|
Sölvi Helgason fæddist
að Fjalli í Sléttuhlíð í Skagafirði
árið 1820. Hann var sonur fátækra hjóna
og missti föður sinn fjögurra ára og var komið
í fóstur sex ára. Móðir hans lést
þegar hann var fjórtán ára. Þetta
kann að hafa haft áhrif á drenginn því
hann er ekki sagður hafa verið auðsveipur og hlýðinn
í æsku. Hann var sakaður um ýmis ólögleg
athæfi s.s. stuldi, fölsun á vegabréfi
og var árið 1854 sendur í betrunarhús í
Kaupmannahöfn til að afplána dóm fyrir stuld
á busum prestsins og tveimur bókum. Þar var
hann til ársins 1858. Sölvi hafði mikla löngun
til að nálgast bækur og fróðleik og
gerði margar myndir á pappír. Myndirnar eru flestar
gerðar á pappír sem ekki hefur verið ætlaður
til myndgerðar og er myndefnið yfirleitt sótt í
jurtaríki náttúrunnar, blómamunstur
og teikningar sem oftast eru málaðar með vatnslitum.
Í litina mun hann hafa keypt litarefni og soðið og
blandað litina sjálfur og hafa þeir varðveist
ótrúlega vel.
Sölvi lést árið 1895.
|
|
|