Nína Tryggvadóttir
Til baka
Jónína (Nína) Tryggvadóttir fæddist á Seyðisfirði árið 1913. Árið 1920 fluttist hún til Reykjavíkur þar sem hún fékk tilsögn í myndlist hjá Ásgrími Jónssyni og 1933 fór hún í kvöldskóla Finn Jónssonar listmálara og lærði hjá honum og Jóhanni Briem. Nína fór til Kaupmannahafnar í listnám 1935 og þaðan til Parísar 1939. Hún nam síðan í New York á árunum 1943 - 46. Nína var lengst af búsett í París og New York en kom oft heim til Íslands.
Nína Tryggvadóttir lést árið 1968.

Síðast uppfært 20-05-2001
© Aðalbjörg María Ólafsdóttir