|
Jóhannes
Sveinsson Kjarval fæddist á Efti-Ey í
Meðallandi árið 1885. Hann hélt til náms
til Kaupmannahafnar árið 1912 og stundaði nám
við Konunglega listaskólann til ársins 1918
er hann hélt aftur heim til Íslands. Hann dvaldi
einnig í London og á Ítalíu.
Kjarval mótað sér
afar persónulegan stíl í myndverkum sínum
og málaði landslagsmyndir á sérstakan
hátt, af hrauni og er oft sagt að hann hafi kennt Íslendingum
að horfa á og meta landið sitt. Hann ferðaðist
um landið og málaði og dvaldi þá oft
austur á Héraði en hann var alinn upp í
Borgarfirði eystri. Hann málaði einnig margar myndir
frá Þingvöllum.
Kjarval var mjög afkastamikill
listamaður og eftir hann liggur fjöldi olíumálverka
og teikninga, m.a. myndir af fólki gerðar með tússi,
blýanti og krít.
Hann var mjög sérstæður
maður svo að þjóðsögur mynduðust
um hann í lifanda lífi. Kjarvalsstaðir í
Reykjavík eru kenndir við þennan mikla listamann
og er þar geymt mikið safn mynda eftir hann.
Kjarval lést árið 1972.
|