|
Upphaf mótunarlistar má
rekja til mótunarlistar ísaldarmanna þegar
hún birtist í litlum kvenlíkneskjum sem skornar
voru í bein, mótaðar í leir eða höggnar
í stein. Þær kallast Venusarmyndir og hafa
yfir hundrað slíkar fundist á Spáni vítt
og breitt og algengari voru þær um austanverða
álfuna, allt til Síberíu.
Í þessum Venusarmyndum
er líkamslögunin afmynduð, kynferðiseinkenni
s.s. brjóst, lendar og kviður ýkt úr
hófi en mótun útlima vanrækt og andlitið
autt. Þær eru af mörgum taldar vera frjósemistákn
síns tíma.
Tíasetning sýnir að
Venusarmyndirnar eru ákaflega fornar, taldar vera allt
frá því 30 - 25 þúsund árum
f.Kr.
Allar götur síðan
hafa menn fengist við að móta í bein, leir
eða höggva í stein ýmsar myndir í
ninum ýmsu listastefnum (og eru hér nokkur sýnishorn).
|