Snorri Arinbjarnar
Til baka

Snorri Arinbjarnar fæddist í Reykjavík árið 1901. Hann fór utan til náms og stundaði nám í einkaskóla Viggos Brandt í Kaupmannahöfn 1923-24 og hjá Axel Revold við Ríkislistaskólann í Osló á árunum 1927- 29 og 1930 - 31.

Snorri málaði aðallega olíumálverk og voru myndirnar gæddar þrótti og birtu sem fengu áherslu í myndbyggingunni og litameðferðinni. Hann gerði einnig nokkrar dúkristumyndir sem aðallega voru húsa- og götumyndir.

Snorri er einn þeirra brautryðjenda nýrra viðhorfa á Íslandi sem sögðu að myndin ætti að lifa sínu eigin lífi en þyrfti ekki að vera nákvæm eftirlíking raunverulegra hluta og hefur innra gildi. Myndir hans teljast hlutbundnar en formið hafði á millistríðsárunum þróast í átt að hinu óhlutbundna.

Snorri lést árið 1958

Síðast uppfært 20-05-2001
© Aðalbjörg María Ólafsdóttir