|
Piet
Mondrian fæddist í Hollandi árið 1872.
Hann fékk snemma áhuga á teikningu og tók
teiknikennarapróf en starfaði aldrei við kennslu.
Hann stundaði listnám við Ríkislistaskólann
í Amsterdam. Hann notaði jarðlitina og myndir hans
voru huglægs eðlis.
Hann fór síðan
til Parísar 1912 og kynntist þar kúbismanum
en Mondrian vildi mála einfaldleikann og túlka hann
með fáum litum og vann að því ásamt
öðrum að móta nýjan stíl í
myndlist og byggingarlist. Sá stíll kallaðist
Neoplastismi (nýform).
Myndlist Mondrian þróaðist
út í að hann notaði lóðréttar
og lágréttar línur, frumlitina og svartan
og hvítan lit. Mondrian starfaði í De Stijl-hreyfingunni
og má sjá samlíkingu í myndum hans
og húsagerðarlist þess tíma. Á
efti árum fluttist hann til New York þar sem hann
málaði síðustu myndirnar sínar og
lést þar árið 1944
|