Þorvaldur Skúlason
Til baka

Þorvaldur Skúlason fæddist á Borðeyri en ólst upp á Blönduósi til fimmtán ára aldurs. Þá gerðist hann messadrengur á sjó og fékk tækifæri til að skoða listasöfn í Kaupmannahöfn og Edinborg. Þorvaldur fór utan til náms og nam við listaháskólann í Osló 1927 - 30 og síðan í tvö ár í París. Eftir það dvaldist hann í Kaupmannahöfn, á Ítalíu og í Frakklandi. Árið 1940 kom hann heim til Íslands alkominn.

Þorvaldur er einn af frumkvöðlum abstraktlistar á Íslandi. Hann hafði lag á að einfalda myndbyggingu og lét smáatriði ekki raska henni því hann leit á myndflötinn sem eina heild. Þannig dró hann fram aðalatriði myndefnisins og samspil lita og forms varð aðalatriði. Smám saman fjarlægðust myndir hans hlutbundið form og urðu loks með öllu óhlutbundnar. Þorvaldur tengdi íslenska myndlist evrópskri list og hafði mikilvægu hlutverki á genga í íslenskri listasögu.
Þorvaldur lést árið 1984.

Síðast uppfært 20-05-2001
© Aðalbjörg María Ólafsdóttir