|
Kristján
Davíðsson fæddist í Reykjavík
árið 1917 en er alinn upp á Patreksfirði.
Hann sótti kvöldnámskeið
í myndlist hluta úr vetri hjá Finni Jónssyni
1932 og sér um það leiti myndir eftir þýska
expressionista s.s. Kokoschka og Karl Hofer í þýsku
myndablaði. Hann stundar myndlistanám við einkaskóla
Jóhanns Briem og Finns Jónssonar á árunum
1935 - 36 og flyst til Reykjavíkur árið 1939.
Kristján var við myndlistanám
íBarnes Foundation í Merion, Filadelfíu og
University of Pennsylvania og fór oft til New York þar
sem hann sá vyndir eftir marga helstu samtímamálara
í Guggenheim safninu
Kristján er einn af brautryðjendunum
sem stóðu fyrir Septembersýningunum á
árunum 1947 - 52. Hann varð einn af þeim fyrstu
til að komast í sýnikennslu til margra helstu
meistara nútíma myndlistar og draga af þeirri
reynslu rökréttar ályktanir.
Rætur myndlistar Kristjáns
liggja í hlutbundnum expressionisma þeirra
Finns Jónssonar og Jóhanns
Briem og var Kristján í námi hjá
þeim af og til frá 1932 til 1936
|