|
Pablo
Picasso fæddist í Malaga á Spáni
árið 1881. Faðir hans var teiknikennari og kenndi
syni sínum undirstöðuatriði í málaralistinni.
Picasso hafði ekki áhuga á neinu öðru
námi.Þegar hann
var 14 ára fluttist fjölskyldan til Barcelona og þar
fékk Picasso fyrstu vinnustofuna sína.
Erfitt er að staðsetja Picasso
í einhverjum stíleinkennum eða tækni því
hans vinna spannar vítt og breitt um sviðið. Hann
gat unnið með hvaða miðli og tækni sem hentaði
til listsköpunar.
Listsköpun Picasso er gjarnan
skipt í tímabil og má þar nefna bláa
tímabilið, bleika tímabilið, tímabil
formmótunar og áhrifatímabil frá afrískri
list. Árið 1907 gerir hann svo tímamótaverkið
"Stúlkurnar frá Avignon", sem verður
upphafið að Cúbismanum sem átti eftir að
gjörbylta öllum viðhorfum í samtímalistum.
Að mótun þess stíls vann Georges Braque
með Picasso.
En list hans þróaðist
áfram og gekk hann í gegn um hvert breytingatímabilið
eftir annað, ný-klassískt, súrrealískt.
Hjá myndlistamönnum
gætir gjarna áhrifa frá umhverfinu og Picasso
fór ekki varhluta af þeim áhrifum frá
samfélaginu og má glöggt sjá það
í myndinni "Guernica" sem hann málaði
árið 1937, því efni myndarinnar er sótt
í loftárás á bæinn Guernica
um það leiti.
Picasso er einn frægasti myndlist
tuttugustu aldarinnar og um leið sá allra frumlegasti,
og er framlag hans til myndlistar ómetanlegt.
Picasso lést árið 1973.
|