Sigurður Guðmyndsson - málari
Til baka
Sigurður Guðmundsson fæddist árið 1833. Hann sigldi til Kaupmannahafnar og lærði þar málaralist m.a. við Listaháskólann. Hann kom heim árið 1958 og bjó síðan í Reykjavík. Sigurður er með fyrstu menntuðu málurum þjóðarinnar en í málverkum hans og teikningum sem varðveist hafa gætir áhfrifa frá nýklassík. Hann var mikilvægur brautryðjandi í leiklist og gerði leikmyndir m.a. við "Útilegumennina" eftir Matthías Jochumsson og eru leikmyndir hans taldar vera fyrstu íslensku landslagsmyndirnar. Sigurður barðist mikið fyrir varðveislu þjóðlegra verðmæta og var helsti hvatamaður að stofnun fornminjasafns Íslands sem síðar varð Þjóðminjasafnið, og varð fyrsti starfsmaður þess. Hann endurnýjaði og hannaði íslenska þjóðbúninginn m.a. í því skyni að vekja þjóðernisvitund. En Sigurður var í ýmsu langt á undan sinni samtíð og setti fram ýmsar skipulagshugmyndir fyri Teykjavík sem ´síðar urðu að veruleika. Sigurður lést árið 1874.
Síðast uppfært 29-04-2001
© Aðalbjörg María Ólafsdóttir