|
Valtýr Pétursson fæddist
á Grenivík árið 1919. Hann lærði
verslunarfræði og stundaði listnám jöfnum
höndum. Jafnframt því að vera í Verslunarskóla
Íslands í tvo vetur stundaði hann nám í
teikningu hjá Birni Björnssyni teiknikennara í
Reykjavík. Hann fór síðan utan og stundaði
verslunarnám, og nam mósaíkgerð hjá
G. Severini í París 1956 - 1957. Valtýr var
í hópi þekktustu myndlistarmanna hér
á landi um og eftir miðja öldina. Hann var einn
af brautryðjendum í abstraktlist á Íslandi
og einn af stofnendum Septemerhópsins og tók þátt
í sýningum hópsins á óhlutbundinni
myndgerð. Hann vann steinfellumyndir með íslenskum
grjótflísum. Valtýr lést árið
1988
|
|
|