tilraun/könnun.  Við fórum út á horn og töldum fjölda bíla, fólks o.fl sem fór fram hjá okkur.  Ætlunin er að vinna meira með það á morgun. 

Við byrjuðum á landnámsaðferðinni i dag (nánar kynnt á námsefnakynningunni) ræddum um geiminn. Komu margar skemmtilegar íhuganir fram.  Ótrúlegt hvað þau vissu mikið um geiminn.

27. ágúst

Dagurinn byrjaði á skriftaræfingum en svo snérum við okkur að stærðfræði. Börnin fengu nýja bók, Einingu 3.  Einnig var fyrsti hópatíminn og gekk allt vel :-)

24. ágúst

Hæ, hæ nú erum við loksins byrjuð aftur.  Síðustu tveir dagar hjá okkur hafa verið á rólegu nótunum. Börnin eru svona að koma sér fyrir og gaman að sjá hvað börnin taka vel á móti nýju nemendunum. 

Hópastarf fer af stað nk. mánudag en upplýsingar í hvaða tíma börnin fara eru á stundatöflunni. 

Því miður getum við ekki enn svarað varðandi heimaakstur og því mælumst við til að þið náið í börnin ykkar á mánudaginn.  Vonandi getum við sagt ykkur gleðifréttir í næstu viku.

 

 

Umsjónarkennari: Ingibjörg Ólöf Isaksen