Claude Monet
Til baka

Claude Monet fæddist í Frakklandi árið 1840.

Hann er talinn vera einn athyglisverðasti og djarfasti málari Impressionismans og telst til brautryðjenda í nútímalegri meðferð lita.

Hann töfraði fram á mjög persónulegan hátt birtustemmingar og litbrigði náttúrunnar fyrir áhrif ljóssins

Monet var kallaður málari vatnsins og málaði margar myndir af vatnaliljum á tjörn í garði við húsið sitt.

Frægustu myndir hans eru myndraðir af heybólstrum og af framhlið dómkirkjunnar í Rúðuborg og sýna þær viðfangsefnið á ýmsum tímum dagsins þar sem litirnir stjórnast af sólarljósinu.

Monet lést árið 1926.

Síðast uppfært 2-06-2001
© Aðalbjörg María Ólafsdóttir