|
J. M. W. Turner fæddist á
Englandi árið 1775. Turner var talinn mjög efnilegur
teiknari í æsku, en undi sér illa í
skóla.
Hann er einn af þekktustu
málurum rómantíska tímabilsins í
listasögunni og voru myndir hans umdeildar af samtíðarmönnum,
sem töldu hann vera klessumálara.
Turner vann grafíkmyndir
sem hann seldi og lifði á, málaði vatnslitamyndir,
og um 1830 fór hann að mála myndir með olíulit
samhliða vatnslit, málaði þá mjög
þunnt og gegnsæ lög.
Túlkun hans á birtu
- sólarljósinu - er einkennandi fyrir myndsköpun
hans og er sem viðfangsefnið sé baðað geislum
sólar og er myndin "The Fighting Téméraire
Towed to her Last Berth" (1838) gott dæmi um þessa
túlkun hans - einnig myndin "Northam Castle".
Turner lést árið
1851.
|