|
Henri Matisse fæddist í
Norður-Frakklandi árið 1869. Hann fór til
Parísar og stundaði listnám í kvöldskóla
árið 1891 - 92.
Hann varð fyrir miklum áhrifum
frá Impressionistunum en sú stefna náið
ekki tökum á honum. Verk Gauguins, Cézanne
og Van Gogh höfðu hins vegar mikil áhrif á
Matisse. Matisse var mjög fjölhæfur og var sífellt
að endurnýja sig í list sinni. Tjáningin
var honum mikilvægari en allar kenningar og stílar
en sú stefna sem helst tengist Matisse er Fauvisminn (1905
- 08).
Hann sneri frá punktískum
aðferðum Impressionistanna og fór að bera hreina
litina á strigann í stórum flötum. Verk
hans hlutu slæma dóma gagnrýnenda en þrátt
fyrir það öðlaðist hann viðurkenningu
og má segja að þessi stefna hafi komið Matisse
á rétta braut.
Matisse stofnaði einkaskóla
árið 1908 sem dró að sér marga elenda
listamenn, meðal annars Jón Stefánsson sem dvaldi
um tíma í þessum skóla. Þessi
skóli hafði áhrif á myndlist í
Þýskalandi, Norðurlöndunum og Austur-Evrópu.
Eftir Matisse liggja mörg myndverk
Matisse lést árið 1954.
|