Jóhann Briem
Til baka
Jóhann Briem fæddist árið 1907. Jóhann studnaði nám í Reykjavík og síðar í Þýskalandi - Dresden, þar sem hann stundaði nám í þrú ár og svo eitt ár til viðbótar að boði skólans vegna þess hve hann var mikill afburða nemandi. Hann málaði oft manneskjur og dýr en eldri myndir hans sýna gjarnan daglegar annir í sveitinni - oftast hlutbundið myndefni. Myndir hans tengjast Impressionisma og Expressionisma. Túlkun hans er mjög persónuleg og verður ekki eftiröpun af.náttúrunni í höndum hans. Túlkunin varð einfaldari eftir því sem leið á listferil Jóhanns, liturinn og formið náðu yfirhöndinni.
Eftir Jóhann liggja mörg málverk og einnig athyglisverðar myndskreytingar.
Jóhann lést árið 1991.
Síðast uppfært 23-05-2001
© Aðalbjörg María Ólafsdóttir