|
1.
Hönnun á kennsluvefjum/ vefsíðugerð 1.2.Vefleiðangur
minn fyrir frístundanám heitir Gítarnám
og er fyrir 10 ára börn. Hér læra krakkar undirstöðuatriði
í gítarleik og er gert ráð fyrir að þeir
kunni lítið þegar þeir byrja. 1.3. Kennsluefni á vef. Hér er verkefnið Abstrakt á Íslandi. Ég hugsa þetta námsefni fyrir nemendur mína sem eru í verkefnavinnu og nota þessar upplýsingar í sinni upplýsingaleit um abstrakt-myndlist á Íslandi. Með tímanum kem ég til með að setja inn fleiri verkefni í þetta námsefni. 1.4.Þarfagreining.
Ég skoðaði vef Háskólans á Akureyri
með það é huga að finna námskeið
á haustönn sem gæti komið í stað námskeið
við KHÍ, en ég finn ekkert áhugavert á
haustönninni þar. Síðan var mjög almenn og
gaf ekki möguleika á að nálgast þær
upplýsingar sem þurfti til að hægt væri
að sjá hvort slíkt námskeið væri
í boði í HA í haust á nýju brautinni
sem nú er að hefja starfsemi sína. Prófun verkfæra:
Ég hef prófað nokkuð margt af þeim verkfærum
sem bent hefur verið á á námskeiðinu en
hef ekki verið mjög dugleg að tjá mig um það
á webboard þó ég hafi fylgt með í
öllu því sem þar var verið að gera hverju
sinni. Sumt gekk vel en annað þurfti meiri yfirlegu eins og
gengur. Hér nefni ég hluta þess sem ég gerði. Ég fékk mér
frítt vefsvæði á Netinu hjá geocities.com,
email.com, homesite.com og freehompage.com - en efni þeirra síðna
er ekki sýningarhæft hér og nú, en verður
það seinna. Mér finnst mis auðvelt að vinna
slíkar síður eftir svæðum, annað hvort
á Netinu eða senda inn með FTP- forriti, sem flestir
bjóða upp á að gert sé. 1.5.
Margt af þessu hef ég verið að prófa, en
er ekki endanlega tilbúin með. Seinna set ég það
á vefsíðu - fyrr en varir.
2.
Námsumhverfi á Vefnum.
Hér er mín áætlun um verkefni þar sem
notuð er tölvu- og upplýsingatækni við verkefnavinnuna.
Ég er mjög upptekin af því að koma tækninni
inn í mína kennslu, nemendum mínum til hagsbóta
og tilbreytni frá hefðbundinni verkefnavinnu. Það
er viðmiðið í aðalnámskránni að
tölvu- og upplýsingatæknin verði innleidd í
allar námsgreinar í grunnskólanum. Ég hef
orðið fyrir miklum áhrifum frá eWizard verkefninu
og langar að takast á við eitthvað slíkt.
3. Netsamskipti. Hér teljast væntanlega öll mín samskipti og umræðuframlög á Webboard
4. Nýting í skólastarfi. Hér sendi ég inn umbeðinn fjölda umræðuframlaga á Webboard. Einnig sendi ég inn umræðuframlög á Evrópska skólanetið, bæði á ráðstefnuna Save og líka um eWizard. Þetta var mjög lærdómsríkt og gaman að hafa gert þetta þó það væri tímafrekt. Einnig tók ég þátt í eigindlegu rannsóknarverkefni, þar sem ég skoðaði netnotkun fjögurra nemenda, skráði inn kóða og skilaði svo inn skýrslu um framkvæmd rannsóknarinnar.
5. Valið verkefni: Verkefnið sem ég valdi að gera er Listavefur. Þetta er hugsað sem efnisbanki fyrir mína nemendur. Margir nemendur lesa ekki erlend tungumál og geta því takmarkað sótt á Netið. Ég sé verkefnavinnuna þannig að kennarinn þurfi að útbúa gagnabanka og þetta er byrjunin hjá mér. Þetta er almennt námsefni í listasögu með vísun í söfn, listamenn og listastefnur.
Síðast
uppfært
31-05-2001
|
|||