Svavar Guðnason
Til baka

Svavar Guðnason fæddist á Höfn í Hornafirði árið 1909. Hann fór til Kaupmannahafnar árið 1935 og stundaði nám við Konunglega listaskólann þar í borg og var næstu 16 árin - fyrir utan ársdvöl í París á árinu 1938. Fimmti áratugurinn er talinn mikilvægasta tímabilið í list Svavars því þá varð hann þátttakandi í að þróa nýja listastefnu og hann varð einn af brautryðjendum í norrænni og evrópskri abstraktlist.

Árið 1945 hélt Svavar sýningu á Íslandi sem vakti mikla athygli og markaði tímamót í íslenskri myndlist. Svavar flutti aftur til Íslands árið 1951. Hann er álitinn í fremstu röð íslenskra listamanna og er einn af fáum sem hafa öðlast alþjóðlega viðurkenningu. Svavar lést árið 1988.

Síðast uppfært 20-05-2001
© Aðalbjörg María Ólafsdóttir