|
Edvard Munch fæddist í
Noregi árið 1863. Hann átti erfiða æsku,
missti móður sína ungur og fylgdist með
systur sinni tærast upp og deyja aðeins fjórtán
ára.
Þessir atburðir áttu
eftir að hafa mikil áhrif á listsköpun
hans og hann gerði myndir af systur sinni t.d. "Sjúka
barnið" (1885-6), sem fékk mjög slæma
dóma fyrst þegar hún var sýnd en þykir
nú einstæð tilfinningarík tjáning
á eigin lífi og reynslu. Hann fæst við
ýmislegt í sálarlífi mannsins í
verkum sínum, sem hafði ekki áður komið
fram í listum.
Munch varð fyrir áhrifum
frá grafískum myndum Gauguin i Kaupmannahöfn
um 1894 og fór að vinna í grafík, nota
grófar aðferðir í tréristum sem urðu
mjög áhrifaríkar og var einkennandi hvernig
hann notaði æðarnar í viðnum til að
ná fram áferð. Í grafíklist er
hann talinn brautryðjandi og stórbrotinn listamaður
á því sviði. Hann vann einnig í
koparplötu og á litógrafískan stein.
Hann skapaði nýtískulega
tjáningu sem hafði mikið gildi fyrir expressioniska
grafík og þróun hennar.
Málverkin hanshafa einnig
hlotið mikla viðurkenningu og má þar nefna
"Stúlkurnar á brúnni" sem er gott
dæmi um þau snilldarverk sem hann vann. Verkum hans
var ekki tekið vel í Noregi.
Munch er talinn fyrirrennari Expressionismans
sem hófst í Þýskalandi og er nú
talinn einn mesti listmálari Norðulandanna og einn
af þeim fáu þaðan sem komist hafa á
blöð heimslistasögunnar.
Munch lést árið
1944.
|