Impressionismi
Til baka

Impressionismi var fyrsta fráhvarf í túlkun listamannsins frá nákvæmri eftirlíkingu af fyrirmyndinni. Óþarfi var að útfæta hvert smáatriði í nákvæmri eftirlíkingu heldur nægði að túlka yfirbragð eða blæ fyrirmyndarinnar.

Þetta varð aðeins fyrsta skrefið því upp úr því opnaðist hugur manna fyrir nýjum hugmyndum. Menn fóru að kafa dýpra og finna út hvað væri blær, blæbrigði og hvernig mætti túlka hann án eftirlíkingar. Menn rannsökuðu samspil fyrirmyndar við sviðið og heilluðust af samspili ljóss, lita og línu.

Þessi þróun varð mönnum hvati til frekari dáða.

 

Síðast uppfært 20-05-2001
© Aðalbjörg María Ólafsdóttir